Alþýðublaðið - 16.10.1985, Page 3
Miðvikudagur 16. október 1985
3
Trúnaðarmálin hans Steingríms:
Stefnan lak
í Moggann
„Þingmönnum Sjálfstœðisflokksins er ekki
treystandi fyrir neinu plaggi“ sagði forsætisráð-
herra síðast.
Fundurinn 4
og hvetur stjórnvöld til aö aðhafast
eitthvað í málinu áður en það verð-
ur um seinan.
Aðalfundur FUJ í Reykjavík tel-
ur að með þessum aðgerðum megi
bæta kjör þeirra bænda sem stunda
sinn búskap af myndarskap og
jafnframt megi líta björtum augum
til framtíðarinnar í landbúnaði ef
gripið verði til þessara löngu tíma-
bæru og sjálfsögðu aðgerða.
Menntamál:
í ljósi breyttra tíma og vaxandi
mikilvægis tölvunnar leggur Aðal-
fundur FUJ í Reykjavík áherslu á
aukna uppbyggingu og aðlögun
skólakerfisins á þessu sviði. í fyrsta
lagi þarf að bæta launakjör og að
stöðu kennara til þess að laða i þau
störf sem hæfustu einstaklinga. í
öðru lagi þarf skólakerfið að fylgj-
ast meira með þeim miklu breyting-
um sem nú eiga sér stað úti í heimi
í sambandi við menntamál. Skal
þar bent á aukna tölvufræði-
kennslu og notkun tölva í námi.
Einnig skal bent á endurskoðun
námsins í ljósi breyttra tíma þannig
að þau fög sem telja verður ekki
eins mikilvæg og þótti áður verði
gerð að valgreinum í stað skyldu-
náms eða hreinlega felld niður.
Fundurinn hafnar þeirri leið sem
felst í stofnun svo kallaðra „einka-
skólaþ þar sem hið opinbera greiðir
öli laun, gögn og aðstöðu, en skóla-
gjöld lögð á til þess eins að yfir-
bjóða launakjör kennara og mis-
muna nemendum.
Jafnréttismál
Aðalfundur FUJ'í Reykjavík 12.
október 1985 minnir á, nú í lok
kvennaáratugarins, að enn er langt
í land þegar jafnrétti kynjanna er
annars vegar.
Því miður er það staðreynd, að á
fjölmörgum sviðum hefur baráttan
ekki einasta borið lítinn árangur,
heldur afturför orðið. Þannig blasir
við að bilið milli launakjara karla
og kvenna er hætt að minnka og í
sumum atvinnugreinum farið að
aukast til muna á ný.
Þannig staðfestir t.d. Kjararann-
sóknarnefnd að á meðan tímakaup
verkakarla, skrifstofu- og af-
greiðslukarla hafi frá vori 1984 til
vors 1985 hækkað um 31—47%,
hækkaði tímakaup kvenna í sömu
störfum um 26—40%. Þannig jókst
munurinn á tímakaupi karla og
kvenna í skrifstofustörfum á þessu
tímabili úr 32.5% í 38.5%.
Fundurinn telur einsýnt, að þessa
þróun megi rekja fyrst og fremst til
kjararánsstefnu ríkisstjórnarinnar
og atvinnurekenda.
Aðskilnaður ríkis og
kirkju
Aðalfundur Félags ungrajafnað-
armanna í Reykjavík 12. október
1985 bendir á, að ríkissjóður getur
sparað sér hátt á annað hundrað
milljónir króna á ári með aðskiln-
aði ríkis og kirkju.
Fundurinn telur einsýnt, að þá
fyrst reynir á trúhneigð lands-
manna, að þjóðkirkjan standi á eig-
in fótum. Fundurinn leggur því til
að kirkjan verði aðskilin frá ríkinu,
verði gerð að sjálfstæðri stofnun og
skapi sér eigin rekstrargrundvöll.
Aldurstakmörk
Aðalfundur F.U.J. í Reykjavík,
haldinn 12. október 1985, leggur til,
að samhliða lækkun á kosninga-
aldri úr 20 árum í 18 ár lækki sömu-
leiðis aldurstakmörk til afgreiðslu i
áfengissölum ríkisins og veitinga-
húsum í 18 ár og að fermingaaldur-
inn sé miðaður við sjálfræðismörk-
in, sem eru 16 ár.
Hægri bylgja á undan-
haldi
Aðalfundur Félags ungra jafnað-
armanna í Reykjavík, haldinn 12.
október 1985, fagnar undanhaldi
hægri aflanna í Evrópu.
