Alþýðublaðið - 12.06.1987, Side 3
Föstudagur 12. júní1987
:3
Stúdentar úr dagskóla F.B.
fj ■ lí^l' 1 lJHr ’
'"jf 11 Wfw¥ I jrr* j,|' r S m J
I 4*4»i t ■ Jm
V .'M *
Jgil \ m
Stúdentar úr kvöldskóla F.B. (Öldungadeild).
Nýir stúdeirtar úr
Fjölbraut í Breiðholti
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
var slitið 22. maí s.l. í Bústaða-
kirkju. Athöfnin hófst með því að
Guðni Þ. Guðmundsson, organisti,
lék vorlög og síðan söng Ingveldur
Hjaltested. í yfirlitsræðu skóla-
meistara, Guðmundar Sveinssonar,
kom fram að 1258 nemendur hafi
stundað nám í Dagskóla F.B. og 987
þeirra lokið prófum, 226 nemendur
luku lokaprófi af einhverri náms-
braut Fjölbrautaskólans í Breið-
holti og er þá bæði um nemendur í
dagskólanum og öldungadeildinni
að ræða.
Þeir skiptust sem hér segir:
Á eins árs námsbrautum luku 17
nemar prófi, 7 af grunnnámi mat-
vælasviðs og 10 af grunni tækni-
sviðs.
Á tveggja ára námsbrautum luku
48 prófi, 38 almennu verslunar-
prófi, 6 grunnnámi listasviðs og 4
matartæknar.
Á þriggja ára brautum stóðust
lokapróf 50 nemendur, þar af 3
sjúkraliðar, 4 matarfræðingar og 21
nemandi lauk sveinsprófi í bókleg-
um greinum (9 húsasmiðir, 2 pípu-
lagningamenn, 9 rafvirkjar og 1 vél-
virki). Loks luku 22 nemendur sér-
hæfðu verslunarprófi.
111 nemendur luku fjögurra ára
brautum, stúdentsprófi og skiptust
þeir þannig:
Af almennu bóknámssviði 54
nemendur, heilbrigðissviði 11 nem-
endur, listasviði 3 nemendur,
tæknisviði 6 nemendur, uppeldis-
sviði 9 nemendur og viðskiptasviði
28 nemendur.
Bestum árangri á stúdentsprófi
náði Ari Jónasson, eðlisfræðibraut
með 136 einingum, 383 stigum og
lauk hann náminu á þremur árum.
Guðmundur Steinar Guðmunds-
son náði næstbestum árangri á
stúdentsprófi og fengu þeir báðir
fjölda verðlauna fyrir námsárangur
sinn.
Skólameistari, Guómundur Sveinsson afhendir dúx skólans, Ara Jónassyni, verðlaun.
Ökum jafnan á hægri rein
á akreinaskiptum
vegum.
IUMFERÐAR
>RÁÐ
JJI Kópavogur — íbúöir fyrir
aldraöa í Vogatungu
Samkvæmt samþykkt byggingarnefndar íbúða fyrir aldr-
aða i Kópavogi, auglýsast byggingarlóðir við neðri
hlutaVogatungu meðeftirfarandi byggingarskilmálum:
1. Byggja skal sérhannaðar ibúðir fyrir aldraða sam-
kvæmt skipulagi og teikningum, sem fyrir liggja.
2. Við sölu á íbúðum skulu Kópavogsbúar, sem náð
hafa 60 ára aldri, hafa forgang.
3. Við eigendaskipti skal Kópavogskaupstaður jafnan
eiga forkaupsrétt að íbúðunum.
4. Gatnagerðargjöld, útlagður kostnaður og önnur
gjöld til bæjarsjóðs, skulu greidd samkvæmt
ákvæðum bæjarráðs.
Teikningarliggjaframmi átæknideild Kópavogs, Fann-
borg 2 og eru þar veittar nánari upplýsingar.
Þau byggingafyrirtæki sem áhuga hafa á þessu verk-
efni, leggi inn umsóknir í síöasta lagi 22. júní n.k.
Bæjarverkfræðingur.
Frétt fyrir krata:
Sumarferðin '87
Laugardaginn 27. júní
Laugardaginn 27. júní mun Alþýöuflokkurinn í Reykjavik og
Reykjanesi efna til sumarferöar sem gengur undir heitinu
SUMARFERÐIN ’87
Ætlunin er að að heimsækja krata á Vesturlandi, skoða náttúr-
una og skemmta sér saman.
Ekiö veröur um sveitir Borgarfjaröar og Mýrar undir leiðsögn
heimamanna.
Ferðin verður auglýst nánar, en verið er aö vinna aö líflegri
dagskrá sem verður birt síðar í Alþýöublaðinu. Þeir sem eru
orðnir óþreyjufullir og vilja fá allar uplýsingar strax, er bent á
að hringja í skrifstofu Alþýðuflokksins í Foykjavík í síma29244.
Öllum krötum er ráöiagt að setja rauóan hring um dagsetn-
inguna 27. júní.
Happdrætti
Alþýðuflokksins
Dregið var 5. júní hjá Borgarfógeta.
Ennþá vantar nokkuð á að fólk hafi gert skil fyrir
sölu miða.
Vinningsnúmerin voru því innsigluð og verða birt
eftir 2 vikur.
Fóstrur —
fóstrur
Fóstrur vantar til starfa við leikskólann í Borgar-
nesi frá 10. ágúst n.k.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf skulu hafa borist skrifstofu Borgarnes-
hrepps fyrir 3. júlí n.k.
Upplýsingar í leikskólanum i síma 93-7425 og á
skrifstofu Borgarneshrepps í síma 93-7224.
Sveitarstjórinn í Borgarnesi
Laus staða
Tímabundin lektorsstaða til tveggja ára I upplýs-
inga- og merkjafræði við rafmagnsverkfræðiskor
Háskóla íslands er laus til umsóknar.
Kennslusvið lektorsins er á sviði hliðrænnar og
stafrænnar rásafræði (síur), mótunar-, merkja- og
upplýsingafræði. Rannsóknasvið skal vera á of-
angreindum sviðum og aðstaða veitt í Upplýs-
inga- og merkjafræðistofu Verkfræðistofnunar
Háskóla íslands.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísinda-
störf umsækjenda, rannsóknir og ritsmíðar, svo
og námsferil og störf, skulu sendar menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir
15. júlí n.k.
Æskilegt er að lektorinn geti hafið störf í byrjun
haustmisseris 1987.
Menntamálaráðuneytið.
4. júní 1987.