Alþýðublaðið - 28.05.1986, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 28. maí 1986
13
Kjarasamningar
og kaupmáttur
Smáflokkakraðakið hefur í
kosningabaráttunni þótzt hafa efni
á að kveða upp allsherjarfordæm-
ingu á nýgerðum kjarasamningum.
Á vinnustaðafundi nýlega svar-
aði Jón Baldvin og sagði að frómar
óskir um 30 eða 40 eða 50 þús. kr.
lágmarkslaun á mánuði skiptu litlu;
spurningin væri: Hvernig ætti að
tryggja, að umsamdar kauphækk-
anir yrðu ekki aftur teknar.
Hann tók dæmi af dæmigerðri
launþegafjölskyldu.
• Fjölskyldan hafði 600 þús. kr.
árstekjur 1985.
• Fjölskyldan skuldaði 800 þús.,
aðallega vegna húsnæðisöflunar.
• Miðað við verðbólgustig ríkis-
stjórnarinnar — fyrir kjarasamn-
inga — hefði þessi fjölskylda
orðið að greiða 30% verðbólgu-
skatt (þ. e. verðbætur) af 800 þús.
kr. skuldum sínum.
• 30% af 800 þús. kr. skuldum ger-
ir 240 þúsund kr. verðbólguskatt,
eða tæplega helming af árstekj-
um fjölskyldunnar.
• Lækkun verðbólgu úr 30% í 10%
þýðir eftirfarandi fyrir fjölskyld-
una:
• Verðbólguskatturinn lækkar úr
240 þús. í 80 þús. eða um 160 þús.
kr. á ári, sem er sama og ca. 13
þús. á mánuði.
• Verðbólgulækkunin þýðir, að
World Fishing ’86
í Bella Center:
16 íslensk
fyrirtæki sýna
Sextán íslensk iðnfyrirtæki sýna
framleiðslu sína á sjávarútvegssýn-
ingunni WORLD FISHING ’86,
Bella Center sýningarhöllinni í
Kaupmannahöfn dagana 17. til 21.
júní næstkomandi. Þréttán fyrir-
tækjanna sýna á sameiginlegum
bás, sem Útflutningsmiðstöð iðn-
aðarins skipulagði og setur upp.
Finnur Fróðason, innanhússarki-
tekt, útlitshannaði básinn. Eftirtal-
in fyrirtæki sýna á íslenska sýning-
arbásnum í Bella Center:
Marel hf., Póllinn hf., Sæplast
hf., Plasteinangrun hf., Traust hf.,
Rafagnatækni hf., Meka hf.,
Samax, Björgunarnetið Markús
hf., Hugrún sif., Hampiðjan hf.,
DNG, Rafboð hf.
J. Hinriksson hf. sýnir auk þess
toghlera og Vélsmiðjan Oddi hf.
sýnir búnað til meðhöndlunar fisk-
kassa í samvinnu við dönsk og
norsk fyrirtæki. Vélsmiðjan Oddi
hf. hefur undanfarin ár tekið þátt í
sjávarútvegssýningum í samvinnu
við þessi fyrirtæki.
Á sama tíma og sýningin
WORLD FISHING ’86 er opin, er
efnt til sýninga undir nöfnunum
FOOD FROM THE SEA og FISH-
FARMING INTERNATIONAL.
Til þeirra er boðað á þriggja ára
fresti í Bella Center. Breska fyrir-
tækið Industrial and Trade Fair
International Ltd. sér um að skipu-
leggja sýningarnar. Það er sama
fyrirtækið og skipulagði sjávarút-
vegssýninguna í Laugardalshöll
1984.
Sjávarútvegssýningin í Bella
Center er ein sú stærsta sinnar teg-
undar í heiminum í ár. Mikill áhugi
er fyrir henni meðal forystumanna
íslenskra fyrirtækja sem framleiða
búnað fyrir sjávarútveg og fisk-
vinnslu. Fyri i sýningar af þessu tagi
hafa þótt heppnast vel. Þangað
kemur margt fólk og þar tengjast
menn viðskiptaböndum.
Það telst og til tíðinda, að sam-
hliða sjálfri sjávarútvegssýning-
unni eru sýndar sjávarafurðir og
fiskeldisbúnaður. Sölusamband ís-
lenskra fiskframleiðenda tekur þátt
í sjávarafurðasýningunni.
fjölskyldan hefur 160 þús. á ári
eða 13 þús. á mánuði, meira ráð-
stöfunarfé, sem ekki verður af
henni tekið, haldist verðlagsfor-
sendur.
Þetta er raunveruleg kjarabót
upp á 27%, fyrir þá sem verst eru
settir, þ. e. skulduðu mest fyrir, og
höfðu því þyngsta greiðslubyrði.
Fyrir þessa fjölskyldu þýddu kjara-
samningarnir raunverulega kjara-
bót upp á 27%. Berið þetta saman
við 30% kauphækkun í krónum
sem BSRB knúði fram eftir langt
verkfall 1984, og var að engu orðin
nokkrum vikum seinna, en spennti
upp lánskjaravísitölu og þyngdi
greiðslubyrði þeirra sem þyngstar
byrðar báru fyrir, mjög verulega.
• Ætli flokkur mannsins og kon-
unnar geti skilið þetta?
4/5 1/5
smíör sojaolía
„Þessi afuitö sameinar
bratjögæói og
bætiefnainnihald smjörs
og mýkt olíunnar
* Dr. Jón Óttar Ragnarsson,
Fréttabréf um heilbrigðismál, júní 1981.
Smjörvi- sá eini símjúki
með smjörbragði.
f f
ÞJONUSTUIBUÐIR FYRIR