Alþýðublaðið - 28.05.1986, Side 1
Miðvikudagur 28. maí 1986 gg tb( @7 árg.
42 Þúsund eintök
Þetta kosningablað Alþýðublaðsins er
gef ið út í 42 þúsund eintökum og er dreift
í hvert einasta hús í Reykjavík. I blaðinu
er margvíslegt efni um borgarmálin í
Reykjavík og borgarmálastefnuskráin er
prentuð í heild. — Blaðinu verður einnig
dreift á vinnustaði.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson:
„Hafskipsmenn
bara óneppnir
Gjaldþrot er tilfærsla á fjár-
magni með friðsamlegum hætti!
í síöasta hefti Stefnis, tímariti
Sambands ungra sjálfstæðis-
manna, er grein eftir einn helsta
hugmyndafræðing Sjálfstæðis-
flokksins í nýfrjálshyggjunni,
Hannes Hólmstein Gissurarson.
Þar fjallar hann um Hafskipsmál-
ið. Fyrirsögn greinarinnar er:
„Hvaða ályktanir ber að draga af
gjaldþroti Hafskips og vandræðum
Utvegsbankans?“ — Hér er vægi-
lega til orða tekið.
í greininni segir Hannes Hólm-
steinn á einum stað: „Hér hlýt ég
síðan að herða á einu: stjórnendur
gjaldþrota fyrirtækis hafa ekki allt-
af tekið rangar ákvarðanir af van-
gá, vanþekkingu eða heimsku.
Stundum hafa þeir verið óheppn-
ir . . . Stjórnendur eða eigendur
gjaldþrota fyrirtækis eru stundum
fórnarlömb utanaðkomandi að-
stæðna, sem þeir hafa ekki séð fyrir
eða valdið neinu um. Ég hef til
dæmis grun um það, án þess að ég
þekki málavöxtu nákvæmlega að
stjórnendur Hafskips hafi veriö
óheppnir, þótt þeir hafi ugglaust
líka verið ógætnir."
Síðar segir Hannes Hólmsteinn:
„Ef menn taka réttar ákvarðanir, þá
græða þeir. Ef þeir taka rangar
ákvarðanir, þá tapa þeir. Ef þeir
taka hvað eftir annað rangar
ákvarðanir, þá verða þeir gjald-
þrota. Kerfi gróða og taps á frjáls-
um markaði flytur þannig fjár-
magn með friðsamlegum hætti frá
óhagsýnu fólki til hagsýns. Mér líst
voru
u
miklu verr á hitt ráðið, sem reynt
hefur verið í ríkjum sameignar-
sinna: að skjóta þá eða fangelsa
sem taka rangar ákvarðanir. Er
gjaldþrot þrátt fyrir allt ekki mildi-
legra lokaúrræði en manndráp?
Skiptaráðandinn er, sýnist mér,
ólíkt mannúðlegri en böðullinn."
Þessar hugleiðingar Hannesar
Hólmsteins eru æði sérkennilegar í
ljósi síðustu atburða í Hafskips-
málinu. Að hans mati voru Haf-
skipsmenn bara óheppnir. Með
gjaldþroti félagsins er bara verið að
færa fjármagn til með friðsamleg-
um hætti! í kenningum Hannesar
Hólmsteins eru aðeins til tvær
lausnir: að taka fyrirtæki til gjald-
þrotaskipta eða skjóta menn og
fangelsa.
Nú hafa nokkrir forystumenn
Hafskips verið úrskurðaðir í gæslu-
varðhald, sem auðvitað eru hörmu-
leg endalok á þessu máli. Sam-
kvæmt kenningum Hannesar
Hólmsteins búa íslendingar í ríki
sameignarsinna. —
Þessi barnalega grein nýfrjáls-
hyggjupostulans sýnir betur en flest
annað rökleysu og fáránlegan hug-
myndagrundvöll nýfrjálshyggjunn-
ar.
Þegar þú greiðir meö tékka, fyrir vöru eöa veitta
þjónustu, og sýnir Bankakortið þitt, jafngildir þaö
ábyrgðarskírteini frá viöskiptabankanum eöa spari-
sjóönum þínum, sem ábyrgist innstæöu tékkans
aö ákveðinni hámarksupphæö og tryggir þannig
viötakandanum innlausn hans. Viöskiptin eiga
sér þannig staö aö um leið og þú afhendir
tékkann, sýniröu Bankakortiö og viðtakandinn
skráir númer kortsins á hann.
Þannig er Bankakortiö þitt tákn um trausta
viöskiptahætti. Hafðu Bankakortið því ávallt
handbært.
Bankakortið
- nauðsyniegt í nútímaviðskiptum
Samvinnubankinn, Útvegsbankinn, Alþýöubankinn,
Búnaöarbankinn, Landsbankinn, Verzlunarbankinn
og Sparisjóðirnir.
ffl