Tíminn - 02.07.1967, Page 14
14
SUNNUDAGUR 2. júlí 1967,
» a n ktwhv
HJÖTÖOUUR
Nýjungar frá
Matvælaiðjunni
«A*0ST£tKTAÍt
^TBOiLUR
Þessa dagana kemur á mark-
aðinn frá Mativælaiðjunni .hi.
á Bíldudal nýjung í niðursuðu,
sem án efa verður vinsæl með-
al ferðafólks og þeirra sem í
flýti þurfa að grípa til fljót-
legrar matargerðar.
Er hér um að ræða tvær
samansettar dósir, sem í eru
handsteiktar kjötbollur í kjöt-
soði, en mismunandi sósur í
hinni, sem er heldur minni.
Nú til að byrja með koma í
búðirnar hrísgrjón í karrýsósu
og kartöfliur í brúnsósu, en
fleiri sósutegundum verður
bætt við síðar.
Þessi samsetning á tveimur
dósum er gerð eftir ame-
rískri fyrirmynd og miðast
við að gefa fólki kost á fuil-
kominni máltíð í þægilegum
samansettum umbúðum. í dós-
unum er ágæt miáltíð fyrir 2—
4 og hugsað er að fólk geti
notað kjötsoðið af bollunum til
að þynna út sósuna eftir
smekk. Sérstaklega er þessi
matur hentugur í ferðalög.
Mörgum hefur þótt kynlegt
að við skulum kalla bollurn-
ar okkar handsteiktar og sum-
ir telja það jafnvel málvillu.
Við teljum þetta mjög heppi-
legt orð, ekki fyrir það, að
stúlikurnar okkar séu svona
handheitar heldur til að að-
greina steikinguna frá t.d.
steiking'U í vélum eða með
ljósum sbr. handprjónað og véj
prjónað o.sv.frv.
Það er von okkar að með
þessari nýjung höfum við stig
ið eitt skref fram á við í til-
búnum matartilbúningu en
ýmisar fieiri nýjungar eru í bí-
gerð viðskiptavinum okkar til
þæginda og ánægju.
BíLdudals niðursuðuvörunum
cr dreift í Reykjavík af Norsk-
íslenzka VerziunarféLaginu h.f. H
og Birgðastöð SÍiS, en á Akur- 9
eyri af Beiidverziun Vaidimars I
BaldivinsiS'onar.
GÖNGUSEIÐI
Framihalda af bls. 1.
seiði, þar áður var magnið mjög
litið.
í vor hafa verið sett 45 þús. sjó-
gör.g'.iseiði í fiskræktunarstöðina í
Lárósi í Látravík,, sem er rétt
vestan við Grundarfjörð á Snæ-
feiisnesi. Auk gönguseiðanna hafa
verið útsett 24.500 sumargömul
seiði Lárós. Nokkur óhöpp urðu
í fyrra í fiskræktunarstöðinni í
Lárósi er sjór braut niður hluta
flóðgarðsins en búið er að koma
því öllu í gott lag aftur og eru
flóðgáttir fullgerðar og gildrurnar
tilbúnar að taka á móti laxinum
þegar hann gengur.
Verð gönguseiðanna í vor ihef-
ur verið 15-30 krónur fyrir stykk-
ið, en söluverðið er nokkuð mis
munandi eftir stærð seiðanna og
hve mikið magn hver kaupandi
kaupir í einu.
Samkvæmt upplýsingum Þórs
Guðjónssoniar, veiðimálaistjóra,
hefur fiskeldið þegar haft góð
áhrif á veiðiárnar og á eftir að
hafa vaxandi áhrif á næstu árum.
Geta má þess, að í fyrrasumar
gengu 704 laxar í tilraunastöð
ina í Kollafirði, sem telja má
mjög góðar heimtur, miðao við
magn gönguseiðanna, sem sleppt
Við þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför.
ísleifs Högnasonar,
forstióra,
Helga Rafnsdóttir,
Erla G. ísleifsdóttir, Ólafur Jensson,
Högnl T. ísleifsson, Kristbjörg S. Helgadóttir,
Gísli R. ísleifsson, Sigrlður Eyjólfsdóttir,
Ingibjörg Högnadóir.
TÍMINN
var. t ár eru fiskar þegar farnir
að ganga þar upp, og eru
þrem vikum fyrr á ferðinni en
fyrstu laxarnir. spm komu í fyrra.
Þar sem árangur laxaeldis hefur
orðið jafn góður og raun ber
vitni, hefur skilningur nnanna,
sem hlut eiga að veiðiám. á fiski-
rækt aukizt mjög, og hafa við-
komandi aðilar fengið aukinn
áhuga á fiskirækt og er enda svo
komið, að ekki er hægt að anna
eftirspurn eftir gönguseiðum,
þrátt fyrir aukna framieiðslu
þeirra.
Einnig hafa tilraunir manna
hériendis með fluln.ing á seiðum
gert mögulegt, að hægt er að
flytja fiskseiði frá eidisvstöðvun-
urn í nágrenni Reykj'avíikur í nœr
hverja á landsins og gildir sama
um silungsseiði, sem sett eru í
vötn. Seiðin eru að lang mestu
leyti flutt í flugvélum og eru þau
sett í plastpoka eða brúsa úr
sarna efni. Að sjálfsögðu er vatn
í þessum ílátum, en öllu lofti er
þrýst út úr pokunum og súrefni
látið í vatnið. Með þessu móti ur
hægt að flytja mikið magn af
seiðum í tilt'ölolega litlu vatns-
magni, og er hægt að geyma
fiskinn í þessum umbúðum í
nokkrar klukkustundir án þess
að það hafi nokkur álhriif á hann.
Með sama hætti er bleikja
send víða um land og gengur
vel. Bftirspurn eftir bleikju eykst
ár frá ári, enda er hún duglegur
og harðger fiskur og er verið að
byggja upp bleikjuistofn í mörg-
um vötnum, sem áður voru
fisklaus. Einnig er mikið gert af
því að bæta bleikjuseiðum í vötn,
sem mikið er veitt úr og er
þannig hægt að halda stofninum
við og halda vötnum fengsælum,
þótt veiðiiálag sé mikið.
Veiðimálastjóri sagði að lok-
um, að framfarir í fiskeldi hafi
orðið geysimikiar á undanförn-
um árum og árangur eins góður.
og frekast væri hægt að vænta
og væru ótrúlega margir aðilar,
sem hefðu öðlast skilning á fiski-
rækt og færðu sér hana í nyt.
333 MÁL
Drukkinn
piltur stal
sorpbíl
SJ-Reykjavík, laugardag.
í nótt var sorpbíl í eigu Haifnar
fjarðarkaupstaðar stolið frá vél-
smiðjunni Bjarg í Reykjavík. Hér
var að verki unglingur undir áhrif
um áfengis. Hann var á ráfi um
bæinn, sá sorpbílinn og fór inn í
hann, tengdi „beint“ og ók svo af
stað. Er hann var kominn upp í
MoSfelissveit, nánar tiltekið í
sandnámið við Leirvoginn, stanz-
aði bifreiðin, en unglingurinn
hljóp út í móa og fannst þar
skömmu síðar.
Sonpbíllinn var til viðgerðar í
vélsmiðjunni. Talið er að bíllinn
sé úrbræddur.
Unglingurinn var réttindalaus.
rVÚLOFUNARHRINGAR
afgreiddir
samtíægurs.
Sendum um allt land. —
H A L L D Ó R
Skólavörðustig 2.
B RIDGESTONE
HJÓLBARÐAR
Síaukin sala
sannar gæðin.
BRIDGESTONE
veitir aukið öryggi
: akstri.
BRIDGESTONE
ávalít fyrirliggjandi.
GOÐ ÞJÓNUSTA —
Verzlun og viðgerðir
Simi 17-9-84
Gúmmíbarðinn hf.
Brautarholti 8
Norrænir verk-
stjórar halda þing
Framhald af bls. 16.
ekki hafi mátt tæpara standa um
flutning í rúm húsakynni, svo
mikil sem umsvifin eru orðin. Áð
ur var Bæjarþing Reykja-
þing Reykjavíkur haldið í Hegn
ingarhúsinu við Skólavörðustíg.
Auglýsið i
TÍMANUM
KJ-iReykjavík.
Fyrir nokkru síðan hélt Nor-
ræna verkstjórasambandið stjórn
arfund sinn hér á landi, og er
þetta í annað sinn sem slíkur
fundur er haldinn hér.
Á fundinum hér voru mættir
fulltrúar frá verkstjórasambönd
um allra NorðurDamdanna, og fjall
að um starfsskýrsluir frá þeim á
stjórnarfundinum, þær ræddar
og fulltrúarnir báru saman bæk
ur sínar. Sameiginleg baráttumál
verkstjóra á Norðurlöndum eru
kröfur um aukna menntun verk-
stjóra, bætt kjör og viðurkenn
ing á stéttinni. Þá má geta þess
að hér á landi vinnur Verkstjóra
samband fslands að því að ná
öllum verkstjórum í öllum grein
um undir merki sitt, og að við
þá sé samið sérstaklega í öUum
starfsgreinum, en eins og marg
ir efllaust vita þá taka verkstjór
ar aldrei þátt í verkföllum, því
þeirra verkefni er þá að sjá svo
um að allt sé í llagi á vinnustöð
unum.
Norræna verkstjórasambandið
hefur gengizt fyrir fræðslunám-
skeiðum fyrir meðlimi sina, og
er ætlunin að halda áfiiam á
þeirri braut.
Myndin var tekin á stjórnarfundi Norraena verkstjórasambandsins sem haldinn var í Reykjavík fyrir
nokkru. (Tímamynd Isak).