Alþýðublaðið - 13.02.1987, Síða 4

Alþýðublaðið - 13.02.1987, Síða 4
alþýðu- Föstudagur 13. febrúar 1987 Alþýöublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavik Sími: (91) 681866, 681976 Útgefandi: Blað hf. Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.) Blaöamenn: Örn Bjarnason, Ása Björnsdóttir, Kristján Þor- valdsson og Jón Daníelsson Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir Setning og umbrot Alprent hf., Armúla 38 Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12 Askriftarsíminn er 681866 Ný tegund af P-pillu yæntanleg — kemur á markaðinn í Danmörku í sumar Á sumri komanda kemur á mark- aðinn í Danmörku fyrsta „eftirá- pillan“, til notkunar fyrir þær kon- ur sem það kjósa fremur en að nota verjur. Lyfjaframleiðandinn Scher- ing hefur lyfið tilbúið, fjórar töflur í pakka sem teknar eru inn 2 og 2 með 12 tíma millibili eftir samfarir, en þó ekki síðar en eftir 72 tíma. Lyfið hefur þau áhrif að slimhúðin í legi kvennanna breytist og tekur ekki við frjóvguðu eggi. Vikuskammtur Eftirápillan er unnin úr sams konar hormónum og venjulega P- pillan, aðeins í stærri skömmtum. Einn skammtur samsvarar viku- skammti af venjulegri tegund P-piIl- unnar. Nýja pillan er sögð hættulaus þótt hún sé notuð aftur eftir stuttan tíma, en ekki er mælt með því að nota hana að staðaldri. Aðrar að- ferðir eru betri og öruggari. Bresk rannsókn hefur sýnt að þrjár af 148 konum sem tóku þátt í tilraun með þetta nýja lyf, urðu barnshafandi, þótt þær færu í einu og öllu eftir leiðbeiningunum. Fóstureyðingapilla Töflurnar hafa ekki áhrif ef þær eru teknar eftir að konan er orðin þunguð. En einnig í því tilviki er von á nýjungum. Að minnsta kosti 1500 konur víðs vegar um heim hafa tekið inn nýja fóstureyðinga- pillu í tilraunaskyni. Framleiðend- ur eru ekki hrifnir af að kalla hana því nafni, en engu að síður hefur hún reynst áhrifarik við að koma af stað fósturláti hjá konum. 85 af hverjum 100 konum sem tóku þátt í tilraun með lyfið misstu fóstur ef lyfið var tekið innan tíu daga frá því að blæðingar hættu. Læknar sjúkdóma? Það var franski lyfjaframleið- andinn Roussel-UCLAF, sem fyrst- ur kom fram með fóstureyðingapill- una, sem meðal vísindamanna hef- ur hlotið nafnið RU 486. í henni er efnið „antiprogestin" og fylgja því margs konar aukaverkanir. Það get- ur t.d. framkallað blæðingar hjá konum sem ekki eru ófrískar og gefið er i skyn að það geti komið að haldi gegn ýmsum sjúkdómum. í P-pillan sem er notuð eftirá. 2x2 stykki eiga að koma í veg fyrir að konan verði barnshafandi. þvi sambandi hefur alnæmi og krabbamein verið nefnt, en engar sönnur hafa verið færðar á að lyfið hafi áhrif á þessa sjúkdóma. Þýski lyfjaframleiðandinn Schering er einnig vel á veg kominn með framleiðslu á sams konar lyfj- um. Hann vinnur þau úr blöndu af „antiprogestin“ og „prostag- landin“ og segir að það gefi betri árangur. Mótmæli gegn „dauðapillunni“ í Bandaríkjunum, þar sem víða er verið að gera tilraunir með RU 486, hafa þær tilraunir mætt mikilli mótspyrnu hjá hinum íhaldssamari þjóðfélagsþegnum. Þeir sem eru andvígir fóstureyðingum og telja að pillan verði notuð í stað getnaðar- varna, kalla hana dauðapilluna. Konur munu nota hana, segja þeir, án þess að gera sér það ljóst að þær séu að eyða lífi (þ.e. án samvisku- bits) og það brýtur niður siðferðið. Sex