Alþýðublaðið - 06.12.1986, Blaðsíða 3
Laugardagur 6. desember 1986
3
Nýtt félag um rekstur
spunaverksmiðj u
Þann 1. des. s.l. var stofnað nýtt
hlutafélag, sem Álafoss hf. og
kanínubændur með aðstoð Fram-
leiðnisjóðs landbúnaðarins,
Byggðasjóður og Kanínumiðstöðin
standa að. Tilgangur félagsins er
meðal annars að vinna úr fiðu
(angórahárum).
Keypt var verksmiðja frá Þýska-
landi, sem fyrirtækið Teufel átti. Er
hér um að ræða spunaverksmiðju
og prjóna- og saumastofu ásamt
þekkingu og markaði og ábyrgð á
gæðum framleiðslunnar. í spuna-
vélunum er einnig hægt að vinna
margs konar bómullarband og
blöndur úr bómull og ull, sem á að
henta í sumarfatnað fyrir íslenska
fataiðnaðinn.
Verksmiðjan verður flutt til ís-
lands í janúar mánuði og á að geta
byrjað framleiðslu í mars á næsta
ári. Fínull h.f. fær leigt húsnæði á
Álafossi fyrstu árin. Kaupverð er
um 36,9 milljónir og greiðist á
næstu fimm árum.
Gert er ráð fyrir að hjá fyrirtæk-
inu vinni 10—12 manns, þegar verð-
ur farið að vinna með fullum af-
köstum.
Það voru Benedikt Bogason hjá
Byggðastofnun og Guðjón Hjartar-
son, Álafossi, sem gengu endanlega
frá kaupunum þann 28. nóv. sl. Fín-
ull hf. hefur gert samning við
Landssamtök kaninubænda um að
kaupa alla fiðu (angórahár), sem
bændur framleiða, annað hvort til
vinnslu eða endursölu. Gert er ráð
fyrir, að hægt verði að hefja mót-
töku fljótlega eftir áramót.
Fiða er íslenskt nýyrði, sem kem-
ur í stað angórahárs, og er vonast
til, að takist að útbreiða Fiðunafnið
hérlendis.
Hlutafé er 22 millj., sem skiptist
þannig:
Álafoss 8
Kanínubændur 8
Byggðastofnun 4
Kanínumiðstöð 2
Stjórnina skipa:
Formaður: Bjarni Einarsson,
Byggðastofnun
Varaform.: Guðjón Hjartarson,
Álafossi
Ritari: Jón Eiríksson, Vorsabæ.
Gunnlaugur Þráinsson, Álafossi og
Ingvar Jóhannsson, Kanínumið-
stöðin.
Kristján Valdimarsson textil-
tæknifræðingur hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri. Hann er nú í
Þýskalandi ásamt Ellert Sigurðs-
syni að kynna sér rekstur verk-
smiðjunnar.
Kvosin 4
Áherslu verður þó að leggja á það
að í Kvosinni verði, sem og öðrum
hlutum borgarinnar, í hvívetna
stuðlað að því að ný hús falli sem
best að eldri byggð í kring og hvetja
verður til viðhalds og endurbóta á
þeim húsum sem geyma mikilvæga
þætti í sögu borgarinnar og lands-
ins. Til þess að slíku marki verði
náð verður að tryggja að ekki sé síð-
ur hagkvæmt að ráðast í endurbæt-
ur en niðurrif og byggingu nýrra
húsa.
Jafnframt er lögð rík áhersla á að
sú umferð, sem aukin starfsemi í
Kvosinni kann að kalla á, fari eftir
þar til gerðum umferðaræðum en
valdi ekki hættu og skaða í grónum
íbúðarhverfum sem liggja að Kvos-
inni eða á þeim náttúruverðmætum
sem að henni liggja. í ljósi breyttra
aðstæðna við gömlu höfnina er því
nauðsynlegt að kanna vel hvernig
þar megi að verki standa.
Meðfylgjandi ályktun var sam-
þykkt á fundi stjórnar íbúasam-
taka Vesturbæjar hinn í. desember
1986 og er send borgarfulltrúum
Reykjavíkur og fjölmiðlum.
Reykjavík 2. desember 1986
í stjórn íbúasamtaka Vesturbæjar:
Anna Kristjánsdóttir
Brynhildur Andersen
Guðrún Magnúsdóttir
Heimir Sigurðsson
Valgarður Egilsson
Þú hefur 4
um margra ára skeið verið notuð i
félagsmálakennslu í Noregi. Bókin
er þýdd og staðfærð, en auk þess eru
í henni kaflar skrifaðir sérstaklega
fyrir íslensku útgáfuna s.s. um mál
og stíl. Þá er kaflarnir um framsögn
sérstaklega aðlagaðir íslensku.
Bókin ÞÚ HEFUR ORÐIÐ er fá-
anleg hjá MFA, Grensásvegi 16,108
Reykjavík. Verðið er kr. 865.- Hún
er einnig til sölu hjá bókaverslun-
um.
Frekari upplýsingar um bókina
gefur Þráinn Hallgrímsson, starfs-
maður MFA s: 84233
Frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð
Innritun nýnema ( öldungadeild fer fram ( skólanum
miövikudaginn 10. og fimmtudaginn 11. desember kl.
18—20. Við innritun skal greiða staðfestingargjald, kr.
500, en 3.600 króna skólagjald verður innheimt ( upp-
hafi vorannar.
í öldungadeild fer fram fræðsla fullorðinna til
stúdentsprófs. Námið býðst öllum sem náð hafa20 ára
aldri. Kennt er frá kl. 17.20. Vorönn hefst 12. janúaf ög
lýkur með prófum ( maímánuði.
Við skólann eru þessar námsbrautir:
Nýmálabraut
Fornmálabraut
Félagsfræðabraut
Eðlisfræðibraut
Náttúrufræðabraut
Tónlistarbraut (i samvinnu við tónlistarskóla).
Á hverri önn eru I boði ýmsir valáfangar skv. skrá sem
liggurframmi I skólanum. Námsráðgjafi öldungaertil
viðtals ( skólanum mánudaga kl. 15—17, þriðjudaga kl.
17.30—20, miðvikudaga kl. 16—17 og fimmtudaga kl.
17—19.
Rektor.
Frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð
Stundakennara vantar í sálarfræði ávorönn 1987.
Upplýsingar í skólanum.j
Rektor.
Tilboð
Óskast (eftirfarandi tæki o.fl. sem verðatil sýnis næstu
daga ( áhaldahúsi Hafnarmálastofnunar ( Fossvogi og
vtðar.
BELTABOR ATLAS COPCO ROC 601
3 stk. Steypuhrærivélar (eins til tveggja poka)
5 stk. Loftpressur 250—350 cuft.
Fleygar og skotholuborar.
Til sýnis á vinnusvæði Hafnarmálastofnunar í Sand-
gerði:
Grindarbómukrani MANITOWOC 60 tonna.
Til sýnis í Kringlunni Reykjavík:
2 stk. Ibúðarskálar TELESCOPE 50 m2.
Allar nánari uppiýsingar veitir Gústaf Jónsson for-
stöðumaður áhaldahúss Hafnarmálastofnunar, Foss-
vogi. Tilboðseyðublöð liggja þar frammi svo og á skrif-
stofu vorri.
Tilboðin verða opnuð á fimmtudaginn 11. des. nk. kl.
11:00 f.h. (skrifstofu vorri, Borgartúni 7, að viðstöddum
bjóðendum. Réttur er áskilinn til að hafna þeim tilboð-
um sem ekki teljast viðunandi.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borgartuni 7, simi 25844
fLAUSAR STÖÐURHJÁ
J REYKJAVIKURBORG
Laus er til umsóknar staða ritara hjá Félagsmálastofn-
un Reykjavlkurborgar, Vonarstræti 4.
