Alþýðublaðið - 16.10.1985, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 16.10.1985, Qupperneq 4
alþýðu- n fT'jT'm Miðvikudagur 16. október 1985 Alþýðublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavik Sími: (91) 81866, 81976 Útgefandi: Blað hf. Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.) Blaðamenn: Friðrik Þór Guðmundsson og Jón Daníelsson Framkvaemdastjóri: Valdimar Jóhannesson Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir Setning og umbrot: Alprent hf., Ármúla 38 Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12 Áskriftarsíminn er 81866 Aðalfundur Félags ungra jafnaðarmanna í Reykjavík: Skrípaleikur íhaldsins getur reynst þjóðinni dýrkeyptur Fáránleg stólaskipti í ónýtri ríkisstjórn leysa engan vanda Framhaldsaðaifundur Félags ungra jafnaðarmanna i Reykjavík var haldinn í félagsmiðstöð jafnað- armanna sl. laugardag. Fyrir fund- inum lágu margar ályktanir og tii- lögur og urðu um þær miklar um- ræður. Alþýðublaðið gerir hér grein fyrir helstu samþykktum fundar- ins. Stjórnmálaályktun Aðalfundur Félags ungra jafnað- armanna í Reykjavík, haldinn 12. október 1985, krefst þess að ríkis- stjórn Steingríms Hermannssonar segi þegar í stað af sér. Fádæma auðvirðilegur skrípaleikur for- manns og ráðherra Sjálfstæðis- flokksins undanfarna daga og vik- ur felur í sér hreinskilnislega viður- kenningu á því að ríkisstjórnin sé búin að vera, getulaus vegna inn- byrðis sundrungar. Stólaskipti ráð- herra Sjálfstæðisflokksins þjóna engum tilgangi öðrum en að hræra upp í einkavandamálum flokksins, en geta reynst þjóðinni afar dýr- keypt. Ráðherrum flokksins er fyr- irvaralaust skipað í málaflokka, sem þeir viðurkenna fullum hálsi að hafa ekkert vit á. Afleiðingarnar eru þegar farnar að segja til sín í hefndaraðgerðum fráfarandi fjár- málaráðherra, sem kappkostar nú að koma höggi á formann flokks síns. Afleit var stjórnin fyrir, en nú sest í fjármálaráðuneytið gallharð- ur frjálshyggjumaður, sem alinn hefur verið upp sameiginlega af Svo er komið, að það er ungu fólki ofviða að eignast húsnœði — þótt vinnuþrœlkun myrkranna á milli komi til. flokkseigendafélagi Sjálfstæðis- flokksins og Vinnuveitendasam- bandi íslands. Verðandi fjármála- ráðherra hyggur á stórkostlegan niðurskurð og beinir augum sínum fyrst og fremst að því velferðar- kerfi, sem jafnaðarmenn hafa átt drýgstan þátt í að byggja upp. Augu hans beinast að heilbrigðis- og tryggingamálunum, að því kerfi fé- lagslegrar samhjálpar, sem tryggja á afkomuöryggi þeirra sem standa höllum fæti í þjóðfélaginu. Þáttur Framsóknarflokksins í hringavitleysu þessari er sérlega ámælisverður; ríkisstjórnin á að heita undir forsæti og verkstjórn þessa flokks, en hann hélt að sér höndum á meðan óbreyttur þing- maður úr Sjálfstæðisflokknum skipaði nýja stjórn! Framsóknar- flokkurinn undirstrikaði rétt einu sinni, að honum er það ekkert til- tökumál hvernig ríkisstjórnin er á hverjum tíma skipuð, svo lengi sem hann er sjálfur innanborðs. Félagið hvetur kjósendur eindregið til þess að binda í næstu alþingiskosning- um enda á oddastöðu arkítekta Framsóknaráratugsins, sem nú hef- ur staðið yfir í rúm 14 ár. Fundurinn dregur í efa að ríkis- stjórnin verði á nokkurn hátt hæf- ari til að takast á við þann vanda sem hvarvetna blasir við — fremur má búast við því að stefni senn frek- ar í óefni. Helmingaskiptastjórnir Sjálfstæðisflokksins og Framsókn- arflokksins munu aldrei skila ár- angri, til þess eru þessir flokkar um of flæktir í hagsmunagæslu fyrir forréttindastéttirnar og auðhring- ana í landinu. Hin „nýja“ ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar tekur nú við þrotabúi rík- isstjórnar Steingríms Hermanns- sonar. Hún þarf að glíma við hrika- lega uppsöfnun erlendra skulda, hraðvaxandi hallarekstur ríkissjóðs og stórkostlegan yfirdrátt í