Alþýðublaðið - 12.06.1987, Page 4
Skœruliðasamtökin dularfullu íPerú
Eftir margra mánaöa hlé hafa skæruliðasamtökin Sendero Luminose (Lýsandi stígur)
í Perú hafiö árásir á nýjan leik — í þetta sinn í höfuðborginni Líma, sem kemur sér
afar illa fyrir stjórn Alans Garcia forseta.
Fyrir nokkrum vikuin lamaðist
Iáma, höfuðborg Perú, algerlega
vegna sprengjuherferðar í horginni,
sem kom öllum að óvörum.
Sprengja sprakk í bankaafgreiðslu í
miðborginni og varð (veimur
mönnum að bana. Á sama tíma
hófst vélbyssuskothríð umhverfis
forsetahöllina og bíll sprakk i loft
upp þar nærri. Öryggislögreglan
rannsakaði svæðið vandlega, en
fann ekkert.
Þriðja sprengingin varð við verk-
smiðju sem framleiðir einkennis-
búninga fyrir herinn. Þar urðu
óverulegar skemmdir. Á meðan á
þessu stóð varð rafmagnslaust í allri
borginni, en ekki sannaðist hvort
þeir sem stóðu að sprengjutilræð-
unum áttu sök á því, eða hvort um
venjulega rafmagnsbilun var. að
ræða.
Lýsandi stígur hefur greinilega
náð sér aftur á strik, eftir að starf-
semin var brotin á bak aftur fyrir
rúmu ári. Það sést á fjölda tilræða
að undanförnu, morðum og morð-
tilraunum á háttsettum embættis-
mönnum stjórnarinnar, þar á með-
al dómsmálaráðherranum Cesar
Elejalde, sem slapp með naumind-
um frá tilræðismönnunum.
Þá hefur einnig lítill marxískur,
þjóðernissinnaður skæruliðahópur
Tupac Amaru, látið til sín taka með
sprengjuárásum á 30 banka í borg-
inni.
Á þremur vikum í janúar myrkv-
aði Lýsandi stígur borgina Líma
tvisvar, sprengdi verksmiðjuhús
eða kveikti í þeim og drap tvo lög-
reglumenn sem stóðu á verði við
indverska sendiráðið, á sama tíma
og Garcia forseti var gestur Rajivs
Gandhi í Nýju Delfí.
Gagnaðgerðir Garcia
Garcia svaraði árásunum með
miklum hreinsunum í fjórum há-
skólum. í skjóli útgöngubanns um
nætur, sem hefur varað í eitt ár,
• gengu 4000 lögreglumenn berserks-
gang og handtóku 793 menn, þar á
meðal 30 sem voru eftirlýstir sem
hryðjuverkamenn. Lögreglan sagð-
ist hafa fundið vopn, sprengiefni og
áróðuisrit sem tilheyrðu skærulið-
unum.
Skoðanakannanir sýndu að al-
menningur var hlynntur þessum að-
gerðum, þótt þeim væri mótmælt
harðlega af vinstri-stjórnarand-
stöðunni í þinginu. Garcia hefur því
neytt færis og fengið samþykkt Iög
sem heimila sérstaka alræðisdóm-
stóla sem fara með málefni hryðju-
verkamanna.
Þessir síðustu atburðir hafa beint
sviðsljósinu að síauknu pólitísku
mikilvægi hersins. Apra, flokkur
stjórnarinnar leggst gegn því' að
Þúsundum saman hafa menn horfið á beim svæóum sem bardaqar við skæruliða eru sem harðastir. Flestir þeirra eru fátækir bændur. Sumir hafa
fundist i fjöldagröfum eins og þessi mynd frá smábænum Huanta sýnir. Flestir telja að þar hafi herinn verið að verki.
hermenn sem hafa t.d. drepið
óbreytta borgara verði dregnir fyrir
almennan dómstól, en ekki her-
dómstól. Og herinn neitar blaða-
mönnum og fréttamönnum um
ferðaleyfi til þeirra svæða þar sem
skæruliðar halda sig helst og þykir
þetta ekki spá góðu fyrir hinn al-
menna borgara.
Ráða stórum svœðum
Lýsandi stígur hefur með stuttum
snörpum skyndiárásum náð á sitt
vald meira en 2000 km löngu svæði
í Andesfjöllum — frá Cajamarca í
norðri til Puno í suðri — ef trúa
skal bæklingi sem skæruliðar hafa
nýlega gefið út og dreift um landið.
