Alþýðublaðið - 28.05.1986, Síða 2
2
'+V;i
i » t
Met í skattheimtu
Magnús H. Magnússon, fyrr- málaráóherra, sendi ritsljóra
um alþingismaður og félags- Alþýðublaðsins eftirfarandi
FAGMENNIRNIR
VERSLA
HJA OKKUR
Því að reynslan sannar ad
hjá okkur er yfirleitt til
mesta úrval af vörum til
hita- og vatnslagna.
BURSTAFELL
byggingavöruverslun
Bíldshöfða 14
simi 38840
bréf og grein. Þessi grein á jafnt
erindi til Reykvikinga og Vest-
mannaeyinga og birtist hér
óstytt:
Kæri Árni.
Mér biöskrar það að íhaldið
skuli, næstum án andsvara,
komast upp með það í Reykja-
vík að fimbulfamba um útsvars-
lækkanir. Ég hef svarað þessu
einu sinni áður í Brautinni og
geri það aftur með meðf. grein.
Það er spurning hvort ekki sé
tímabært að Alþýðublaðið geri
það miðað við aðstæður í
Reykjavík.
Lifðu heill,
Magnús.
•
Núverandi bæjarstjórnarmeiri-
hluti er af og til að stæra sig af því
(að hætti borgarstjórans í Reykja-
vík) að hafa stórlækkað álögur á
bæjarbúa frá því sem var á síðasta
kjörtímabili.
Þetta er argasta öfugmæli. í ár
hafa öll fyrri met verið slegin i út-
svarsálagningu.
Það skiptir ekki meginmáli,
hvorki fyrir bæjarsjóð né gjaldend-
ur, hve hátt útsvarið er af tekjum
liðins tíma. Það skiptir hins vegar
öllu máli hve hátt hlútfallið er af
tekjum greiðsluárs.
Verðbólgan á árunum 1980—82
var að jafnaði 60% á ári. 11,55%
útsvar, eins og þá var lagt á, jafn-
gilti 7,2% af tekjum greiðsluársins.
Núverandi 10,2% útsvar jafngildir
hins vegar 9,4% tekna ársins í ár
utsvarið er í ár 9,4% af tekjum, en
var að jafnaði 7,2% í tíð fyrrver-
andi meirihluta. Hefur m.ö.o.
hækkað um 30.6%.
Það tók launþega að meðaltali
15,8 virka daga (5 daga vinnuvika)
að vinna fyrir útsvarinu sínu 1980
—82 en nú tekur það sama Iaun-
þega 20,7 virka daga.
Samt talar meirihlutinn (og borg-
arstjórinn í Reykjavík) um lækkun
útsvara. Dómgreind kjósenda er
ekki metin á marga fiska á þeim
bæjum.
Við þetta bætist svo, að á sama
tímabili, 1980—1986 hefur kaup-
máttur taxta launþega rýrnað um
30%. Á því græðir bæjarsjóður því
mikill hluti gjalda hans er tengdur
launum í einhverri mynd. Þessi
hrikalega kaupmáttarrýrnun gerir
launþegum hins vegar mun erfiðara
en ella að standa undir stórhækk-
uðu útsvari.
Sumir halda því fram, að tals-
verðum hluta kjaraskerðingarinnar
hafi verið mætt með launaskriði.
Því er til að svara, að launaskriðið
er fyrst og fremst í verslun og þjón-
ustu og fyrst og fremst á Reykjavík-
ursvæðinu. Það hefur að mestu far-
ið hjá garði Vestmannaeyinga.
Við höfum stórlækkað fasteigna-
gjöldin, segir meirihlutinn. Við
höfum ekki notað 25% álag eins og
áður var gert.
Það er rétt svo langt sem það nær
og verðbólgan hefur minni áhrif til
lækkunar fasteignagjalda en út-
svara því fasteignagjöldin greiðast á
skemmri tíma, fyrrihluta árs.
Eigi að síður eru fasteignagjöldin
nú, í 8% verðbólgu, svo til upp á
krónu jafnhá í reynd og þau voru
Eftir
Magnús H.
Magnússon,
fyrrum
félagsmála-
ráðherra
áður með 25% álagi í 60% verð-
bólgu.
í síðasta Fylki segir Arnar Sigur-
mundsson, að heildartekjur bæjar-
sjóðs og stofnana bæjarins hafi
hækkað úr 98,0 millj. kr. árið 1982
í 312,5 millj. árið 1985 eða um
219%. Á sama tíma hækkaði kaup
launþega um 135%.
Þarf nokkuð frekar vitnanna við
um stórkostlega hækkun bæjar-
gjalda.
Mm.
JOFUR H
NÝBÝLAVECI 2 • SÍMI 42600
STAÐGREIÐSLUVERÐ:
105 S
120 L
120 LS
130 L
130 R
kr. 127.400,-
kr. 146.500,-
kr. 163.700,-
kr. 190.800,-
kr. 201.300,-