Alþýðublaðið - 28.05.1986, Side 7
Miðvikudagur 28. maí 1986
7
Almenn læknisþjónusta í Reykjavík:
„Reykvíkingar búa við
hreint öryggisleysi"
— segirSkúli Johnsen, borgarlæknir.
— Einn læknir á vakt fyrir 100 þúsund íbúa.
— Heimilislæknar nær tvöfalt fleiri á landsbyggðinni.
— Reykvlkingar þurfa að nota dýra sérfræðiþjónustu.
Heimilislæknar í Reykjavík
þurfa að sinna allt að því tvöfalt
fleira fólki en starfsbræður þeirra
úti á landi. Fyrir 23 árum var gerð
sérstök samþykkt í borgarstjórn
Reykjavíkur, þar sem þessi mál öll
voru talin vera í ólestri, og nefnd
skipuð til að gera tillögur um úr-
bætur. Nefndin skilaði skýrslu
1968, en síðan hefur ekkert gerst.
Skúli Johnsen borgarlæknir
sagði í samtali við Alþýðublaðið
fyrir nokkrum dögum, að tiltekn-
um þáttum almennrar læknisþjón-
ustu væri mun verr sinnt í Reykja-
vik, en almennt væri á landsbyggð-
inni. Einkum lýtur þetta að aðgangi
fólks að heimilislækni sínum og
vaktþjónustu, utan venjulegs
vinnutima heimilislækna.
„Hér er látið nægja að einn
læknir hafi allt að 2.500 manns á
sinni könnu, en til samanburðar
voru 1.365 einstaklinga um hvern
heimilislækni á landsbyggðinni að
meðaltali fyrir fimm árum. Þessi
tala hefur þó lækkað síðan, þannig
að nú er samanburðurinn enn óhag-
stæðari" sagði Skúli.
Hann sagði ennfremur að um há-
marksfjölda sjúklinga sem hver
læknir mætti taka að sér giltu
samningar milli lækna og sjúkra-
samlags, þannig að þetta ástand
væri samþykkt af sjúkrasamlaginu,
sem þó ætti að reyna að gera hag-
stæða samninga fyrir hönd með-
lima sinna.
Skúli sagði að þessi mikli fjöldi
sjúklinga leiddi til þess að heimilis-
læknar í Reykjavík væru mjög upp-
teknir menn og hefðu lítinn sem
engan tíma til að fara í sjúkravitjan-
ir og gætu ekki svarað í símann
nema klukkutíma á degi hverjum.
„Ef við tökum vaktþjónustunaþ
sagði Skúli, „þá er hér einn læknir
á vakt fyrir 100 þúsund manns á
tímabilinu frá klukkan fimm á dag-
inn til átta á morgnana. Af skiljan-
legum ástæðum er þetta sífellt um-
kvörtunarefni þeirra sem þurfa að
nota þessa þjónustu og ég -hef oft
sagt að þetta sé hreint öryggisleysi"
Skúli gat þess ennfremur að fyrir
utan þessa vaktþjónustu væri slysa-
deildin sá eini vettvangur sem fólk
gæti snúið sér til að kvöld- og næt-
urlagi.
Skúli sagði fólk á landsbyggðinni
hafa mun greiðari aðgang að heim-
ilislæknum sínum og læknar þar
hefðu mun betri tíma til að sinna
hverjum sjúklingi, auk þess sem
menn hefðu aðgang að sínum lækni
símleiðis allan sólarhringinn ef á
þyrfti að halda. „Á meðan hér er
einn læknir á vakt fyrir 100 þúsund
íbúa, er einn læknir fyrir hverja
1365 íbúa úti á landi“ sagði hann.
„Reykvíkingar hafa hins vegar
mjög góða sérfræðiþjónustuþ
isagði Skúli, „og þeir nota hana auð-
vitað meira og minna í staðinn"
Hann bætti við að sérfræðiþjónust-
an væri dýrari en almenna læknis-
þjónustan, bæði fyrir þá einstakl-
inga sem notuðu hana, en þó eink-
um fyrir opinbera aðila.
LIFANDI MIÐBÆR
- LISTALÍF
-góð vöm gegn
verðhækkunum
COSTA bel S0L
PLAY AMAR
Beint flug
í sólina:
5. júní, 26. júní,
17. júlí, 7. ágúst,
28. ágúst, 18. sept,
2. okt. - 3ja vikna
ferðir.
Nú bjóöum við dvöl í stórglæsilegum íbúöum
Playamar, alveg við ströndina, steinsnar frá mið-
borg Torremolinos stærsti hótelgarður á Costa del
Sol. 3 sundlaugar, stórar grasflatir, barnaleik-
svæði, tennis, minigolf, veitingastaðir, kjörbúðir.
Þetta er staðurinn fyrir þá sem vilja það besta.
Verðið er samt ótrúlega hagstætt, vegna þess að
við þurfum ekki að leggja mörg þúsund króna
auglýsingakostnað á hvern farþega.
Islenskir fararstjórar, fjölbreyttar skemmti- og
skoðunarferðir.
Einnig beint flug í sólina til : Benedorm,
Mallorca, Costa Brava.
Við gefum barnafjölskyldum frítt far fyrir 36 börn í ferðirn-
ar 5. og 26. júní til kynningar á hinni undursamlegu fjöl-
skylduparadís, PLAYAMAR.
4' i' Ifrvív i iiti iynr 36 bör
— FIUGFERÐIR mmm mtm ■ mmm ■ ■ ■ rnrnm
Vesturgötu 17 símar 10661,15331.22100.