Alþýðublaðið - 15.07.1986, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 15. júlí 1986
3
Samnorrœnt verkefni um fjölbreyttari atvinnuþátt-
töku kvenna — íslenski hlutinn unninn á Akureyri
Brjótum múrana—BRYT
Brjótum múrana — BRYT er
samnorrænt verkefni um að auka
fjölbreytni í atvinnuþátttöku
kvenna. Gefinn hefur verið út sér-
stakur norrænn upplýsingabækl-
ingur, þar sem gerð er grein fyrir
grundvelli og tilgangi verkefnisins.
Islensk verkefnislýsing fylgir með.
Tilgangur þessa verkefnis er að
þróa og prófa leiðir til að brjóta
niður þá múra, sem aðskilja vinnu-
markaði karla og kvenna. Þetta er
jafnréttisverkefni og markmið þess
er að auka fjölbreytni í náms- og
starfsvali kvenna og tryggja at-
vinnuöryggi þeirra með aðgerðum,
sem beinast bæði að menntakerfinu
og atvinnulífinu.
Komið verður af stað tilrauna-
verkefnum á afmörkuðum svæðum
í hverju hinna fimm Norðurlanda.
Auk þess er ætlunin að rannsaka og
greina þá þætti, sem orsaka og við-
halda skiptingu vinnumarkaðarins
eftir kynjum. Síðast en ekki síst er
það hlutverk „Brjótum múrana“ að
miðla upplýsingum um þær niður-
stöður sem fást, og taka þannig
virkan þátt í umræðunni um hinn
kynskipta vinnumarkað.
Að sögn Valgerðar H. Bjarna-
dóttur, verkefnisstjóra, voru það
félagsmálaráðuneytið og Jafnréttis-
ráð, sem völdu Akureyri fyrir þetta
verkefni. Stærð bæjarfélagsins var
talin heppileg. Valgerður hefur
skrifstofu í Kaupangi. Þar er hægt
að hafa sambandi við hana og
einnig heima.
í greinargerð, sem hún hefur rit-
að um íslenska hluta verkefnisins,
segir á þessa leið:
Grundvöllur
Stóraukin atvinnuþáttaka
kvenna hefur lítið aukið fjölbreytni
í störfum þeirra. Kvennastarfs-
greinar eru fáar, 25—30, og eru
flestar framhald þeirra starfa sem
konur hafa unnið og vinna enn inn-
an veggja heimilisins. Auk þess er
meirihluti íslenskra kvenna ófag-
lærðar og flest störf þeirra eru verr
launuð en störf karla. Karlar vinna
í um það bil 200—300 starfsgrein-
um og hafa mun oftar mannaforráð
en konur. Menntun kvenna hefur
aukist mjög en er á þröngu sviði og
það hefur sýnt sig að launamunur
kynjanna eykst pieð aukinni
menntun. Breyttar aðstæður í at-
vinnulífinu, t. d. tæknibyltingin
hafa ekki styrkt stöðu kvenna. Á
nýjum sviðum myndast einnig
, kvenna og karlagreinar.
Markmið „Brjótum Múrana“ er
að styrkja stöðu kvenna á vinnu-
markaði framtíðarinnar og að
tryggja áhrif þeirra á allt samfélag-
ið. Hlutverk þess er að kanna stöðu
þessara mála á Norðurlöndum,
rannsaka orsakir og afleiðingar,
prófa leiðir til úrbóta og meta
árangurinn. Sérstök athygli mun
beinast að ungum stúlkum í námi
og fullorðnum konum sem standa
frammi fyrir breyttum vinnuað-
stæðum.
Skipulag verkefnisins
Brjóta Múrana er 4ra ára verk-
efni og hófst hér á landi 1. desem-
ber 1985. Félagsmálaráðuneytið fer
með yfirumsjón verkefnisins hér-
lendis. Innlend ráðgjafarnefnd
starfar með verkefnisstjóra, skipuð
fulltrúum frá Jafnréttisráði íslands
(Ólöf Pétursdóttir), Norrænu Jafn-
réttisnefndinni (Elín Pálsdóttir
Flygenring), félagsmálaráðuneyt-
inu (Gylfi Kristinsson), mennta-
málaráðuneytinu (Bergljót Rafn-
- ar), Akureyrarbæ (formaður-jafn--.
réttisnefndar Akureyrar), ASÍ
(Kristín Hjálmarsdóttir) og VSÍ
(Gunnar Skarphéðinsson). Fram-
kvæmd íslenska hluta verkefnisins
er á Akureyri. Verkefnisstjórinn
Kvennagreinar eru 25—30 en karlar
vinna í 200 til 300 starfsgreinum
Valgerður H. Bjarnadóttir, verk-
efnisstjóri.
starfar m. a. með bæjaryfirvöldum,
jafnréttisnefnd, skólum, launþega-
samtökum og atvinnurekendum.
