Alþýðublaðið - 21.06.1986, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 21.06.1986, Blaðsíða 4
alþýöu- iíieet™ Laugardagur 21. júnf 1986 Alþýðublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavík Sími: (91) 681866, 81976 Útgefandi: Blað hf. Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.) Blaðamenn: Jón Daníelsson og Ása Björnsdóttir Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir Setning og umbrot: Alprent hf., Armúla 38 Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12 * Askriftarsíminn er 681866 Vinstri meirihluti á ísafirði Rætt við Ingibjörgu Ágústsdóttur, þriðja mann á lista Alþýðuflokksins ísafjörður er einn af þeitn stöð- um, þarsem Alþýðuflokkurinn jók fylgi sitt verulega í bæjarstjórnar- kosningunum. Hann jók fylgi sitt úr 26% greiddra atkvæða í síðustu kosningum í 31,3% greiddra at- kvæða nú og fékk þrjá menn kjörna í stað tveggja áður. Alþýöuflokkurinn heíur myndað meirihlutastjórn, ásamt Framsókn- arflokki og Alþýðubandalagi og fyrsti bæjarstjórnarfundur var haldinn á fimmtudag. Fundinum stýrði aldursforseti bæjarstjórnar, sem er Geirþrúður Charlesdóttir. Það mun vera í fyrsta skipti sem kona gegnir því starfi í ísafjarðar- kaupstað. Alþýðublaðið hafði tal af Ingi- björgu Ágústsdóttur, þriðja manni á lista Alþýðuflokksins og spurði hvað hefði valdið velgengni þeirra í kosningunum. Ingibjörg kvaðst ekki hafa neitt afdráttarlaust svar við því. Kjós- endur hefðu að líkindum kunnað vel að meta framlag Alþýðuflokks- ins til bæjarstjórnarmála á síðasta kjörtímabili og ennfremur taldi hún að unga fólkið hefði gengið til liðs við þau í kosningunum. Skoð- anakönnun hefði verið gerð í Menntaskólanum, sem benti til þess að jafnaðarstefnan ætti fylgi að fagna þar. Sjálf kvaðst hún hafa orðið mjög undrandi þegar ljóst var að hún væri komin í bæjarstjórn, en þætti það spennandi viðfangsefni að tak- ast á við. Brýnustu verkefni í bæjarmálum ísafjarðar telur Ingibjörg vera framkvæmdir við Sundahöfn, því að mikil þörf er á bættri aðstöðu við höfnina. Mörg önnur verkefni biða nýju bæjarstjórnarinnar, sér- staklega þarf að auka fjölbreytni í atvinnulífinu og einnig þarf að huga að umhverfismálum bæjarins, að sögn Ingibjargar. Ingibjörg hefur ekki áður fengist við stjórnmál, en telur af fenginni reynslu að virk þátttaka í slíku starfi opni augu manna fyrir ýmsu sem gera þarf til hagsbóta fyrir bæ- inn og íbúa hans. „Málefni bæjar- ins eru mikilvægust í þessu sam- bandij* segir hún, „en ekki endilega á pólitískum grundvelli. Við mun- um vinna að því af alefli að bæta aðstöðuna hér og laða fólk til bæj- arins og það vona ég að okkur tak- ist“ sagði Ingibjörg að lokum. FERÐAHAPPDRÆTTI Fulltrúaráðs Alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík Jfc 08501 Dregið 5. júlí 1986 Vinningar: 1—12 ferðavinningar að verðmæti kr. 30.000 hver. Heildarverðmæti vinninga kr. 360.000.00 Fjöldi miða: 10.000 Upplýsingar um vlnninga f sfma 29244. Miðaverð kr. 200.00 Vinninga skal vitja innan eins árs. Dregið verður íferðahappdrœtti Alþýðuflokksins hinn 5. júlínk. Að sögn Ámunda Ámundasonar, sem annast um framkvœmd happdrœttisins, hafaþegar verið seldir 7.300 miðaraf þeim tíu þúsund sem gefnir voru út. Ekki hefur verið gripið til þess ráðs að senda fólki miða ípósti og sagði Ámundi að nokkuð hefði verið um kvartanir þess vegna. Hann sagði hins vegar að þeir sem enn hefðu ekki komist yfir miða, mœttu hafa sambandi við sig í síma 32873 í Reykjavík, og yrðu þeim þá sendir miðar, meðan upplagið endist. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin: Ráðstefna um forvarnir Þessa dagana stendur yfir ráð- stefna Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar WHO, um „For- varnir gegn langvinnum sjúkdóm- um“, en hana sitja 35 fulltrúar 10 Evrópuríkja, auk Kanada. Forvarn- arverkefnið er liður í áætlun WHO um „Heilbrigði allra árið 2000“. „Forvarnir gegn langvinnum sjúkdómum“ er umfangsmikið samstarfsverkefni WHO í Evrópu, en undirbúningur þess hófst árið 1978, en ísland varð formlegur aðili 1984. Alls hafa átta Evrópuríki undirritað samstarfssamninginn, en þau eru auk íslands: Austurríki, Finnland, Sovétríkin, V-Þýskaland, Búlgaría, Malta og Júgóslavía. Mörg önnur ríki hafa sýnt verkefn- inu mikinn áhuga og tekið þátt í því. Þrjú þeirra senda fulltrúa á fundinn í Reykjavík, en þau eru England, Tékkóslóvakía og Kanada. í samningnum um þetta mikil- væga heilsuverndarverkefni segir meðal annars um „Forvarnir gegn langvinnum sjúkdómum": „Frumheilsugæslan ásamt stoðgreinum hennar gegnir lyk- ilhlutverki ef ná á markmiðinu Framh. á bls. 2 Frá ráðstefnunni. Heilbrigðisráðherra og landlœknir á tali. Molar Gúrka eða tómatsósa Stundum tala menn um gúrkutíð á blöðunum. En þeir sem gleggst þekkja til á Þjóðviljanum þessa dagana, tala hinsvegar nú um tómatsósu . . . Listahátíð mótmælir Á fundi framkvæmdastjórnar Listahátíðar 19. júní var eftirfar- andi ályktun samþykkt einróma: Vegna fyrirhugaðrar byggingar tónlistarhúss í Reykjavík lýsir framkvæmdastjórn Listahátíðar í Reykjavík 1986 yfir því að hún tel- ur þær tillögur sem fram hafa komið allsendis ófullnægjandi. Bendir framkvæmdastjórnin á að þetta hús leysir engan veginn þann vanda sem skapast hefur þegar fjölsóttir tónleikar eru haldnir í borginni, til að mynda á Listahá- tíð. Framkvæmdastjórn lýsir og yfir furðu sinni á því að ekki skuli vera gert ráð fyrir óperuflutningi í fyr- irhuguðu tónlistarhúsi nema þá í skötulíki. Leggur framkvæmda- stjórnin áherslu á að svo skamm- sýn sjónarmið sem fram koma í fyrirhugaðri byggingu tónlistar- húss verði ekki látin ráða enda er nauðsynlegt að svona dýr bygging leysi þann vanda sem hér hefur verið í tónlistar- óperuflutningi. Verði af byggingu þessa tónlistar- húss í því formi sem það nú er hugsað er sá vandi að mestu leyti. óleystur eftir sem áður. Og til hvers er þá verið að byggja? Alþjóðleg hjólakeppni Eins og kunnugt er af fréttum þá var ísland meðal þátttakenda í al- þjóðlegri keppni vél- og reiðhjóla- manna. Þessi keppni er haldinn á vegum PRI sem eru alþjóðasam- tök umferðarráða. Að þessu sinni sendu 14 þjóðir þátttakendur í keppnina sem fór fram í Éspo í Finnlandi 1. — 6. júní. ísland sendi tvo keppendur í hvorn flokk. í vélhjólaflokknum kepptu Magnús Garðarsson úr Reykjavík og Hlynur Hreinsson frá ísafirði. í reiðhjólaflokknum kepptu Dorfi Örn Guðlaugsson úr