Alþýðublaðið - 24.02.1987, Side 1
alþýóu
in RT-rr.M
Þriðjudagur 24. febrúar 1987
37. tbl. 68. árg.
Fjárhagsvancli hitaveitna:
Málin loks á
tillögustigi
— Vonast er til að nefnd iðnaðarráðherra skili tillögum
eftir u.þ.b. viku. Ekki líklegt að tillögurnar verði í anda
hugmynda forsvarsmanna veitnanna.
„Við gengum endanlega frá þeim
forsendum scm við ætlum að nota í
útreikningunum. Við miðum síðan
að því, að eftir u.þ.b. viku geti til-
lögur legið fyrir. Annars er þetta
mjög erfitt því það hefur litið kom-
ið fram um það hvað hægt er að
gera heima hjá þeim sjálfum. Það
hefur unnist lítili tími til að skoða
þá hluti,“ sagði Jónas Elíasson, að-
stoðarmaður iðnaðarráðherra, í
samtali við Alþýðublaðið í gær.
Jónas er formaður nefndar þeirrar
er ráðherra skipaði til að vinna að
tillögum um lausn á fjárhagsvanda
verst settu hitaveitnanna í landinu.
Fulltrúar hitaveitnanna hafa átt
nokkra fundi með nefndinni og var
sá síðasti haldinn á föstudag.
„Við lögðum fram útreikninga á
því hvernig dæmið liti út ef nýsam-
þykktar gjaldskrár stæðu óbreyttar
að raungildi og skuldir og kostnað-
ur væru eins og mönnum sýnist
núna. Síðan lögðum við fram aðra
útreikninga miðaða við að við
lækkuðum verðið niður í það sem
svaraði niðurgreiddu rafmagni til
húshitunar — menn velta því síðan
náttúrlega fyrir sér hvað þurfi að
koma til svo hlutirnir geti gengið
einhvers staðar á þessu róli. En, við
óskum eftir því að verðið fari eitt-
hvað niður í svipað og á niður-
greiddu rafmagni" sagði Ingólfur
Hrólfsson, hitaveitustjóri Hitaveitu
Akraness og Borgarfjarðar, í sam-
tali við Alþýðublaðið.
Ef gengið verður til móts við hug-
myndir um verð sem miðist við nið-
urgreitt rafmagn til húshitunar er
um að ræða um 25% lækkun á
markaðssvæði Hitaveitu Akraness
og Borgarfjarðar. Jónas Elíasson
vildi ekkert um þessar tillögur
segja, né hvort um lækkun yrði að
ræða yfirleitt í þeim tillögum sem
nefnd ráðheira vinnur að.
Á fundunum var nokkuð rætt
um hvaða betrumbætur mætti gera
heima í héraði. Ingólfur sagði að
það hefði einkum verið tvennt sem
rætt var í því sambandi: Möguleik-
ar á að yfirtaka rafhitamarkaðinn
og um sameiningu orkufyrirtækja
innan héraðanna. Ingólfur sagði
hvað varðaði sameiningu orkufyrir-
tækja, þá væri það mjög stórt og
yfirgripsmikið dæmi sem ekki hefði
unnist tími til að vinna að í þessari
lotu.
Kosninsamiðstöðin
í Síðumúla 12
Fyrír nokkru opnaði Alþýðuflokkurinn kosningamiðstöð íSíðumúla 12 íReykjavík. Þar hefur flokkurinn rúm-
gott húsnœði ogfer þar fram mikið starf. Efstu menn á listanum í Reykjavík eru þarna með skrifstofuaðstöðu
og viðtalstíma. Þá hafa verið haldnir opnir fundir um margvísleg mál. Fjöldi fólks lítur við á hverjum degi, enda
allir velkomnir og alltaf kaffi á könnunni. Kosningamiðstöðin er rœkilega merkt og œtti enginn að þurfa að villast.
Hættumerkin blasa við
— Reynist góðærið skammgóður vermir, eða nýtist það okkur til að hefja nýtt fram-
faraskeið í efnahagsmálum? „Það ræðst af stefnu og stjórnsemi ríkisstjórnarinnar á
þessu ári og þá fyrst og fremst að afstöðnum kosningum“, segir Jón Sigurðsson m.a.
í samtali við Alþýðublaðið um nýútkomna þjóðhagsspá.