af þingmönnum repúblíkana kröfðust þess nýlega að opinberu fé yrði ekki varið til frekari rannsókna og þróunar á RU 486 vegna þess arna. í Danmörku hafa margir bland- að sér i umræðuna, m.a. próf. dr. med. Mogens Osler á ríkisspítalan- um í Kaupmannahöfn. Hann er einnig formaður samtaka um fjöl- skylduráðgjöf og telur að hér sé merk nýjung á ferðinni. Hann segir að beðið hafi verið eftir aðferð til að framkalla fósturlát fljótt og án mikillar áhættu fyrir konurnar, þ.e.a.s. ef menn vilji virða rétt kvenna til að losna við óæskilega þungun. Hins vegar verði að búa svo um hnútana að fóstureyðinga- pillan verði ekki notuð í staðinn fyr- ir getnaðarvarnir. Nýja pillan er að- eins trygging sem hægt er að grípa til þegar í óefni er komið. Heildarútflutningur landsmanna árið 1986 nam tæpum 45 milljörö- um króna, sem er um 33% aukning frá árinu 1985. Útflutningsráð ís- lands hefur sent frá sér tölulegar upplýsingar yfir heildarútflutning landsmanna árið 1986 og saman- burðartölur ársins 1985: Síðustu þrjá mánuði ársins nam heildarútflutningur landsmanna 11,8 milljörðum króna miðað við 9,2 milljarða sama tímabils 1985 og er því um 27,6% aukningu að ræða. Heildarútflutningur landsmanna aukaskatti Stjórn Verslunarmannafélags Reykjavíkur hefur mótmælt áform- um stjórnvalda um að taka upp virðisaukaskatt, sem komi í stað núverandi söluskattskerfis. Á fundi stjórnarinnar í desember voru fyrri ályktanir um þetta mál itrekaðar: Með kerfisbreytingunni er gert ráð fyrir mun flóknara og kostnað- arsamarakerfi en nú er og mun öll skriffinska margfaldast. Það sem skiptir þó mestu máli er að kerfisbreytingin, skv. frumvarp- inu, mun leiða til umtalsverðra ' al- mennra" verðhækkana. Sú hækkun kæmi harðast niður á þeim, sem minnstar tekjur hafa og nota þurfa stærsta hluta tekna sinna til allra árið 1986 nam tæpum 45 milljörð- um króna, sem er um 33% aukning frá árinu 1985, en þá nam heildarút- flutningurinn tæpum 44 milljörð- um króna. Að sjálfsögðu vegur hér mest útflutningur sjávarafurða, sem er um 77% af heildarútflutn- ingnum eða 34,6 milljarðar. Árið 1985 voru sjávarafurðir fluttar út fyrir 25,2 milljarða og er því hér um 37% aukningu að ræða. Landbún- aðarafurðir eru 1,3% af heildar- verðmæti útflutningsins eða 584 milljónir og hefur hér orðið um 23% aukning frá fyrra ári. brýnustu þarfa, þ.e. matarkaupa. Þá er gert ráð fyrir verulegri til- færslu á skattbyrði frá atvinnu- rekstrinum yfir á launþega. Núverandi söluskattskerfi er stórgallað og býður upp á margar undankomuleiðir í skattskilum. Það er því brýnt að bæta úr því. Stjórn Verzlunarmannafélags Reykjavíkur leggur hins vegar þunga áherslu á að nauðsynlegar, breytingar á núverandi kerfi verði ekki keyptar því verði að almenn skattbyrði verði þyngd og það mest hjá þeim, sem minnstar tekjur hafa. Slíkum áformum mótmælir stjórn Verzlunarmannafélags Reykjavíkur harðlega. Iðnaðarvörur eru um 20% af heildarverðmæti útflutningsins og nemur verðmæti þeirra um 8,9 mill- jörðum króna og er hér um 16% aukningu að ræða frá árinu 1985. I flokki iðnaðarvara vegur mest út- flutningur áls og álmelmi, sem eru um 46,3% af heildarútflutningi iðnaðarvara og er það svipað hlut- fall og á árinu 1985. Það vekur hins vegar athygli að útflutningur fatn- aðar úr ull er nú aðeins um 9,6% af útfluttum iðnaðarvörum, en var 12,2% af þessum flokki árið 1985. Þar munar mestu, að útflutningur á ullarvörum til Bandaríkjanna hefur dregist saman um 14% miðað við árið 1985 og um 38% til Sovétríkj- anna. Hins vegar hefur útflutning- ur ullarvara til Vestur Evrópu aukist um 20% og nam að verðmæti 279 milljónum króna á árinu. Heildar- útflutningur ullarvara nam 859 milljónum króna, sem er 9% sam- dráttur miðað við árið 1985 i verð- mætum. Hins vegar hefur útflutn- ingur ullarvara dregist saman á milli ára um 28% í magni. Af öðrum vöruflokkum má benda á, að útflutningur véla og tækja fyrir sjávarútveginn hefur aukist um 131% til Vestur Evrópu og nam í verðmætum 185 milljón- um króna á s.l. ári. Skinnavörur voru fluttar út fyrir 522 milljónir á árinu 1986, sem er um 42% aukning frá fyrra ári. Þar munar mestu að þrátt fyrir sam- drátt í magni um 8% í útflutningi loðsútaðra skinna hefur verðmæta- aukningin verið um 42%. Útflutningur niðurlagðra sjávar- afurða er svotil óbreyttur í magni, en verðmæti hefur hins vegar aukist um 18%. Þess má að lokum geta að meðal- gengi Bandaríkjadollara er nánast það sama á árinu 1986 og á árinu 1985. Aukin útflutningsverðmæti ’86 — Um 37% aukning í verðmætum útfluttra sjávarafurða Bretar heiðra Ólöfu Pálsdóttur — kjörin heiðursfélagi Konunglega breska mynd- höggvarafélagsins. Auk Ólafar hafa aðeins fjórir hlotið þessa viðurkenningu. Ólöf Pálsdóttir, myndhöggvari hefur verið kjörin heiðursfélagi, Hon FBRS, í „The Royal Society of British Sculptors“. (Konunglega breska myndhöggvarafélagið. Félag þetta var stofnað um síðustu alda- mót og er núverandi verndari þess, Elísabet II., drottning. Auk Ólafar hafa 4 menn verið kjörnir heiðursfélagar í félaginu, þar á meðal, forsetar „National Sculptore Society“ í New York og „Royal Scottish Academy", í Edin- burgh. Ólöf stundaði nám í Konunglega listaháskólanum í Kaupmannahöfn hjá próf. Utzon-Frank; í Kairó og Luxor í Egyptalandi, hjá próf. Wissa Wassef; og í Róm, hjá próf. Fatzzini. Hún hlaut gullverðlaun Konung- lega listaháskólans í Khöfn., 1955 fyrir verkið „Sonur“, sem er í eigu listasafns íslands og var sæmd ís- lensku fálkaorðunni 1970. Ólöf hefur hlotið opinbera lista- styrki, hérlendis og erlendis, m.a. frá Danmörku og Italíu, Finnlandi og Noregi, en þar hlaut hún Edward Munch listastyrkinn, í Ekely. Hún hefur lengi búið erlendis og unnið þar mestmegnis að list sinni, sýnt og selt verk sín þar víða og hlotið lof listagagnrýnenda, í fjöl- miðlum eins og stundum hefur komið fram í íslenskum fréttum. Ólöf hefur oft sýnt verk sín með norrænu listamannasamtökunum: „Den Nordiske", en hún er einn af stofnendum þeirra samtaka. í Englandi sýndi Ólöf fyrst 1971 er Cambridgeháskóli bauð henni að sýna verk sín í Kettles Yard Museum, í Cambridge. Einnig hafði hún sýningu í Islington ráð- húsi í London 1977 og einkasýningu í Mayfair, London 1982. Þá má geta þess að 1983 var höggmynd eftir Ólöfu Pálsdóttur seld á hinu heimsfræga listaupp- boði Christie’s, í listaflokknum: „Impressionist and Modern Paint- ings and Sculpture". En þar voru m.a. seld verk eftir Francis Bacon, Ben Nicholson, Rodin, Schwitters, Chirico og Picasso. Árið 1984 sýndi Ólöf í París, í boði alþjóðalistafélagsins: „Artist- es Contemporains" í „Le Salon des Nations". VR mótmælir virðis-

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.