Njarðvíkurskóla og Auðunn R. Ingvarsson Árbæjarskóla Reykja- vík. íslensku keppendurnir stóðu sig vel og urðu vélhjólamenn í 6. sæti í sveitakeppni og reiðhjólastrák- arnir í 8. sæti. Sigurvegari í báð- um flokkum voru gestgjafarnir Finnar. Keppnin fer þannig fram að fyrst svara keppendur skriflega spurn- ingum síðan er keppt í þrauta- akstri og loks er keppt í góðakstri í umferð. Framkvæmd keppninnar var mjög til fyrirmyndar og Finnum til sóma. Umferðarráð þakkar öllum sem undirbjuggu þessa keppni þ. e. skólastjórum í grunnskólum landsins, Bindindisfélagi öku- manna og lögreglumönnum víðs vegar um landið. Skólameistarar Aðalfundur félagsins var haldinn mánudaginn 9. júní í Menntaskól- anum við Hamrahlíð. í stjórn fé- lagsins voru kosnir: Formaður, Ingvar Asmundsson, skólastjóri Iðnskólans í Reykja- vík. Ritari, Þórir Ólafsson, skóla- meistari Fjölbrautaskólans á Akranesi Gjaldkeri, Karl Krist- jánsson, aðstoðarskólam. Fjöl- brautaskólans v/Ármúla. Vara- menn: Björn Teitsson, skóla- meistari Menntaskólans á ísa- firði. Kristinn Kristmundsson, skólameistari Menntask. á Laug- arvatni. Á fundinum fluttu skólameistar- arnir Kristján Bersi Ólafsson, Flensborgarskóla og Þórir Ólafs- son erindi um innra starf fram- haldsskólanna. Um þetta efni urðu mjög líflegar umræður á fundinum. Stjórninni var falið að taka upp viðræður við mennta- málaráðuneytið um þetta efni og um samskipti skólanna við ráðu- neytið. • Gistivinnustofa í Hafnarfirði Að undanförnu hefur stjórn Hafnarborgar, menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar, unnið að innréttingu gistivinnu- stofu i samvinnu við Norrænu listamiðstöðina í Sveaborg. Nor- ræni menningarsjóðurinn hefur styrkt þessar framkvæmdir. Gisti- vinnustofan er til húsa á III. hæð í húsi Hafnarborgar að Strand- götu 34, Hafnarfirði. Aðstaðan er nú tilbúin og fyrsti gesturinn, sem er finnskur list- málari, hefur flutt inn í íbúðina. • Djúpivogur, Djúpuvík Djúpavík og Djúpivogur er ekki al- veg það sama, það vita þeir sepi búa á þessum tveim ólíku stöðum. Breiðdalsheiði og Breiðadalsheiði er heldur ekki alveg það sama, eins er töluverður munur á Fáskrúðs- firði og Patreksfirði. Slikur mis- skilningur er nokkuð algengur og getur að valdið miklum sárindum. Við rákumst á dæmi um þetta í Eystrahorni nýlega: „Sem frægt er tilkynnti ríkisút- varpið hljóðvarp það á mánudag- inn í aðalfréttatíma að 10 cm jafn- fallinn snjór væri á Djúpavogi. Brá mörgum í brún því enginn var þar snjórinn. Héldu menn að hrekkur hefði þeim verið gjörður og bárust böndin að sóknarpresti, Sigurði Ægissyni, sem er frægur hrekkja- sveinn og töldu menn að hann væri manna líklegastur til þess að hafa hringt inn þessa hrekkjafrétt. En áður en prestur var settur í poka kom leiðrétting. Ríkisútvarpið hafði meint Djúpavík á Ströndum, en ekki hinn eðla Djúpavog.i fram- haldi af þessu blómstruöu umræð- ur um stofnun hrekkjasveinafélags á Djúpavogi, en þar er margt efni- legra hrekkjasveina, ekki síður en á skerjunum fyrir sunnan Island. Djúpivogur er annars kauptún við austurströnd landsins, um klukkutíma akstur austur af Hval- nesi í Lónií*

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.