Alþýðublaðið - 28.05.1986, Qupperneq 11
Miðvikudagur 28. maí 1986
11
Meö sjómanns-
blóö í æðum
eftir Bryndísi Schram, sem skipar
2. sætið á A-listanum í Reykjavík
Sú var tíðin að höfuðborgin okkar
var stærsta verstöð landsins. En í
þeim efnum má Reykjavík muna
sinn fífil fegri. Sjómenn og fisk-
vinnslufólk eru minnihlutahópur
meða) starfandi Reykvíkinga.
Samt lifir lengi í gömlum glæð-
um. Sjómannsblóð rennur í æðum
okkar flestra. Þess vegna leita
margir til sjávarins í tómstundum; í
leit að hugarró eða bara til að fá út-
rás arfgengu sjómannseðli.
Borgarstjórn hefur alls ekki tekið
nægilegt tillit til þessara erfðaeig-
inda margra Reykvíkinga. Þá er ég
fyrst og fremst að hugsa um að-
stöðu fyrir trillukarla og skemmti-
bátaeigendur.
Þess vegna bið ég alla alvörusjó-
menn og sjómennskugutlara að
kynna sér tillögur okkar jafnaðar-
manna í hafnarmálum.
Vil viljum t. d.
að borgin hafi forgöngu um að
koma á fót uppboðsmarkaði á
sjávar- og landbúnaðarvörum,
sem enn eru frjálsar undan ein-
okunarkerfi söluhringja,
að komið verði upp sérstökum
markaðshúsum eða yfirbyggð-
um markaðstorgum, þar sem á
boðstólum verði í smásölu jafnt
fiskur sem afurðir garðyrkju-
bænda,
að fyrsta markaðstorgið af þessu
tagi verði í tengslum við fiski-
bátaaðstöðu í vesturhöfninni.
Haldið þið, að það verði handa-
gangur í öskjunni þegar reykvískar
húsmæður flykkjast aftur niður að
höfn til að kaupa ferskan fisk, sem
hefur verið landað beint upp úr bát
í morgunsárið!
Og ekki sakar að geta sótt sér
ferskan jarðargróða af svignandi
markaðstorgum garðyrkjubænda
— þeirra sem enn ganga lausbeizl-
aðir frá Framsókn og geta um
frjálst höfuð strokið.
En við viljum líka,
að«gerðar verði endurbætur á að-
stöðu trillubáta austan Ægis-
garðs og
að haldið verði áfram gerð
skemmtibátahafnar í Elliðaár-
vogi.
Það þarf að vinna að því í sam-
vinnu við fleiri sveitarfélög og
áhugamannafélög, að skemmti-
bátaeigendur fái sjósetningarað-
stöðu á nokkrum stöðum, á strand-
lengjunni frá Reykjavík suður um
til Stokkseyrar.
Gleymum því ekki að Reykjavík
er hafnarborg. Gleymum ekki held-
ur uppruna okkar. Og fyrir alla
muni, gleymum ekki sjálfum okk-
ur. Sjómannsblóðið rennur enn í
æðum okkar. Það má fyrir enga
muni storkna eins'og í venjulegum
meginlandslandkröbbum.
— Bryndís.
1 ■
flMUNMIMMrai BEINT
SUMARIBUÐIRNAR
okkar viö hiö undurfagraGARDAVATNá
ÍTALÍU eru í algjörum sérflokki og staðsetning þeirra í
bænum DESENZANO á besta staö viö suðurenda vatns-
ins skapa óteljandi skemmtilega möguleika.
VERÐ FRA KR. 28.200. — 3 VIKUR
Ef þú vilt mikla og stórkostlega náttúrufegurð í skjóli ítölsku Alpanna og útsýni út
yfir stærsta og fegursta stöðuvatn italíu, kyrrð og ró og alveg örugga sólardaga,
þá er þetta staðurinn fyrir þig.
Boðið er upp á skoðunarferðir, t.d. til VERONA, skoðun listaverka FLORENS-
BORGAR og FENEYJA eða ferð til INNSBRUCK í AUSTURRÍKI og svo mætti
lengi telja. Möguleikarnir eru of margir til þess að telja þá upp hér.
Fyrir þá sem vilja líf og fjör, er allt mögulegt til skemmtunar á næsta leiti svo sem
CANEVA-vatnsleikvöllurirtn og GARDALAND einn stærsti skemmtigarður
ÍTALÍU í sannkölluðum DISNEY-land TÍVOLÍ stíl, einnig SAFARI-garður með
villtum dýrum o.m.m.fl. Öll aðstaðatilsunds, sólbaða og seglbrettasiglinga er hin
ákjósanlegasta. Góðir og ódýrir veitingastaðir eru á hverju strái og að sjálfsögðu
diskótek. I
GARDAVATNSFERÐIR OKKAR HEFJAST:
10. júní 1. júlí 22. júlí 12.ágúst
3 vikur 3 vikur 3 vikur 3 vikur
Af þeim mörgu fallegu stöðum sem,
ÍTALÍA hefur upp á að bjóða er
GARDAVATN í algjörum sérflokki. Þetta
stærsta og fegursta vatn ÍTALÍU,
370 km 2 er meira en fjórum sinnum
stærra en Þingvallavatn. Öllum verður
ógleymanleg skemmtisigling með við-
komu á fjölda staða meðfram ströndinni
eða stórkostleg bílferð eftir hinni víð-
frægu GARDESANA útsýnishring-
braut sem opnuð var 1931 umhverfis
vatnið. Þess má geta að GARDAVATN
hefur orðið íslenskum skáldum yrkis-
efni, eins og Jóhanni Sigurjónssyni og
Gísla Ásmundssyni.
FERÐASKRIFSTOFAN
SIMI 2 97 40
OG 62 17 40
yiiyTerra
LAUGAVEGI 28 101 REYKJAVIK
STAÐFESTINGARGJALD MA AÐ SJALFSOGÐU GREIÐA MEÐ VISA EÐA EURO.