Alþýðublaðið - 06.05.1986, Síða 2

Alþýðublaðið - 06.05.1986, Síða 2
2 Þriðjudagur 6. maí 1986 'RITSTJÓRNARGREIN- Málefni aldraðra og forgangsverkefnin Það hefur komið skýrt í Ijós að undanförnu, að margt aldrað fólk á íslandi býr við bág kjör. Þar kemur margt til; húsnæðisskortur, slök fjár- hagsleg afkoma, ónóg félagsleg þjónusta, ör- yggisleysi og einmanaleiki. — Verst virðist ástandið vera í höfuðborginni. Alþýðuflokkurinn hefur ítrekað vakið athygli á vanda hinna öldruðu í þjóðfélaginu. Fyrir nokkru hafði Jóhanna Sigurðardóttir forystu um flutning átillögu til þingsályktunar um um- bætur í málefnum aldraðra. Þessi tillaga var samþykkt á þingi 22. apríl sl. Samkvæmt tillögunni er ríkisstjórninni falið að hlutast til um, að í áætlanagerð um málefni aldraðra fyrir landið í heild, samkvæmt ákvæð- um laga um málefni aldraðra, verði lögð til grundvallar úttekt á fjárhagslegri og félags- legri stöðu aldraðra. Þessi úttekt á að ná til húsnæðis- og vistunarmála, félagslegrar stöðu, framfærslukostnaðar og fjárhagslegrar afkomu og atvinnu með tilliti til hlutastarfa. Þaðersamstarfsnefnd um málefni aldraðra, í samráði við Tryggingastofnun ríkisins, sem á að vinna að þessari úttekt. Á grundvelli hennar á að leggja fram heildaráætlun um skipulegt átak og forgangsverkefni í hagsmunamálum aldraðra á næstu árum, sem tryggi betur en nú er öryggi og fjárhagsafkomu aldraðra, svo og húsnæðisaðstöðu og atvinnu við hæfi. Mikil breyting hefur orðið á allri þjóðfélags- gerðinni á undanförnum árum, svosem at- vinnuháttum, samfara síauknum kröfum um endurmenntun f atvinnulífinu, erfiðleikum í framfærslu heimilanna, aukinni atvinnuþátt- töku kvenna og kröfunni um jafnrétti kynjanna svo eitthvað sé nefnt. Þessi þróun hefur á margvíslegan hátt breytt stöðu aldraðra í þjóð- félaginu. Vmsir þættir í þjóðfélagsgerð liðinna ára, sem áðurveittu öldruðum stuðning og öryggi og gáfu lífinu gildi á elliárum, hafa því breyst. Þótt annað hafi komið í staðinn og ýmislegt áunnist, er margt sem bendir til þess að örygg- isleysi aldraðraáýmsum sviðum í þjóðfélaginu hafi vaxið og uppbyggingin í málefnum aldr- aðra, sem samþykkt voru á Alþingi 1982. Þótt ýmis mikilvæg ákvæði sé að finna í þess- ari löggjöf, verður ekki sagt að hún hafi enn markað í framkvæmd þáttaskil ( málefnum aldraðra, þar eð ýmis mikilvæg ákvæði lag- anna hafa ekki komið til framkvæmda. Sú úttekt, sem fyrrnefnd þingsályktunartil- laga gerir ráð fyrir er mjög tímabær og nauð- synleg. Hérálandi skortirallarupplýsingarum margvíslega þætti öldrunarmála, og hefur það t.d. komið skýrt í Ijós við samanburð á kjörum aldraðrahérog í hinum norrænu löndunum. Út- tekt af þessu tagi gerir það auðveldara að velja forgangsverkefni, sem er nauðsynlegt því af nógu er að taka. Ræstingarfólk Óskum eftir að ráða ræstingarfólk til starfa hjá fyrirtækinu. Nánari upplýsingar gefur ræstingarstjóri i Sambandshúsinu við Sölvhólsgötu frá kl. 13.00 til 16.00 mánudag og þriðjudag. (Ekki í síma). SAMBAND ÍSL.SAMVINNUFÉIAGA STARFSMANNAHALD LINDARGÖTU 9A Svæöisstjórn málefna fatlaðra Reykjavík Lausar stöður Auglýstar eru til umsóknar eftirtaldar stöður starfs- manna á nýju sambýli fyrir fatlað fólk í Reykjavik. 