Aðgerðir
Kynning á verkefninu er þegar
hafin og mun verða stöðug allan
tímann. Þetta er einn mikilvægasti
þáttur verkefnisins, þ. e. að halda
vakandi umræðu, sem er forsenda
þess að breyting verði á hugarfari í
jafnréttisátt. Kynningin beinist
bæði að almenningi gegnum fjöl-
miðla og að einstökum aðilum, s. s.
nemendum, kennurum, foreldrum,
vinnuveitendum og launþegum,
opinberum aðilum t. d. bæjaryfir-
völdum og ráðuneytum, svo og fé-
lagasamtökum og stjórnmála-
flokkum.
Náms- og starfsfræðsla í
Grunnskólum
Samkvæmt grunnskólalögunum
og lögum um jafnrétti karla og
kvenna er gert ráð fyrir að starfs-
kynning og ráðgjör varðandi náms-
og starfsval sé hluti námsefnis í
grunnskólanum. Þessi þáttur hefur
víða verið vanræktur. Brjótum
■Múrana og jafnréttisnefnd Akur-
eyrar hafa unnið að því í samvinnu
við fræðslustjóra, skólastjóra og
yfirkennara að þessi fræðsla verði
tekin upp í öllum grunnskólunum á
Akureyri næsta skólaár og er þegar
hafinn undirbúningur að því. í
ágúst n. k. verður haldið námskeið
á Akureyri fyrir þá kennara sem
annast kennsluna, a. m. k. tvo frá
hverjum skóla. Starfskynningin
verður fyrst og fremst fyrir nem-
endur í 9. bekk. Ætlunin er að
halda námskeið fyrir þá starfsmenn
á vinnustöðum sem taka að sér að
leiðbeina þessum nemendum.
Brjótum Múrana mun skipuleggja
og fylgjast með þessari fræðslu, í
samvinnu við jafnréttisnefnd
Akureyrar og fræðsluyfirvöld, og
meta árangurinn.
Stúlkur í hefðbundnum
karlagreinum
Mikil áhersla verður lögð á að
hvetja stúlkur til að takast á við ný
starfssvið og afla sér fagmenntunar
á þeim sviðum iðnaðar og tækni
þar sem þær eru meiri hluti ófag-
lærðs starfsfólks nú, s. s. í fisk- og
fataiðnaði.
---í Verkmenntaskólanum verður
komið á stuðningshópum fyrir þær
stúlkur sem stunda nám í hefð-
bundnum karlagreinum. Einnig er
fyrirhugað að hafa sérstök kynn-
ingarnémskeið fyrir stúlkur, e. k.
fornám þar sem þær geta unnið upp
það forskot sem strákarnir hafa í
flestum tilfellum á þessum sviðum,
svo sem í tæknigreinum, tölvufræð-
um ög ýmiss konar vélavinnu. Leið-
beinendur munu fá sérstaka þjálfun
til þessa starfs. Brjótum Múrana
mun annast skipulagningu þessara
námskeiða í samvinnu við skóla-
stjórn VMA.
Stúlkur í bóknámi
Bóknám fer fram að mestu leyti í
Menntaskólanum á Akureyri en þar
eru stúlkur í meirihluta. Fram-
haldsnám hefur í för með sér flutn-
ing úr bænum. Gert er ráð fyrir að
nám á háskólastigi hefjist haustið
1987. Miklu máli skiptir fyrir þær
stúlkur sem nú stunda nám í MA
hvers konar námsbrautir verður þar
um að ræða og að þær fái ráðgjöf
og stuðning til að leita inn á óhefð-
bundnar brautir á sama hátt og
nemendur VMA. Hugsanlegt er að
nemendur félagsfræðibrautar MA
taki þátt í starfi Brjótum Múrana
sem hluta af námi sínu, á þann hátt
að aðstoða við upplýsingaöflun
undir leiðsögn kennara. Sú vinna
getur orðið mikilvægur grundvöll-
ur fyrir alla nemendur Menntaskól-
ans í umræðunni um jafnrétti kynj-
anna og tvískipta vinnumarkaðinn
sem bíður þeirra.
Konur í karlastörfum
Fyrirhugað er að koma á stuðn-
ingshópum fyrir konur með tækni-
og iðnmenntun og konur í stjórn-
unarstörfum, hugsanlega í sam-
vinnu við stéttarfélög og kvenna-
samtök
Verkstjórnarnámskeið
fyrir konur
Fyrirhugað er að halda sértök
verkstjórnarnámskeið fyrir konur.
Annars vegar fyrir þær sem áhuga
hafa á að reyna slíkt. Verkstjórnar-
fræðslan, sem er deild hjá Iðntækn-
istofnun, hefur þegar haldið eitt
slíkt námskeið í Reykjavík og lýst
vilja sínum til að taka þátt í sam-
starfi um annað hér norðan lands.
Námskeið fyrir
ófaglærðar konur
Mjög mörg þeirra starfa sem
konur vinna krefjast ekki fag-
menntunar, en eru þó sérhæfð.
Með aukinni tæknivæðingu eykst
þörf starfsþjálfunar og fagþekk-
ingar. Um þessar mundir eru unnið
að hugmyndum um nám fyrir fólk .