„Þærtölursem Þjóðhagsstofnun
er nú að birta um afkomu þjóðar-
búsins 1986 og horfurnar fyrir
þetta ár eru í öllum aðalatriðum
þær sömu og stofnunin sagði frá í
frétt í byrjun desember. Þannig
kemur fátt á óvart í þessu efni“,
sagði Jón Sigurösson, efsti maður á
lista Alþýðuflokksins í Keykjavík, í
samtali við Alþýðublaðið í gær,
þegar hann var spurður um nýút-
koinna spá Þjóðhagsstofnunar, þar
sem m.a. kemur fram að verðbólga
verði töluvert meiri cn reiknað hef-
ur verið með á þessu ári, cða uin
11—12%. í spánni ereinnig gert ráð
fyrir mun liægari vexti landsfram-
leiðslu, en hagvöxtur var um 6,5%
hér á landi í fyrra og þjóðartekjur
jukust um 8,5% vegna mikils bata
viðskiptakjara. Spáin gerir ráð fyrir
að landsframleiðslan geti vaxið um
3,5% og þjóðartekjur um 5,5%.
„Það er ánægjulegt að afkoma
þjóðarbúsins batnaði verulega í
fyrra. En við skulum átta okkur á
því að þennan efnahagsbata eigum
við fyrst og fremst að þakka ein-
staklega hagstæðum ytri aðstæðum
sem ekki er á valdi okkar sjálfra eða
íslenskra stjórnvalda. Ástæðurnar
fyrir efnahagsbatanum eru i aðal-
atriðum fimm. 1. Góð aflabrögð. 2.
Hátt afurðaverð. 3. Stórfelld lækk-
un á olíurverði í heiminum og i
Framhald á bls. 2
Astandið í húsnæðismálum á islandi:
Ásmundur Hilmarsson, starfsmaður Sambands bygzingarmanna:
Ummæli fasteignasala forkastanleg
44
Hafa meiri áhrif á markaðinn en þeir vilja vera láta. Kjarkleysi hjá al-
þingismönnum. Næsta ríkisstjórn ekki bundin af 3,5% vöxtum. Fé-
lagsmálaráðherra hefur í hendi sér að stöðva lán til stóreignafólks.
í Alþýðublaðinu s.l. laugardag
var viðtal við Ásmund Hilmars-
son, starfsmann Sambands bygg-
ingarmanna. Ýmislegt forvitnilegt
kom fram í viðtalinu við Ásmund,
eins og lesendur hafa vafalaust
tekið eftir, en um þátt fasteigna-
sala í hækkun á íbúðaverði á al-
mennum markaði, sagði Ás-
mundur:
„í viðtali Alþýðublaðsins við
Friðrik Stefánsson, varaformann
fasteignasala, fyrir nokkrum dög-
um, sagði Friðrik eitthvað á þá
leið að fyrst að unga fólkið fengi
svona hátt lán eða lánsloforð, sem
væri nokkru hærra en t.d. tveggja
herbergja íbúðir kosta í dag, þá
hefði markaðurinn gert sér lítið
fyrir og hækkað þessar tveggja
herbergja íbúðir upp í þessa tölu!
Ég verð að segja að mér finnst
alveg guðdómlegt að heyra þetta
frá manni eins og Friðriki Stef-
ánssyni sem er í raun ráðgjafi
þessa sama fólks. Ef hann er ráð-
gjafi þessa fólks sem getur eignast
íbúð með láni sem nær ekki há-
marksláni, — og þar að auki með
minni útborgun, sem þýðir það að
þetta unga fólk kemst betur af
heldur en það gerði þegar það
kaupir stærri íbúð, þá er ekki
hægt að kalla slíka ráðgjöf annað
en hneykslanlega. Ætli fasteigna-
salar hafi ekki haft einhver áhrif á
það t.d. hvernig eftirspurnin er?
Það mætti segja mér það.
Fasteignasalinn ráðleggur við-
skiptamanni sínum til dæmis um
kaup á íbúð með tilliti til þess
hversu mikil lán eru í boði og þeg-
ar ungi maðurinn kemur, sem að
fasteignasalinn er að segja að óski
eftir tveggja herbergja íbúð, þá
segir fasteignasalinn við hann: Þú
skalt taka miklu meira lán heldur
en það sem þú kemst af með í
tveggja herbergja íbúðina og þú
skal líka leggja fram miklu meira
fé, sem eigin hluta þinn. Ef þú átt
700 þús. kr. í peningum, þá ferðu
bara í bankann og slærð lán fyrir
því sem á vantar og svo færðu 2,
eitthvað milljónir í viðbót frá hús-
næðisstjórn. Og það er lán sem þú
borgar á 40 árum, — að vísu verð-
tryggt, en fasteignasalinn er ekk-
ert að segja þér það, hann segir
bara að lánið sé með 3,5% vöxt-
um. Það er þetta sem er svívirði-
legt.
