Alþýðublaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 2
2
Fimmtudagur 2. apríl 1987
RITSTJ QRN AHG R El N’—....
Viðreisn velferðarríkisins —
Nýsköpun í efnahagsmálum
Flokksstjórn Alþýðuflokksins samþykkti um
helgina ítarlega stefnuskrá fyrir alþingiskosn-
ingarnar 1987. Stefnumál flokksins hafa verið
tekin saman undir heitinu Viðreisn velferðar-
ríkisins — Nýsköpun í efnahagsmálum. í inn-
gangi að hinni vönduðu stefnuskrá segir m.a.:
„Alþýðuflokkurinn átti mikilvægt frumkvæði
að mótun þess velferðarríkis sem íslendingar
nú búa við. Meginmarkmið velferðarríkisins
eru enn i fullu gildi, en stöðugt verður að leita
nýrra leiða að þeim. Þvi vill Alþýðuflokkurinn
beita sér fyrir umfangsmikilli endurnýjun og
eflingu velferðarríkisins samhliða framförum I
efnahagsmálum, til að nálgast enn betur mark-
miðin um frelsi einstaklinga, jöfnun lífskjara
fullaatvinnu og afkomuöryggi allra I réttlátu og
mannúðlegu þjóðfélagi, þar sem einstakling-
arnir fá búið I samlyndi við mannlega reisn.“
Alþýðuflokkurinn hefurþásérstöðu I íslensk-
um stjórnmálum að leggja áherslu á hvort
tveggja; öflugt velferðarríki og frjálsa sam-
kepþni og markaðshætti I atvinnullfinu. Ríkis-
valdið hefur á undanförnum áratugum ítrekað
leiðst út I sérhagsmunavörslu I atvinnulífinu
og komið á ýmislegri vernd fyrir einstök fyrir-
tæki og atvinnugreinar. Slíkt velferðarkerfi fyr-
irtækjannadregurúrábyrgðeigendaog stjórn-
enda og veikir það aðhald sem nauðsynlegt er
I atvinnullfinu. Það skekkir ráðstöfun fjármuna
og viðheldur úreltum atvinnu- og stjórnarhátt-
um. Þróttmikið atvinnulíf verður ekki byggt á
opinberri forsjá og vernd yfir vaxtarbroddum
gærdagsins. Því er nauðsynlegt að endurskil-
greina hlutverk ríkisvaldsins I efnahagslífinu,
draga úr letjandi afskiptum og efla samkeppni,
aðhald og endurnýjun atvinnullfsins.
Helstu áhersluatriði Alþýðuflokksins I kosn-
ingabaráttunni fyriralþingiskosningarnar1987
eru:
I. ENDURNÝJUN VELFERÐARRÍKISINS:
SANNGJÖRN TEKJUSKIPTING
OG AFKOMUÖRYGGI
1. Einfalt og réttlátt skattkerfi.
2. Lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn.
3. Endurskoðun almannatrygginga.
4. Daglaunastefna — Stytting vinnutíma á
fullum launum og aukin afköst.
5. Efling húsnæðislánakerfis.
6. Jafnrétti kynjanna.
7. Ný heilbrigðisstefna.
8. Framsækin skólastefna og endurbætur
námslánakerfis.
9. Fjölskyldustefna.
II. FRAMFARIR í EFNAHAGSMÁLUM
1. Kerfisbreytingar: Ný skilgreining á hlutverki
rlkisins.
2. Jafnvægisstefna: Stöðugleiki og festa I
efnahagsmálum.
3. Ný atvinnustefna.
III. SAMSKIPTI ÍSLANDS VIÐ UMHEIMINN
1. Áframhaldandi samstarf vestrænna ríkja I
öryggismálum og norræn samvinna.
2. Aukin viðskipta- og menningartengsl við
Evrópu og virk sókn á nýja markaði I vestri
og austri.
3. Stuðningur íslands við aðra jarðarbúa.
4. Árvekni I hafréttarmálum og frumkvæði I
samningum um varnir gegn mengun I hafi
og öðrum náttúruauðlindum.
IV. MENNINGARSAMFÉLAG
1. Samfélag menningarog mannúðar.
2. Stuðningur við listir og vísindi.
V. UMBÆTUR Á STJÓRNKERFI
1. Endurskoðun á löggjafarvaldi og stjórnar-
skrá.
2. Breyting á dómsvaldi.
3. Endurskipulagning á framkvæmdavaldi.
4. Aukin völd og ábyrgð sveitarstjórna.
5. Lagasetning um hagsmunaárekstra.
VI. NÝ BYGGÐASTEFNA
1. Þróun byggðar.
2. Jafnvægi I byggðaþróun.
3. Efling byggðakjarna.
4. Byggðastofnun og nýr fjárfestingalánasjóð-
ur.
Atvinnumiðlun
fatlaðra
Hafnarfjarðarbær auglýsir stöðu við atvinnuleit og
vinnumiðlun fyrir fatlaða, um er að ræða V2 starf fyrri-
hluta dags.