Þetta hefur ekki verið borið til
baka, en skjöl sem leyniþjónustan
hefur komist yfir frá leynilegum
fundum samtakanna, sýna að það
hlé sem verið hefur á aðgerðum
þeirra nú um skeið, er að hluta til
vegna innbyrðis átaka meðal
skæruliðanna sjálfra.
Fyrir einu ári ákvað stjórn sam-
takanna að segja skilið við deildina
í Líma, sem var sökuð um
„kúbanskar tilhneigingar" og að
„taka málin í sínar eigin hendur“.
Sagt var að þar væri lögð of mikil
áhersla á vopnuð átök sjálfra þeirra
vegna, þótt pólitískur ávinningur
væri ekki sýnilegur. Baráttan gengi
of mikið út á hetjuskap einstakra
liðsmanna sem vildu slá sig til ridd-
ara. Ákveðið var að endurskipu-
leggja hreyfinguna frá grunni í
Líma og leggja meiri áherslu á gras-
rótina, á fjöldahreyfingu fólksins í
úthverfum borgarinnar og í háskól-
unum.
Hreinsanirnar hófust skömmu
fyrir fangauppreisnina í Lima í
fyrra, sem endaði með þvi að 270
fangar voru líflátnir eftir tilskipun
frá Garcia forseta. Þeir atburðir
leiddu og til þess að skæruliðasam-
tökin í Lima lömuðust að sinni.
Blóði drifin saga
Nú þegar skæruhernaðurinn er
hafinn á ný, er það ótvírætt merki
þess að endurskipulagningunni sé
lokið. Sjö ár eru síðan Lýsandi stíg-
ur hóf byltingarfánann á loft og
skæruliðasamtökin hafa nú sellur í
19 af 25 héruðum Perú, eftir því
sem leyniþjónusta landsins segir.
Stjórn samtakanna, með fyrrum
heimspekiprófessorinn Abimael
Guzman í broddi fylkingar, fer
huldu höfði þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir til að handsama hana.
Eftir að hópur vopnaðra karla og
kvenna réðist á kosningamiðstöð í
sveitaþorpinu Chuschi í suðurhluta
Andesfjalla, hafa meira en 10.000
manns látið lífið í átökum. Að sögn
mannréttindasamtaka hafa um
2000 í viðbót horfið, eftir að hafa
verið handteknir af öryggislög-
reglu.
Það er í Ayacucho-héraði sem
Lýsandi stígur á sterkust ítök og þar
er baráttan um sálirnar hörðust.
Forsetinn hefur gert umfangsmikla
þróunaráætlun og deilt út miklum
fjármunum til styrktar smáhópum
Indíána sem hafast við þar. Hjálpin
þykir vera fremur ómarkviss, þar eð
henni er ekki fylgt eftir með tækni-
aðstoð til að nýta þessa fjármuni
sem best.
En bragðið hefur heppnast póli-
tískt, því að í kosningum á síðasta
ári hafði stjórnarflokkurinn sigur á
þeim svæðum sem aðstoðina hlutu,
þrátt fyrir að þar hafi verið höfuð-
vígi Lýsandi stígs lengst af.
Hagvöxtur
Stjórn Garcia forseta náði hag-
vexti upp á 8,5% á síðasta ári. Það
er mesti efnahagsávinningur í tíu
ár. Erlendar skuldir landsins hafa
minnkað, en það hafa gjaldeyris-
sjóðir landsins einnig og verðbólga
er aftur á uppleið eftir að hafa verið
lítil allt árið 1986.
Stjórnin reynir einnig að stöðva
launahækkanir, sem leiddu til
þenslu og eftirspurnar sem inn-
flutningsgeta landsins var ekki fær
um að fullnægja. Ástandið væri
raunverulega miklu verra, ef ekki
væri vegna ólöglegrar kókaínversl-
unar, sem hefur gert landsbankan-
um kleift að kaupa upp 60 milljónir
dollara á peningamarkaðnum í
Líma. Margir telja að Garcia forseti
hafi teflt djarft í efnahagsmálum
og þeir eru margir sem óttast að það
sé tapað tafl.
Alan Garica forseti Perú