1. Þroskaþjálfi. Fullt starf. 2. Meðferðarfulltrúi. Fullt starf. 3. Meðferðarfulltrúi. Hlutastarf. Ráðgert er að heimilið taki til starfa þann 1. júlí n.k. Unnið er á vöktum. Laun samkvæmt launakjörum opinberra starfsmanna. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist fyrir 15. maí n.k. Svæðisstjórn málefna fatlaðra Hátúni 10 105 Reykjavík Deildarstjóri byggingarvöru Verslunardeild Sambandsins óskar að ráða deildarstjóra til að veita forstööu byggingarvöruheildsölu Sambandsins. Deildin hefur með höndum innkaup og sölu á öllum almenn- um byggingarvörum frá erlendum framleiðendum. Skriflegar umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist til starfsmannastjóra Sambandsins er veitir nánari upplýsingar, ásamt aðstoðarframkvæmdastjóra Verslunar- deildar. Umsóknarfrestur er til 12. mai n.k. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál. SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA STARFSMANNAHALD LINDARGÖTU 9A Minning: Sigurður G. Pétursson netagerðarmeistari Hafnarfirði Traustur liðsmaður jafnaöar- stefnunnar, Sigurður G. Péturs- son,erfallinnfrá. Meðhonumer hniginn i valinn einn af máttar- stólpum Alþýðuflokksins i Hafnarfirði um langt árabil, því Sigurður vann Alþýðuflokknum og hugsjónum hans vel alla tið og lét aldrei deigan siga, jafnvel þótt aldurinn færðist yfir og þrekiö minnkaði hin síðari ár. Hann hélt ævinlega ótrauður strikinu í baráttunni fyrir jöfnum rétti allra manna, fyrir frelsi þeirratil orðaog athafnaog síð- ast en ekki síst fyrir bræðralagi manna og þjóða í milli. Jafnaðarmenn í Hafnarfirði horfa um öxl og rifja upp liðna tlð, þegar Sigurður og hans samtímamenn létu svo réeki- legatil sln taka I hafnfirsku bæj- arllfi. Þá var oft llf I tuskunum. Og þótt háttur Sigurðar hefði ekki verið sá að hrópa á torgum og fara geyst, þá var þrautseigj- an og seiglan sllk, að aldrei var verki úr hendi sleppt fyrr en því var lokið. Hann stundaði sjóinn um langt skeið og var oftsinnis full- trúi sjómanna á framboðslista Alþýðuflokksins I Hafnarfirði. Þegar I land kom starfaði hann sem netagerðarmaður — hans starfsvettvangur var tengdur sjávarútvegi. Sigurður G. Pétursson var fylginn sér á sinn rólynda hátt og undir hæglátu yfirborðinu gneistaði af hugsjónamannin- um. Hafnarfjarðarbær verður fátæk- ari án Sigurðar G. Péturssonar. Jafnaðarmenn horfa á bak heil- um og sönnum félaga. Skarð Sigurðar l röðum okkar Alþýðu- flokksmannaverðurvandfyllt — raunar seint eða aldrei fylit. Reynsla og þekking Sigurðar G. Péturssonar liggur ekki á lausu. Einn af þeim mörgu ágætu jafnaðarmönnum er áttu hlut- deild ( að breyta þjóðfélaginu i anda jafnaðarstefnunnar hér á landi var Sigurður G. Pétursson. Þeir plægðu akurinn og lögðu grunninn að því velferðarþjóðfé- lagi sem hér rlkir, þrátt fyrir óstjórn andfélagslegra afla á síðari árum. Almenningi hættir til að gleyma þeirri staðreynd, að almannatryggingakerfið, vökulögin, félagslegar umbæt- ur af fjölmörgu tagi, almenn mannréttindi og