Starfssvið er auk beinnar milligöngu um ráðningu ör-
yrkja á almennan vinnumarkað, m.a. það að gera sér
grein fyrir og miðla þeim úrræðum öðrum sem til þurfa
að koma I atvinnumálum þessa hóps.
Leitað er að manni með félagslega menntun og/eða
reynslu, einnig er þekking á atvinnullfinu mikilvægur
þáttur.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist til Fé-
lagsmálastjóra hafnarfjarðar, Strandgötu 4,220 Hafnar-
firði fyrir 7. apríl n.k. sem jafnframt veitir nánari upplýs-
ingar um starfið.
Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði
The
Platters
tu
íslands
Hinir heimsfrægu The Platters
koma hingað til lands og skemmta
landanum í veitingahúsinu Broad-
way og i Sjallanum Akureyri. The
Platters koma til landsins 21. apríi
beint frá Las Vegas þar sem þeir
skemmta aðallega á stóru hótelun-
um í þessari frægu skemmtana-
borg.
The Platters munu skemmta 22.,
23. og 26. apríl í Broadway og helg-
ina 24. og 25. apríl í Veitingahúsinu
Sjallanum. The platters urðu
heimsfrægir á 7. áratugnum fyrir
sinn sérstaka og fallega söngstíl.
Undir handleiðslu upptökustjórn-
anda síns og lagahöfundar, Buck
Ram, seldu þeir um tíu milljón ein-
tök af plötum á þessum tíma, en sú
tala er sjálfsaagt orðin hærri í dag.
Söngsveitina The Platters skipa
þau: John Davis, Albert Statti, Rey-
mond Manson, Monroe Powell og
Marcia Robinson. Að sjálfsögðu
koma þau með sína hljómsveit með
sér.
Það verða ódauðleg lög eins og -
Only You, The Great Pretender,
Smoke Gets In Your Eyes, Harbour
Lights og Magic Touch sem munu
hljóma á Broadway og Sjallanum í
apríl.
The Platters eiga marga trygga
aðdáendur hér á landi á öllum aldri
og eitt er víst að þeir verða ekki fyrir
vonbrigðum er þeir heyra þessa
„Klassísku" söngsveit flytja þeim
söngva sína með fimmrödduðum
englasöng.
NORÐURLANDARÁÐ
ISLANDSDEILD
Forsætisnefnd Norðurlandaráðs
auglýsir lausa til umsóknar stöðu
aðstoðarframkvæmdastjóra skrif-
stofu sinnar í Stokkhólmi.
Norðurlandaráð er samstarfsvettvangur þjóðþinga og
rikisstjórna Norðurlanda. Á milli hinna árlegu þinga
Norðurlanadráðs stýrirforsætisnefnd daglegum störf-
um þess og nýtur við það atbeina skrifstofu Norður-
landaráðs sem er staðsett í Stokkhólmi.
Á skrifstofunni, sem hefur stöðu alþjóðlegrar stofnun-
ar, starfaþrjátlu manns og ferstarfið þarfram ádönsku,
norsku og sænsku.
Starfi skrifstofunnar er stjórnað af aðalframkvæmda-
stjóra (presidiesekreterare), tveimur aðstoðarfram-
kvæmdastjórum (stállföretrádande presidiesekreter-
are) og upplýsingastjóra.
Starf það sem auglýst erfelst meðal annars í fjárstjórn,
starfsmanna- og skrifstofuhaldi, aðstoðað við undir-
búning funda forsætisnefndar og skipulagningu á
störfum ráðsins, auk þess sem viðkomanda ber að
fylgjast meö stjórnmálaástandi á Norðurlöndum og
vera forsætisnefnd til aðstoðar um erlend samskipti.
Reynsla af stjórnunarstörfum er æskileg.
Forsætisnefnd leitast viö að fá konur jafnt sem karlatil
ábyrgðarstarfa á skrifstofur Norðurlandaráðs.
Samningstlminn er fjögur ár og hefst hann 1. ágúst
1987. Rlkisstarfsmenn eiga rétt á leyfi frá störfum með-
an á samningstímanum stendur.
í boði eru góð laun, en nánari upplýsingar um þau og
aðrar aðstæður Veita aðalframkvæmdastjóri skrifstof-
unnar.iGerhard af Schultén, og aðstoðarframkvæmda-
stjóri hennar, Áke Pettersson, ( slma 9046 8 143420 og
Snjólaug Ólafsdóttir, ritari íslandsdeildar Norðurlanda-
ráðs I síma Alþingis 11560.
Umsóknum skal beina til forsætisnefndar Norður-
landaráðs (Nordiska rádets presidiesekretariat, Box
19506, S-104 32 Stockholm) eigi slðar en 27. aprll 1987.
Umsóknum skal beina til forsætisnefndar Norður-
landaráðs (Nordiska rádets presidium) og skulu þær
hafa borist til skrifstofu forsætisnefndar(Nordiska rád-
ets presidiesekretariat, Box 19506, S-104 32 Stockholm)
eigi slðar en 27. aprll 1987.