Alþýðublaðið - 13.05.1986, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 13. maí 1986
3
Ráðstefna Framkvœmdanefndar um launamál kvenna:
Móta sameiginlegar kröfur,
sem snerta konur sérstaklega
Fyrir nokkru var haldin ráð-
stefna á vegum Framkvæmda-
nefndar um launamál kvenna þar
sem fjallað var um réttindamál
kvenna á launamarkaði.
Á ráðstefnuna mættu 90 konur
úr stjórnum og samninganefndum
verkalýðs- og stéttarfélaga víðsveg-
ar að af landinu.
Aðalframsögumaður var Lára V.
Júlíusdóttir, lögfræðingur A.S.Í.
og bar hún saman ýmis réttindamál
sem snerta konur sérstaklega. Gerði
hún samanburð á réttindum kvenna
milli heildarsamtaka og félaga í
sjúkdóms- og slysatilfellum, fæð-
ingarorlofi, mati á starfsreynslu við
heimilisstörf, rétti foreldra vegna
veikinda barna og orlofsrétti.
Aðrir framsögumenn voru Aðal-
heiður Bjarnfreðsdóttir, Starfs-
mannafélaginu Sókn, Auðna
Ágústsdóttir, BHMR, Hrafnhildur
Sigurðardóttir, S.Í.B. og Ragnhild-
ur Guðmundsdóttir, BSRB.
Niðurstöður ráðstefnunnar voru
m.a.:
1. Nauðsynlegt er að konur í stétt-
arfélögunum hittist og beri sam-
an bækur sínar. Ennfremur er
mikilvægt að halda námskeið
fyrir konur um kjarasamninga
til að gera þær hæfari til að taka
þátt í því starfi. Konur í samn-
inganefndum þurfa að hafa bak-
hjarl sem veiti stuðning meðan á
samningum stendur. Konur eiga
að krefjast breyttra og bættra
vinnubragða við samningagerð.
Ákveðið var að Framkvæmda-
nefnd um launamál kvenna hafi
forgang um að koma á starfs-
hópi kvenna úr stjórnum og
samninganefndum fyrir næsta
haust, í því skyni að móta sam-
eiginlegar kröfur sem snerta
konur sérstaklega.
2. Rætt var um hvaða atriði beri að
leggja áherslu á er varða launa-
og réttindamál kvenna.
Konur töldu mikilvægast að
hækka dagvinnulaunin. Launa-
misrétti karla og kvenna felur í
sér vanmat á störfum kvenna.
Hækkun dagvinnulauna myndi
verða til þess að ýmis fríðindi
Samtök kvenna á vinnumarkaði
hafa sent útvarpsstjóra bréf, þar
sem þau mótmæla fréttaflutningi
hljóðvarps og sjónvarps af aðgerð-
um samtakanna 1. maí sl. — Bréfið
fer orðrétt hér á eftir:
Samtök kvenna á vinnumarkaði
mótmæla harðlega fréttaflutningi
ríkisútvarpsins, hljóðvarps og sjón-
varps, af aðgerðum í Reykjavík
þann 1. maí sl.
Þann dag efndu Samtök kvenna
á vinnumarkaði til kröfugöngu og
sem karlar hafa fengið sérstak-
lega myndu minnka, sem leiddi
af sér meiri launajöfnuð. Enn-
fremur yrði það til þess að konur
bæru meiri virðingu fyrir störf-
um sínum. Konur eru ekki í
sjálfboðavinnu. Nauðsynlegt er
að kvennastörf verði endurmet-
in, slík samþykkt hefur komið
fram í Borgarstjórn Reykjavík-
ur, þeirri samþykkt þarf að
fylgja fast eftir.
Gömul krafa kvenna um næg og
góð dagvistarheimili fyrir öll
börn, samfelldan skóladag og
skólamáltíðir er enn i fullu gildi.
útifundar sem beindust fyrst og
fremst gegn síðustu kjarasamning-
um. Fréttatilkynningum og ávarpi
dagsins hafði verið komið til frétta-
stofa ríkisfjölmiðla tímanlega fyrir
þann 1. maí, enda var ávarpsins get-
ið í hljóðvarpi.