Yfir 20 milljónir manna eru nú
atvinnulausar í Evrópu. Flægri öfl
stjórnmálanna hafa víða verið við
völd í þessari heimsálfu, og stefna
þeirra hefur stóraukið atvinnuleysi
og breikkað bilið á milli ríkra og fá-
tækra. Fjöldi atvinnulausra jafn-
gildir því, að 11 af hundraði vinnu-
færra karla og kvenna fær ekki
störf. Meðal ungs fólks er hlutfallið
20 prósent.
Hin svokallaða frjálshyggju-
stefna náði talsverðum áhrifum á
tímabili, en er nú á undanhaldi.
Þann flótta verður að reka. Jafnað-
armenn og verkalýðshreyfingin
gegna lykilhlutverki í baráttunni
gegn ný-íhaldsstefnunni, hinu
óhefta markaðsherfi. Það verður
að gera lýðum ljóst, að frjálshyggj-
an er ekki hið sama og frjálslyndi.
Hægri sveiflan, sem farið hefur
um meginland Evrópu, hefur borist
hingað til lands. Gegn henni verður
að berjast með öllum ráðum. Hvar-
vetna hefur hún skilið þjóðfélög
eftir í sárum. Hún byggir baráttu
sína á „frelsi“ peninga- og mark-
aðsaflanna á kostnað hins vinnandi
manns. Fylgifiskurinn er atvinnu-
leysi og vinnuþrældómur þeirra,
sem eru svo heppnir af hafa at-
vinnu. Menning og menntun og fé-
lagslegar framfarir hafa staðnað i
ríkjum, þar sem fulltrúar frjáls-
hyggjunnar hafa farið með stjórn.
Nú eru hægri öflin á undanhaldi.
Því til sönnunar má benda á Grikk-
land, Ítalíu, Noreg, Svíþjóð og
Portúgal. Þannig mun einnig fara í
Vestur-Þýskalandi og Bretlandi í
kosningum 1987 og ’88. Þessari
þróun verður að fylgja eftir hér á
landi. Valkosturinn er samstaða
jafnaðarmanna og launþegahreyf-
ingarinnar um þjóðfélag réttlátrar
tekjuskiptingar, efnalegra framfara
og félagslegs réttlætis.
Félag ungra jafnaðarmenna í
Reykjavík skorar á allt ungt fólk að
athuga gaumgæfilega þá valkosti,
sem fyrir hendi eru í íslenskum
stjórnmálum og huga að reynslu
nágrannaþjóðanna af markaðs- og
frjálshyggju. Sérstaklega ætti ungt
fólk að kynna sér áhrif stefnu
breska íhaldsflokksins á breskt
þjóðlíf og hag ungs fólks. Þar hefur
formúla Miltons Friedmans fengið
að njóta sín í útgáfu Margaretar
Thatcher. Og þar hefur þessi stefna
dæmt sjálfa sig — til dauða.
Að lokum skal þess getið, að um-
fjöllun um borgarmál var frestað
og vísað til sérstaks félagsfundar
um borgarmál og borgarstjórnar-
kosningar, en sá fundur er á dag-
skrá 24. október nk.
Ný bókmennta-
verðlaun
Sænska akademían hyggst stofna
til nýrra bókmenntaverólauna í til-
efni af 200 ára afmæli akademiunn-
ar í apríl á næsta ári. Verðlaunin
verða að upphæð 100.000 sænskar
krónur og verða reyndar ekki ein-
skorðuð við bókmenntir. Að því er
segir í yfirlýsingu frá Akademíunni
verða þau veitt árlega, norrænum
rithöfundi eða öðrum sem starfi
innan áhugasviðs akademíunnar.
Sænska akademían var á sínum
tíma sköpunarverk Gústafs III og
var stofnuð 5. apríl 1786. Hlutverk
hennar var i öndverðu hugsað það
að halda uppi heiðri Svía á sviði
bókmennta og vísinda.
Mikil hátíðahöld eru nú í undir-
búningi vegna 200 ára afmælisins
og verður Grímudansleikur Verdis
m.a. sýndur í Óperunni í Stokk-
hólmi af þessu tilefni. Þessi ópera,
sem nú er reyndar á fjölunum í
Þjóðleikhúsinu, fjallar sem kunn-
ugt er einmitt um morðið á Gústaf
ifl, stofnanda akademíunnar.
Svarti listinn 1
fleiru, fer aðeins í hendur áhrifa-
manna innan bankakerfisins. Hinn
listinn, án upplýsinga úr banka-
kerfinu, er hins vegar til sölu á al-
mennum markaði og getur hver sem
er keypt hann fyrir 2.800 krónur.