Ef það er rétt sem haldið hefur
verið fram og allt bendir til að
3ja—4ra herbergja íbúðir hafa
hækkað um 30—40%, bara vegna
þessa, hvað geturðu þá ímyndað
þér að íbúðarverð myndi hækka á
öllu höfuðborgarsvæðinu, ef að
yrði svarað allri eftirspurn strax?
Það yrði hreint hrikalegt, sem
þýðir með öðrum orðum það, að
það verður að hafa eitthvert taum-
hald á þessu.
Það er til dæmis hægt að hafa
hemil á þessu með því að það
verður ákveðinn fjöldi lána sem
verða afgreidd, ef við sjáum það
að biðtíminn ætlar að verða óeðli-
lega langur, þá eigum við mögu-
leika til þess að svara því. Til
dæmis með því að auka fé inn í
byggingasjóð ríkisins.
Við skulum gera okkur grein
fyrir að það fé sem kemur inn í
byggingasjóð ríkisins, það er með
tvennum hætti: Annars vegar þá
veistu sæmilega vel hvað mikið
kemur frá lífeyrissjóðunum,
vegna þess að lífeyrissjóðirnir vita
nokkurn veginn hvað mikið kem-
ur inn og hvað mikið fer út. Eins
er hægt að vita með fullri vissu
hvaða lífeyrissjóðir gera samning
við Húsnæðisstofnun, sem þýðir
að þú hefur allgóða hugmynd um
stærsta hluta þess fjármagns sem
kemur inn í húsnæðislánakerfið.
Svo í öðru lagi eins og allir hafa
gert sér grein fyrir? Að ríkisfram-
lagið er afgangsstærð, sem þýðir
með öðrum orðum að lengdin á
herkostnaður
g held aö meginatriöiö sé það
bð eru kosningar framundan.
vegna sé þctta mál blásiö
na út. Ég geri mér reyndar ekki
ifyrir þvi hvaö frambjóöendur
Kmálaflokkanna eru að faru.
(r reyndar min skoöun aö þessi
ningaundirbúningsumræöa sem
i hefur fram að undanförnu,
iþví ef til vill aö enn fleiri um-
\berast núna en vera myndi
öðrum kringumstæðum,"
Ásmundur Hilmarsson,
kmaöur Sambands byggingar-
IblaAL' '
það, að menn búi sig undir það að
leggja nánast allt lifsstarf sitt að
veði. Það að verða sér úti um hús-
næði hér á landi, þýðir að þú ert að
taka þátt i herþjónustu. Þess vegna
er grundvallaratriðið núna, að
menn sæki um lán, fái svar og miði
sig siðan við það hvernig gengur.
Fyrsta skrefið er að sækja um
lán. Næsta skrefið er að sækja um
lóð og ef þu ert i Rcykjavik geturðu
fengið lóð nánast strax. Lóðina
þarftu siðan að borga á niu mánuð-
um, hún gæti kostað 7-800 þúsund
röðinni, þ.e. biðtíminn, hann
ræðst 100% af þvi hvert ríkis-
framlagið er. Þá þurfa menn sem
sagt að leggja mat á það hvort
röðin sé orðin óeðlilega löng og
setjum við það innan gæsalappa,
vegna þess að það er matsatriði,
þá hefur ríkið þann möguleika að
setja meira fjármagn inn í hús-
næðiskerfið og stytta þar með
biðtímann. Einnig geta þeir líka
átt hinn svo kallaða frjálshyggju-
möguleika, að fara leið Hannesar
Hólmsteins að minnka eftirsókn-
ina i heilbrigðiskerfið, þá vill
hann hækka verðið á því. Það
þýðir með öðrum orðum að ef þú
vilt minnka eftirsóknina í hús-
næðislánakerfið, samkvæmt
frjálshyggjunni, þá hækkarðu
vextina. Þetta er atriði ef til vill
sem menn hafa ekki gert sér grein
fyrir og fasteignasðlunum kemur
náttúrlega andskotans ekkert við,
vegna þess að fólk skrifar undir
skuldabréf með þeim vöxtum sem
í gangi eru hverju sinni. Ég veit
ekki betur en að þetta sé rétt. Vext-
ír eru núna 3,5%. Ríkisstjórnin
ákveður þessa vexti og hún getur
ákveðið allt aðra vexti á morgun
en þeir eru t.d. í dag og þá er allt
fjárhagsdæmið fallið í rúst.
Það eina sem er staðreynd í
málinu er það að það var samið
um það að þessi ríkisstjórn sem
nú situr, setti vextina ekki hærri
en 3,5%. Næsta ríkisstjórn er ekk-
ert af því bundin. Og hvað gerir
hún? Það er það sem við vitum
ekki. Þar að auki, þá er það í
Framhald á bls. 2