Alþýðublaðið - 11.04.1985, Síða 4
alþýóu-
■ n et.tTiM
Fimmtudagur 11. apríl 1985
Úlgefandi: Blað h.f.
Stjórnmálaritstjóri og ábm.: Guðmundur Arni Stefánsson.
Ritstjórn: Friðrik Þór Guðmundsson og Sigurður Á. Friðþjófsson.
Skrifstofa: Helgi Gunnlaugsson og Halldóra Jónsdóttir.
Auglýsingar: Eva Guðmundsdóttir.
Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Rvík, 3. hæð.
Sími:81866.
Setning og umbrot: Alprent h.f., Ármúla 38.
Prentun: Blaðaprent, Síðumúla 12.
Áskriftarsíminn
sr 81866
Áhugamenn um úrbœtur í húsnœöismálum:
Umframgreiðslurnar
verði leiðréttar
Ahugamenn um úrbætur í hús-
næðismálum hafa ítrekað bent á
að vegna misgengis launa og láns-
kjara hafa mörg hundruð milljón-
ir króna verið lagðar aukalega á
lántakendur á undanförnum ár-
um og er með öllu óréttlætanlegt
að vísitölubinda lánskjör en ekki
laun. Með stórhækkun vaxta hafa
húsnæðiskaupendur jafnframt
verið neyddir til þess að reiða af
hendi mörg hundruð milljónir
króna umfram það sem eðlilegt
getur talist. Þær ráðstafanir sem
nú verði gripiö til miði að því að
leiðrétta þessar óréttmætu um-
framgreiðslur. Jafnframt verði
tryggt að misgengi af þessu tagi
skapist ekki í framtíðinni og að
raunvextir af lánum til húsnæðis-
kaupa verði aldrei hærri en 2%.
Ahugamenn um úrbætur í hús-
næðismálum benda á eftirfarandi
leið til lausnar þeim vanda sem
þegar hefur skapast. Líta ber á
hvern lið sem hluta af einni lausn.
a) Leiðrétting á umframgreiðsl-
um undanfarinna ára. Veittur
verði sérstakur skattaafsláttur
(verðtryggður) þegar á þessu
ári og á næstu árum til að
mæta þeim umframgreiðslum
sem þegar hafa átt sér stað. Af-
sláttur þessi geti komið til út-
borgunar hjá tekjulágum ein-
stakíingum. Honum skal jafna
niður á jafnlangan tíma og
umframgreiðslur mynduðust
hjá viðkomandi einstaklingi. í
lánakerfi Húsnæðisstofnunar
væri og möguleiki á að láta
umframgreiðslur síðustu ára
ganga upp í greiðslur næstu
ára.
b) Viðbólarlán frá Húsnæðis-
stofnun. Gefinn verði kostur á
viðbótarlánum á sömu kjörum
og til jafn langs tíma og hag-
stæðustu lán stofnunarinnar
eru veitt, til greiðslu lausa-
skulda vegna húsnæðisöflun-
ar, þ. e. a. s. skammtímalán
við banka, byggingavöruversl-
anir, byggingafyrirtæki og þ.
h. svo og til að greiða upp önn-
ur óhagstæð lán sem fólk hef-
ur neyðst til að taka í vandræð-
um sínum.
c) Skuldbreyting og lenging lána.
Gefinn verði kostur á skuld-
breytingu lána til að minnsta
kosti 8 ára á hagstæðustu
mögulegu lánskjörum og án
lántökukostnaðar. Fyrsti
gjalddagi þessara lána verði
6—10 mán. eftir skuldbreyt-
ingu, þannig að fólki gefist
svigrúm til að greiða gjald-
fallna heimilisreikninga.
Að síðustu er lögð áhersla á
nauðsyn þess að endurskipu-
leggja allt húsnæðislánakerfið.
M. a. verði séð til þess að láns-
hlutfall hækki, kaupendur gam-
als og nýs húsnæðis sitji við sama
borð og endurgreiðslukerfi taki
mið af þróun kauptaxta.
