Alþýðublaðið - 26.07.1986, Side 2
2
Laugardagur 26. júlí 1986
RITSTJÓRNARGREIN' ■ ■ ■ . —.
Lærum af mistökunum
n vað getum viö lært af sögu vinstri hreyfing-
arinnar á íslandi? Hvað getum við lært af mis-
tökum sögunnar sem að gagni má koma í dag
og á morgun? Þannig spyr formaður Alþýðu-
flokksins Jón Baldvin Hannibalsson í síðasta
hefti tímaritsins Þjóðlífi. í umfjöllun sinni um
þessar spurningar segir Jón Baldvin m. a.:
Vitur maður hefur sagt: Stjórnmálaflokkur
þarf ekki að verða gamall þótt henn eldist I ár-
um talið, m. a. vegna þess að hann getur geng-
ið í endurnýjun lífdaganna. Þetta getur gerst
með nýjum hugmyndum og nýju fólki. En það
gerirenginn sem hætturerað hugsa. Það gerir
enginn sem staðnar í kreddu. Tii þess eru vlti
kommúnistaflokkanna að varast þau.
Þess vegna skulum við vera ósmeyk við nýjar
hugmyndir, við að gagnrýna hið liðna, læra af
mistökum fortíðarinnar. Ef við ekki gerum það,
erum viö ófær um að veita öðrum leiðsögn á ó-
vissum tímum. í upphafi voru Alþýðuflokkur-
inn og Alþýðusambandið ein og sama hreyf-
ingin. Á samatímaog hægri öflin náðu að sam-
einast á íslandi, öfugt við það sem gerðist ann-
ars staðar á Norðurlöndum, urðu skammsýnir
menn þess valdandi hér, að eining Alþýðu-
flokksins og verkalýðshreyfingarinnar rofnaði.
Þetta hafði fyrirsjáanlegar illar afleiðingar. Öli
var þessi klofningsiðja byggð á sögulegum
misskilningi. Hver er þá þýðingarmesti lær-
dómurinn sem við getum dregið af þessari
sögu?
Hann ertvímælalaust sá, að ágreiningur í röð-
um vinstri manna um stundarfyrirbæri, eða um
ólíkar leiðir að sameiginlegu marki, má aldrei
verða til þess að þeir sem eiga sér sameigin-
legar hugsjónir og sameiginleg markmið láti
minniháttar ágreiningsmál glepja sér sýn og
veiki þannig styrk hreyfingarinnar með óvina-
fagnaði.
Bandalag jafnaðarmanna er dæmi um slíkt
stundarfyrirbæri. Kvennalistinn mun heldur
ekki festa rætur í íslenskri pólitík til frambúðar.
Hugmyndir þessara hópa og áhersluatriða í
málflutningi rúmast vel innan hugmyndafræði
I ýð ræð i sj af n aðarm an n a. Lýð ræði sj af n aðar-
menn hafa ávallt og ævinlega verið baráttu-
menn fyrir kvenfrelsi. Hin alþjóðlega hreyfing
jafnaðarmanna leggur nú sívaxandi áherslu á
aukna valddreifingu til smærri einingasamfé-
lags í stað miðstjórnarvalds og ríkisforsjár.
Báðir þessir hópar eiga því sitthvað ólært af
sögunni. Starfsemi þeirra er óvinafagnaður —
til þess fallinn að dreifa kröftum íhaldsand-
stæðingaog beinlínis færa Sjálfstæðisflokkn-
um völdin.
A síðastliðnum vetri gerðist ýmislegt innan
verkalýðshreyfingarinnar í aðdraganda og í
kjölfar kjarasamninga, sem staðfestir hug-
myndalega samstöðu okkar og áhrifamikilla
forystumanna verkalýðshreyfingarinnar, sem
hingað til hafaekki átt flokkslegasamleið með
okkur jafnaðarmönnum."
Og formaður Alþýðuflokksins spyr: „ímyndið
ykkur hvernig umhorfs væri í okkar þjóðfélagi,
ef Alþýðuflokkurinn hefði aldrei verið til.
ímyndum okkur hvernig umhorfs væri í þessu
þjóðfélagi, ef við ættum nú jafnaðarmanna-
flokk sem hefði að baki sér styrk verkalýðs-
hreyfingarinnar eins og forðum daga og eins
og víðast hvar annars staðar, í Norður—
Evrópu."