í kvöldfréttum hljóðvarps þann
1. maí var einungis sagt að tveir
fundir hefðu verið haldnir í Reykja-
vík, þar sem konur voru ræðumenn
og fundarstjórar. Einnig var sagt að
litlu færra hefði verið á fundi Sam-
taka kvenna á vinnumarkaði en á
Lækjartorgi, síðan var rætt um
veðrið í Reykjavík. Síðari hluti
fréttarinnar var hins vegar lestur á
völdum köflum úr ræðu Ásmundar
Stefánssonar, sem hann hafði flutt
í Borgarnesi þennan sama dag.
Búið var að útvarpa fundinum á
Lækjartorgi í hljóðvarpi, þannig að
ef til vill var óþarft að tíunda í frétt-
um innihald í ræðum sem þar voru
fluttar. Hins vegar teljum við eðli-
Iegt að gerð hefði verið ítarleg grein
fyrir því hvers vegna tveir fundir
voru haldnir í Reykjavík, ekki síst í
Ijósi þess að meirihluti fólks sem
sótti útifundi þennan dag valdi að
koma á fund þar sem síðustu kjara-
samningum var mótmælt og lýst
var vantrausti á forystu heildarsam-
taka verkafólks. Einnig teljum við
eðlilega fréttamennsku að gerð
hefði verið grein fyrir innihaldi í
ræðum og ávörpum sem þar voru
flutt.
í fréttum sjónvarps þann 2. maí
voru aðgerðum verkafólks 1. maí
nær engin skil gerð. Sjónvarpið
hafði greinilega ekki Iagt sig eftir að
fá fréttir utan af landi um fundi og
aðgerðir á 1. maí. Örstutt frétt um
aðgerðir í Reykjavík gaf enga mynd
af þeim ágreiningi sem er innan
verkalýðshreyfingarinnar um síð-
ustu samninga, né heldur af fund-
um sem haldnir voru. Örstutt mynd
var sýnd af kröfugöngunni og þess
getið að Samtök kvenna á vinnu-
markaði hefðu gengið þar aftast.
Samtök kvenna á vinnumarkaði
benda á að sú ritskoðun sem fram
fer í ríkisfjölmiðlunum, aðallega í
formi þess að þegja um hluti, er
sýnu verri en opinber ritskoðun, og
leiðir til þess að hver og einn frétta-
maður er sífellt að ritskoða sjálfan
sig.
Eina leiðin til að ná athygli ríkis-
fjölmiðla virðist vera að halda
söngvakeppni eða rallyakstur, að
ógleymdum erlendum boltaleikj-
um. Samtök kvenna á vinnumark-
aði sjá sér þó ekki fært að vinna að
baráttumálum sínum á þann hátt
og fordæma harðlega það fréttamat
sem birtist í þessari afstöðu forvíg-
ismanna ríkisfjölmiðlanna.
Ritari
Utanríkisráðuneytið óskar að ráða starfsmann til að
annast telex- og telefaxþjónustu í ráðuneytinu.
Til greina kemur að skipta starfinu þannig að um tvö
hálfs dags störf verði að ræða.
Launakjör eru samkvæmt launakerfi ríkisins.
Eiginhandarumsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist utanríkisráðuneytinu,
Hverfisgötu 115, 105 Reykjavík, fyrir 21. þ.m.
Utanríkisráðuneytið,
9. maí 1986.
Sérleyfisleiðir
lausar til umsóknar
Sérleyf isleiöi r Reykjavík—Grímsnes—Laugar-
vatn — Laugardalur— Geysir—Gullfoss—Reykja-
vík—Hveragerði—Selfoss—Þorlákshöfn eru
lausar til umsóknar.
Umsóknir skulu sendar Umferðamáladeild Vatns-
mýrarvegi 10, Reykjavik, fyrir 20. maí 1986.
Umferðamáladeild.
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að
eindagi launaskatts fyrir mánuðina janúar og
febrúar er 15. maí n.k. Sé launaskattur greiddur
eftir eindaga skal greiða dráttarvexti til viðbótar
því sem vangreitt er, talið frá og með gjalddaga.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn-
heimtumanns rikissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og
afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytiö.
