Alþýðublaðið - 20.03.1987, Page 2
2
Föstudagur 20. mars 1987
alþýöu-
Alþýðublaöiö, Ármúla 38, 108 Reykjavík
Sími: (91) 681866, 681976
Úteefandi: Blaöi hf
Ritstjórar: Árni Gunnarsson og Ingólfur Margeirsson
Blaðamenn: Örn Bjarnason, Ása Björnsdóttir, Kristján Þor-
valdsson og Jón Danielsson
Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson
Skrifstofa: Halldóra Jónsdóltir og Eva Guðmundsdótlir
Setning og umbrot Alprent hf., Armúla 38
Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12
W
Askriftarsíminn
er 681866
'RITSUÓRNARGREIN'
Stórsókn Alþýðuflokksins
Hinn mikli meðbyr sem Alþýöuflokkurinn hetur
fengið I skoöanakönnunum siðustu misseri hefur
fariö mjög fyrir brjóstið á málsvörum annarra f lokka.
Óttinn við verulega fylgisaukningu Alþýöuflokksins
hefur ekki sist gert vart við sig (Sjálfstæðisf lokki og
Alþýðubandalagi nú þegar dregur nær kosningun-
um. Siðasta áróðursbragðið gefur að l(ta I Morgun-
blaðinu og Þjóðviljanum I gær, sem samhljóða
halda þvl fram að fylgi Alþýðufokksins hafi I raun og
veru ekki aukist neitt, heldurhafi gamlafylgi Banda-
lags jafnaðarmanna aðeins bæst við. Athugum
þetta nánar.
Morgunblaöiö rekur i Staksteinum fylgi BJ frá slð-
ustu kosningum og til september '86 þegar það
gekktii liðsviðAlþýðuflokkinnogsegirsfðan: Þess-
ar staöreyndir um hnignun og endanlegt hrun
Bandalags jafnaðarmanna er nauösynlegt að hafa í
huga þegar rætt er um fylgisaukningu Alþýðu-
flokksins. Þjóðviljinn segir I „frétt“ sem birtist í gær
undir fyrirsögninni „Kratar standa I stað“ að sé út-
koma Alþýðuflokksins og Bandalags jafnaðar-
manna úr slðustu alþingiskosningum lögð saman,
komi I Ijós að þeir höföu svotil sama fylgi og kratar
hafi I dag, eöa 19%. Þessi málflutningur málgagna
Sjálfstæðisflokksins og Alþýðubandalagsins er
bæði broslegur og villandi. Lítum fyrst á nokkrar
staðreyndir.
Við siðustu kosningar 1983 hlaut Alþýðuflokkur-
inn 11.7% fylgi kjósenda. Bandalag jafnaðarmanna
fékk 7.3%. Skoðanakannanirfráslðustu kosningum
og fram til september ’86 þegar BJ gekk til liðs við
Alþýöuflokkinn, sýnavaxandi fylgi Alþýðuflokksins
og minnkandi fylgi BJ. Þannig sýndi skoöanakönn-
un DV frá mars ’8519.9% fylgi Alþýðuflokks og 5.6%
fylgi BJ. í mal '86 er fylgi Alþýðuflokks I könnun DV
13.5% en BJ meö aðeins 3%.
Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Há-
skóla íslands ásama tlmasýndi 15.5% fylgi Alþýðu-
flokks en 3.7% fylgi BJ. Og skoðanakannanir héldu
áfram að sýna vaxandi fylgi Alþýðuflokksins og rén-
andi fylgi BJ. Við inngöngu BJ I Alþýðuflokkinn —
hafði BJ um 2% fylgi en Alþýðuflokkurinn um 20%.
Það er því ekki raunhæft að miða við tölur frá kosn-
ingunum 1983, leggja saman fylgi Alþýðuflokks og
BJ á þeim tima og fá út núverandi fylgi Alþýðu-
flokksins. Slfk vinnubrögð eru loddaraskapur. Mun
fleiri þættir verka þarna inn. Fylgisaukning Alþýðu-
flokksins bygcjist t.a.m. á breyttum hug kjósenda til
annarra flokka og fylgi kjósenda sem kjósa I fyrsta
skipti. Þáerónefndurhluturkjósendasem enn hafa
ekki gert upp hug sinn en skv. slðustu skoöanakönn-
un HPhallast langstærsti hluti þeirraað því að kjósa
Alþýðuflokkinn.