Hjörtur Pálsson um uppsögn sína:
Óeðlilega staðið að málum
Hjörtur Pálsson hefur sent frá sér
ítarlega greinargerð um uppsögn
sína á forstjórastarfi við Norður-
landahúsiö í Færeyjum. 27. mars
birti stjórn Norðurlandahússins í
Færeyjum fréttatilkynningu vegna
uppsagnar Hjartar, en hann sagði
upp stöðu sinni 6. mars, með
Þr'ggja mánaða fyrirvara eins og
heimilt er samkvæmt ráðningar-
samningnum. I fréttatilkynning-
unni er uppsögn Hjartar tekin til
greina og hann beðinn að láta tafar-
laust af störfum. I greinargerð
sinni, segir Hjörtur, að í fréttatii-
kynningunni komi fram ásakanir af
hálfu stjórnarinnar, sem hann geti
ekki látið ósvarað undir núverandi
kringumstæðum.
í fréttatilkynningunni frá stjórn-
inni er Hjörtur sakaður um að hafa
leitað til fjölmiðla með ásakanir á
hendur starfsfólki og stjórn húss-
ins. Hjörtur segist aldrei hafa haft
samband við fjölmiðla að fyrra
bragði og að hann hafi ekki ætlað
sér að véita þeim upplýsingar um
það sem að baki bjó fyrr en stjórnin
hefði fengið um það- meiri vitn-
eskju. Afturámóti hafi uppsögnin
Nýlega kom út Tölfræðihandbók
Norðurlanda 1984 — Yearbook of
Nordic statistics. Þar er meðal ann-
ars að finna fróðlegar tölur um
fóstureyðingar í þessum löndum og
má þar sjá að Grænlendingar eru
hvað fóstureyöingar varðar efstir á
blaði, en íslendingar neðstir.
Tölurnar yfir fóstureyðingar á
Grænlandi eru reyndar all hrikaleg-
ar. Árið 1978 voru þar framkvæmd-
vakið svo mikla athygli að hann
vildi ekki neita með öllu að svara
ákveðnum spurningum, sem fyrir
hann voru lagðar um ástæður upp-
sagnarinnar, allra síst eftir að vara-
ar rúmlega 435 fóstureyðingar á
móti hverjum 1000 lifandi fæddum
börnum, en 1983 var sú tala komin
upp í 584.8. Með öðrum orðum: Á
meðan 10 börn fæddust lifandi fóru
fram nálægt 6 fóstureyðingar árið
1983. Samsvarandi tölur fyrir ís-
Iand eru: Árið 1978 fóru fram 109.3
fóstureyðingar á móti hverjum 1000
lifandi börnum fæddum, en 1983
var talan komin upp í 157.1, þannig
að á meðan 100 börn fæddust lif-
formaður stjórnarinnar þóttist
ekkert vita um þær í viðtali í Sosi-
alnum, en tæpri viku áður hafði
hann og tveir aðrir stjórnarmenn úr
Færeyjum átt fund með Hirti og
andi fóru fram tæplega 16 fóstur-
eyðingar.
í Danmörku fóru fram 1983
409.1 fóstureyðingar fyrir hverjar
1000 lifandi fædd börn, en sam-
svarandi tala fyrir Finnland var
199.7, fyrir Noreg 273.3 og fyrir
Svíþjóð 337. Meðaltalið fyrir þessi
6 lönd árið 1983 var því 326 fóstur-
eyðingar á móti hverjum 1000 lif-
andi fæddum, eða nánast 1 fóstur-
eyðing á móti hverjum 3 lifandi
öðru starfsfólki hússins, þar sem
ástæðurnar voru ræddar.
Þá segist Hjörtur standa við allt
sem haft er eftir honum beint í
blöðum en þar með segist hann ekki
taka ábyrgð á öllu sem staðið hefur
í blöðunum. Hann neitaði því að
taka til baka ummæli sín í blöðum
þegar stjórnarformaðurinn fór
fram á það.
Hjörtur greinir frá því hvernig
Framh. á bls. 3
fæddum.
Hvað aldur kvenna sem ganga í
gegnum fóstureyðingu er Grænland
einnig með sérstöðu. Á meðan fóst-
ureyðingar voru hlutfallslega al-
gengastar í aldursflokknum 20—24
ára á öðrum Norðurlöndum var
tíðnin hlutfallslega mest í aldurs-
flokknum 15—19 ára á Grænlandi,
þar sem t. d. árið 1983 gengu 6.5%
kvenna í þessum aldursflokki í
gegnum fóstureyðingu.