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að
gjalddagi söluskatts fyrir apríl mánuð er 15. maí.
Berþáaðskilaskattinum til innheimtumannarík-
issjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þririti.
Fjármálaráðuneytið.
Samtök kvenna á vinnumarkaði:
Mótmæla ritskoðun
Ríkisútvarpsins
Auglýsing
um aðaiskoðun bifreiða, bifhjóla og
léttra bifhjóla í Seltjarnarneskaupstað og
Kjósar-, Kjalarnes- og Mosfellshreppum
1986.
Skoðun fer fram sem hér segir:
Seltjarnarnes:
Þriöjudagur 20. mal
Miðvikudagur 21. maí
Fimmtudagur 22. mai
Skoðun fer fram við félagsheimilið á Seltjarnarnesi.
Kjósar-, Kjalarnes- og Mosfellshreppar:
Mánudagur 26. mai
Þriöjudagur 27. mai
Miðvikudagur 28. maí
Fimmtudagur 29. maí
Skoðun fer fram við Hlégarö I Mosfellshreppi.
Skoðað verður frá kl. 8.00—12.00 og 13.00—16.00, alla'
framantalda daga á báðum skoðunarstöðunum.
Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja
bifreiðum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn
leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber skilriki fyrir
þvl að bifreiðagjöld séu greidd, að vátrygging fyrir
hverja bifreið sé I gildi og að bifreiðin hafi verið Ijósa-
stillt eftir 1. ágúst sl. Athygli skal vakin á þvi að skrán-
ingarnúmer skulu vera læsileg.
Vanræki einhver að koma ökutæki sinu til skoðunar á
auglýstum tíma, verður hann látinn sæta sektum sam-
kvæmt umferðarlögum og ökutækið tekið úr umferð
hvar sem til þess næst.
Þetta tilkynnist öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi,
Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu
7. mai 1986
Einar Ingimundarson
(P Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd bygg-
ingardeildar, óskar eftir tilboðum I fullnaðar frágang á
Granda- og Selásskóla.
Innifalið i útboði þessu er málun, dúkalögn, allar inn-
réttingar, léttir innveggir, hreinlætistæki, raflagnir, loft-
ræsilögn o.fl.
Byggingarstig er frá húsunum tilbúnum undir tréverk I
fullgerð hús.
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frlkirkjuvegi
3, Reykjavlk gegn kr. 10.000.- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuö á sama stað fimmtudaginn 22.
mal n.k. kl. 14.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Námsstyrkur
við Kielarháskóla
Borgarstjórnin I Kiel veitir Islenskum stúdent styrk til
námsdvalar við háskólann þar ( borg næsta vetur, að
upphæð 870 þýsk mörk á mánuði 110 mánuði, frá 1. okt.
1986 til 31. júll 1987, auk þess sem kennslugjöld eru gef-
in eftir.
Um styrk þennan geta sótt stúdentar, sem hafa stund-
að háskólanám I a.m.k. tvö ár. Umsækjendur verða að
hafa góða kunnáttu I þýsku.
Umsóknir skal senda skrifstofu Háskóla íslands eigi
slðar en 15. júní 1986. Umsóknum skulu fylgja náms-
vottorð, ásamt vottorðum a.m.k. tveggja manna um
námsástundun og námsárangurog eins manns, sem er
persónulega kunnugur umsækjanda. Umsókn og með-
mæli skulu vera á þýsku.
tJRARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Útboð
Rafmagnsveitur rlkisins óska eftir tilboðum I eftirfar-
andi:
RARIK—86008: 75 stk. 25 kVA einfasa stauradreifi-
spennar.
Opnunardagur: Þriðjudagur 10. júnl 1986, kl. 14:00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna rlkis-
ins, Laugavegi 118,105 Reykjavlk, fyrir opnunartlma og
verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim
bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna
rlkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavlk, frá og með
mánudegi 12. mal 1986 og kosta kr. 300,- hvert eintak.
Reykjavlk 7. mal 1986
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS