Alþýðublaðið - 17.10.1986, Qupperneq 2
2
Föstudagur 17, október 1986
-RITSTJQRNARGREIN.
Alþýðuflokkurinn í sókn
w
I þeim skoðanakönnunum, sem geröar hafa
verið á undanförnum vikum og mánuðum, hef-
ur fylgi Alþýðuflokksins stöðugt fariö vaxandi.
Þettaerflokknum fagnaðarefni, þótt rétt sé að
taka niðurstöður allra skoðanakannana með
nokkurri varúð. Á þvl leikur hins vegar enginn
vafi að Alþýðuflokkurinn er nú f verulegri sókn,
og að jafnaðarstefnan nýtur aukins stuðnings
landsmanna.
m
I skoðanakönnun, sem Helgarpósturinn birti í
gær og gerð er með 800 manna úrtaki, fær Al-
þýðuflokkurinn 21,2% og bætirvið sig 2,2% frá
skoðanakönnun, sem blaðið gerði f ágúst.
Staða flokksins virðist sterkust á Reykjanesi
þar sem hann fær 25%, en slökust ( Reykjavlk
þar sem hann fær 18,8%. Hins vegar er staða
hans almennt sterk á landsbyggðinni, en þar
hefur hann 21,3%.
Samkvæmt þessari könnun er Alþýðuflokkur-
inn tvímælalaust annar stærsti flokkur lands-
ins. Sjálfstæðisflokkurinn hefur langmest
fylgi, eða 40,3%. Fylgi hans hefur þó minnkað
verulega frá sfðustu könnun Helgarpóstsins
og myndi hann samkvæmt þessari niðurstöðu
tapa þremur þingmönnum miðað við ágúst
könnunina.
Það virðist svo að Framsóknarflokkurinn hafi
hirt eitthvert fylgi frá Sjálfstæðisflokknum, en
hann hefurtvöfaldað fylgi sitt í Reykjavik og á
Reykjanesi frásiðustu könnun. Þó hefur Fram-
sókn ekki nema 11,4% í Reykjavfk og 10,2% á
Reykjanesi.
Það vekur mikla athygli i þessari könnun hve
mikið Alþýðuflokkurinn hefur styrkt stöðu sina
á landsbyggðinni og hve styrkur hans er mikill
I Reykjanesi, en þetta er staðfesting á fylgis-
aukningu flokksins í síðustu sveitarstjórnar-
kosningum. — Allt eru þettaánægjuleg tíðindi
fyrir íslenska jafnaðarmenn og hvatning til að
herða enn róðurinn. Það eru ekki nema rúmir
fimm mánuðir til næstu Alþingiskosninga og
mikið starf og barátta framundan.
Eiga launamenn sök á fjárlagahallanum?
Pegar fjármáiaráðuneytið sendi fjölmiölum
nú I vikunni frumvarp til fjárlagaog frumvarp til
lánsfjárlaga fyrir árið 1987, fylgdi sendingunni
fréttatilkynning, þarsem sagt er berum orðum,
aðsökinaágifurlegum fjárlagahallamegi rekja
til verkalýðshreyfingarinnar.
w
I fréttatilkynningunni segirorðrétt: „Samhliða
gerð kjarasamninga í febrúar sl. voru ákveðnar
ýmsaraögerðir, sem áhrif höfðu áfjárhag rikis-
sjóðs, frá því sem ráðgert var við afgreiðslu
fjárlaga fyrir árið 1986 í desember 1985. Fjár-
málaráðherra var m.a. heimilað að lækka rikis-
útgjöld um 860 milljónir króna og tekjur ríkis-
sjóðs um 2.510 milljónir króna. Þetta hafði þau
áhrif að 163 milljón króna rekstrarafgangur á
ríkissjóði, samkvæmt fjárlögum samþykktum I
desember 1985 breyttist f 1.486 milljón króna
rekstrarhalla."
Með berum orðum er þarna sagt, að rúmlega
1,6 miljarða af halla rikissjóðs megi rekja til
verkalýðshreyfingarinnar og síðustu kjara-
samninga. Þettaerekki stórmannleg afsökun-
arbeiðni á lélegri afkomu ríkissjóðs. Þarna er
með öðrum orðum sagt, að verkalýðshreyfing-
in, sem tekið hefur á sig byrðarnar til að kveða,
verðbólguna niður, eigi sök á fjárlagahallanum.
Ef sá skilningur verður ekki lagður ( þessi orð,
verða þau ekki útskýrð á annan veg en þann, að
ríkissjóðurhafi greitt niðurverðbólguna. Og þá
er illt í efni!
Prófkjörin 1
unni. Og ég get alveg sagt þér, að
bæði Jón Baldvin Hannibalsson
og Svavar Gestsson hafa sagt við
mig, að um leið og Sjálfstæðis-
flokkurinn legði niður prófkjör,
mundu þeir óska hins sama í Al-
þýðuflokki og Alþýðubandalagi.
