Alþýðublaðið - 06.05.1986, Side 3

Alþýðublaðið - 06.05.1986, Side 3
Þriðjudagur 6. maí 1986 3 Kórrétt trú og kvennakukl eftir Bryndísi Schram Þjóðleikhúsið: í deiglunni eftir Arthur Miller. Þýðing: Jakob Benediktsson. Leikmynd og búningar: Baltazar. Lýsing: Ásmundur Karlsson. Leikstjóri: Gísli Alfreðsson. Leikgestir hlýddu þögulir og hrifnir á máttug orð skáldsins og tóku leikstjóra og leikendum ágæta vel að unnu verki. „í deiglunni“ er gleðilegt merki þess að þjóðleik- húsið þekki sinn vitjunartíma, skilji þá ábyrgð sem því er á herðar lögð; við væntum þess að fram verði haldið á sömu braut, og snilldar- verk flutt íslenzkum leikgestum á komandi árum. Þannig hljóða niðurlagsorð Ásgeirs Hjartarsonar í umsögn hans um fyrri uppfærslu Þjóðleik- hússins á „Deiglu“ Millers — fyrir rúmum 30 árum. Þá var verkið nýtt af nálinni. Þá var þetta fagmann- lega verk Millers fyrst og fremst skilið sem vægðarlaus afhjúpun á pólitískum galdraofsóknum McGarthy—tímabilsins á upphafs- árum kalda stríðsins. Sjálfur hafði Miller verið í hópi þeirra bandarísku menntamanna, sem urðu fyrir meinbægni óamerísku nefndarinnar, þótt margir hafi orð- ið harðar úti í þeim hremmingum en hann. Þá mátti skilja skjót við- brögð Þjóðleikhússins að koma þessu samtímaverki á fjalirnar sem sannindamerki um að leikhúsið þekkti sinn vitjunartíma — fyndi til í stormum sinna tíða. Síðan eru liðnir heilir þrír áratug- ir. Hvað hefur breytzt? Hefur leik- húsið „haldið áfram á sömu braut?“ — eins og Ásgeir óskaði sér árið 1955? Því geta leikhúsgestir svarað, hver fyrir sig. Hefur það opnað okkur sýn inn í ástríðu- þrunginn og gróskumikinn heim leikritunar í löndum Mið- og Suð- ur-Ameríku, þar sem þjóðfélags- hættir og mannlíf er í heitri deiglu? Höfum við fengið fyrir þess til- verknað að kynnast mannlegri þjáningu og reisn af verkum and- ófsmanna og flóttamanna úr hinu sovéska gúlagi og leppríkjum þess? Hvað með leikbókmenntir úr suð- urpottum mannlegra átaka eins og t.d. frá Suður-Afríku, Indlandi, Arabaheiminum eða úr hinni Svörtu Afríku, t.d. frá Senegal? Er þetta ekki íslenzkum leikhúsgestum mestan part lokuð bók? Samt eru fjölmörg dæmi um viðleitni evrópskra leikhúsa til að skyggnast undir yfirborð þessara framand- legu þjóðfélaga. Hvað hefur breytzt? Þótt heim- urinn hafi endasteypzt á þessum 30 árum er eins og ekkert hafi breytzt í hinu virðulega þjóðleikhúsi. Nema að við freistumst til að skilja verk Millers dálítið öðrum skilningi en forðum; McGarthy er týndur og tröllum gefinn. En það er ekkert lát á trúarlegu og pólitísku ofstæki. Dauðásveitirnar hafa hlaðið upp valköstum nótt sem nýtan dag — í Afganistan, E1 Salvador, Chile og Argentínu, í Víetnam og Kampútseu, í Úganda og Erítrep, í Líbanon, íran og írak, í Suður- Afríku — já og í flestum hinna ný- frjálsu ríkja svörtu Afríku, þar sem innlend bófafélög hafa setzt á valdastóla fyrri nýlendudrottnara og stunda fjöldamorð og pyndingar á svörtum meðbræðrum sínum í sannkölluðu ógnaræði. Og meðal þriðjungs jarðarbúa sem væntu endurlausnar í nafni sósíalismans, ræður tröllheimsk kreddan ríkjum — og atvinnuleysinu er forðað með því að fjölga í leynilögreglunni. Doðrantar Amnesty Internation- al um mannréttindabrot, fjölda- morð, skoðanakúgun og pyndingar meðal meirihluta þjóða heimsins sanna okkur að McGarthy—isminn var eins og hver annar sunnudaga- skóli hjá þeim ósköpum. Galdraofsóknirnar í Salem, í Massachusetts, á Nýja Englandi á ofanverðri 17. öld, sem Miller verð- ur að yrkisefni fyrir meira en 30 ár- um, eru dæmisaga. En jafnvel þótt þessi Ibsen Ameríku kunni vel til verks — og það kann hann vissu- lega, verður þessi dæmisaga hans föl og hljóð í samanburði við öll þau ósköp sem yfir hafa