Seðla- bankanum. Þverbrestirnir í þjóðfé- laginu af völdum sérhagsmuna- stefnu ríkisstjórnarinnar blasa hvarvetna við: Greiðsiubyrði hús- næðislána umfram laun leiðir af sér eignaupptöku fjölda heimila og bitnar fyrst og fremst á unga fólk- inu, sem verður að eyða bestu árum ævi sinnar í þrælkun — í skugga nauðungaruppboða, okurvaxta, ránskjaravísitölu og verðfalls eigna. Gagnvart hripleku skattsvikakerfi hefur ríkisstjórnin ekkert gert, heldur fremur ýtt undir ranglæti og spillingu í þeim efnum. Sukkið í milliliðakerfi landbúnaðarins hef- ur aldrei verið meira, neytendum og bændum til óbætanlegs tjóns. í sjávarútvegsmálum hefur forstokk- að ríkisforsjárkerfi festst i sessi. Hvers kyns fjárplógsstarfsemi blómstrar í verslun og viðskiptum. Fundurinn vœntir þess fastlega, að vinnuveitendur um land allt fylgi þessu fordœmiþegar í stað og virði þannig gildandi kjarasamninga. Helmingaskiptastjórn Sjálfstæð- isflokksins og Framsóknarflokks- ins hefur sagt launþegahreyfing- unni stríð á hendur. Átt hefur sér stað látlaus tekjutilfærsla frá launafólki til forréttindastéttanna og stórfyrirtækjanna. Kaupmáttur launa hefur verið færður áratugi aftur í tímann. Og það er einkum unga fólkið sem verður fyrir barð- inu á hinu vaxandi misrétti; fær að taka á sig afleiðingar hinnar skammsýnu og óskynsömu stjórn- arstefnu íhaldsaflanna. Félag ungra jafnaðarmanna í Reykjavík ítrekar, að fáránleg stóla- skipti í ónýtri ríkisstjórn mun eng- an vanda leysa. Hið eina rétta í stöð- unni er, að ríkisstjórnin segi tafar- laust af sér og að efnt verði til kosn- inga, þannig að við geti tekið ríkis- stjórn, sem í aðgerðum sínum þygg- ir á hugsjónum jafnaðarstefnunnar um frelsi, jafnrétti og bræðralag. Húsnæðismál Aðalfundur FUJ í Reykjavík, haldinn hinn 12. október 1985, krefst þess, að þegar í stað verði á raunhæfan hátt brugðist við því hörmungarástandi sem ríkir í hús- næðismálum landsmanna. Svo er komið að það er ungu fólki ofviða að eignast húsnæði — þó vinnu- þrælkun myrkranna á milli komi til. Niðurrif húsnæðismálakerfisins hófst á valdatíma ríkisstjórnar Sjálfstæðismanna, Framsóknar- manna og Alþýðubandalagsmanna 1980—1983, þegar framlög til bygg- ingarsjóða ríkisins og verkamanna voru stórskert. Núverandi ríkis- stjórn hefur á hinn bóginn aukið vandann til muna og breytt eðli hans, því um leið og kaupmáttur launa hefur verið stórlega skertur, hafa tekið við okurvextir og ráns- kjör. Árangurinn er augljós: Nauð- ungaruppboðum fer sífjölgandi og árangur erfiðisins lendir í höndum gróðaafla neðanjarðarhagkerfis- ins. Fundurinn krefst þess að Fram- sóknarmenn standi við stuðning sinn við tillögur Alþýðuflokksins um stighækkandi stóreignaskatt af hinum skattsvikna verðbólgu- gróða. Stóreignaskattinn skal nota til að endurreisa húsnæðiskerfið. Minnir fundurinn á ítrekuð lof- orð stjórnarflokkanna fyrir og eftir síðustu kosningar um að húsnæðis- lán nemi að minnsta kosti 80% af staðalverði íbúða og biður fólk að íhuga hversu þessi loforð hafa verið svikin; húsnæðislánin hafa aldrei verið lægri að raungildi. Fundurinn hafnar einhliða sér- eignarhyggju íhaldsins og áréttar að unga fólkið í landinu verður að fá að velja á milli mismunandi val- kosta í húsnæðismálunum. Skattamál Aðalfundur FUJ í Reykjavík, 12. október 1985, leggur áherslu á þá kröfu Alþýðuflokksins, sem hann hefur oftsinnis flutt frumvörp um á Alþingi, að tekjuskattur á almenn- um launatekjum verði felldur nið- ur. Þeim tekjumissi ríkisins má mæta á ýmsan hátt, meðal annars með niðurskurði ríkisútgjalda og sölu ríkisfyrirtækja, þar sem það Með núverandi kvótakerfi stefnir SÍS að því að fá umráðarétt yfir skiptingu fiski- kvótans. styðst við hagkvæmisrök. Einkum bendir fundurinn á ýmis sjálvirk út- gjöld ríkisins til „velferðarkerfis fyrirtækjanna". Aðalfundur FUJ í Reykjavík vill stórauka skattaeftirlit