Alþýðublaðið - 12.03.1985, Side 3
Þriðjudagur 12. mars 1985
3
Frá fundi Jóns Baldvins á Hvolsvelli sl. sunnudag.
Leikfélag Garðabœjar:___
Nakiim maður og
annar á Kjólfötum
Leikfélag Garðabæjar liefur nú
verið endurvakið eftir nokkurra ára
hlé á starfsemi þess. Hefur það tek-
ið til sýningar hið þekkta verk
ítalska leikritaskáldsins Dario Fo,
Nakinn maður og annar á kjólföt-
um. Eru sýningar í Safnaðarheimili
Garðabæjar.
Þeir sem standa að Leikfélaginu
eru fyrst og fremst nemendur í Fjöl-
brautarskóla Garðabæjar en for-
maður þess er Skarphéðinn Gunn-
arsson.
Leikstjóri sýningarinnar á Nökt-
um manni og öðrum í kjólfötum, er
Valgeir Skagfjörð en aðstoðarleik-
stjóri Lovísa Vattnes.
Þórhallur Gunnarsson, Ólafur
Birgisson, Valdimar Óskarsson,
Ragnheiður Thorsteinsson, Geir-
laug Magnúsdóttir, Magnús Már
Magnússon og Unnur Magnúsdótt-
ir fara með hlutverk í sýningunni.
Leikmynd er eftir þá Óskar Guð-
mundsson og Jón Árnason. Frant-
kvæmdastjóri sýningarinnar er
Snorri Gíslason.
Úrbœtur 1
tryggingu lánskjaravísitölu stór-
hækkun vaxta og óverðtryggðum
launum er krafan sú að brugðist
verði strax við. Áhugamannasam-
tökin munu ekki verða neinn
saumakiúbbur — þau ætla ekki að
láta keyra sig niður. Þau lögðu ekki
fram á þessum blaðamannafundi
sérstakar tillögur til lausnar- vildu
ekki spilla fyrir mögulegu samstarfi
— en lögðu áherslu á að þau myndu
fljótlega láta heyra í sér aftur: Nú
væri verið að koma upp kerfi um
land allt, þar sem neyðarópin
glymja vegna þess að heil kynslóð
er að verða gjaldþrota.
Á fundinum var lögð fram svo-
hljóðandi greinargerð með kröfum
samtakanna:
Misgengi lánskjaravísitölu og
launa, háir raunvextir og skortur á
langtíma lánsfé ásamt slæmum
greiðslukjörum á fasteignamarkaði
hefur rofið eðlilegt samhengi i hús-
næðismálum.
— Ungu fólki sem kaupir hús-
næði í fyrsta sinn fækkar stöðugt.
— Ffúsbyggjendur og kaupend-
ur eiga i sífellt meiri erfiðleikum
með að standa í skilum af afborg-
unum, verðbótum og vöxtum af
lánum.
— Fólk sem fyrir nokkrum
árum fór út í húsnæðiskaup og
gætti þess vel að reisa sér ekki
hurðarás um öxl verður nú vegna
gerbreyttra forsendna að horfast í
augu við afborganir sem eru að
vaxa því yfir höfuð.
— Eigendur lítilla íbúða geta
ekki lengur skipt um íbúðir i sam-
ræmi við fjölskyldustærð eins og
tíðakast hefur. Unga fólkið er þvi
fast í litlu íbúðunum og eldra fólkið
horfir upp á verðfall húseigna sinna
og sér ekki hag í því aí minnka við
sig húsnæði.
Verðmunur 1
um. Tvær verslanir áttu alla vara-
hlutina, sem spurt var um og aðrar
tvær áttu 70% af þeim. í Ijós kom
að framboðið er heldur betra nú en
síðast þegar sambærileg könnun
fór fram á vegum Verðlagsstofnun-
ar fyrir rúmum fjórum árum.
í Verðkynningu Verðlagsstofn-
unar er einnig birtur samanburður
á verði nokkurra varahluta á íslandi
og í Noregi og Svíþjóð. Þar kemur
í ljós að verðið er alla jafna Iægra á
hinum Norðurlöndunum, í 48 til-
vikum af 54, enda eru aðflutnings-
gjöld 15—22% af smásöluverði
hérlendis en 0—3% í Noregi og Sví-
þjóð.
Verðlagsstofnun vill að það komi
skýrt fram að gæði varahlutanna
frá mismunandi framleiðendum,
eru ekki alltaf þau sömu. Þeir sem
vilja kynna sér þessa könnun nánar
er bent á að hún liggur frammi á
skrifstofu Verðlagsstofnunar,
Borgartúni 7 og hjá fulltrúum Verð-
lagsstofnunar úti á landi. Kostar
hún ekkert.
Vegna mikilla fyrirspurna varðandi inntökubeiðnir, vill
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur benda á, að skrifstofan
eropin mánudagatil föstudaga kl. 13—17. Sími 2 92 44.
Einnig getið þið sent inntökubeiðnir í pósti til Alþýðu-
flokksfélags Reykjavíkur. Heimilisfangið er: Alþýðu-
flokksfélag Reykjavíkur, Hverfisgötu 8—10,101 Reykja-
vík.
