Alþýðublaðið - 06.05.1986, Qupperneq 1
alþýðu
IH FT' TT» mé
Þriöjudagur 6. maí 1986
85. tbl. 67. árg.
Skipaskoðun:
Athugasemd við
þriðja hvert
öryggisatriði
Keflavík:
„Verður ekki þolað“
— að togarinn hverfi úr byggðarlaginu, segir
Karl Steinar Guðnason. „Höfum ekkert gjafafé
hér lengurf segir Guðmundur Malmquist hjá
Byggðastofnun.
Nærri þriðja hvert atriði sem
skoðað var í skyndiskoðun Sigl-
ingamálastofnunar á fiskiskipum
sunnan- og vestanlands, reyndist í
ólagi. Tafarlausrar lagfæringar var
þó aðeins krafist í 6 tilvikum.
Skyndiskoðun þessi fór fram
dagana 15.—18. apríl og voru
könnuð öryggisatriði í 86 skipum. í
sex þessara skipa var öryggisbúnaði
svo ábótavant að krafist var tafar-
lausra úrbóta og fengu þau skip
ekki að halda áfram veiðum fyrr en
lagfæringar höfðu verið gerðar.
Öryggisatriðin sem skoðuð voru,
voru alls 621 að tölu og í alls 186 til-
vikum, (30°/o) reyndist eitthvað at-
hugavert við öryggisbúnáðinn. Sig-
urður Þórarinsson hjá Siglinga-
málastofnun, sagði í samtali við Al-
þýðublaðið í gær að í mörgum til-
vikum hefði verið um smáatriði að
ræða og yfirleitt ekkert mjög alvar-
legs eðlis, enda hefði ekki þruft
meira til en að björgunarhringur
væri illa merktur til að athugasemd
hefði verið gerð.
í þeim tilvikum sem skip fengu
að halda áfram veiðum, var þeim
gert að bæta úr, því sem athugavert
var talið, hið allra fyrsta og verður
eftir því gengið að svo sé gert.
Af einstökum atriðum sem at-
hugasemdir voru gerðar við, má ^
nefna legufæri, björgunarvesti og
bjarghringi, lokunarbúnað lesta,
brunadælur, slöngur og stúta.
Siglingamálastofnun hyggst
halda áfram skyndiskoðunum af
þessu tagi, en Sigurður Þórarins-
son, kvað ekki ákveðið hvaða
landshlutar yrðu teknir fyrir næst,
en sennilega yrðu það Vestfirðir og
Norðurland.
Þess má að lokum geta að örygg-
isbúnaður skipa er skoðaður reglu-
lega einu sinni á ári.
Greiðslubyrði þeirra sem kaupa
fasteignir eða hafa keypt á undan-
förnum árum og greitt að hluta með
óverðtryggðum skuldabréfum með
20% vöxtum, svo sem algengt hefur
verið, eykst verulega við lækkun
verðbólgunnar. Samkvæmt upplýs-
ingum sem fram koma í nýju frétta-
bréfi Fasteignamats ríkisins, gæti
greiðslubyrðin aukist samanlagt
i um 100 til 130 milljónir. í frétta-
„Það verður ekki þolað, að þessi
togari fari úr byggðarlaginu“, sagði
Karl Steinar Guðnason, alþingis-
maður og formaður verkalýðsfé-
lagsins í Keflavík, í samtali við Al-
þýðublaðið í gær. Skuldir frysti-
hússins í Keflavík, sem jafnframt
gerir út togarann, munu nú nema
um 300 milljónum króna og hefur
fyrirtækið sótt um lánveitingu frá
Byggðastofnun til að geta greitt út
gjaldfallið orlof ásamt fleiri lausa-
skuldum.
Karl Steinar sagði að um 150
myndu verða atvinnulausir ef þessi
starfsemi legðist niður, en það lægi
fyrir að ef ekki yrði þegar í stað
brugðist hart við, væri ekki um
annað að gera en selja togarann.
„Það er nöturlegt að svona skuli
komið á þeim stað sem fyrir 15 ár-
um var helsti vaxtarbroddur ís-
lenskrar útgerðar", sagði hann.