Fóstureyðingar á Norðurlöndunum:
1 á móti 3 lifandi fæddum
MOLAR
Þingmál
Rétt fyrir páskahlé stóðu mál
þannig að yfir 400 þingmál höfðu
verið flutt á Alþingi.
Þar af voru 156 fyrirspurnir,
111 þingmannatillögur, 65 stjórn-
arfrumvörp, 62 þingmannafrum-
vörp, 4 stjórnartillögur og 2
beiðnir um skýrslur.
Nýskráningar
Það er alltaf verið að stofna ný
fyrirtæki og vonandi að menn
haldi áfram að vera bjartsýnir.
Eins og þeir sem hafa stofnað út-
gerðafyrirtæki og nefna það
AKKUR með varnarþing á
Djúpavogi. Enda eiga þrír af sex
stofnendum fyrirtækisins heima
að SIGURHÆÐ þar í bæ, svo það
lítur allt vel út þar.
O, Guð
Guðrún Asmundsdóttir Iætur að
sér kveða á leiklistarsviðinu og
hefur nú stofnað einkafyrirtæki
undir nafninu Leikhús kirkjunn-
ar. Tilgangur: Leiksýningar um
trúarleg efni í kirkjum landsins.
Bankar
Það er alltaf verið að tala um
fjölgun banka og útibúa þeirra og
gera þó molar ráð fyrir því að eft-
irtalin ný fyrirtæki séu ekki í þeim
hópi: íslenski frímerkjabankinn,
þar sem Steinþór Ingvarsson er
„bankastjóri” og svo Vaxtabanki
íslands, þar sem ku eiga sér stað
fasteignaviðskipti og skyldur
rekstur.
Hið þríeina fyrirtæki
Hinn 20. febrúar síðastliðinn
gerðu Wilhelm Wessman og
Magnús Kjartansson það gott, er
þeir tilkynntu firmaskrá Reykja-
víkur um rekstur þriggja fyrir-
tækja sem þeir standa að um
sama hlutinn: að standa fyrir
söngva- og/eða dægurlaga-
keppni. Af hverju stofna þurfti
þrjú sameignarfélög vitum við
ekki, en þau heita Islenska
söngvakeppnin sf, Dægurlaga-
keppni íslands sf. og Söngva-
keppni íslands sf.
Hrein mey
í Lögbirtingablaðinu er greint frá
því að þess hafi verið óskað við
firmaskrár Reykjavíkur, „að
firmað VIRGO sf verði afskráð.
Af starfsemi hefur ekki orðið”.
Virgo þýðir sem öllum er kunnugt
hrein mey eða jómfrú. Það lítur
sem sé út fyrir að meyjarhaftið
hafi fokið og því ekkert orðið úr
starfsemi. . .
•
Of mikið basl
Annað fyrirtæki sem óskað hefur
eftir því að vera afmáð er fyrir-
tækið PÚL OG BASL, sem átti
heima í Kópavogi. Það lítur sem
sé út fyrir að það hafi verið allt of
mikið vesen að reka fyrirtækið,
eins og mönnum virðist hafa verið
ljóst frá byrjun, eftir nafngiftinni
að dæma. . .
Ameríka númer eitt.
Tímarit í Bandaríkjunum hefur
staðið að skoðanakönnun í 200
þjóðlöndum um í hvaða landi
væri best að búa. Dæmt var eftir
10 flokkum; efnahagsleg afkoma,
stjórnmálalegur stöðugleiki,
skattbyrði, menningarlíf, efna-
hagsástand, heilbrigði, frístund-
armöguleikar, þjónusta, umhverfi
og stjórnmálalegt/borgarlegt
frelsi. Gefa átti stig frá 1 upp í 10.
Sigurvegarinn? Bandaríkin auð-
vitað, með 87 stig af 100 möguleg-
um. Næstu lönd voru: Sviss (86
stig), Lictenstein (85), Monaco
(83), Andorra (81), Bermuda,
Frakkland (80), Bretland, Ítalía
(79), Kanada (78).
Mexíkó náði 60 stigum, Sovét-
ríkin 58, Kína 51. En fæstu stigin
komu í hlut Eþíópíu (14), Chad
(16), Angola, Afganistan (17) og
Sómalía (18).