Alþýðublaðið - 27.05.1986, Síða 2

Alþýðublaðið - 27.05.1986, Síða 2
2 Þriðjudagur 27. maí 1986 rRlTSTJÓRNARGREIN Líkur á 2 fulltrúum Alþýðuflokksins aukast UVbirti skoðanakönnun f gær um fylgi fram- boðslistanna við borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík. Þar kemur fram, að Sjálfstæðis- flokkurinn hefur öruggan meirihluta, eða nær 60 af hundraði. Alþýðuflokkurinn hefur aukið fylgi sitt úr 7.9 prósentum í apríl í 9.2%, en fylgi hans var ekki nema 2.9% í janúar. í borgarstjórnarkosning- um áundanförnum árum hefurflokkurinn feng- ið nokkru meira fylgi en skoðanakannanir spáðu honum. Það er því ekki óraunsætt mat, að með öflugu starfi síðustu dagana fyrir kosningar, geti Al- þýðuflokkurinn gert sér vonir um að fá kjörna tvo borgarfulltrúa. Að því verður unniö með oddi og egg. Víða úti á landi er Alþýðuflokkurinn í mikilli sókn. Þettasýnaskoðanakannanirog ummæli mannaúröllum flokkum. Þannig sýnirnýskoð- anakönnun DAGS á Akureyri verulega fylgis- aukningu flokksins þar. Samkvæmt henni hef- urflokkurinn þegartryggt sértvo bæjarfulltrúa í stað eins. Skoðanakönnun bæjarblaðsins á Akranesi sýnir ennfremur mikla fylgisaukn- ingu; fjölgun úr einum I þrjá bæjarfulltrúa. A Suðurnesjum, Hafnarfirði og Kópavogi er sóknin þung og öflug. Svipaða sögu er að segjafrá mörgum stöðum á landinu. En eins og oft áður virðist róðurinn einna þyngstur í Reykjavik. Ástæðan er vafalitið sú sem fram kemur í skoðanakönnun Félagsvísindastofn- unar Háskólans, að um það bil helmingur Al- þýðuflokksmanna, sem kjósa flokkinn í þing- kosningum, ætlaað kjósaSjálfstæðisflokkinn í borgarstjórn. Hað er þessi hópur kjósenda Alþýðuflokksins í Alþingiskosningum, sem getur ráðið úrslitum um það hvort flokkurinn fær einn eða tvo full- trúa í borgarstjórn. Þessir kjósendur ráða því hvort fylgi flokksins í Reykjavík verður áber- andi minna eða í samræmi við fyigi flokksins í þéttbýli utan Reykjavíkur. Það má telja fullvíst, að þessir kjósendur Al- þýðuflokksins í þingkosningum, vilji tryggja meirihluta Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Alþýðublaðið vill hins vegar benda á það að samkvæmt skoðanakönnunum er meirihluti Sjálfstæðisflokksins svo mikill, að baráttan mun liklega snúast um það hvort Alþýðuflokk- urinn fær tvo fulltrúa eða Sjálfstæðisflokkur- inn tíu. I bæjarfélögum víða um land virðist áhugi kjósenda fara vaxandi á því, að áhrifa jafnaðar- stefnunnar gæti meira en verið hefur í stjórn bæjarmála. Ekki er síður mikilvægt að þessi áhrif aukist í stjórnun Reykjavíkurborgar. Það sýna og sanna fjölmörg dæmi. Atkvæðadreifing á milli mihnihlutaflokkanna er slík, að mikill fjöldi atkvæða ónýtist, hefur ekki áhrif til fjölgunarfulltrúa. Það væri hörmu- leg niðurstaða fyrir baráttumenn jafnaðar- stefnunnar ef aðeins skorti nokkra tugi at- kvæða til þess að Alþýðuflokkurinn fengi tvo menn kjörnaí borgarstjórn. — Það máekki ger- ast, og því skorar Alþýðublaðið á alla stuðn- ingsmenn jafnaðatstefnunnar að leggjast á eitt um að tryggja flokknum tvo fulltrúa í borg- arstjórn. Frá menntamálaráðuneytinu: Lausar stöður Við Menntaskólann á Egilsstööum er laus staða frönskukennara. Myndlista- og handíðaskóla íslands vantar kennara f hálfa stöðu við textíldeild. Umsóknarfrestur til 16. júni. Umsóknarfrestur um kennarastöður við Fjölbrautar- skólann á Sauðárkróki í dönsku, stærðfræöi og eðlis- fræði, félagsfræði og sögu rennur út 1. júnf. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík. Menntamálaráðuneytið. Utboð Innkaupastofnun Reykjavikurborgar fyrir hönd Raf- magnsveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í lagn- ingu 132 kv. jarðstrengs. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verðaopnuð á sama staö þriöjudaginn 10. júni n.k. kl. 11. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 Alþýðuflokkskonur Árleg norræna námsvika jafnaðarkvenna verður að þessu sinni haldin dagana 10.—16. ágúst n.k. í Stokk- hólmi. Yfirskrift námsvikunnar er „Vinnuskilyrði kvenna" Samband Alþýðuflokkskvenna auglýsir hér með eftir umsóknum um námsvikuna og er umsóknarfrestur til 1. júni n.k. S.A. getur sent 2 þátttakendur og fá þeir frlar feröir og uppihald námsvikuna, en ergert að greiða 1.500 kr. þátt- tökugjald. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Alþýðu- f lokksins eða hjá formanni S.A. Jónu Ósk Guðjónsdótt- ur sími 54132 eða 50499 og gefur hún jafnframt allar nánari upplýsingar. Bfllinn í lagi — beltin spennt börnin í aftursæti. GÓÐAFERÐ! Hjólreiðakeppni grunnskóla: 4000 börn byrjuðu 96 komust í úrslit Eins og undanfarin ár efndi Um- ferðarráð, í samvinnu við Lögregiu og Menntamálaráðuneytið, til spurningakeppni um umferðarmál meðal 12 ára nemenda í grunnskól- um landsins. í spurningakeppninni reynir á kunnáttu og þekkingu á umferðar- reglum og merkjum. Um 4.000 börn hófu keppnina sem fram fór í apríl. Þeir nemendur sem stóðu sig best öðluðust rétt til þátttöku í und- anúrslitum hjólreiðakeppni sem er tvíþætt, annars vegar góðakstur og hins vegar hjólreiðaþrautir. Undan- úrslitin fóru fram 3. maí í Reykja- vík, og á Akureyri 10. maí. Alls mættu 96 börn til leiks. Keppninni er þannig háttað að allir byrja með 260 stig. Stigum fækkar eftir því sem villur eru gerðar. Eftirtaldir nemendur urðu í efstu sætunum: Á Akureyri: 1. Sigurður Ólason, Lundarskóla Akureyri með 255 stig. 2. Kristinn Reynir Jónsson, Síðuskóla Ak. með 250 stig. 3. Ingi Þór Rúnarsson, Barnask. Sauðárkróks með 245 stig. 4. Ásta Hilmarsdóttir, Glerár- skóla Akureyri með 238 stig. í Reykjavík: 1. Sigurbjörn Narfason, Digranes- skóla Kóp. með 248 stig. 2. Björn Kjartansson, Flúðaskóla Árnes- sýslu með 245 stig. 3.—4. Guð- mundur Pálsson, Varmárskóla Mosfells. með 242 stig. 3.—4. Sverrir B. Sverrisson, Varmárskóla með 242 stig. 5. Birgitta Róberts- dóttir, Holtaskóla Kefl. með 240 stig. 6. Þormar Jón Ómarsson, Stóru-Vogaskóla, Vatnsl. með 239 stig. 7. Hafþór Árnason, Álftamýr- arskóla, Reykjavík með 238 stig. 8. Magnús Þ. Árnason, Melaskóla, Reykjavík með 237 stig. 9. Ingólfur Már Ingólfsson, Garðaskóla Garðabæ með 236 stig. 10.—11. Aðalsteinn Erlendsson, Grunnsk. Njarðv. með 235 stig. 10.—11. Davíð B. Ólafsson, Vesturbæjarsk. Rvík. með 235 stig. 12.—13. Guð- mundur Ingi Skúlason, Snæ- landssk. Kóp. með 234 stig. 12.—13. Ágústa Arnardóttir, Víði- staðaskóla Hafn. með 234 stig. Þessi 17 ungmenni unnu sér rétt til þátttöku í úrslitakeppni sem verður í haust. Þar verður keppt um vegleg verðlaun. Allir sem tóku þátt í keppninni fá senda viðurkenningu fyrir aðild sína í mótinu. DV 1 sem birst hafa að undanförnu benda til að svo gæti farið. Ef aðeins eru teknir þeir sem af- stöðu tóku í könnun DV eru niður- stöðurnar þær að Sjálfstæðis- flokkurinn fengi 10 borgarstjórn- arfulltrúa, Alþýðubandalag 3 og Alþýðuflokkur og kvennalisti 1 fulltrúa hvor. Samkvæmt könnun- inni skortir enn nokkuð á að annar maður á lista Alþýðuflokksins nái kjöri, en ljóst virðist þó að það er ekki fjarlægur draumur að Al- þýðuflokkurinn hafi tvo fulltrúa í borgarstjórn á næsta kjörtímabili. ÍNGAR Þegar bílar mætast erekki nóg aö annar víki vel út á vegarbrún og hægi ferö. Sá sem á móti kemur verður aö gera slíkt hiö sama en notfæra sér ekki til- litssemi hins og grjótberja hann. Hæfilegur hraöi þegar mæst er telst u.þ.b. 50 km.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.