og fella niður undanþágur frá söluskatti. Þannig má lækka söluskattsprósentuna með verulegri lækkun verðlags í kjölfarið þar sem söluskatturinn er fyrir, en gera ráðstafanir til að styrkja barnamargar fjölskyldur, einstæða foreldra og öryrkja vegna mögulegrar hækkunar á nauð- synjavöru og nota til þess auknar tekjur af skilvirkari söluskattsinn- heimtu. Fundurinn telur að tekjum af stighækkandi stóreignaskatti á hina efnameiri í þjóðfélaginu megi verja til að stórbæta hið ónýta húsnæðis- kerfi, sem fullnægir engan veginn þörfum unga fólksins, sem er að reyna að koma þaki yfir höfuðið. Launahækkun Aðalfundur Félags ungra jafnað- armanna í Reykjavík, haldinn 12. október 1985, fagnar launaflokka- hækkun ríkisstarfsmanna, sem Sláturkostnaður er alltof hár og telur síðustu hœkkun hans móðgun og aðför að neytendum. metin er til þriggja prósenta launa- hækkunar. Ríkisstjórnin hefur með þessu undirstrikað, að henni hefur ekki tekist að ábyrgjast fyrir sitt leyti verðlagsforsendur kjarasamninga aðila vinnumarkaðarins frá því í sumar. Fundurinn væntir þess fastlega, að vinnuveitendur um land allt fylgi þessu fordæmi þegar í stað og virði þannig gildandi kjarasamninga. Sjávarútvegsmál Aðalfundur Félags ungra jafnað- armanna í Reykjavík, haldinn 12. október 1985, varar við þeirri þróun í sjávarútvegsmálum, að SÍS-veldið er i síauknum mæli að ná tökum á helstu atvinnugrein þjóðarinnar. Með skipulögðum hætti er Sam- bandið að leggja undir sig atvinnu- tækin í þessum atvinnuvegi. Með núverandi kvótakerfi stefnir SÍS að því að fá umráðarétt yfir skiptingu fiskikvótans innan fisk- veiðilögsögunnar. Þessa þróun verður að stöðva áð- ur en eins fer fyrir sjávarútvegnum og landbúnaðinum. Landbúnaðarmál Aðalfundur FUJ í Reykjavík 12. október 1985 telur að kvótakerfi landbúnaðarins sé ill nauðsyn. Hinsvegar er framkvæmdin víða ónýt eins og vill ævinlega verða þeg- ar stjórnmáladeild SÍS á í hlut. Tími er til kominn að hefjast handa við endurskipulagningu landbún- aðarins. Hætta að ausa fjármagni í hinn hefðbundna búskap — sauð- fjár og kúa. Hætta að horfa fram- hjá hinum svokallaða frístunda- búskap. Hætta að styðja sauðfjár- búskap þar sem hann hentar ekki, svo sem eins og viða á Suðurlandi, þar sem tíðkast að reka .sauðfé löngu fyrir slátrun af ofbeittum af- réttum á nýræktir til fitunar. Aðal- fundur FUJ í Reykjavík telur tíma Hin svokallaða frjálshyggja náði talsverðum áhrifum á tímabili, en er nú á undanhaldi. Þann flótta verður að reka. til kominn að forsvarsmenn land- búnaðarins fari að starfa í takt við daginn í dag, heldur en að ríghalda í vinnubrögð gærdagsins. Aðalfundur FUJ í Reykjavík tel- ur að sláturkostnaður sé allt of hár og telur síðustu hækkun hans móðgun við bændur og aðför að neytendum. Nær væri að greiða bændum meira fyrir afurðir sínar heldur en að ausa frekari fjármun- um í milliliðina. Aðalfundur FUJ í Reykjavík vill að gerð verði opinber rannsókn á hinum mikla kostnaði milliliða landbúnaðarins í ljósi þess að sífellt fá bændur minna í sinn hlut á sama tíma og verð til neyt- enda fer hlutfallslega hækkandi. Aðalfundur FUJ í Reykjavík lýsir yfir eindregnum stuðningi við þá sjálfsögðu kröfu Landssambands sauðfjárbænda að stjórn búvöru- deildar SÍS verði tekin úr höndum forstjóraveldis þess og að skipuð verði stjórn kjörin af bændum sjálfum, sem fái viðhlítandi völd. Því miður er það staðreynd, að á fjölmörgum sviðum hefur jafnréttis- baráttan ekki einasta borið lítinn árangur, heldur orðið afturför. —.......... .. Aóalfundur FUJ í Reykjavík vill að markaðssókn fyrir landbúnað- arvörur í útlöndum, m.a. í Ame- ríku, verði hraðað og til hennar vandað. Aðalfundur FUJ í Reykjavík var- ar við þeirri geysilegu landeyðingu sem á sér stað á afréttum landsins Framh. á bls. 3

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.