Alþýðublaðið - 12.06.1987, Qupperneq 1
NATÓ-fundur í Reykjavík:
„Styðjum kjarnorkuvopnalaust svæði“
sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra við setningu fundarins í Háskólabíói í gær
Fundur utanríkisráðherra
Atlantshafsbandalagsinsf var sett-
ur í gær í Háskólabíói. Fundurinn
er að öðru leyti haldinn á Hótel á
Hótel Sögu og lýkur honum síðdeg-
is í dag. Forsætisráðherra og utan-
ríkisráðherra ávörpuðu fundinn við
setninguna, og buðu ráðherrana
velkomna ásamt fylgdarliði, en síð-
degis í gær héldu samtök herstöðva-
andstæðinga mótmælafund á
Hagatorgi. Þannig fengu ráðherr-
arnir að sjá skiptar skoðanir íslend-
inga á afstöðunni til NATÓ.
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, sagði við upphaf
fundarins að ísland hefði gengið í
Atlantshafsbandalagið 1949, þrátt
fyrir ríkan vilja til hlutleysis. „Þá
var því lýst yfir“, sagði Steingrímur,
að erlendur her yrði ekki í landinu
á friðartímum, en nauðsynleg að-
staða látin í té ef til hernaðarátaka
kæmi“ Síðan sagði forsætisráð-
herra:
„Okkur þótti, og þykir enn, mest
öryggi í þeirri grundvallaryfirlýs-
ingu bandalagsins, að árás á eitt ríki
skoðist sem árás á öll. Því miður
hefur viðunandi friður hins vegar
ekki verið talinn í heiminum síðan
fyrir Kóreustyrjöldina"
Steingrímur vék ennfremur að
afstöðunni til kjarnorkuvopna og
ítrekaði þá afstöðu að íslendingar
Ieyfi ekki kjarnorkuvopn á íslensku
yfirráðasvæði. Steingrímur minnti í
þessu samhengi á samþykkt Al-
þingis frá því í maí 1985 og sagði að
þá hefði einnig verið samþykkt að
styðja kjarnorkuvopnalaust svæði í
Norður-Evrópu, frá Grænlandi til
Úralfjalla, á landi, en einnig á og í
hafinu.
„í samræmi við þessa afstöðu
styðjum við hina svokölluðu núll-
lausn, þ.e. að fjarlægðar verði bæði
meðal- og skammdrægar eldflaug-
ar frá Evrópu“, sagði Steingrímur
ennfremur.
Matthías Á. Mathíesen, utanrík-
isráðherra, sagði m.a. í sinni ræðu
að tilgangurinn með varnarsam-
starfi ríkjanna í Atlantshafsbanda-
laginu gæti ekki orðið sá að safna
vopnum til að fara með ófriði á
hendur öðrum þjóðum, heldur til
að tryggja frið.
Veröbólgan:
Opinberar
hækkanir
vega þyngst
Verðbólgustefna íslenskra
stjórnvalda sem mörkuð var í
sambandi við Þjóðarsáttina
svokölluðu virðist gersamlega
farin í vaskinn ef tekið er mið af
verðbólguþróuninni allra síð-
ustu nránuði. Verðbólguhraðinn
mælist nú tæp 27% og hefur
ekki verið meiri síðan fyrir daga
febrúarsamninganna í fyrra ef
frá er talinn janúar í ár.
Vísitala framfærslukostnaðar
hækkaði í síðasta mánuði um
heil 2%. Þetta niá að hluta til
skýra með þvi að ríkisstjórnin
situr nú einungis til bráðabirgða
og hefur því ekki umboð til
meiri háttar aðgerða í efnahags-
málum, en þessi skýring verður
þó haldlítil þegar tekið er tillit til
þess að meiri en helmingur af
hækkuninni stafar af vísitölu-
liðurn sem stjórnvöld Itafa bein
áhrif á. Hækkun ÁTVR skapar
þannig 0.5% hækkun vísitölu,
hækkun bensínverðs 0,3% og
hækkun landbúnaðarvara einn-
ig 0,3%.
Það er langt frá því að með
þessu sé séð fyrir endann á vísi-
töluhækkunum. í þessum tölum
er t.d. ekki að finna áhrif frá
gjaldahækkun Pósts og síma
sem kemur til framkvæmda um
næstu mánaðamót.
Verðbólga á árinu er þegar
komin yfir 10% sem er svipað
og gert var ráð fyrir að yrði á ár-
inu öllu, þegar kjarasamningar
voru gerðir í desember. Með
svipuðu áframhaldi er því orðið
ljóst að verðbólgan verður yfir
20% á þessu ári og margir spá
því nú að hún verði mun meiri.
Ríkisstjórn í burðarliðnum?
Þessi þrjú hafa verið fulltrúar Alþýðuflokksins f stjórnarmyndunarviðræðunum við Sjálfstæðisflokk og Fram-
sóknarflokk. Myndin er tekin fyrir utan hús Dagsbrúnar við Lindargötu f Reykjavfk þar sem viðræðurnar hafa farið
fram. Þegar Alþýöublaðið fór I prentun f gær stóð enn yfir fundur formanna flokkanna þriggja, en meiri Ifkur voru
taldartil að samkomulag næöist um áframhaldandi viðræður. Samkvæmt heimildum Alþýðublaðsins um fundinn
í gær var talið að bæði verkaskipting og stóru ágreiningsmálin yrðu rædd f botn, þannig að ef viðræðum verður
haldið áfram þýöi það að stjórnin verði raunverulega mynduö. A-mynd: Róbert.
Burðarþolsmálin:
Stórauknar rannsóknir og bætt menntun
— er meðal þess sem Ragnar Sigbjörnsson telur nauðsynlegt til úrbóta
— Ragnar segist ekki draga gagnrýni sína á skýrsluna til baka en vill
beina umræðunni inn á nýjar brautir — Ráðstefna um burðarþolsmálin
haldin í næstu viku
Ragnar Sigbjörnsson, forstöðu-
maður Verkfræðistofnunar Há-
skólans, sem hvað harðast hefur
gagnrýnt burðarþolsskýrsluna, seg-
ir að sín gagnrýni breyti ekki þeirri
staðreynd að hönnun bygginga og
eftirliti með þeim sé áfátt. Ragnar
segist vilja beina umræðunni inn á
þá braut að farið verði að ræða um
leiðir til úrbóta í þessum efnum.
Ragnar Sigbjörnsson og Hákon
Ólafsson forstöðumaður Rann-
sóknarstofnunar byggingariðnað-
arins, hafa sent frá sér sameiginlega
yfirlýsingu, þar sem segir að könn-
unin hafi ótvírætt leitt í ljós að
hönnun og eftirlit með byggingum
sé áfátt. Ennfremur segjast þeir í yf-
irlýsingunni gera sér vonir um að
könnunin leiði til jákvæðrar þróun-
ar við hönnun bygginga með veru-
legu átaki í staðlamálum á sviði þol-
hönnunar.
Ragnar Sigbjörnsson, sagði í
samtali við Alþýðublaðið í gær að
hann væri alls ekki að draga gagn-
rýni sína á burðarþolsskýrsluna til
baka á nokkurn hátt með þessari
yfirlýsingu. Gagnrýni sín breytti
hins vegar ekki þeirri staðreynd að
hönnun og eftirliti væri áfátt.
Ragnar sagði í þessu sambandi
að brýna nauðsyn bæri til að koma
upp íslenskum þolhönnunarstöðl-
um, sem nú væru ekki til. Þá þyrfti
einnig að auka eftirlit verulega.
Ragnar sagðist ennfremur telja að
bæta þurfi menntun verkfræðinga,
sérstaklega með tilliti til jarð-
skjálftahönpunar og endurskoða
verkaskiptingu við hönnun. Þá
þyrfti og að stórauka rannsóknir á
sviði byggingamála og bygginga-
tækni og sagði Ragnar í því sam-
bandi að slíkar rannsóknir væru
tvímælalaust mjög hagkvæmar út
frá þjóðhagslegu sjónarmiði.
Á fimmtudag í næstu viku verður
haldin ráðstefna á vegum félags-
málaráðuneytisins um burðarþols-
málin. Til þeirrar ráðstefnu verður
boðið öllum þeim sem þessum mál-
um tengjast á einhvern hátt, bygg-
ingafulltrúum, verkfræðingum,
arkitektum o.fl.
Húnbogi Þorsteinsson, skrif-
stofustjóri í félagsmálaráðuneyt-
inu, sagði við Alþýðublaðið í gær
að vænta mætti einhverra við-
bragða af hálfu ráðuneytisins í kjöl-
far þeirrar ráðstefnu.
Eitt af þeim atriðum sem burðar-
þolsskýrslan hefur sætt mestu
ámæli fyrir og m.a. kom fram i
gagnrýni Ragnars Sigbjörnssonar,
er það að ekki skuli vera unnt að
draga neinar ályktanir um burðar-
þol húsa almennt af niðurstöðum
rannsóknarinnar. Ragnar var í gær
spurður hvort hann teldi ástæðu til
þess í kjölfar skýrslunnar að láta
fara fram nýja rannsókn sem yrði
marktæk í þessu sambandi.
Ragnar kvaðst út af fyrir sig telja
að peningunum væri betur varið
með því að leggja þá I að taka á
þeim vanda sem nú þegar væri
margbúið að benda á. Hann sagði
hins vegar að sér fyndist koma til
álita að gera einhvers konar áhættu-
greiningu í þessu efni, sérstaklega
með tilliti til þeirrar spár jarðfræð-
inga að innan 20—25 ára kynnu að
ríða yfir mjög sterkir Suðurlands-
skjálftar.