dunið á okkar tíð. Kannske aðrir miðlar, eins og t.d. kvikmyndin, komi því betur til skila? Kvikmyndin er mið- ill okkar aldar. Og þó, og þó. Þegar við skyggnumst inn í myrkviði mannshugans, þar sem öll fólska mannskepnunnar á upptök sín, vit- um við, að ekkert hefur breytzt — nema að tækni og afköst illvirkj- anna eru meiri en nokkru sinni fyrr. F.n hinn andlegi fordæðuskapur er óbreyttur — hann er samur við sig hjá Ríkarði III, Adolf Hitler, JóseD Stalín, Idi Amin og Bókasa þullu- kolli eða hvað þau nú öll heita þessi óargadýr í mannsmynd. Kannske það hafi nú ekki svo mikið breytzt eftir allt saman, — allavega ekki í þjóðleikhúsinu. Enn mátti sjá á sviðinu suma leikarana sem höfðu haldið uppi fyrstu upp- færslunni undir stjórn Lárusar Pálssonar fyrir 30 árum, bara í öðr- um hlutverkum. Valur Gíslason , 84 ára eins og persónan sem hann lék og í fullu fjöri, og Rúrik og Baldvin Halldórsson. Meðal leikhúsgesta mátti sjá Þóru Friðriksdóttur, sem fyrir 30 árum fékk að spreyta sig á hinni Iostafullu Abigael, örlaga- kvendinu sem spann mönnum grimmileg örlög í Salem á 17. öld. Hvernig skyldi henni hafa verið innanbrjóst að sjá nú unga stúlku takast á við sama hlutverk 30 árum síðar? Hafi hið pólitíska tilefni verksins í huga höfundar þokast fjær með tímanum væri nærtækara að leggja nú meiri áherzlu á þær mannlegu ástríður sem eru kveikja sögunnar og áhrifavaldar. Hér sjáum við fyrir okkur hinn sígilda „franska“ ástar- þríhyrning; eiginkonan Elísabet, bóndinn Proctor og lostakvendið Abigael. Tvær konur keppa um ást- ir sama mannsins og skirrast einskis í þeirri baráttu. Lærdómsmenn guðrækninnar hafa löngum verið eins og hver önnur ginningarfífl og leiksoppar í höndum slíkra kvenna. Þá erum við komin nær hinu gríska drama, að vísu gegnum aðferða- fræði Ibsens. Ætli þetta sé ekki brúklegri skilningur fyrir samtím- ann? Hvað er svo að segja unt upp- færsluna sjálfa undir stjórn þjóð- leikhússtjóra? Þeir sem mundu fyrri sýninguna — og þeir voru nokkrir á frumsýningu — vildu ekki skipta. Af sýningunni verður ekki ráðið að leikstjóri vilji leggja annan og nútímalegri skilning í verkið en áður. Það er ekki hvað sízt leikgerð Baltazars, sem er fyrirferð- armikil og sagnfræðileg í smáatrið- um, sem gefur sýningunni nú annan búning. Hafi hins vegar átt að gera ástardramað að þungamiðju, hefði það staðið og fallið með leikkon- unni í hlutverki Abigaels; hún hefði orðið að tjá kvenlega munúð og blygðunarlausa óskammfeilni hinnar eftirsóknarverðu konu betur en hér er gert. Aðrir burðarásar verksins sam- kvæmt þessum skilningi eru Proctorhjónin, bóndinn og hin tor- tryggna kona hans. Hákon Waage og Edda Þórarinsdóttir fara með þessi hlutverk, hvort urn sig með ágætum. Með þessu hlutverki hefur Hákon Waage fengið umbun erfiðis síns. Hann er bóndi frá hvirfli til ilja, þéttur á velli og þéttur í lund, karlmannlegur, æðrulaus, fátalað- ur en ódeigur, þegar á reynir. Leikur Hákons var ekki hnökralaus en hann var sannur. Ég hef trú á að hlutverkið vaxi í höndum hans, fái sýningin að þroskast. Edda Þórarinsdóttir vann líka leiksigur í hlutverki Elísabetar. Hún er látlaus og sönn, stillileg en ein- beitt. Ef til vill kemur bæld þjáning Elísabetar ekki nægilega vel til skila í upphafi, en þeim mun betur nær Edda að túlka óbugandi stolt hinn- ar trygglyndu húsfreyju þegar á leikinn líður. Sérstök ástæða er til að geta óðrar frammistöðu Sigurðar kúlasonar í hlutverki hins lærða en hrekklausa prests, sem að lokum stendur ráðþrota frammi fyrir af- leiðingum kennisetninga lærdóms- mannanna. Erlingi Gíslasyni tókst vel að koma til skila málfærslukúnst og pólitískri undirhyggju hins þraut- þjálfaða rannsóknardómara Danforths. Og Gunnar Eyjólfsson