fleiri umbóta- mál, eru þættir f samfélagi okk- ar sem urðu ekki til af sjálfu sér. Langt í frá. Þessi framfaramál og fjölmörg önnur urðu að veru- leika fyrir linnulausa baráttu margra; jafnaðarmanna, hug- sjónamanna á borð við Sigurð G. Pétursson. Af þeirra störfum má margt læra. Þeim má margt þakka. Við Alþýðuflokksmenn í Hafnarfirði þökkum af heilum og einlægum hug Sigurði G. Péturssyni samfylgdina og samstarfið i gegnum tfðina. Eiginkonu hans, Guðrúnu H. Áhugamenn um málefni þróun- arlanda hafa ákveðið að stofna með sér félag. Stofnfundurinn verður í dag klukkan 17:15 í Norræna liúsinu. — Gerð hafa ver- ið drög að lögum fyrir félagið, og þar er því gefið nafnið BRU. I 2. grein laganna segir, að til- Sveinsdóttur, börnum og öðrum vandamönnum sendum við hug- heilar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Sigurðar G. Péturssonar netagerðar- meistara. Guðmundur Árni Stefánsson. Skuldabréf 1 jafnvel stundum farið undir 50%. Ef kaupendur og seljendur meta þessi bréf á sama hátt og verið hef- ur, má reikna með því að gangverð þeirra í fasteignaviðskiptum fari upp í 85—90% af nafnverði. Um það bil fimmta hver íbúð sem seld er í Reykjavík, er seld skuldlaus með óverðtryggðum kjörum. Lítið eitt færri íbúðir eru seldar án þess að nokkurt óverðtryggt lán komi þar við sögu. Af þessu sést að óverðtryggð Ián eru talsvert algeng í þessum viðskiptum. Það er líka augljóst af þessu að lækkandi verð- bólga mun hafa mjög mismunandi áhrif á greiðslubyrði einstakra hópa fasteignakaupenda. Nú er áætlað að heildareftir- stöðvar allra óverðtryggðra lána sem gefin hafa verið út á fasteigna- markaðnum undanfarin ár, séu ríf- lega tveir milljarðar króna og gætu vextir og afborganir af þeim á þessu ári numið alls um 1200 milljónum króna. gangur félagsins sé að auka skilning íslensku þjóðarinnar á málefnum þróunarríkja og kynna menningu, sögu og lífshætti fólks þar. Félagið á einnig að stuðla að auknum stuðningi íslendinga við þróunar- samvinnu og neyðarhjálp. í frétt um stofnun félagsins segir, að íslendingar hafi meiri tengsl við þróunarlönd en margan gruni. Álit- legur hópur hafi unnið við leiðsögn í fiskveiðum, við hjúkrun, rekstur samvinnufélaga og margt fleira. Skiptinemar færi nýja reynslu heim og menningar- og viðskiptasam- bönd færist í vöxt. Síðan segir: „I mörg ár hefur staðið til að þeir sem búa yfir reynslu af þessu tagi eða láti sig málefni þróunarlanda einhverju varða bindist samtökum til að afla og miðla fróðleik og efla samskipt- in við hinar fjölbreytilegu þjóðir þriðja heimsins" í mars s.l. var haldinn undirbún- ingsfundur, og kom þar fram mikill áhugi á þessu máli. Frá menntamálaráðuneytinu Lausar stöður Við Menntaskólann að Laugarvatni eru lausar kennara- stöður í ensku og stærðfræði. Umsóknarfrestur til 28. maí. Nýi hjúkrunarskólinn auglýsir eftir námsstjóra. Upplýs- ingar á skrifstofu skólans I slma 681040. Umsóknarfrestur til 1. júní. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík. Menntamálaráðuneytið. Félag stofnað um málefni þróunarlanda

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.