Þess vegna m.a. held ég að það sé
komin þreyta í þessa prófkjörsað-
ferð og aðrar aðferðir notaðar um
tíma. Spurningin er hins vegar
hvort prófkjörin komi ekki upp
aftur seinna. En það er nú einu
sinni þannig með allar aðferðir,
að smám saman læra menn þann-
ig á þær, að þeir sem að eru i bestu
aðstöðunni, hafa mestu mögu-
leikana"
„Mér finnst ekkert óeðlilegt að
nýtt fólk auglýsi og geri grein fyrir
sjálfu sér, en það hefur þingmað-
ur getað gert í gegn um störf sín á
Alþingi og í pólitíkinni. Þegar
það svo kemur í ljós að þingmenn
og jafnvel ráðherrar eru stærstir í
því að auglýsa, þá fer maður að
spekúlera, hvernig í ósköpunum
ætla aðrir að fara að þessu?“
„Það er mikil spurning hver
áhrif þessar auglýsingar hafa.
Það á alveg eftir að meta það. Það
hefur aldrei verið sýnt fram á neitt
í þvi efni, en þetta mætti rannsaka
og væri mjög vel hægt t.d. eftir
þetta prófkjör núna, eftir að úrslit
liggja fyrir. Nú vitum við að það
eru fimm frambjóðendur sem
hafa pantað fimm sæti og hafa
beðið stuðningsmenn sína um að
kjósa sig í þessi sæti. Það ætti að
vera auðvelt að rannsaka hversu
hátt hlutfall hver og einn fær í við-
komandi sæti. Eftir þá rannsókn
liggur fyrir hvort mátjur auglýs-
inganna er mikill eða fitill. Ýmsir.
menn vilja hins vegar ekki taka
þátt i prófkjöri, vegna þess að þeir
tapa bæði peningum og mann-
orði!“
Markús 1
vart samkeppnisaðilumí1 — Mark-
ús benti á að samkvæmt lögum ætti
Ríkisútvarpið að halda úti rekstri
tveggja hljóðvarpsrása og einnar
sjónvarpsrásar.
Markús sagði aðspurður að það
væru auðvitað margar skyldur sem
stofnunin þyrfti að rækja sem
hvíldu ekki á samkeppnisaðilum. í
því sambandi nefndi hann veður-
fréttir sem senda þarf út á tiltekn-
um tímum. Flytja þurfi fréttir af
málum þjóðfélagsins svo sem bein-
ar útsendingar frá Alþingi sem
bundið væri í þingskaparlögum.
Einnig væri fjölþætt menningarleg
starfsemi sem Ríkisútvarpið þyrfti
að gera skil auk öryggisþátta, svo
sem Almannavarna.
Þorgeir 1
komandi kosninga, veit ég ekki.
Mér finnst samt liggja í loftinu og
hafa gert lengi, að þar sem að nýjar
stöðvar eru komnar til, þá hefur
vissulega skapast andrúmsloft óró-
leika,- og að auki hápólitískt mál.
Það virðist vera að koma í ljós ein-
hver ný menningarpólitík, sem
meiningin er að fylgja fast eftir.
„Þó er í þessu mikil mótsögn,
eins og kom fram á Alþingi á mið-
vikudag, annars vegar þessi yfirlýs-
ing um að aðflutningsgjöld renni
beint í ríkissjóð og hins vegar fyrir-
spurn Eiðs Guðnasonar, þar sem
hann bendir á að landsbyggðin eigi
ekki að greiða niður árshátíðina
hérna á höfuðborgarsvæðinu“
„Ríkið er látið ryðja veginn og
þegar það er búið að byggja upp þá
koma frjálshyggjumenn og segja:
— Nú get ég!“
„Ég hef stundum undrast um-
ræðuleysið í kringum þessa hluti
sem legið hafa í loftinu um þessi
grundvallarmál landsbyggðarfólks.
Eg er þeirrar skoðunar, að Ríkisút-
varpi á hverjum tíma eigi að vera
tryggður tekjustofn, samkvæmt
lögum þar um, til þess að sjá fyrir
skylduverkefnum og einnig í menn-
ingarlegu tilliti í víðustu merkingu
þess orðs. Við megum ekki gleyma
því að útvarpið hefur skyldur við
vissa aðila eins og Almannavarnir,
tilkynningarskyldu skipa og margt
fleira. Því verður að tryggja Ríkis-
útvarpinu tekjustofn. Þetta skiptir
alla landsmenn máli, — ekki bara
þá sem búa á höfuðborgarsvæð-
inu“.
„Við vitum að þar sem afnota-
gjöld eru bundin vísitölu, þá gætir
alltaf vissrar tregðu til þess að
Athygli skal vakin á sýningunni
AF SPJÖLDUM SÖGUNNAR,
sem nú stendur yfir í Ásmundarsal
við Freyjugötu.
Sýningin er yfirlit gamalla
mynda úr blöðum The Illustrated
London News frá árunum 1860—
1866. Myndirnar eru úr safni
Friðriks Á. Brekkan.
