Alþýðublaðið - 04.04.1987, Síða 5
5
Laugardagur 4. apríl 1987
; ■
Ríkisútgáfa námsbóka 50 ára
Hálf öld er nú liðin frá því að
Ríkisútgáfa námsbóka og Kvik-
myndasafn rikisins tóku til starfa.
Stofnun Ríkisútgáfunnar átti sér
alllangan aðdraganda og var eitt af
baráttumálum Alþýðuflokksins á
þriðja og fjórða tug aldarinnar.
Töldu alþýðufiokksmenn að ríkinu
bæri skylda til að sjá svo um að öll-
um börnum væri gert kleift að eign-
ast þær bækur sem löggiltar væru
til kennslu í barnaskólum. En á
þessu var oft nokkur misbrestur og
ekki óalgengt að kennarar stæðu
frammi fyrir þeim vanda að nem-
endur væru bókarlausir vegna þess
að aðstandendur þeirra gátu ekki
keypt bækurnar sökum fátæktar.
Á Alþingi 1931 lögðu svo þrír
þingmenn Alþýðuflokksins, þeir
Sigurjón Á. Ólafsson, Héðinn
Valdimarsson og Haraldur Guð-
mundsson fram frumvarp til laga
um ríkisútgáfu á námsbókum.
Stóðu kennarar fast að baki al-
þýðuflokksmanna í þessu baráttu-
og urðu um það mmiklar umræður.
Óþarft er að tíunda hverjir stóðu
þar fastast á móti. En 1936 er málið
flutt í sjötta sinn og nær þá fram að
ganga. Var frumvarpið flutt af þá-
verandi menntamálaráðherra idar-
aldi Guðmundssyni.
Á Alþingi 1937 voru svo fyrstu
lög um kennslukvikmyndasafn sett
hér á landi.
Þann 1. apríl 1937 kom svo fyrsta
stjórn Ríkisútgáfu námsbóka sam-
an til fundar. í stjórninni áttu sæti
þeir Vilmundur Jónsson landlækn-
ir, formaður, Guðjón Guðjónsson
skólastjóri og Jónas Jónsson skóla-
stjóri Samvinnuskólans. Fram-
kvæmdastjóri útgáfunnar var
Steingrímur Guðmundsson for-
stjóri Ríkisprentsmiðjunnar
Gutenberg.
Fyrstu árin sá Steingrímur um út-
gáfu og úthlutun bóka og lagði þar
í geysimikið starf og má segja að
hann með áhuga sinum og dugnaði
héldi hlutunum gangandi í fleiri ár
þrátt fyrir að fjármagn væri oftast
af skornum skammti.
Árið 1940 færðist úthlutun bóka
til Menningarsjóðs og tók Jón Emil
Guðjónsson við úthlutuninni, en
hann var þá starfsmaður Menning-
arsjóðs, en síðan framkvæmda-
stjóri 1946. Framkvæmdastjóri
Ríkisútgáfu námsbóka var hann
síðan frá 1956 til 1978 er hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir. Hafði
hann þá unnið við stofnunina í 38
ár. Við starfi hans tók Bragi Guð-
mundsson en núverandi fram-
kvæmdastjóri Námsgagnastofnun-
ar er Ásgeir Guðmundson.
Helstu áfangar og breytingar á
starfi Ríkisútgáfu námsbóka og
Fræðslumyndasafns ríkisins á 50
ára starfsferli hafa verið þessar:
Lög 1956, sem ákváðu að allir
skólaskyldir nemendur skyldu fá
námsbækur ókeypis, en áður hafði
það aðeins gilt um nemendur
barnaskóla. Þá skyldi útgáfan auk-
in og bætt og árið eftir tók Skóla-
vörubúðin til starfa.
Lög um Fræðslumyndasafn rík-
isins voru sett árið 1961. Var
Fræðslumyndasafnið þá gert að
sjálfstæðri stofnun með víðtæku
starfsviði.
Árið 1969 hófst náið samstarf við
skólarannsóknardeild mennta-
málaráðuneytisins sem hafði fengið
það meginverkefni að standa fyrir
heildarendurskoðun á öllu náms-
efni á grunnskólastigi.
Námsgagnastofnun tók til st arfa
1980 skv. lögum nr. 45/1979. Með
stofnun hennar voru Ríkisútgáfa
námsbóka ásamt Skólavörubúð og
Fræðslumyndasafni ríkisins sam-
einuð.
Um áramótin 1984—1985 fluttist
námsefnisgerð fyrir grunnskóla,
sem farið haði fram á vegum skóla-
rannsóknadeildar menntamála-
ráðuneytisins til Námsgagnastofn-
unar.
Um síðast liðin áramót var
Námsgagnastofnun endurskipu-
lögð og starfar nú á 3 meginsviðum:
námsefnissviði, sölu- og afgreiðslu-
sviði og fjármálasviði. Auk þess er
starfandi kennslumiðstöð.
Eins og áður er frá sagt hefur
fjárhagur Ríkisútgáfunnar oftar en
ekki verið þröngur og hlutur ríkis-
sjóðs til stofnunarinnar skarður, og
svo er enn. En þrátt fyrir það hefur
hlutur útgáfunnar til fræðslu og
menningar islenskri æsku til handa
verið ómældur og æði stór og
reynst traustur grundvöllur
íslenskra kennslu- og skólamála í
hálfa öld.
S.H.
Stjórnendur Ríkisútgáfu námsbóka og námsgagnastofnunar
í greinargerð með frumvarpinu
sagði m.a.
Það mun láta nærri, að bóka-
kostur eins barns öll skólaárin sé nú
kr. 70.00. Þetta er mikið fé, og er oft
alltilfinnanleg útgjöld, þegar fá-
tækasta stéttin á hlut að máli. Enda
mundi sannanlegt, ef skýrslur eru
fyrir hendi, að mikill hluti fátæk-
ustu barnanna eignast aldrei allan
þennan bókakost, sem lög og reglu-
gerðir skólanna ákveða, og er það
aðeins hið geysiháa verð skólabók-
anna, sem nú er og svo fátækt barn-
anna sem sviptir þau nauðsynleg-
um bókakosti. Má geta nærri, hver
hugraun slíkt er fyrir námfús börn.
Frumvarpið náði ekki fram að
ganga á Alþingi 1931 en var endur-
flutt án árangurs á næstu þingum
Steingrímur Guðmundsson
forstjóri 1937—1956.
Jón Emil Guðmundsson
forstjóri 1956—1978.
Bragi Guðmundsson
forstjóri 1978—1980.
Ásgeir Guðmundsson
námsgagnastjóri frá 1980.
.GLJAS TlQt
Þvottheldni oq styrkle
í hámarki
í fjórum gljástigum
\ 'EL.DU KOPA
jp
Wé rÆ. .ÆSi' f < ’ **“ V \
, '-.C-;
ni 0x- ;
; ' i
1 totuM.inE. nu.;«. kmm.
: ‘WSlftAeiHAUHMG. ÍS VgLJÁSJVg^B S 4 H WOOIG. VATHSÞYKNAÍí < io .app S 30 11*1
ii