Um er að ræða ritara félagsmálastjóra. Þetta er full
staða, vinnuttmi er frá 8.20—16.15.
Upplýsingar gefur yfirmaður fjármála- og rekstrardeild-
ar I slma 25500.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
vlkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum
eyðublöðum sem þar fást.
] LAUSAR STÖÐUR HJÁ
J REYKJAVÍKURBORG
Fólk með uppeldismenntun, þó ekki skilyrði, óskast til
starfa á skóladagheimili Breiðagerðisskóla.
Bæði heils- og hálfsdagsvinna kemur til greina.
Einnig vantar fólk til starfa f forföllum.
Upplýsingar í síma 84558 frá 8—17 alla virka daga.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
vlkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum
eyðublöðum sem þar fást.
Aðalfundur
Alþýðubrauðgerðarinnar hf. verður haldinn 18. des.
1986. kl. 17 ( Iðnó uppi.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Stjórnin.
IFJÓRÐUNGSS JÚKR AHÚSIÐ
[isa |á akureyri
Staöa sérfræöings í almennum lyflækningum og
hjartalækningum á Lyflækningadeild Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri, er laus tii umsóknar.
Upplýsingar um stöðuna veitir Þorkell Guð-
brandsson yfirlæknir deildarinnar í síma 96—
22100.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf, sendist framkvæmdastjóra sjúkrahússins,
Halldóri Jónssyni, fyrir 31. janúar 1987.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
| LAUSAR STÖDUR HJÁ
j REYKJAVÍKURBORG
Fóstrustöðurog stöðurófaglærðs starfsfólks nú þegar
eða um áramót á þessi heimili.
Brákarborg v/Brákarsund
Foldaborg Grafarvogi
Rofaborg v/Skólabæ
Lækjaborg v/Leirulæk
Leikfell v/Æsufell
Suöurborg v/Suðurhóla
Hamraborg v/Grænuhl.
Vesturborg v/Hagamel
Dyngjuborg v/Dyngjuveg
Langholt (skóldagh.) v/Dyngjuv.
Staðarborg v/Háageröi
Fálkaborg v/Fálkabakka
Hálsakot (skóladagh.) v/Hálsasel
Grandaborg v/Boðagranda
Tjarnarborg v/Tjarnargötu
Upplýsingar veita umsjónarfóstrur á skrifstofu Dagvista I
slmum 27277og 22360 og forstöðumenn viðkomandi heimila.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkur-
borgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum eyðublöðum
sem þar fást.
Tilkynning frá
Sjúkrasamlagi
Reykjavíkur
Að gefnu tilefni skal bent á, að allmargir heimilis-
læknar geta nú bætt við sig nýjum samlagsmönn-
um í Reykjavík.
Sjúkrasamlagið vill hvetja fólk til að velja sér og
hafa skráðan heimilislækni, svo það eigi sem
greiðastan aðgang að heilbrigðisþjónustunni.
Þeir, sem viljaskipa um heimilislækni er bent áað
gera það nú í desember.
Vinsamlegast komið í afgreiðslu Sjúkrasamlags
Reykjavíkur, Tryggvagötu 28, og hafið samlags-
skírteinin meðferðis.
Ráðstefna um flugmál
Samgönguráðuneytið boðarhér með til ráðstefnu
um flugmál föstudaginn 12. desember 1986, kl.
13.30, i Borgartúni 6.
Á ráðstefnunni verður fjallað um tillögur flug-
málanefndar um framkvæmdir í flugmálum á
næstu árum.
Ráðstefnan er ætluð þeim sem starfa við stjórn-
un og stefnumörkun flugmála, svo og fulltrúum
þeirra sveitarfélaga sem byggja samgöngur sinar
á greiðum flugferðum til og frá byggðarlaginu.
Skráning og upplýsingar i sfma 91—621700.
Samgönguráðuneytið