í verksmiðjuiðnaði. Menntamála-
ráðherra skipaði nefnd til að vinna
að slíkum hugmyndum, og skilaði
hún áfangaskýrslu í apríl sl. Brjót-
um Múrana mun vinna að því að
boðið verði upp á námskeið fyrir
ófaglært iðnverkafólk á Akureyri,
og hvetja og styðja konur til að
sækja námskeiðin.
Einstæðar mæður á íslandi eru
fjölmennur hópur og aðstæður
þeirra eru oft slæmar. Margar eru
án starfsmenntunar, laun þeirra lág
og þær vinna 10—12 tíma vinnu-
dag. Eins árs fornám gæti bætt
möguleika þeirra til að fá betur
Iaunaða vinnu eða fara í framhalds-
nám. Hugsanlegt er að tengja þetta
fornám starfsemi framhaldsskól-
anna og ofangreindum námskeið-
um en þessi starfsemi er enn á und-
irbúningsstigi.
Námskeið fyrir konur í
nýjum atvinnurekstri
Hafið er samstarf Brjótum Múr-
ana og „samstarfshóps áhuga-
manna um þróunarverkefni um
stofnun nýrra fyrirtækja fyrir kon-
ur“ í Reykjavík. Ráðgert er að
halda námskeið á Akureyri á fyrri
hluta næsta árs og mun það ná yfir
nokkurra mánaða tímabil, ,2—3
dagar í senn. Fylgst verður með
gengi kvennanna einnig eftir að
þær stofna fyrirtæki. Unnið verður
að þessu verkefni í samvinnu við at-
vinnumálanefnd Akureyrar, Iðn-
þróunarfélag Eyjafjarðar, Iðn-
tæknistofnun íslands og Iðnaðar-
ráðuneytið, Framkvæmdanefnd
um launamál kvenna, Jafnreftisráð
o. n.
Samnorræna starfið
Verkefnisstjórar BRYT á Norð-
urlöndunum fimm, hittast reglu-
lega á fundum þar sem lagðar eru
sameiginlegar áætlanir, skipst á
upplýsingum og reynslu. Starfið er
skipulagt þannig að sérhver aðgerð
er unnin a. m. k. í tveim löndum. T.
d. er finnski verkefnisstjórinn að
vinna að uppbyggingu náms- og
starfsfræðslu í Vammala í Finn-
landi á svipaðan hátt og verið er að
gera hér á Akureyri. Einnig er fyrir-
hugað að vinna sérstök verkefni t
öllum löndunum samtimis.
Ráðstefnur verða haldnar á veg-
um BRYT bæði innlendar og sam-
norrænar. Ráðstefna um rannsókn-
ir á hinum kynskipta vinnumarkaði
verður haldin í vetur, líklega í Dan-
mörku. Tilgangurinn er sá að reyna
að ná til þeirra sem slíkar rannsókn-
ir hafa stundað á Norðurlöndun-
um, safna upplýsingum, gera til-
raun til að skilgreina orsakir kyn-
greiningarinnar og sameiginlega að
Ieita leiða til úrbóta.
Ráðstefna jafnréttisráðgjafa af
vinnumiðlunarskrifstofum verður-
líklega haldin 1987. Tilgangurinner
að gefa þessum ráðgjöfum, sem
reyndar eru enn ekki til á íslandi,
tækifæri til að hittast og miðla af
reynslu sinni.
Ráðstefna um kennsluhætti í
iðnnámi stúlkna er fyrirhuguð vor-
ið 1987. Þangað verður boðið
áhugafólki úr kennarastétt til að
ræða uppbyggingu iðnnáms, inni-
hald námsefnisins og hvaða leiðir
eru til að gera þetta nánt aðgengi-
legra fyrir stúlkur. Ætlunin er að
nýta ráðstefnuna til að leggja grunn
að námsefni til framhaldsmenntun-
ar kennara á þessu sviði.
/vTð eigum
ySAMLEIÐ
Laus staða
Laus er til umsóknar staða fulltrúa við rannsókn-
ardeild ríkisskattstjóra.
Umsækjendur þurfaaö hafa lokiö prófi í lögfræði,
hagfræði, viðskiptafræði, eða búa yfir mikilli
reynslu og þekkingu á sviði bókhalds- og skatta-
mála.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf
óskast sendar rannsóknardeild ríkisskattstjóra,
Skúlagötu 57, 105 Reykjavfk fyrir 1. ágúst 1986.
Ritari
Rannsóknardeild ríkisskattstjóra óskar að ráða
ritara frá og með 1. ágúst 1986.
Umsækjendur þurfa helst að hafa lokið stúdents-
próf i eða aflað sér sambærilegrar menntunar. Góð
vélritunar- og íslenskukunnátta nauðsynleg auk
grunnþekkingar á sviði tölvuvinnslu.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf
óskast sendar rannsóknardeild rfkisskattstjóra,
Skúlagötu 57, 105 Reykjavfk.