Þeir sérfræðingar sem unnið hafa að gerð skoð-
anakannana eru á einu máli I túlkun sinni. Stefán
Ólafsson lektorvann að síöustu skoðanakönnun Fé-
lagsvisindadeildar HÍ. Hann sagði I fréttaviðtali við
Rlkisútvarpið að greinilegustu niðurstööur könnun-
arinnar væri mikil sókn Alþýöuflokksins. Gunnar
Maack, framkvæmdastióri Hagvangs sagði á frétta-
mannafundi þarsem niðurstöður síðustu skoðana-
könnurará fylgi flokkanna var kynnt, aö Alþýðui-
f lokkurinn héldi slnu flugi.
Alþýðuflokkurinn er I stórsókn. Skoöanakannanir
staðfesta að hann er orðinn næststærsti stjórn-
málaflokkurá íslandi og eini raunhæfi valkosturinn
ef breyta á samsetningunni á rlkisstjórninni. Skýr-
ingin á fylgisaukningu Alþýðuflokksins er marg-
þætt. Innganga BJ I flokkinn og sameining jafnaðar-
manna undir einum fána er ein skýringin. Málefna-
leg og nútlmaleg jafnaðarstefna er önnur skýring
flokksins. Aðalatriðið er að stefna Alþýðuflokksins
hefur náð eyrum kjósenda um land allt sem eru
orðnir langþreyttir á staðnaðri miðstýringu Alþýðu-
bandalagsins og sérhagsmunavörslu Sjálfstæðis-
flokksins og Framsóknar.
Skrif Morgunblaðsins og Þjóðviljans um flutning
atkvæða milli flokka eru dæmigerð fyrir málgögn
flokkræöis. Við skulum ávallt hafa það hugfast að
flokkar eiga ekki atkvæði. Fólk á atkvæði.
Einar Kr. Isfeld Kristjánsson
f 25.7.1946 — d. 12.3.1987
í dag kveðjum við hinstu kveðju
Einar Kr. ísfeld Kristjánsson, fyrr-
verandi deildarstjóra hjá Trygg-
ingastofnun ríkisins, sem lést í
Landspítalanum 12. mars sl., langt
um aldur fram. Einar fæddist í
Reykjavík 25. júlí 1946, sonur hjón-
anna Kristjáns Benediktssonar og
Ólafar ísfeld Kristjánsdóttur.
Þeir sem starfað hafa hjá Trygg-
ingastofnun ríkisins eiga eingöngu
góðar minningar um Einar Isfeld,
alltfrá því hann hóf þarstörf einn
fagran júlídag árið 1964, þar til
Atvinnuleysi á landinu:
13.400 manns i
febrúarmánuði
í febrúarmánuði sl. voru skráðir
13.400 atvinnuleysisdagar á land-
inu öllu. Þetta jafngildir því að
rösklega 600 manns hafi að meðal-
tali verið á atvinnuleysisskrá í mán-
uðinum en það svarar til 0.5% af
áætluðum mannafla á vinnumark-
aði samkvæmt spá Þjóðhagsstofn-
unar.
Samkvæmt þessu hafa orðið
mikil umskipti frá mánuðinum á
undan þegar skráðir atvinnuleysis-
dagar námi 51 þúsundi og atvinnu-
lausir voru að meðaltali 2.400
manns. Þar gætti að sjálfsögðu
áhrifa frá verkfalli sjómanna fyrri
hluta janúarmánaðar.
í febrúar í fyrra voru skráðir 24
þúsund atvinnuleysisdagar og nem-
ur fækkun atvinnuleysisdaga milli
ára 44% en sem hlutfall af mann-
afla nemur lækkunin 0.4 prósentu-
stigum. Þegar til lengri tima er litið
kemur í ljós að skráðir atvinnuleys-
isdagar í febrúarmánuði hafa ekki
verið færri en í febrúarmánuði sl.
síðan árið 1980 þegar skráðir voru
tæplega 9 þúsund atvinnuleysisdag-
ar á öllu landinu.
Þegar á heildina er litið verður
því ekki annað sagt en atvinnuá-
standið hafi í liðnum mánuði verið
venjufremur gott miðað við árs-
tíma.
hann flutti sig um set á síðasta ári
og gerðist skrifstofustjóri hjá
Landmælingum ríkisins.
