Alþýðublaðið - 02.06.1987, Síða 3
Þriðjudagur 2. júní 1987
3
Fundur um launamun kynja:
Forystumönnum
stillt upp við vegg
Formönnum stjórnmálaflokknnna
og forystumönnum vinnumarkað-
arins verður stillt upp við vegg á
opnum fundi sem Framkvæmda-
nefnd um launamál kvenna heldur
í kvöld, þriðjudag, undir yfirskrift-
inni LAUNAMUNUR KYNJA —
HVAÐ ER TIL ÚRBÓTA?
Gestir fundarins munu ekki
halda ræður, heldur verður fyrir-
komulag fundarins á þann veg, að
fundarmönnum gefst tækifæri til
að bera fram spurningar utan úr
sal. Er ekki að efa að athyglisvert
verður að heyra hvaða úrræði
stjórnmálamennirnir telja vænleg-
ust til þess að leiðrétta launamun
kvenna og karla að kosningunum
loknum og meðan stjórnarmynd-
unarviðræður eru í gangi.
„Framkvæmdanefnd um launa-
mál kvenna er upphaflega sprottin
upp úr ráðstefnu Alþýðuflokks-
kvenna sem haldin var haustið
1983“, segir Jónína Leósdóttir sem
er ein forsvarsmanna nefndarinnar.
„Fulltrúanefndin samstendur af
tveimur tugum kvenna — fulltrú-
um úr stjórnmálaflokkum sem sitja
á þingi og konum úr verkalýðsfé-
lögunum. Við höfum staðið fyrir
fundum um land allt og haldið
námskeið fyrir konur um t.d. samn-
ingatækni og réttindamál. Það má
búast við líflegum og skemmtileg-
um fundi“, segir Jónína, „og hefur
mikið verið fundað og spurningum
safnað saman til að punda á for-
menn og forystulið."
Fundurinn er sem sagt opinn öll-
um þeim sem áhuga hafa á launa-
jafnrétti og vilja komast í návígi við
fólkið sem stjórnar Iandi og laun-
um — hvort til að spyrja eða ein-
faldlega hlusta á það sem fram fer.
Fundurinn er í kvöld, þriðjudag, kl.
20.30 í Sóknarsalnum, Skipholti
50A.
Strætó:
Sumaráætlun
Á tímabilinu 1. júní til 28. ágúst
í sumar munu vagnar SVR aka eftir
sérstakri sumaráætlun. Hún er í því
fólgin að á leiðum 02 til 12, að báð-
um meðtöldum, verður ferðatíðni
frá kl. 07—19 20 mín. mánudaga til
föstudaga. Akstur kvöld og helgar
verður óbreyttur nema á leið 02.
Ný leiðabók, sem hefur að geyma
bæði sumar- og vetraráætlun er
Heildarniðurstaða rekstrarreikn-
ings Brunabótafélags íslands árið
1986 (15/10 ’85 — 14/10 ’86) var
tap upp á 19,4 millj. kr., sem er mun
lakari afkoma en áríð áður, en 5
millj. kr. hagnaður var á árínu
1985.
Meginástæða þessarar rekstrar-
niðurstöðu er sú, að í upphafi ársins
voru brunaiðgjöldin lækkuð um
32%, sem kostuðu félagið 30 millj.
kr. Þessi iðgjaldalækkun olli verra
tjónahlutfalli en árið á undan og
námu tjónin 90,2% af iðgjöldum.
Við þetta bættist, að fjármagns-
tekjur urðu lægri en árið áður, en
reksturskostnaður óx.
Bókfærð iðgjöld ársins námu kr.
552.104 og skiptast þannig, að
frumtryggingariðgjöld nema kr.
463.978 eða 89,53% af iðgjöldun-
um, en endurtryggingaiðgjöld kr.
54.247 eða 10,47%. Af frumtrygg-
ingum eru helstu tryggingaflokk-
arnir eignatryggingar með iðgjöld
kr. 181.544 og ökutækjatryggingar
kr. 174.412.539. Iðgjaldagreiðslur
til endurtryggjenda námu kr.
komin út. Leiðabókin er til sölu á
skiptistöðvunum á LÆKJAR-
TORGI, HLEMMI OG GRENS-
ÁSI. Auk þess skal bent á auglýs-
ingar í dagblöðunum 30. maí og
tímaáætlanir á viðkomustöðum
þeirra leiða, sem sumaráætlunin
nær til.
Ástæður þess, að gerð verður til-
raun með sumaráætlun, eru m.a.:
201.070 eða 38,80% af iðgjöldum
ársins.
Heildartjón á árinu námu kr.
467.589, en það £r 90,23% af ið-
gjöldum ársins, en árið 1985 voru
tjónin 79,59% af iðgjöldum þess
árs.
Fjármunatekjur umfram gjöld
námu kr. 109.573. Er það um
10,15% lækkun frá fyrra ári.
Stjórnunar- og skrifstofukostnað-
ur nam kr. 103.072. Er það 38,96%
hækkun milli ára. Haldið var áfram
uppbyggingu á tölvukerfi félagsins.
Gjaldfærsla vegna verðlagsbreyt-
inga nam kr. 8.301 799 og er sú fjár-
hæð færð til gjalda í rekstrarreikn-
ingi.
Fasteignamat húseigna félagsins
nam kr. 124,3 millj., en brunabóta-
mat kr. 195,9 millj. Tryggingasjóð-
ur nam kr. 590.466, en það er
28,35% hækkun frá fyrra ári. Eigin
tryggingasjóður nam kr. 488.303
eða 154% af eigin iðgjöldum, en ár-
ið 1985 var hlutfallið 148%.
Fjöldi starfsmanna félagsins er
57, en umboðsmenn um allt land
eru 178.
1. Að ná betra jafnvægi milli fram-
boðs og eftirspurnar. Yfir sum-
armánuðina eru farþegar um
1/6 færri en aðra mánuði ársins.
Fargjaldatekjur eru í lágmarki á
þessum árstíma, jafnframt því
sem allur tilkostnaður er í há-
marki vegna sumarafleysinga
vagnstjóra. Er þess vænst að
borgarbúar virði þá viðleitni
SVR til aukinnar rekstrarhag-
kvæmni, sem í sumaráætluninni
felst.
2. Á s.l. ári reyndist erfitt að manna
vagnaflotann meðan sumarleyfi
vagnstjóra stóðu yfir og er einn-
ig svo nú. Sumaráætlunin mun
þó létta þennan vanda verulega.
Jafnframt mun þetta létta álag á
verkstæðum og þvottastöð SVR
til muna meðan sumarleyfi
standa yfir.
3. Auðveldara mun reynast að
mæta sérstökum álagstoppum á
annatímum en ella með auknum
sveigjanleika varðandi vagna-
kost og mannskap.
4. Loks má nefna, að stuðst verður
við reynslu af sumaráætluninni í
framtíðinni að vetri til, ef til þess
kemur að meiri háttar truflanir
vegna ófærðar verði á ferðum
strætisvagna eins og átti sér stað
veturna ’82—’83 og '83—84. Yrði
þá gripið til sumaráætlunar
tímabundið við slik skilyrði.
Jafnframt sumaráætluninni taka
eftirfarandi breytingar gildi 1. júní
varðandi einstakar leiðir:
LEIÐ 02. Á kvöldin og um helgar
verður aðaltímajöfnun leiðarinnar í'
Hafnarstræti (stæði leiðar 16).
Vögnunum er flýtt um 16 mín. frá
Öldugranda.
LEIÐIR 08 og 09. Sérstaklega
skal vakin athygli á að á þessum
leiðum verður tíðni 20 mín. í stað 30
mín. áður. Vagnarnir aka um
Lönguhlíð þannig að Stakkahlíð
fellur út.
LEIÐ10. Endastöð þessarar leið-
ar í Selási verður eingöngu við
Þingás.
LEIÐ 15A. Vagninn ekur nú ij
hverri ferð að Hesthömrum á leið
að Lækjartorgi. Brottför vagnsins
er flýtt um 2 mín. frá Lækjartorgi
og Reykjafold.
LEIÐ 15B. Vagninn ekur um
Borgarmýri á leið í Grafarvog ár-
degis, en síðdegis á leið frá Grafar-
vogi. Leið 15B ekur að Hesthömr-
um í hverri ferð á leið að Reykja-.
fold.
LEIÐIR 13 og 100 hafa skipti á
stæðum á Lækjartorgi, þannig að
13 fær stæði á Kalkofnsvegi (á sama
stað og leið 14), en leið 100 við torg-
ið.
Ljóst er að fækkun ferða mun
e.t.v. valda einhverjum farþegum
óþægindum, einkum meðan þeir
eru að átta sig á nýjum tímaáætlun-
um leiða 02—12. Fólk er því vin-
samlega hvatt til að verða sér úti um
nýju leiðabækurnar við fyrstu
hentugleika. Upplýsingar um ferðir
á einstökum leiðum eru veittar í
símum 82533 og 12700.
Frá
Flensborgarskólanum
Auglýstar hafa verið kennarastöður við Flens-
borgarskólann í eftirtöldum kennslugreinum:
Viðskiptagreinum
Stærðfræði og eðlisfræði
Félagsfræði
Dönsku
Þýsku
Vélritun.
Auk þess vantar skólann stundakennara I tónlist
til að hafa stjórn skólakórs með höndum. Allar
nánari upplýsingar veitir skólameistari eða
aöstoðarskólameistari í slma 50092.
Skólameistari.
Brunabót:
Tap upp á 19.4 milljónir
Menntaskólinn á Egilsstöðum
S 1684, 700 Egilsstaðir
Menntaskólinn
á Egilsstöðum
Skólinn býður upp á nám á eftirtöldum brautum:
Tveggja ára brautir:
Heilsugæslubraut
Uppeldisbraut
Viðskiptabraut
Þjálfunarbraut
Fjögurra ára brautir:
Eðlisfræðibraut
Félagsfræðabraut
Hagfræðabraut
Náttúrufræðibraut
Tæknibraut
Fyrsta flokks aðbúnaður á heimavist.
Mötuneyti fyrir alla sem þess óska.
Umsóknarfrestur er til 5. júni.
Skólameistari.
Verkamannabústaðir
í Kópavogi
Stjórn verkamannabústaða i Kópavogi auglýsir
eftir umsóknum um ibúðir sem byggðar verða f 2
fjölbýlishúsum við Hliðarhjalla I Kópavogi. íbúð-
irnar verða afh. 1988 og 1989.
í fjölbýlishúsunum eru 49 íbúðir (14 tveggja, 29
þriggja og 6 fjögurra herbergja).
Umsóknirnar gilda einnig fyrir endursöluibúðir
sem koma til úthlutunar á þessu ári.
Réttur til ibúðakaupa er bundinn við þá sem upp-
fylla eftirfarandi skilyrði:
a) Eiga iögheimili i Kópavogi.
b) Eigaekki (búð fyrireðasamsvarandi eign i öðru
formi.
c) Fara eigi yfir það tekjumark sem hér fer á eftir:
Meðaltekjur(nettótekjurmiðað viðárin 1984,1985
og 1986 mega ekki fara fram úr kr. 555,000,00 að
viðbættum kr. 51,000,00 fyrir hvert barn innan 16
ára aldurs á framfæri.
Heimilteraðvíkjafráþessum reglum (sérstökum
tilvikum.
Þeir sem búa við erfiðasta húsnæðisaðstöðu
hafa forgang að ibúðum i verkamannabústöðum.
Umsóknareyðublöð ásamt upplýsingabæklingi
liggja frammi á bæjarskrifstofu Kópavogs og
skrifstofu VBK i Hamraborg 12, 3ju hæð frá og
með miðvikudeginum 3. júní.
Umsóknum skal skilað fyrir 19. júní n.k. i lokuðu
umslagi merkt stjórn verkamannabústaða í Kópa-
vogi.
Stjórn VBK
Happdrætti
Alþýðuflokksins
Alþýðuflokksfólk!
Dregið verður í happdrættinu 5. júní.
Munið gíróseðlana
Gerið skil strax!