INNTOKUBEIÐNI
Ég undirrituð sæki hérmeð um að gerast félagi í
ALÞVÐUFLOKKSFÉLAGI REYKJAVlKUR
Jafnframt lýsi ég yfir því, að ég er ekki í neinu öðru
stjórnmálafélagi eða -flokki.
Nafn ........................
Fædd(ur) ......................................
Heimili ................................. Sími
Atvinna...............................Nafn.nr.
Vinnustaður...............................Sími
Fagfélag.......................................
Maki...........................................
Reykjavík,
(Undirskrift umsækjanda)
Meðmælendur:
Inntökubeiðni samþykkt
á stiórnarfundi hinn....
Inntökubeiðni samþykkt
á félagsfundi hinn......
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að gjald-
dagi söluskatts fyrir febrúar mánuð er 15. mars.
Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna ríkis-
sjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið 8. mars 1985.
Til sölu íbúðarhús
á Selfossi
Tilboðóskast í húseigninaSólvelli 3, Selfossi ásamt til-
heyrandi leigulóðaréttindum. Stærð hússins er
215,8 m2 (fbúðarhús 192,5 m2, bílskúr 23,3 m2) Bruna-
bótamat er kr. 2.800.000,-. Húsið verðurtil sýnis dagana
12. og 13. mars nk. milli kl. 4—7 e. h. Tilboðseyðublóð
liggjaframmi ástaðnum, áskrifstofu bæjartæknifræð-
ings Selfosskaupsstaðar og á skrifstofu vorri.
Kauptilboð þurfa að hafa borist skrifstofu vorri fyrir kl.
11:00, f. h. miðvikudaginn 20. mars nk.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Boicartujii 7. sími 25844
Útboð
Verkfræðingafélag íslands og Iífeyrissjóður VFÍ. óska
eftir tilboði i byggingu verkfræðingahúss frá botn-
plötu. Húsið er um 5600 m3, steinsteypt og einangrað
að utan.
Húsinu skal skila tilbúnu undir tréverk, frágengnu að
utan og með fullfrágenginni lóð. Verklok eru 1. júní
1986.
Tilboðin verðaopnuð áskrifstofu VFÍ. Sigtúni 7, þriðju-
daginn 2. aprfl 1985 kl. 11.
Útboðsgögn verða afhent hjá Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen, Ármúla 4, frá þriðjudegi 12. mars gegn
8.000,- króna skilatryggingu.
Auglýsing
um almenna skoðun ökutækja
í Reykjavík 1985.
Skráð ökutæki skulu færð til almennrar skoðunar 1985
sem hér segir:
1. a. Bifreiðir til annarra nota en fólksflutninga.
b. Bifreiðir, er flytja mega 8 farþega eða fleiri.
c. Leigubifreiðir til mannflutninga.
d. Bifreiðir, sem ætlaðar eru til leigu í atvinnuskyni
án ökumanns.
e. Kennslubifreiðir.
f. Lögreglu-, sjúkra- og björgunarbifreiðir.
g. Tengi-og festivagna, sem eru meiraen 1500 kg að
leyfðri heildarþyngd.
2. Aðrar bifreiðir en greinir í lið nr. 1, sem skráðar eru
nýjar og í fyrsta sinn 1981 eða fyrr.
Sama gildir um bifhjól.
Auglýsing um skoðun léttra bifhjóla verður birt síð-
ar.
Skoðun fer fram virka daga aðra en laugardaga frá kl.
08:00 til 16:00 hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins, Bíldshöfða8,
Reykjavík, á tímabilinu frá 1. mars til 18. október:
1. mars til 29. mars ökut. nr. R-1 — R-15000
1. apríl ” 30. apríl n jj R-15001—R-30000
2. maí ” 31. maí jj jj R-30001 — R-43000
3. júní ” 28. júní jj jj R-43001 — R-55000
1. júlí ” 12. júlí jj jj R-55001—R-60000
26. ágúst ” 30. ágúst jj jj R-60001 — R-62000
2. sept ” 30. sept. jj jj R-62001 — R-70000
1. okt. ” 18. okt. jj jj R-70001 — R-74000
Við skoðun skulu ökumenn leggja fram gild ökuskírteini,
kvittun fyrir greiðslu bifreiðaskatts og vottorð um að vátrygg-
ing ökutækis sé í giidi.
Skráningarnúmer skulu vera vel læsileg. Á leigubifreiðum
skal verasérstakt merki með bókstafnum L, einnig gjaldmæl-
ir sem sýnir rétt ökugjald á hverjum tíma.
í skráningarskírteini skal vera áritun um það að aðalljós bif-
reiðar hafi verið stillt eftir 31. júli 1984.
Ath: í 2. tölulið er ártalið 1982 i stað 1981 í fyrri auglýsingu
sem er rangt ártal.
Lögreglustjórinn í Reykjavík,
25. febrúar 1985.
Sigurjón Sigurðsson.