Fyrir starfsleyfinu, sem Reikni-
stofu Hafnarfjarðar var veitt á sín-
um tíma, voru hins vegar sett
ákveðin skilyrði, m.a. að „aðgang-
ur að upplýsingum sé aðeins heimill
þeim starfsmönnum sem þörf hafa
á“.
Ekki er auðvelt að gera sér grein
fyrir því í hversu mörgum eintökum
reiknistofan selur svarta listann en
þær tölur sem Alþýðublaðið hefur
heyrt nefndar í þeSsu samhengi eru
frá 200 og upp í „þónokkur hundr-
uð, en þó undir þúsund“. Við þetta
bætast svo hátt í tvöhundruð eintök
af listanum sem unninn er af
Reiknistofu bankanna.
Hver lak trúnaðarmálinu
„Stefnuræða forsætisráðherra" í
Morgunblaðið?
Morgunblaðið birti í gær efnis-
atriði úr stefnuræðu Steingríms
Hermannssonar forsætisráðherra
— sem forsætisráðherra hefur af-
hent þingmönnum einum, stimpl-
aðri sem trúnaðarmál. Litlar líkur
eru á því að lekinn sé ættaður úr
herbúðum annarra en Sjálfstæðis-
manna, beint eða óbeint. Einhver
þingmanna flokksins hefur ekki
virt trúnaðinn.
Eða er kannski alls ekki litið á
stefnuræðuna sem trúnaðarmál
eftir allt? Og því engin ástæða til að
gera nokkuð í málinu?
„Þetta er afhent sem trúnaðar-
mál, merkt sem slíkt og gilda engar
sérreglur. Forsætisráðhera verður
sjálfur að meta hvort ástæða sé til
að gera eitthvað í málinu, en það
getur nú verið að ýmsir aðrir en
þingmenn viti um stefnuræðuna"
sagði Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son, forseti Sameinaðs þings er Al-
þýðublaðið bar málið undir hann.
Á hinn bóginn er það staðreynd, að
forsætisráðherra afhendir aðeins
þingmönnum stefnuræðuna.
Það varð eitt síðasta verk Matthí-
asar Bjarnasonar sem heilbrigðis-
ráðherra að veita heilsugæslustöð-
inni væntanlcgu við Drápuhlíð
starfsleyfi og heita því að gera sitt til
þess að stöðuheimildir næðu í gegn
við afgreiðslu fjárlaga. Ekkert
kemur fram í samþykkt heilbrigðis-
ráðherra um rekstrarfyrirkomulag
stöðvarinnar, en sem kunnugt er
lagði Heilbrigðisráð Reykjavíkur til
að reksturinn yrði í höndum einka-
aðila.
Að sögn Katrínar Fjeldsted,
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins og formanns heilbrigðisráðsins,
má reikna með því að rekstur
Drápuhlíðarstöðvarinnar verði eftir
hefðbundnum leiðum, þó hug-
mynd heilbrigðisráðs borgarinnar
um breytt rekstrarfyrirkomulag
væri ekki úr sögunni.
„Það var einmitt vegna þess að
við fengum ekki stöðuheimildir að
heilbrigðisráð Reykjavíkurborgar
lagði til að heilsugæslustöðin við
Drápuhlíð yrði rekin eftir öðrum
leiðum en hinum hefðbundnu. Út-
boð er ekki rétta orðið, við vildum
reyna rekstrarfyrirkomulag, þar
sem einkaaðilar nota fjármuni ríkis
og borgar, en bera ábyrgð á rekstr-
inum. Það kemur vel til greina að
reyna þessa leið í einhverri heilsu-
gæslustöð sem fyrir er, þannig að
þeir aðilar sem þar starfa beri
ábyrgð á rekstrinum," sagði Katrín.
Þess má geta, að Björn Frið-
finnsson, framkvæmdastjóri lög-
Bókasafnsvikan í
Eins og kunnugt er, hafa íslensk
almenningsbókasöfn kynningar-
viku frá 14,—20. október nk. í
Borgarbókasafni, bæði aðalsafni
og útibúum, verður ýmislegt á döf-
inni í tilefni þessarar viku. Má þar
t.d. nefna, að sérstök áhersla verður
lögð á safnkynningu fyrir þá, sem
gerast lánþegar þessa viku, og verða
leiðbeiningar um notkun spjald-
skrár og safnkosts o.fl. veittar
hverjum og einum nýjum lánþega
sérstaklega sé þess óskað. Yngstu
safngestunum verður ekki heldur
Ekki ér hér um einsdæmi að
ræða. Fróðlegt er að rifja upp mál
sem kom upp í janúar síðastliðn-
um, þá var plaggi frá Steingrími
lekið í Moggann. í samtali við NT
sagðist Geir Hallgrímsson ekkert
skilja í því hvernig trúnaðarmálið
lak í blað sitt (þar sem hann er
stjórnarformaður). Steingrímur
sjálfur var harðorður: Þingflokki
Sjálfstæðisflokksins er ekki treyst-
andi fyrir neinu plaggi (undanskildi
hann reyndar formann flokksins og
ráðherrana). Augu manna beindust
óhjákvæmilega að blaðamanni
Moggans í hópi þingmanna Sjálf-
stæðisflokksins, Árna Johnsen, en
hann neitaði öllu í samtali við Al-
þýðublaðið.
