Alþýðublaðið - 02.11.1985, Blaðsíða 4
alþýðti-
Laugardagur 2. nóvember 1985
: Alþýðublaöið, Ármúla 38, 108 Reykjavík
Sími: (91) 81866, 81976
Útgefandi: Blað hf.
Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.)
Blaðamenn: Friðrik Þór Guðmundsson og Jón Daníelsson
Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson
Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir
Setning og umbrot: Alprent hf., Ármúla 38
Prentun: Blaóaprent hf., Síðumúla 12
Áskriftarsíminn
er 81866
Úr einu
Stórar íbúðir lækka
son) og erlend (frá Ungverjalandi,
Austurríki, Þýskalandi, Frakklandi,
og Ítalíu).
Páll Eyjólfsson lærði á gítar hjá
Eyþóri Þorlákssyni og stundaði
síðan framhaldsnátn hjá meistara
José Luis Conzales á Spáni. Kol-
beinn lærði flautuleik m.a. hjá
Manuelu Wiesler, í Basel og New
York.
Þeir félagar hafa spilað saman í
rúmt ár og hyggjast halda því áfram
enda eru gítarinn og flautan líkt og
sköpuð hvort fyrir annað og fyrir
löngu tímabært að þau fái að
hljóma saman á tónleikum hérlend
is.
í annað
Margt bendir til þess að jafnað-
arverð fasteigna verði í ár hið
lægsta frá árinu 1978 miðað við fast
vérðlag. Ætla mætti að hér væri á
ferðinni gleðifregn fyrir hina
mörgu sem nú leitast við að kaupa
sér nýjar íbúðir, en svo er þó ekki al-
farið, því það eru einkum stærri
ibúðir og húseignir sem lækkað
hafa.
Vegna mikillar eftirspurnar og
lítils framboðs hefur fasteignaverð
lítilla íbúða haldið sínu verðgildi að
mestu. Talsverður skortur er á
tveggja og þriggja herbergja íbúð-
um, sem ungt fólk sækir eðlilega
mest í.
Hversu litlar íbúðir eru hlutfalls-
lega mjög dýrar má rekja til skorts
á lánsfjármagni og lítilla breytinga
að vænta. Útborgunarhlutfall hef-
ur farið hækkandi á ný, þannig að
allt hjálpast til við að gera ungu
fólki erfitt fyrir að eignast þak yfir
höfuðið. Ríkisvaldið á mesta sök-
ina með húsnæðisstefnuleysi sínu
og ránskjörum, en einnig eiga sveit-
arfélögin sinn þátt í þessu, t.d. í
Reykjavíkurborg, þar sem meiri-
hluti sjálfstæðismanna miðar allt
við stór sérbýlishús. Og skipulag
lánamála er almennt þannig að
auðveldara er að fá lán til kaupa á
nýju húsnæði en eldra.
Viðtöl hafnfirskra bæjar-
fulltrúa
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hef-
ur ákveðið að taka upp að nýju sér-
staka viðtalstíma, þar sem bæjar-
fulltrúar verða til viðtals. Hverju
sinni eru tveir bæjarfulltrúar til
staðar í fundarherbergi á 2. hæð
ráðhússins, Strandgötu 6.
Þeir bæjarbúar, sem áhuga hafa
á að ræða um málefni bæjarfélags-
ins eða koma á framfæri hugðar-
efnum sínum, eru hvattir til að not-
færa sér þessa viðtalstíma.
Viðtalstímarnir verða fram til
áramóta annan hvern fimmtudag
frá kl. 17:00 til 19:00.
Viðtalstímarnir verða næst 14. og
28. nóvember og 12. desember.
Listakonur í Gerðubergi
Sunnudaginn 3. nóvember verð-
ur opnuð í Gerðubergi sýning á
myndverkum í eigu Reykjavíkur-
borgar eftir konur. Alls eru í eigu
Reykjavíkurborgar um 90 verk eftir
konur og hefur því verið ákveðið að
hafa sýninguna í tveim hlutum.
Fyrri hluti sýningarinnar opnar
eins og fyrr sagði sunnudaginn 3.
nóvember og verða sýnd þau verk
sem Reykjavíkurborg á eftir lista-
konur sem nú eru látnar. Má þar
nefna Barböru Árnason, Eyborgu
Guðmundsdóttur, Gerði Helga-
dóttur, Gunnfríði Jónsdóttur,
Júlíönu Sveinsdóttur, Kristínu
Jónsdóttur, Maríu H. O Iafsdóttur,
Nínu Tryggvadóttur, Ragnheiði
Jónsdóttur Ream og Vigdísi
Kristjánsdóttur. Sýning þessi er
gott tækifæri til þess að skoða verk
þessara ágætu listakvenna á einum
stað því almennt prýða þau veggi á
hinum ýmsu stofnunum Reykja-
víkurborgar. Sýningin stendur til
sunnudagsins 1. desember og er að-
gangur ókeypis. Seinni hluti sýning-
arinnar verður síðan í janúar.
Flauta og gítar í Gerðu-
bergi
Kolbeinn Bjarnason flautuleik-'
ari og Páll Eyjólfsson gítarleikari
munu koma fram á næstu sunnu-
dagstónleikum í menningarmið-
stöðinni Gerðubergi. Þeir munu
leika gömul verk og ný. Þau elstu
eru samin við upphaf 18. aldar, það
yngsta var samið í febrúar 1985.
Þetta eru þó allt afskaplega hefð-
bundin verk, innlend (eftir Atla
Heimi Sveinsson og Eyþór Þorláks-
Nú í ár hefur Húsnæðisstofnun reynt með ýmsu móti^
að koma þeim til aðstoðar sem hafa átt í verulegum örðugleikum með greiðslu húsnæðislána.
Nefna má viðbótarlán, sérstaka þjónustu ráðgjafa og greiðslujöfnun skulda.
í beinu framhaldi af þessari starfsemi allri mun stofnunin nú
efla mjög fræðslu- og upplýsingastarf til að aukin þekking forði fólki frá að leiðast
út í slíkar ógöngur.
ííj- RÁDGIAFARSIDÐ
VSX 1 ILS.Vr DISSIDINl IN..\K
hefur verið komið á fót
og forstöðumaður hennar er Grétar J. Guðmundsson, verkfræðingur.
Stöðin mun annast beina ráðgjöf til einstaklinga sem til hennar leita,
áður en þeir ráðast í að eignast húsnæði.
Hún mun aðstoða þá við gerð áætlana um fjármögnun og gefa þeim góð ráð í
hvívetna þannig að fullrar forsjár megi gæta í framkvæmdum.
Þá mun Ráðgjafarstöðin taka saman og gefa út fræðsluefni
um t.d. greiðslubyrði og gjaldþol. Einnig um tæknileg efni og ráð til sparnaðar
í byggingu húsnæðis og búnaði þess.