Myndunum er skipt í ýmis
áhugasvið, svo sem list, tækni,
stjórnmál, sýningar og tízka.
Sýningin er opin daglega milli kl.
18.00 og 22.30 en um helgar frá kl.
14.00 til 22.30.
Sýningin stendur til sunnudags-
kvölds 19. október kl. 22.30.
Spjöldum sögunnar hefur svo
sannarlega verið flett á íslandi und-
anfarna daga og er sýning þessi
sannarlega vel tímasett.
„Ég hef verið að safna slíkum
myndum í u.þ.b. 20 ár og þetta sem
er í sýningunni er ekki nema brot af
því safni“, sagði Friðrik Á. Brekkan
í samtali við Alþýðublaðið.
„Það er mjög ánægjulegt að geta
skýrt frá því, að fólk sem komið
hækka þau. Það er hægt að skilja
að vissu marki og núna nýverið hef-
ur ríkisstjórnin hafnað beiðni um
hækkun afnotagjalda, sem fær
okkur sem við þetta störfum auð-
vitað til þess að snúa okkur enn
frekar að þeim tekjustofni sem við
teljum okkur hafa aðgang að, en
það eru auglýsingar. Ef á síðan að
hamra það í gegn, að Ríkisútvarpið
eigi ekki að vera með auglýsingar,
þá er ekki hægt að skoða málið
öðruvísi, en að þarna sé á ferðinni
aðför að stofnuninni af einhverra
hálfu, þegar dæmið er lagt upp. Þá
er vegið að stofnuninni frá báðum
hliðum og allir ættu að geta séð
hvað það táknar“
Það er einnig mótsögn í því þegar
það er bundið í útvarpslögum að
Ríkisútvarpið eigi á landsvísu að út-
varpa á tveimur rásum. Þetta er svo
fullt af mótsögnum, að ég átta mig
alls ekki á þessu. Þetta kann að vera
einhver pólitískur leikur sem ég
kann ekki leikreglur í, en það eina
sem ég sé sterklega út úr þessu eru
þessar endalausu mótsagnir“, sagði
Þorgeir Ástvaldsson, forstöðumað-
ur Rásar 2.
hefur á sýninguna er upp til hópa
mjög ánægt. Menn hafa dvalið
miklu lengur við myndirnar en þeir
upphaflega ætluðu sér þegar þeir
komu. Einn daginn kom á sýning-
una gamall maður og skoðaði
myndirnar í marga klukkutíma.
Fannst honum mikið til koma, en
kvartaði samt yfir því að geta ekki
séð nægilega vel hið allra smágerð-
asta í myndunum. Ég ákvað þá að
láta liggja frammi stækkunargler
eftirleiðis. Þetta segir ef til vill
nokkuð um það hversu fínleg vinn-
an er á mörgum myndunum“
„Ég get ekki ímyndað mér annað
en að þarna séu margar stórmerkar
myndir. Sumir sem koma, hafa haft
á orði að þeir hafi dottið inn í
Viktoríutímabilið alveg óvart og
gleymt sér gersamlega. Það er gam-
an að vita til þess hvað fólk er heill-
að af myndunum.
„Það er langt síðan að mér datt í
hug að gaman væri að koma á slíkri
sýningu, en ég hef ekki haft peninga
né aðstæður til þess fyrr en núna“,
sagði Friðrik Á. Brekkan.
Tilkynning frá landbúnaðarráðuneytinu til þeirra
sem stofnuðu félagsbú
fyrir 1. janúar 1985
í samræmi við ákvæði 2. mgr. 28. gr. jarðalaga nr.
65/1976, sbr. 1. nr. 90/1984, skal senda ráðuneytinu
skriflegan félagsbúsamning til samþykktar fyrir
15. nóvember nk.
Landbúnaðarráðuneytið, 13. október 1986.
Óskað er tilboða vegna kaupa á eftirtöldum vöruflokk-
um árið 1987 vegna Innkaupanefndar sjúkrahúsa:
Bleiur (dag-nætur-barna)
WC-papplr
Eldhúsrúllur
Miðaþurrkur
Papplr (rúllur) á skoðunarbekki
Útboðsgögn eru seld á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, á
kr. 300,- hver flokkur.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borgartuni 7. simi 25844
Auglýsing um prófkjör
Alþýðuflokksins
í Suðurlandskjördæmi
Ákveöið hefur verið að hafa prófkjör um skipan fjögra
efstu sæta framboðslista Alþýðuflokksins i Suður-
landskjördæmi vegna komandi Alþingiskosninga.
Framkvæmd prófkjörsins verðursamkvæmt reglum Al-
þýðuflokksins.
Framboðum skal skila fyrir 25. október til formanns
stjórnar kjördæmisráðs, Ágústs Bergssonar llluga-
götu 35, 900 Vestmannaeyjar.
Stjórn kjördæmisráðs.
„Af spjöldum sögunnar“, í Ásmundarsal:
Stórmerk sýning
gamalla mynda