Það sem heita má grátbroslegast
við írúnaðarbrestinn þá, var að um
svipað leyti skrifaði Mogginn frétt
frá Indlandi, þar sem greindi frá
siðferðisskorti manna í æðstu stöð-
um þar, að ríkisleyndarmál væru
þar seld fyrir allt niður í eina
Wisky-flösku!
Hvaða þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins fékk Whisky-flösku að
þessu sinni?
fræði- og stjórnsýsludeilar borgar-
innar tók saman greinargerð um
hugmynd heilbrigðisráðs borgar-
innar og taldi hana stangast á við
gildandi lög. Einnig má geta þess,
að á fundi Heimilislæknafélags ís-
lands var felld tillaga um að styðja
hugmynd ráðsins.
Súpermann
felldi
meirihlutann
Samstarf Alþýðubandalags og
Framsóknarflokks í Hreppsnefnd
Hafnarhrcpps er sprungið, sam-
kvæmt því sem fram kemur i sam-
tali blaðsins Eystra-horns við Þor-
stein Þorsteinsson, Alþýðubanda-
lagi. Meirihlutinn þar hefur verið 5
fulltrúar þessara flokka gegn
tveimur fulltrúum Sjálfstæðis-
flokks.
Þorsteinn segir í viðtalinu að
málin hafi verið lengi að þróast í
þessa átt, meðal annars vegna ráðn-
ingar sveitarstjóra á sínum tíma,
„Hagvangsævintýris“ um úttekt á
sameiginlegum rekstri sveitarfélaga
Austurlands, samþykkta um stjórn
Hreppsmála og fleira. Ekki síst hef-
ur verið rifist að undanförnu um
ráðningu eftirlitsmanns fasteigna
Hafnarhrepps, en starf þetta er
kallað manna á milli „Súpermann".
Stöðuna hlaut Hákon Gunnarsson,
en Alþýðubandalagið vildi fá Sig-
urð Geirsson, húsvörð Heppuskóla.
Borgarbókasafni
gleymt í þessari viku, þar sem
brúðuleikhús verður væntanlega
með í „sögustundunum“ og er þar
ekki undanskilið Borgarbókasafn-
ið í Gerðubergi, þótt starfsemi hefj-
ist raunar ekki fyrr en á næsta ári í
því útibúi safnsins. Nánar verður
tilkynnt um brúðuleikhúsið síðar.
Alla vikuna verður heitt á könn-
unni fyrir safngesti. Vonast starfs-
menn Borgarbókasafns til, að
Reykvíkingar fjölmenni í bókasafn
sitt.
Sjóefnavinnslan hf.
Aðalfundur Sjóefnavinnslunnar hf. verður haldinn í
Veitingahúsinu Glóðin, Keflavik, föstudaginn 1. nóvem-
ber 1985 og hefst kl. 16.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
FÉLAGSSTARF
ALÞÝÐUFLOKKSINS
Sveitarstjórnarráðstefna
Alþýðuflokksins
Stjóm Sveitarstjórnarráðs Alþýðuflokksins boðar
til ráðstefnu sveitarstjórnarmanna og annarra
trúnaðarmanna Alþýðuflokksins f sveitarstjórnar-
málum Iaugardaginn16.nóvember nk.
Ráðstefnan verður haldin í félagsheimili Kópa-
vogs (2. hæð). Hún hefst kl. 10 að morgni og lýkur
kl. 4 sfðdegis. Dagskrá ráðstefnunnar er undir-
búningur að sveitarstjórnarkosningum f júnf
1986.
Dagskrá verður nánar auglýst sfðar.
Stjórnin.
Mótaðu stefnuna með okkur
Fiskveiðistjórnun
Kvótakerfi eða aðrir valkostir. Starfshópur um sjávarút-
vegsmál heldur fund um fiskveiðistjórnun miðvikudag-
inn 16. okt. kl. 17 i félagsmiðstöð jafnaöarmanna,
Hverfisgötu 8—10.
Allt áhugafólk velkomið.
Drápuhlíðarstöðin
fékk græna ljósið
en reksturinn verður með hefðbundnum hætti!