Alþýðublaðið - 28.05.1986, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 28. ma( 1986
15
Lánskjara-
vísitalan
Með tilvísun til 39. gr. laga nr.
13/1979, hefur Seðlabankinn reikn-
að út lánskjaravísitölu fyrir júní
1986.
Lánskjaravísitala 1448 gildir fyr-
ir júní 1986.
Hækkun lánskjaravísitölu frá
mánuðinum á undan varð 1.12%.
Umreiknað til árshækkunar hefur
breytingin verið sem hér segir:
Síðasta mánuð 14.3%
Síðustu 3 mánuði 5.7%
Síðustu 6 mánuði 17.3%
Síðustu 12 mánuði 26.6%
6 seld
2 keypt
Frdmsoknar fý/k/nc/,
forJar okkurdfáerafrð,
þo kratdr og kommar oss raðist a,
-n Sýnurn nu hug, djorfung og dug,
)if grof/m, gr'o'fum, uaskirmenn, ý
gongm sku/um k/ara,
ogkomum utá hérðdi /nnan 4ra éra.
• ’ '• /•>/;
Kosninga-
baráttan
á Seyðis-
firði
Þorkell Helgason á Seyðisfirði sem
teiknaði þessa mynd, skopast hér
að kosningaloforðum framsóknar-
manna á Seyðisfirði fyrir síðustu
bœjarstjórnarkosningar, en þá
lögðu þeir áherslu á jarðgangna-
gerð til að bœta samgöngurnar.
Heldur mun Seyðfirðingum þykja
sem mannvirkjagerð þessi hafi
dregist á langinn.
Lítilsvirðing
Eftirfarandi ályktanir hafa Al-
þýðublaðinu borist frá Stýri-
mannaféíagi íslands.
Aðalfundur Stýrimannafélags
íslandshaldinn 13. maí 1986 skor-
ar á stjórnvöld að þau hætti að
sýna sjómannastéttinni þá lítils-
virðingu að blanda sér í kjarabar-
áttu sjómanna og mótmælir harð-
lega bráðabirgðalögum sem sett
voru til að binda endi á verkfall
Skipstjórafélags íslands og Sjó-
mannafélags Reykjavíkur. Að
mati fundarins er þessi lagasetn-
ing enn ein sönnun þess að at-
vinnurekendur geti í vaxandi
mæli treyst á stjórnvöld sér til
fulltingis í ákvörðunum um kaup
og kjör og ennfremur að launþeg-
ar búi nú við stórlega skertan
samningsrétt.
Ennfremur mótmælir fundur-
inn harðlega sem rangri staðhæf-
ingu samninganefndar útgerð-
anna sem kom fram í yfirlýsingu
sem þeir lögðu fram á sáttafundi
þann 8. maí sl. og birt hefur verið
í fjölmiðlum þess efnis að það
samrýmist ekki lögum um Land-
helgisgæslu íslands að starfs-
menn Landhelgisgæslunnar starfi
og geri sig gildandi í starfi stéttar-
félaga.
Þessa fullyrðingu útgerðanna
telur fundurinn út í hött og að
engu hafandi enda jafngildir hún
því að starfsmenn Landhelgis-
gæslunnar megi ekki taka þátt í
starfi stéttarfélaga eins og aðrir
þjóðfélagsþegnar og veljast þar til
forustu ef svo vill verkast.
6 seld — 2 keypt
Aðalfundur Stýrimannafélags ís-
lands haldinn 13. maí 1986 sam-
þykkir eftirfarandi ályktun um at-
vinnumál farmannastéttarinnar:
Fundurinn lætur í ljós áhyggjur
yfir þeirri óheillaþróun sem átt
hefur sér stað í siglingum til og frá
landinu.
Fundurinn vill koma því á
framfæri að á árinu 1985 voru 6
íslensk farskip seld úr landi en 2
keypt til landsins. Frá því um síð-
ustu áramót hafa 2 skip verið seld
úr landi og önnur 2 tekin úr
rekstri til frambúðar (og fleiri
skip á söluskrá). Þeir flutningar
sem þessi skip önnuðust fara að
stærstum hluta fram með erlend-
um leiguskipum mönnuðum er-
lendum áhöfnum.
Fundurinn krefst þess að þess-
ari óheillaþróun verði snúið við
og að stjórnvöld og útgerðaraðil-
ar beiti sér fyrir því að hafa ávallt
að leiðarljósi að skip sem stunda
reglubundnar siglingar til og frá
íslandi séu i eigu íslendinga og
mönnuð íslenskum sjómönnum.
Einnig fer fundurinn fram á, að
stjórnvöld setji siglingar á hærri
stall en verið hefur og líti á þær
sem sjálfstæðan atvinnuveg
nauðsynlegan sjálfstæði eyþjóð-
ar. Atvinnuveg sem geti skilað
miklum arði í þjóðarbúið og séð
hundruðum manna fyrir atvinnu.
HVORT SEM ÞÚ VILT í SEÐLUM EÐA FERÐATEKKUM
g þá er ekki allt upp talið. í öllum afgreiðslum Landsbankans geta
ferðalangar nánast fyrirvaralaust gengið að gjaldmiðlum allra helstu viðskiptalanda
okkar vísum.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Ferðatékkar, bankaávísanir og seðlar
eru ávallt fyrirliggjandi, í öllum
helstu gjaldmiðlum.
Við minnum líka á Visakortið,
- athugaðu gildistímann áður
en þú leggur af stað.
Góða ferð.
o uS'i
í LANDSBANKANUM FÆRÐU
DOLLARA, PUND, MÖRK,
FRANKA, PESETA, FLÓRÍNUR,
ESCUDOS OG LÍRUR
%
|fc