Alþýðublaðið - 28.05.1986, Side 4
4
Miövikudagur 28. maí 1986
RÁS A GENGUR VEL
Á RÁS—A hefur nú veriö út-
varpað í nokkra daga og tekist vel.
Þetta er útvarp Alþýðuflokksins,
sem veröur í gangi út þennan mán-
uð. Útvarpsstöðin er til húsa í
Hamraborg í Kópavogi og starfar
að rekstrinum hópur manna í sjálf-
boðavinnu. Sent er út á FM bylgju
103.
Útvarpað hefur verið léttri og
ljúfri tónlist mestan hluta dagsins
og eftir að sjónvarpsdagskrá lýkur
á kvöldin. Birgir Dýrfjörð, sem
gegnir starfi útvarpsstjóra, tjáði Al-
þýðublaðinu, að öllum framboðs-
listum á höfuðborgarsvæðinu
hefðu nú verið boðin afnot af stöð-
inni í eina og hálfa klukkustund
hverjum lista. Þegar hefðu nokkrir
listanna þegið þetta boð.
Þá hefur ungu skólafólki verið
boðið að gera eigin dagskrár, og eru
nú í vinnslu nokkrar dagskrár í
framhaldsskólum í borginni. Hafn-
firðingar hafa verið með fasta
þætti, og í þessari viku bætast
Garðbæingar, Kópavogsbúar og
Reykvíkingar í hópinn.
Stöðin hefur fengið talsvert af
auglýsingum, enda heyrast útsend-
ingar hennar vel um allt höfuðborg-
arsvæðið og einnig í Keflavík.
Landsbanki Islands
Skákmót
Afmælisskákmót Landsbankans
verður haldið sunnudaginn 1. júní í
afgreiðslusal Aðalbanka Lands-
bankans, Austurstræti í tilefni 100
ára afmælis Landsbanka íslands
1986. Mótið verður hraðmót, 12
keppendur tefla allir við alla, og eru
tímamörk 10 mínútur hvors kepp-
anda á skák. Til mótsins hefur þess-
um skákmönnum verið boðið:
Friðriki Ólafssyni, Inga R. Jó-
hannssyni, Guðmundi Pálmasyni
og Ingvari Ásmundssyni. Þessir
menn voru í fylkingarbrjósti ís-
lenskra skákmanna árin 1955—
1960 og þótti því við hæfi að gefa
þeim allra yngstu og efnilegustu
kost á að reyna krafta sína við þessa
frægu meistara. Úr röðum yngstu
meistaranna munu tefla: Hannes
Hlífar Stefánsson 13 ára, Þröstur
Árnason 13 ára, Héðinn Stein-
grímsson 11 ára og Sigurður Daði
Sigfússon 14 ára. Þrátt fyrir ungan
aldur hafa þessir drengir þegar get-
ið sér frægðarorð fyrir skákafrek
sín. Á Skákþingi Reykjavíkur 1986
varð Þröstur Árnason skákmeistari
Reykjavíkur, aðeins 13 ára gamall,
og náði síðan ásamt jafnaldra sín-
um, Hannesi Hlífari, góðum ár-
angri á alþjóðlega skákmótinu í
Reykjavík sem haldið var í febrúar
sl.
Frá Landsbanka íslandseru þess-
ir keppendur: Hilmar Viggósson,
Jóhann Örn Sigurjónsson, Sól-
mundur Kristjánsson og Vilhjálm-
ur Þór Pálsson. Afmælismótið
mun fara fram í afgreiðslusal
Landsbankans, Austurstræti 11 og
verður opið hús þennan dag, þann-
ig að áhorfendur geta fylgst með
gangi skákanna. Góð verðlaun eru í
boði, að heildarupphæð kr.
100.000,00.
Mótið hefst klukkan 14 og stend-
ur væntanlega fram til klukkan 18
eða 19. Það er ölium opið og að-
gangur er ókeypis.
Verðlaunaafhending verður í lok
mótsins.
Skákstjóri verður Ólafur S.
Ásgrímsson.
Fréttatilkynning frá Landsbank-
anum.