Það er erfitt að sætta sig við, að
menn skuli kallaðir brott í blóma
lífsins, en dómi, þess sem öllu ræð-
ur, verður ekki áfrýjað. Einar hafði
marga kosti til að bera, einn af þeim
var atorkan við að koma sér áfram
í lífinu. Dugnaður og samviskusemi
einkenndi störf hans hjá Trygginga-
stofnuninni og þegar tími leyfði frá
þeim var hann önnum kafinn við að
koma sér þaki yfir höfuðið, nú ný-
verið hafði hann flutt í glæsilegt
einbýlishús ásamt sambýliskonu
sinni, íris Arthúrsdóttur. Aður var
Einar kvæntur Hrafnhildi Hauks-
dóttur, en þau slitu samvistum.
Með henni átti Einar tvö börn.
Eitt af mörgum áhugamálum
Einars ísfeld var knattspyrnan.
Hann lék í nokkur ár með KR og
m.a. í meistaraflokki félagsins, sem
varð íslandsmeistari. Einar var leik-
inn með knöttinn og vinsæll í hópi
félaga sinna.
Nokkrir mannkosta Einars hafa
hér verið upptaldir, en ekki má
gleyma notalegri framkomu hans
og hlýleika og bjartsýni samfara
manneskjulegu viðmóti við fólk al-
mennt. Þetta kom mjög áberandi í
ljós í hans erfiðu veikindum.
Um leið og Einar ísfeld er kvadd-
ur í hinsta sinn sendum við sambýl-
iskonu hans, foreldrum, systkinum
og börnum ásamt öðrum ættingj-
um innilegar samúðarkveðjur. Við
biðjum góðan Guð að blessa ykkur
og styrkja í ykkar miklu sorg.
Minningin um góðan dreng mun
ávallt lifa.
Starfsfólk Tryggingarstofnunar
ríkisins
Jóhann Þorsteinsson
trésmiður — Síðbúin kveðja
Jóhann var fæddur 30.8.1927 en dá-
inn 27.2.1987. Við vorum saman á
Landspítalanum og ég kynntist
honum þar gegnum bróður hans,
Ingólf, indælasta dreng sem ég hef
kynnst.
Jóhann heitinn náði aldrei
heilsu, þótt við báðir hefðum
indælis lækni og besta dreng, til að
lækna okkur. Ég náði aftur á móti
fullkominni heilsu. Læknirinn var
Egill Jacobsen.
Blessuð sé minning Jóhanns heit-
ins. Ég veit að Jóhann er nú við hlið
Drottins.
Að síðustu:
„Er til hvílu gengur þú
hug þínum til Alvalds snú.
/ Guðs örmum hvíl þú rótt.
í Jesú nafni, góða nótt.
Sveinn Sveinsson
ST. JÖSEFSSPÍTALI
Landakoti
Ársstaða aðstoðarlæknis við
lyflækningadeild
St. Jósefsspltala, Landakoti, er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. júlí 1987.
Umsóknarfrestur er til 20. aprll n.k.
Umsóknir með upplýsingum um námsferil og
fyrri störf skal senda til yfirlæknis lyflækninga-
deildar.
Reykjavik 17/3 1987.
Húsnæðisstofnun ríkisins
Tæknideild Laugavegi 77. R. Slmi 28500.
ÚTBOD
Ölfushreppur
Stjórn verkamannabústaða Ölfushrepps, óskar eftir til-
boðum I byggingu tveggja (búða I parhúsi, byggðu úr
steinsteypu. Verk nr. U.05.01 úr teikningasafni tækni-
deildar Húsnæðisstofnunar rfkisins.
Brúttóflatarmál húss 195m2
Brúttórúmmál húss 675m3
Húsið verður byggt við götuna Norðurbyggð 1a og 1b
Þorlákshöfn og skal skila fullfrágengnu, sbr. útboðs-
gögn.
Afhending útboðsgagna er á sveitarstjórnarskrifstofu
Ölfushrepps, Selvogsbraut 2, Þorlákshöfn og hjá
tæknideild Húsnæðisstofnunar rlkisins frá þriðjudeg-
inum 17. mars 1987 gegn kr. 5.000.- skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á sömu staði eigi slðar en þriðju-
daginn 7. apríl kl. 11.00 og verða þau opnuð viðstöddum
bjóðendum.
f.h. stjórnar verkamannabústaða
tæknideild Húsnæöisstofnunar ríkisins.