Sjálfurer Jón Baldvin ekki I vafa um svarið. Þá
hefði hreyfing jafnaðarmanna nægan styrk til
þess að taka forystuhlutverkið af Sjálfstæðis-
flokknum. Þáyrðu næstu kosningarsigurhátíð
þeirra sígildu hugmynda að sameina jafnaðar-
menn til pólitískrar baráttu. í anda frelsis, jafn-
réttis og bræðralags. Reynum því að læra af
mistökunum og látum ekki minniháttarágrein-
ingsmál glepja okkur sýn.
B. P.
D A L V I K
Lausar stöður á Dalvík
Eftirtaldar stöður hjá Dalvíkurbæ, eru lausar til um-
sóknar:
Bæjarritari, ( starfinu felst dagleg stjórn bæjarskrif-
stofu, umsjón með fjárreiðum bæjarsjóðs og rekstri.
Góð bókhaldsþekking auk þekkingar á sviði tölvunotk-
unarnauðsynleg, launakjörsamkv. launakjörum Starfs-
mannafélags Dalvíkurbæjar.
Aðalbókari: i starfinu felst umsjón með bókhaldi bæj-
arsjóðs og bæjarfyrirtækja auk færslu bókhalds,
launakjör samkv. launakjörum Starfsmannafélags Dal-
víkurbæjar.
Æskilegt erað umsækjendurgeti hafið starf sem fyrst.
Umsóknir er tilgreini menntun og fyrri störf sendist til
bæjarstjórans á Dalvík fyrir 12. ágúst, allar frekari upp-
lýsingar gefa bæjarritari og bæjarstjóri.
Dalvíkurbær
Ráðhúsinu, 620 Dalvik.
^ Garðabær
Skipulagsnefnd Garðabæjar
boðar til almenns borgarafundar um aðalskipulag
Garðabæjar þriöjudaginn 29. júli 1986, kl. 20.30 f Garða-
lundi.
Frummælendur verða Árni Ólafur Lárusson og Pálmar
Ólason, skipulagsarkitekt.
Á eftir framsöguræðum verða frjálsar umræður.
Bæjarstjóri
Fóstur
Fóstrur og eða annað uppeldismenntað starfsfólk
vantar I heilar og hálfar stöður á dagvistarheimili
Hafnarfjarðar.
Upplýsingar um störfin gefur dagvistarfulltrúi i sima
53444 á félagsmálastofnun Hafnarfjarðar.
Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði
Ef etnhver heldurþvífram að Arni Johnsen séeinigítaristinn íhópistjórnmálamanna, þá erþað stór misskilning-
ur. Gro Hariem Brundtland forsœtisráðherra Noregs þykir einnig liðtœkur gítarspilari. Á myndinni er hún íhópi
ungs fólks og það er ekki annað að sjá en hún haldi uppi stuðinu.
Kjúklingar 1
um, að neytendur gerðu sér ekki
grein fyrir að kjúklingakjöt væri
ennþá ódýrara, hlypu bara út í búð
og keyptu kindakjöt sem allsstaðar
væri hamrað á að væri nú 20% ó-
dýrara. Sagði hann að það væri ó-
neitanlega rétt að þetta hefði að
mörgu leyti villandi áhrif á val
manna fyrir framan kæliborðið, en
gera yrði ráð fyrir því að neytendur
treystu sinni eigin dómgrein og hag-
sýni í innkaupunum.
Alþýðublaðið hafði í gær sam-
bandi við Jónas Halldórsson frá
Sveinbjarnargerði, formann Félags
kjúklingabænda og vildi hann ekki
tjá sig um málið á þessu stigi. Sagði
hann að ætlunin væri að halda fund
í félaginu þá um kvöldið og ekki
vildi hann neitt segja fyrr en að
honum afloknum, ennþá væri held-
ur ekki allt komið á hreint með
framkvæmd niðurgreiðslanna. —
Ætlunin hafði verið að halda fund
í félaginu á fimmtudagskvöld, en
þar var ekki hægt vegna samgðngu-
örðugleika.
Niðurstöður fundarins lágu ekki
fyrir, Alþýðublaðið fór í prentun í
gærkvöldi.
If) Útboð
Innkaupastofnun Reykjavikurborgar f. h. byggingar-
deildar óskar eftir tilboðum I frágang lóöar við dag-
heimiliö Nóaborg við Strangarholt.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi
3, Reykjavlk, gegn kr. 10 þúsund skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuö á sama stað fimmtudaginn 7.
ágúst n. k. kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800