Karl Steinar sagði ennfremur að
1978 hefðu verið starfrækt 5 frysti-
hús í Keflavík, en nú væri þetta eitt
bréfinu er því haldið fram að verð-
gildi bréfa af þessari gerð sem gefin
hafa verið út undanfarin ár muni
nú vaxa um samtals á bilinu 350—
550 milljónir króna.
í fasteignaviðskiptum hafa þessi
skuldabréf hingað til yfirleitt verið
metin á 65—70% af nafnverði
þeirra og á verðbréfamarkaði hefur
sölugengi þeirra verið enn lægra og
Framh. á bls. 2
eftir. Þá hefði samtals nærri 5000
tonna afli horfið af Suðurnesjun-
um gegnum kvótasölur og með
skipum sem hefðu verið seld annað.
Um skuldastöðu fyrirtækisins,
sagði Karl Steinar að það skuldaði
nú milli 12 og 13 milljónir í orlof
sem þyrfti að greiðast út í þessum
mánuði.
Guðmundur Malmquist hjá
Byggðastofnun sagði í samtali við
Alþýðublaðið í gær að þar lægi fyr-
ir umsókn um lán til að borga orlof
og lausaskuldir. Hann sagði að
vandamál fiskvinnslunnar yrðu
rædd á fundi hjá stofnuninni í dag,
en hvað vanda þessa ákveðna fyrir-
tækis áhrærði, kvaðst hann ekki
reiðubúinn að tjá sig.
Guðmundur sagði þó augljóst að
fyrirtækið væri illa statt fjárhags-
lega, reikningar þess hefðu borist
Byggðastofnun í síðustu viku og
stofnunin myndi þurfa nokkurn
tíma til að yfirfara þá.
„En við höfum ekkert gjafafé hér
lengur eins og var á árum áður“,
sagði Guðmundur. „Þetta er allt
erlent lánsfé sem verður að endur-
greiða" •
Sigurbrosið fraus á vörum margra íslendinga semfyrir söngvakeppnina
höfðu verið býsna sigurvissir, en aðrir fylltust ákveðinni hrakfaragleði og
sögðu það nú hafa komið í Ijós sem hefðu haldið fram frá upphafi, að við
hefðum átt að senda Vögguvísu í keppnina.
Icy—tríóið fékk aðeins 19 stig og hafnaði i 16. sœti. Samkvœmt úrslitun-
um má nú telja sannað að í Frakklandi, Austurríki, ísrael og á Kýpur, séu
samin verri lög en hér, og má það verða landanum nokkur huggun.
Þess má geta að vísindaleg rannsókn Alþýðublaðsins á stigagjöfinni,
leiddi íljós að íslenska dómnefndin stóð sig nánast engu skár en söngsveit-
in. Miðað við fjölda frávika, hafnaði íslenska dómnefndin í 14. —16. sœti
með samtals 35 frávikfrá ”réttri“ stigagjöf. Ásamt okkur voru það Tyrkir
og Belgar sem deildu 14.—16. sœtinu, þannig að þegar öll kurl eru komin
tilgrafar, þá stóð íslenska dómnefndin sigjafn vel (eða illa) og sú belgíska,
þannig að við lentum eiginlega ísama sœti og sigurvegararnir, ogþað getur
nú ekki talist svo afleitt.
Óverðtryggð skuldabréf:
Hækka um 20—40%
— vegna lœkkandi verðbólgu. Greiðslubyrði
kaupenda eykst samanlagt um 130 milljónir af
þessum sökum.
Forheimskun
Um kvótakerfi og duttlungar skrifstofuherra
heillar þjóðar
eða frystur?
stewífeöM ■■ —-—
■nslakastafiskinum
í Véstmannneyjnr ""m'í"i’m
Grandfiröingareru
“ dæmdirtilað
drepast. með liiguni
Arrii Emilfson
,, | ............................. ...
■ •••.r;"7- ekkiíilað^.
E.r hráefnis' $ yeröi aiLiíflgg f^£ll m ,
fiskviniislu annamfl FEKMtrlSKUR ER
þjóða hlutverk okkaj
—i. ■
ítóraukinn
lutningur á
erskum fiski
.ftlAO IM IM n.O*
—
FULLUNNIN VARA
(^maútnuimngiu-fráKyjui'il hfinutrfcí:
!l W& Verulegur samclráttui
hiávinnslustöðvummi
Helstu trúarbrögð, sem lögleidd
hafa verið á íslandi eftir kristin-
dómi virðist vera kvótakerfið í fisk-
veiðum. Alræði þess og takmark-
anir eru heldur verri, en andlegra
hugmyndakerfa trúar eða póli-
tískra skoðana, vegna þess að að-
gangur er heftur og takmarkaður í
helstu lífsbjörg þjóðarinnar. Þess
lífsviðurværis, sem haldið hefur
landinu í byggð í tæplega 1100 ár,
og haldið lífi í þjóðinni, fiskimiðin
í kring um landið.
Dugandi menn til sjós og lands
eru háðir duttlungum og sérvisku
skrifstofuherra hins opinbera og
hálfopinbera kerfis. Furðulegustu
viðskipti eiga sér stað til lífsviður-
væris, sala á pappírsfiski, akstur
með fisk landshornanna á milli
o.m.fl., sem fæstum okkar gæti
dottið í hug þó hugmyndarík vær-
um.
Páfinn situr í Reykjavík og
ákveðin nefnd vinnur að útbreiðslu
og útfærslu kvótadómsins. Ekkert
atriði er það flókið eða fáránlegt að
ekki megi búa til nýtt eyðublað eða
nýja reglu. Skriffinnskan á sér eng-
in takmörk.
Æðstu prestarnir rikja á Skúla-
götunni og fáum dirfist að vefengja
spágildi þeirra og vísindi. Slíkt er
óráðlegt fyrir prestlinga, hvað varð-
ar metorð og jafnvel atvinnu. Kall-
að er eftir niðurstöðum úr rann-
sóknum á ákveðnum tímum árlega.
Þeir sem að öllu réttu ættu einungis
að vera í ráðgjafarhlutverki eru
meira og minna gerðir ábyrgir fyrir
sínum niðurstöðum og komnir í
þjónustuhlutverk við stjórnvöld að
búa til tölur.
Sú var tíðin að helsta þjónustuhlut-
verk stofnunarinnar var fiskileit og
aðstoð við fiskveiðiflotann.
Eftir að niðurstöður rannsókna
liggja fyrir eru framkallaðar tölur,
sem öðlast nánast helgi og
óvefengjanleika eftir að búið er að
prenta þær og birta alþjóð.
Þessi mikilvægasta rannsóknar-
stofnun landsmanna er sett í alveg
ómögulega aðstöðu með þessu
móti. Ofuráhersla er lögð á stofn-
stærðarákvarðanir, en aðrar ekki
síðri rannsóknir á almennum lífs-
skilyrðum og lífríkinu almennt í
kring um landið verða oft út undan.
Stofnunin á að hafa algjört
frjálsræði til hvers kyns rannsókna
og ekki einungis hagnýtra fyrir
flota eða stjórnvöld, heldur einnig
til fróðleiks fyrir þjóðina og arftaka
þessa lands.
Einu má gilda, hversu ráðamenn
sækjast eftir tölum um stofnstærðir
fyrir framtíðarspár og til að skipta
afla á skip. Oftast er í slíkum tölum
farið langt frá spágildi gagna. Allt
er gert til að koma tölu á fiska í sjó.
Því miður verður að viðurkennast
að þetta er stofnuninni að nokkru
leyti sjálfri að kenna hvernig komið
er.
Hversu miklu dýrmætari og upp-
byggilegri, einnig fyrir stofnstærð-
arákvarðanirnar, væru ekki margar
aðrar rannsóknir er afhjúpuðu
leyndardóma og öfluðu fróðleiks
um hið gróskumikla líf, sem dafnar
hér umhverfis ísland og tengist lífs-
björg þjóðarinnar beint eða óbeint.
Við eigum þessari auðlind það
mikið að þakka að við ættum að
leyfa okkur ýmislegt í þessum efn-
um. Stefnubreyting í þessu færði
einnig fiskifræðingana okkar aftur
til fyrri vegs og virðingar með þjóð-
inni.
Við eigum líka góða veðurfræð-
inga, en ekki eru þeir notaðir á
þennan hátt. Ekki eru spár þeirra
alltaf réttar eða nánast helgidómur.
Er auðveldara að spá fyrir um fiski-
gengd eða stærð fiskistofna en t.d.
veður?
Eftir að talan er fundin skráir
reikningsfærslumaðurinn hana hjá
sér og úthlutar hverju tonni niður á
smæstu kænu. Hann sér um að
reikningarnir stemmi debet/kredit.
Öllu er stjórnað og stýrt. Miðstýrt.
Allri gagnrýni er svarað tatolog-
iskt (hundalógík) t.d. er til annað
betra kerfi.Við útdeilum aðeins því
sem er til skiptanna. Á þessum mál-
um verður að hafa sterka stjórn.
Færustu sérfræðingar meta stofn-
ana. Efist þér um þeirra vinnu-
brögð eða færni?
Sérfræðingar okkar eru virtir um
allan heim.
Engu er líkara en landhelgisút-
færsluáróður okkar sé farinn að
bitna á okkur sjálfum. fyrri ráð-
herrar trúðu þó ekki öllu sem fiski-
fræðingar sögðu eða tóku jafn bók-
staflega og núverandi.
Kvótadómurinn er dæmi um það
hvernig kænn stjórnmálamaður
eða bókstafstrúarmaður aflar póli-
tík sinni vísindagildis og notar vís-
indamenn meðvitað eða ómeðvitað
til að gera sig rökheldan. Af eðlis-
ávísun er hann staðfastur og veit að
það er metið í pólitík. Vísinda-
mennirnir uppveðrast og flengjast
um hinn úfna sjó í kring um ísland
hring eftir hring til að mæla og
meta stofnana rétt eins og fiskarnir
væru beljur á beit.
Sjómenn og útgerðarmenn
fundu sumir hverjir illilega fyrir
tekjuskerðingu við lögfestingu
fagnaðarboðorðsins. Til að reyna
að bæta sér upp sárasta tekjumiss-
inn tóku þessir menn til við aðferð-
ir, sem voru þeim að góðu þekktar
þ.e. selja ferskan fisk á vanrækta
hefðbundna ferskfiskmarkaði í
Evrópu og sumir komu sér upp
frystitækjum um borð. Þetta gekk
upp.
Bretar höfðu að mestu náð sér
andlega eftir síðasta þorskastríð og
ferski fiskurinn frá íslandi, með
haus og sporði, var fullgild mark-
aðsvara og mjög eftirsóttur. Það
eftirsóttur að verstu hrakspár um
offramboð á ferskum fiski hafa
ekki ræst. Farið var að flytja ferska
fiskinn í gámum og við það náðist
meiri hagkvæmni og flutningar frá
landinu urðu smám saman örari og
öruggari. Gámafiskurinn gaf sjó-
mönnum meira í sinn hlut heldur en
heimalandanir. Aðrir þurftu ekki
endilega að fá meira í sinn hlut.
Kostnaður við freðfiskútflutning
er oftast mun meiri en við freðfisk-
útflutning. í sumum tilvikum helm-
ingi meiri t.d. koli. Fréttamenn hafa
þó ætíð gert sem mest úr erlendu
verðunum og haldið þeim að al-
menningi. Eru þau stundum borin
saman við uppgefin verðlagsráðs-
verð eða skilaverð freðfisks. í báð-
um tilvikum mjög villandi viðmið-
anir gámafisknum í vil. Allt of oft
vill gleymast að af gámafisknum
þarf að borga umboðslaun til upp-
boðshaldara, toll, útflutningsgjöld,
fragt, tryggingar, bankakostnað,
umboðslaun til útflytjanda og síð-
an að fá kassana aftur heim. En
samt skilar þetta peningum fljótt
og oftast meiri verðmætum en
heimalandanir með verðfellingu
vegna ferskfisksmats.
Gámafiskurinn kom frystihús-
unum yfirleitt vel og tók af þeim
aflatoppa og minna bar á frádæm-
ingum af skemmdu hráefni yfir
sumartímann í húsunum vegna
ónógrar samræmingar í veiðum og
vinnslu. Það vandamál hvarf nán-
ast. Togarafiskurinn í húsunum
varð almennt ferskari, freðfisk-
Framh. á bls. 3