Alþýðublaðið - 06.12.1986, Side 4
alþýðu-
■ n hTtHiM
Laugardagur 6. desember 1986
Alþýðublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavík
Sími: (91) 681866, 681976
Útgefandi: Blað hf.
Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.)
Blaðamenn: Örn Bjarnason, Ása Björnsdóttir, Kristján
ÞorvaldssonJ
Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson
Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir
Setning og umbrot: Alprent hf., Armúla 38
Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12
Áskriftarsíminn
er 681866
Landsamband íslenskra útvegsmanna:
Gefur SVFÍ fé til kaupa
á neðansjávarmyndavél
Á aðalfundi Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, sem haldinn
var í Vestmannaeyjum 5.—7. nóv-
ember s.l. var samþykkt að afhenda
Slysavarnafélagi íslands að gjöf kr.
1.200.000,- til kaupa á neðansjávar-
myndavél ásamt tilheyrandi bún-
aði. í gjafabréfi LÍÚ til SVFÍ segir,
að á síðustu 10 árum hafi 50 manns
drukknað í höfnum landsins, þar af
24 sjómenn. Leit að hinum látnu
hafi að langmestu leyti hvílt á
björgunarsveitum SVFÍ, sem oft og
iðulega hafi lagt nótt við dag við
Ieitarstörf. Skilyrði til leitar í höfn-
um hafi í flestum tilvikum verið
mjög erfið og líkin ekki fundist
þrátt fyrir að nokkurn veginn hafi
verið vitað hvar leita ætti. Það hafi
verið ástvinum hinna látnu óbæri-
leg kvöl meðan ekki hafi tekist að
finna lík þeirra og búa þeim legstað
í vígðri mold. Reynslan hafi sýnt að
neðansjávarmyndavélar hafi gjör-
breytt öllum aðstæðum við slíkar
leitir og því hafi aðalfundurinn
ákveðið að færa SVFÍ þessa gjöf
sem þakklætisvott fyrir fórnfús og
óeigingjörn störf björgunarsveita
félagsins við leitir.
Meðfylgjandi mynd var tekin er
Kristján Ragnarsson, formaður
LÍÚ afhenti Haraldi Henrýssyni,
forseta SVFÍ, gjöfina hinn 17. nóv-
ember s.l. um borð í skólaskipinu
Sæbjörgu.
Menningar- og frœðslusamband alþýðu:
Þú hefur orðið
Finnst þér erfitt að tjá þig á
fundum? Foröast þú aó taka þátt í
umræðum, flytja ávörp og raeður,
þegar þér er gefinn kostur á þvi?
Viltu æfa þig í ræðumennsku og
framkomu á fundum? Til þess þarft
þú að kunna til verka. Þá er á þig
hlustað og mark á þér tekið.
Með þetta í huga hefu r MFA gefiö
út bókina ÞU HEFUR ORÐIÐ, þar
sem farið er yfir alla þætti ræðu-
mennsku. Bókin er alhliða kennslu-
bók, sem hentar jafnt í skólum, á
námskeiðum eða í sjálfsnámi.
Nefna má nokkur kaflaheiti til
að gefa hugmynd um efni bókar-
innar. Tjáningarfrelsi- ræðulist,
framkoma ræðumanns, framsögn,
uppbygging ræðunnar, að taka þátt
í umræðum, erindiftækifærisræða,
létt spjall og áróðursræðan.
Lengi hefur verið þörf fyrir sér-
staka bók um ræðumennsku á ís-
lensku. Áhugi á ræðulistinni hefur
farið stöðugt vaxandi á síðustu ár-
um, sérstaklega meðal ungs fólks.
ÞÚ HEFUR ORÐIÐ bætir því úr
brýnni þörf í skólastarfi og félags-
málakennslu hér á landi.
ÞÚ HEFUR ORÐIÐ er að stofni
til þýðing úr norsku, en bókin hefur
Framh. á bls. 3
Verkalýðsmálanefnd A Iþýðuflokksins:
Kappsmál að verðlag
sé sem stöðugast
Verkalýðsmálanefnd Alþýðu-
flokksins kom saman til fundar fyr-
ir nokkru. Formaður nefndarinnar,
Gylfi Ingvarsson, setti fundinn, en
á dagskrá var kosning stjórnar, um-
ræður um starfið framundan og
Björn Björnsson, hagfræðingur
ASÍ ræddi um kjaramálin.
Stjórnarkjör
í stjórn Verkalýðsmálanefndar
voru kjörin: Ragna Bergmann, Þrá-
inn Hallgrímsson, Guðrún Ólafs-
dóttir og Haukur Helgason. Til
vara: Kristin Arnalds, Jökull Guð-
mundsson, Kjartan Guömundsson,
Hreinn Erlendsson, Sigurbjörn
Björnsson og Guðrún Guðmunds-
dóttir.
Á fundinum voru samþykktar
eftirfarandi ályktanir:
Ályktun um atvinnu-
ástand í málm- og skipa-
smíðaiðnaði
Verkalýðsmálanefnd Alþýðu-
flokksins varar við þeirri þróun að
flytja úr landi viðgerðir og breyt-
ingar á íslenskum fiskiskipum með-
an verkefnaskortur er í íslenskum
skipasmíðastöðvum.
