Alþýðublaðið - 28.05.1986, Side 14

Alþýðublaðið - 28.05.1986, Side 14
14 Miðvikudagur 28. maí 1986 Bolungarvíkursamningarnir: 30 þúsund á mánuði Flokkar mannsins og konunnar segjast ætla að hækka kaup borg- arstarfsmanna í 30 þús. kr. á mán. — nái þeir meirihlutavaldi í borgar- stjórn. • Þeir segja að maðurinn hennar Bryndísar hafi hins vegar sam- þykkt 19 þús. kr. lágmarkslaun á mánuði. • Það er að vísu misskilningur. Þingmenn Alþýðuflokks og Al- þýðubandalags gerðu hvorki að samþykkja né fella kjarasamn- inga. Kjarasamningarnir voru milli atvinnurekenda og laun- þega. • Hins vegar samþykktu þing- flokkar Alþýðuflokks og Al- þýðubandalags efnahagsráðstaf- anir í kjölfar kjarasamninganna m. a. til þess að tryggja lækkun skatta og tolla, miðað við breytt- ar verðalagsforsendur. Og nýtt húsnæðislánakerfi, sem tekur gildi 1. sept. í haust, og felur í sér tvöföldun á lánum til húsnæðis- mála og verulega lækkun á greiðslubyrði skulda. • Flokkar mannsins og konunnar virðast hins vegar ekki vita, hverj- ir gerðu Bolungarvíkursam- komulagið um 30 þús. kr. lág- Hvað er það ódýrasta á boðstólum í dag ef ekki það ódýrasta. KJÚLLETTUR eru fitulitlar og því tilvaldar fyrir þá sem þurfa að hugsa um línurnar. Og síðast en ekki síst eru KJÚLLETTURNAR fljótleg máltíð, þú tekur þær úr frystinum og steikir frostnar í ca. 5 - 10 mín. og þá er herra- mannsmáltíð tilbúin. ísfugl Varmá Reykjavegi 36 Mosfellssveit Sími: 666103 Fáðu þér KJÚLLETTUR þú hefur þrjárgóðarástæður markslaun bæjarstarfsmanna þar. • Formaður Verkalýðs- og sjó- mannafélags Bolungarvíkur heit- ir Karvel Pálmason. Hann er þingmaður Alþýðufiokksins. • Formaður bæjarráðs Bolungar- víkur heitir Valdimar Lúðvík Gíslason. Hann er bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins og efsti maður á lista flokksins þar, fyrir þessar kosningar. • Þetta fræga Bolungarvíkursam- komulag var því gert á milli verkalýðsfélags, sem þingmaður Alþýðuflokksins leiðir, og bæjar- stjórnarmeirihluta, þar sem al- þýðuflokksmenn og sjálfstæðis- menn ráða. • Flokkar mannsins og konunnar komu þar hvergi nærri. Húsnœðismál á Vestfjörðum: Stöðvum nauð- ungaruppboðin Á fjölmennum fundum á vegum Áhugamanna um úrbætur i hús- næðismálum bæði á Flateyri og Suðureyri var samþykkt eftirfar- andi ályktun. Tekið skal fram að öllum þingmönnum Vestfjarða og einnig fulltrúum frá stjórnmála- flokkum sem ekki hafa þingmenn á Vestfjörðum var boðið til fundar- ins. 1. Að nauðungaruppboð verði stöðvuð þegar í stað. Það er vítavert að bjóða upp eignir fólks, meðan það ástand ríkir tímabundið, að eignir eru nánast verðlausar. í stað þess veitist fólki kostur á að endurfjármagna hús- næðið með láni úr Byggingarsjóði verkamanna. 2. Lán sem fólk hefur tekið til öflunar húsnæðis, verði leiðrétt í gegnum skattakerfið með veruleg- um skattaafslætti eða beinum end- urgreiðslum. Vegna hávaxtastefnu og misgeng- is lána pg launa, hafa lán hækkað mun meira en eðlilegt getur talist. Þetta hafa ráðamenn margoft við- urkennt og heitið úrbótum og leið- réttingum en þau loforð jafnan ver- ið svikin. 3. Komið verði á fót sérstökum viðlagasjóði. Ríkisstjórnin komi þegar í stað á fót viðlagasjóði til þess að aðstoða sveitarfélög, þar sem fólk á í mikl- um erfiðleikum vegna húsnæðis- skulda og sveitarfélög þurfa óhjá- kvæmilega að taka á sig skuldbind- ingar til þess að rétta við fasteigna- markaðinn. í þessu sambandi skal vakin athygli á því, að eins og nú stefnir munu lífeyrissjóðir Vestfirð- inga verða lagðir í almenna sjóði landsmanna, á meðan fólk fjárfest- ir ekki í húsnæði í þessum lands- hluta. 4. Fólk sem hefur aflað húsnæð- is á síðustu árum, eigi rétt á að ganga inn í nýtt húsnæðislánakerfi. Laus staða Laus er til umsóknar staða lyfjafræðings í Rannsókna- stofu lyfjafræði lyfsala við Háskóla íslands. Æskilegt er aö umsækjandi hafi einhverja þjálfun i lyfjagreiningu. Laun samkvæmt samningi Lyfjafræðingafélags ís- lands og Apótekarafélags Islands. Umsóknir ásamt skýrslu um námsferil og störf skulu sendar menntamálaráðuneytinu Hverfisgötu 6, 105 Reykjavlk, fyrir 18. júní 1986. Menntamálaráðuneytið, 21. maí 1986. Aðalfundur S.Í.F. Aðalfundur Sölusambands íslenskra fiskfram- leiðenda fyrir árið 1985 verður haldinn að Hótel Sögu 12. júní nk. og hefst kl. 10.00 f. h. Dagskrá samkvæmt félagslögum. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórn Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda. Auglýsing um skoöun léttra bifhjóla í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur 26. mai R- 1 til R- 500 27. ma( R- 501 til R- 800 28. maí R-801 tii R-' 1100 29. maí R-1101 til R-1300 30. mai R-1301 og yfir. Skoðunin verður framkvæmd fyrrnefnda daga við bif- reiðaeftirlitið að Blldshöföa 8, kl. 08:00 til 16:00. Sýna ber við skoðun að lögboðin vátrygging sé I gildi. Tryggingargjald ökumanns og skoðunargjald ber að greiða við skoðun. Skoðun hjóla sem eru í notkun í borginni er skrásett eru I öðrum umdæmum fer fram fyrrnefnda daga. Vanræki einhver að koma hjóli slnu til skoðunar um- rædda daga, verður hann látinn sæta sektum sam- kvæmt umferðarlögum og hjólið tekið úr umferð hvar sem til þess næst. Þetta tilkynnist öllum sem hlut eiga að máli. 22. maí 1986. Lögreglustjórinn í Reykjavík.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.