vekur með okkur hæfilega andúð á lítilsigldum og ágjörnum prelátan- um Samúel Harris presti í Salem. Af aukahlutverkum ber sérstak- lega að geta Herdisar Þorvaldsdótt- ur í hlutverki hinnar skapstyrku öðlingskonu Rebekku og Steinunn- ar Jóhannesdóttur í hlutverki hinn- ar þeldökku Tíbúbú, sem átti sinn þátt í ærslakukli ungkvennanna með því að syngja þeim bernsku- söngva sína frá Barbados. Guðrún S. Gísladóttir skilaði hlutverki þjónustustúlkunnar Mary Warren óaðfinnanlega. Sömuleiðis vakti það leikhúsgestum gleði að heyra Val Gíslason enn í fullu fjöri í hlut- verki hins þrasgjarna bónda Giles Corey. Veikleiki sýningarinnar er m.a. sá að ungu stúlkurnar búa ekki yfir þeim kynngimagnaða kynþokka, sem villir og tryllir og ærir af vegi hina sjálfskipuðu typtunarmeistara siðavendninnar. Sérstaklega skortir mikið á að Abigael komi fyrir sjón- ir sem það örlagakvendi sem skapar mönnum örlög með blóðhita sínum og blygðunarleysi. Hópsenan, þeg- ar kvensurnar eiga að sefjast upp í skjálfandi trúartitring, og ofsókn- arkrampa varð of bragðdauf og tepruleg. Þetta er mannmörg sýn- ing og kannske ekki við því að búast að hægt sé að manna hvert hlutverk svo að hvergi hallist á. Þó þykist maður sjá leikkonur sem hafa til að bera þann þroska, þokka og fítons- kraft sem til þarf. Þýðing Jakobs Benediktssonar og lýsing Ásmundar Karlssonar var hvort tveggja óaðfinnanlegt. En hvernig væri að.Ieita næst á fjarlægari sögusvið? Reykjavík 28. apríl Forheimskun 1 framleiðslan batnaði. Einnig hefur manneklan við fullvinnslu í húsun- um stöðugt aukist. Frystihúsin víð- ast hvar tóku því þátt í þessu og þetta kom sér víðast vel. En Adam var ekki lengi í Paradís. Þegar gámafiskurinn fór af stað í Vestmannaeyjum, helgasta vígi S.H., töldu þeir sig hlunnfarna af þessu framhjáhlaupi ísfisksins. Sjó- menn og útgerðarmenn eru nánast sakaðir um landráð i erindi for- stjóra S.H., sem birtist fyrir skömmu i sunnudagsblaði Morg- unblaðsins. Láir honum þó enginn fyrir að vilja fá hráefni í verksmiðj- ur fyrirtækisins hérlendis og er- lendis. Hráefnið er bara mun dýr- mætara en opinberlega hefur verið staðfest. Það láir heldur enginn sjó- mönnum og útgerðarmönnum að leita hæsta verðs fyrir sína vöru. Hvað er eðlilegra? Ljóst er að núverandi verðlags- kerfi er að riðlast og stutt í opinber- an eða formlegan uppboðsmarkað. Nánast einungis tæknileg útfærsla. Einnig hefur alltaf verið ljóst að verð á frystum fiski hafa alltaf verið mun lægra en á ferskum fiski. Páfinn situr á friðarstóli meðan trúarfylkingar eru farnar að mynd- ast um ferskan fisk og fullvinnslu hins vegar. Kvótadómurinn er far- inn að þrengja að hjá báðum aðil- um. Til sátta verða trúlega seld synda- aflausnarbréf (veiðileyfi) eða út- hlutað. Slæmt að páfinn skuli að- eins sjá tvö sölusamtök fyrir þessar afurðir í landinu, en þannig getur það verið um rétttrúaða. Við hin skulum halda í vonina um siðabótamennina og að þessum trúarkreddum ljúki eftir framleng- ingu páfadómsins og það hvernig staðið er að málum í dag verði okk- ur víti til varnaðar í framtíðinni. Á meðan syndir fiskurinn í sjón- um í stórum og smáum torfum eða göngum óbundinn stund og stað okkar mannanna og hinar líffræði- legu forsendur munu ákvarða stærð árganga og stofna ásamt lífsskilyrð- unum rétt eins og í samfélögum okkar mannanna, en hins vegar er óljóst og ósannað hvort hægt sé að byggja upp fiskistofna til þess að gefa hámarksafrakstur með tak- mörkun á veiði, þegar stofnstærð ákvarðast oft af jafn tilviljunar- kenndri nýliðun (fæðingartölu) og gildir um suma fiskistofna í sjó. D.O.C. / lÉtmiinBBinifÉuiEfeunK Laugavegur 103 105 Reykjavík Sími 26055

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.