Verkalýðsmálanefnd Alþýðu-
flokksins tekur heilshugar undir
með Málm- og skipasmíða-
sambandi íslands sem margoft hef-
ur varað við þessari alvarlegu þró-
un.
Stjórnvöld verða að taka á þessu
þýðingarmikla máli hið bráðasta og
leysa það í nánu samstarfi við hags-
munaaðila. Eflum íslenskan iðnað.
Ályktun um kjaramál
Hagtölur benda til þess að árið
1986 sé þegar á heildina er litið eitt
besta hagsældarár í sögu þjóðar-
innar. Þessar tölur breiða kyrfilega
yfir ýmis þau vandamál sem ein-
stakir þjóðfélagshópar og ein-
staklingar eiga við að etja. Sam-
hliða góðæri hefur ójöfnuður vaxið
ár frá ári.
í kjarasamningunum í febrúar
var um sinn frestað endurskoðun
launakerfa sem löngu var tímabær.
Markmið þessarar endurskoðunar
voru staðfest í samningi. Nauðsyn-
legt er að launakerfin verði gagn-
gert endurskoðuð, hluti kaupauka-
greiðslna færður yfir í föst laun og
yfirborganir færðar inn í kaup-
taxta. Þetta eitt og sér er mikilvægt
skref til aukins jöfnuðar. Það er
ljóst að þeir sem minnst bera úr bít-
um eru þeir sem búa við almenna
launataxta. í þessu sambandi hlýt-
ur fyrst og fremst að koma til ein-
stakra landssambanda og félaga.
Það hlýtur að vera verkefni allrar
hreyfingarinnar og stjórnvalda að
tryggja kaupmátt og þann árangur
sem náðst hefur í kjölfar febrúar-
samninganna í viðureign við verð-
bólguna.
Verkafólk hefur bitra reynslu um
miklar kauphækkanir sem horfið
hafa á skömmum tíma í dýrtíðarhít.
Engum er það fremur kappsmál en
almennu launafólki að verðlag sé
sem stöðugast
— — Verkalýðsmálanefnd Al-
þýðuflokksins átelur harðlega
fyrirhugaðar hækkanir á vöxt-
um, dagvistargjöldum og verði
á opinberri þjónustu.
— Þá lítur verkalýðsmálanefnd á
það sem eitt brýnasta hags-
munamál launafólks að draga
úr skattaálögum á launafólk og
afnema tekjuskattinn af öllum
launatekjum.
— Kjarasamningar verða að
tryggja að lifað verði af dag-
vinnulaunum.
Með skírskotun til þess sem að
framan segir ályktar verkalýðs-
málanefnd Alþýðuflokksins:
— Nú þegar verði gengið til nýrra
kjarasamninga.
— Heildasamtökin fari með samn-
inga um lægstu laun, kaupmátt-
artryggingu, skattamál og önn-
ur samskipti við stjórnvöld.
— Landssambönd og einstök félög
hafi með höndum samninga um
skipan starfa í launaflokka og
önnur sérmál.
Verkalýðsmálanefnd Alþýðu-
flokksins heitir fullum stuðningi
við verkalýðshreyfinguna í barátt-
unni til bættra kjara.
Húsráða-
handbókin
Frjálst framtak hefur sent frá sér
Húsráðahandbókina eftir Mary
Ellen’s í íslenskri þýðingu Sigurðar
Björgvinssonar og Þórdísar Móses-
dóttur. Eins og nafn bókarinnar
gefur til kynna er í henni að finna
ýmis húsráð og er bókin mjög að-
gengilega uppsett og henni fylgir
ítarleg atriðaskrá, þannig að auð-
velt er að fletta upp í henni þegar
þörf krefur. í inngangi bókarinnar
segir m.a.:
„Ef þú hefur heyrt eða lesið
„hollráð" en manst ekki eftir þeim
þegar þú ert nýbúinn að hella rauð-
víni í besta dúkinn eða setja blett í
nýja teppið er Húsráðahandbókin
hrein himnasending fyrir þig. Við
höfum lesið (og reynt) hundruð
hollráða úr ýmsum áttum, en að-
eins haldið þeim allra bestu eftir.
Við höfum raðað þeim í ákveðna
flokka svo fljótlegt er að fletta þeim
upp þegar þörf er á“
Húsráðahandbókin skiptist í eft-
irtalda kafla: Bestu ráðin fyrir —
eldhúsið — baðherbergið — fegrun
— bilinn — teppin — börnin —
hreinsun á hinu og þessu — fatnað,
skartgripi og skó — gólfið — hús-
gögn — þann laghenta — þvotta-
húsið — málarann — gæludýr,
skordýr — plöntur, blóm, garða —
saumaskapinn — geymslu, söfnun,
sendingar — veggfóður, tréverk —
glugga.
Húsráðahandbókin er prentunn-
in í Prentstofu G. Benediktssonar
en bundin hjá Bókfelli. Kápuhönn-
un annaðist Auglýsingastofa Ernst
Backmann.
Slysavarnarfélag Islands:
Slysavarnarskóli sjómanna
og hættuleg efni í heimahúsum
Fréttablað Slysavarnarfélags ís-
lands, SVFÍ-fréttar, nóvemberhefti
er komið út. Blaðið er fjölbreytt að
efni til og fræðandi um starf Slysa-
varnarfélagsins. Sem dæmi um það
má nefna málaflokka eins og „Efl-
um slysavarnir", „Tökum þátt í
baráttunni gegn vímuefnum“ og
einnig eru fréttir frá landsþingi
SVFI 1986. Slysavarnarskóli sjó-
manna er til umræðu, starf og
skipulag SVFÍ og margt fleira.
Hér á eftir er birt ritstjórnargrein
blaðsins, en hún er um margt
fræðandi um þau málefni sem
SVFÍ setur á oddinn um þessar
mundir.
Annar meginþátturinn í starfi
Slysavarnafélags íslands er fyrir-
byggjandi starf, svo sem reyndar
felst í nafni félagsins. Þessum þætti
verður helst sinnt með fræðslu- og
upplýsingastarfi, því þekkingin er
besta slysavörnin. Því miður hefur
ekki verið unnt að rækja þennan
hátt sem skyldi, en það er stjórn
SVFÍ mikið áhugaefni að geta sinnt
honum frekar í náinni framtíð. Til
þess þurfa þó að koma auknar tekj-
ur því núverandi tekjustofnar fé-
lagsins gera ekki mikið meira en að
fullnægja margvíslegum þörfum á
sviði björgunar mála, þ.e. uppbygg-
ingu og þjálfun björgunarsveita,
rekstri björgunarmiðstöðvar og
rekstri skipbrotsmanna- og fjalla-
skýla, svo nokkuð sé nefnt. Stjórn-
in hugar nú hins vegar mjög að
möguleikum til aukinnar fjáröflun-
ar til að geta m.a. sinnt brýnum
verkefnum á sviði slysavarna.
Tvennt er þó ástæða til að nefna,
sem unnið hefur verið að undanfar-
ið á sviði forvarna. Annað er upp-
bygging slysavarnaskóla sjómanna,
sem nánar er sagt frá hér í SVFÍ-
fréttum. Með þessu starfi er leitast
við að kenna sjómönnum annars
vegar að forðast hættur og koma í
veg fyrir slys og hins vegar að bjarga
sér og öðrum úr hættu, ef hana ber
að höndum. Þetta starf hefur þegar
stuðlað að því að sjómenn hugsa
meira um þessi mál en fyrr og sinna
þeim betur um borð í skipum sínum
og bátum. Á því leikur enginn vafi,
að þetta starf mun skila árangri,
sem kemur fram í færri slysum og
minna tjóni. Brýnt er að það verði
eflt enn frekar.
Annað átak, sem SVFÍ hefur
staðið að á þessu sviði er dreifing
bókarinnar um hættuleg efni í
heimahúsum, sem hefur að geyma
margvíslegar leiðbeiningar um
þessi efni og hvernig við skuli
bregðast ef slys verður af þeirra
völdum. Bók þessi var gefin út af
SVFÍ í samvinnu við landlækni og
var henni dreift inn á öll eða flest
heimili landsins fyrr á þessu ári
endurgjaldslaust. Var kostnaður af
útgáfunni og dreifingunni að lang-
mestu leyti borinn uppi af SVFÍ. Of
snemmt er að fullyrða um áhrif
þessarar útgáfu, en það er von fé-
lagsins, að hún hafi a.m.k. vakið
fólk til umhugsunar um þær hætt-
ur, sem víða leynast á heimilum,
sérstaklega fyrir lítil börn. Mikil-
vægt er hins vegar, að fólk láti sér
ekki nægja það eitt að fletta bók-
inni einu sinni eða svo heldur hag-
nýti sér stöðugt þá fræðslu, sem þar
er að finna og hafi hana handbæra
á áberandi stað á heimilinu.
Slysavarnarfélagið hefur hug á
að halda áfram útgáfustarfsemi
sem þessari, þar sem einkum verði
hafðar í huga slysahættur á heimil-
um. Heimaslysin eru allt of tíð og
allt of oft verða þau hreinlega rakin
til vanþekkingar og kæruleysis. Á
því sviði er þess vegna mikið verka
að vinna.
Því miður höfum við íslendingar
til þessa ekki gert okkur nægilega
grein fyrir gildi forvarnastarfs. Þó
höfum við séð það áþreifanlega,
t.d. í umferðarmálunum, að slysum
fækkar verulega ef myndarlega er
staðið að slíku starfi. Samt eru
framlög til Umferðarráðs og um-
ferðarslys lág ár eftir ár. Hér þurf-
um við að breyta um hugsunarhátt
og móta stefnu til frambúðar um
öflugt slysavarnastarf á mörgum
sviðum. Innan fárra ára mun það
leiða til verulega lægri útgjalda til
heilbrigðisþjónustu og sjúkrahúsa,
að ekki sé minnst á önnur mikil-
vægari verðmæti.