Alþýðublaðið - 04.09.1987, Page 1

Alþýðublaðið - 04.09.1987, Page 1
Albert um loforð Þorsteins: STÓÐUST EKKITIL KVÖLDS „Það er greinilega ekki tunga sáttfýsi sem hrærist í andliti þessa drengs,“ segir Albert Guðmunds- son í viðtali við Alþýðublaðið. Hann á að sjálfsögðu við Þorstein Pálsson forsætisráðherra. í viðtali við tímaritið Mannlíf hefur Þor- steinn Pálsson m.a. ásakað Albert Guðmundsson fyrir að hafa gengið á bak orða sinna. Albert neitar því harðlega en segir á móti að loforð Þorsteins i samtölum við sig hafi ekki staðist frá morgni til kvölds. Albert Guðmundsson svarar Þorsteini Pálssyni fullum hálsi, eft- ir ásakanir Þorsteins sem birtust í Mannlífsviðtalinu. Albert segir m.a. að það sé greinilega ekki tunga sáttfýsi sem hrærist í „andliti þessa drengs, “ eins og hann kemst að orði og bætir því við að loforð Þorsteins gagnvart sér hafi ekki fengið staðist frá morgni til kvölds. Albert segir Þorstein ennfremur gera lítið úr þingflokki sjálfstæðis- manna, þegar hann haldi því fram að Albert hafi stillt mönnum upp við vegg. Sameining Borgaraflokksins og Sjálfstæðisflokksins virðist alls ekki á dagskrá á næstunni ef marka má orð Alberts. Hann harðneitar því að Þorsteinn hafi rætt við sig um sameiningu flokkanna og segist auk heldur ekki geta fellt sig við ný- frjálshyggjuna í Sjálfstæðisflokkn- Nú byrjum við I skólanum. Hjá sumum er frlinu lokið og skólinn byrjaöur eina ferðina enn. Aðrir eru nú að hefja skólagöngu slna, eins og þessi unga stúlka sem sýndi okkur nýja pennaveskið sitt I gær. Áætla má að þau börn sem nú fara I skóla i fyrsta sinn séu nokkuð á fimmta þúsund. A-mynd: Róbert. Jóhann teflir fjöltefli í Lækjar- götu Jóhann Hjartarson verðandi heimsmeistari (?) í skák, teflir í dag fjöltefli við nokkrar af skærustu ungstjörnum okkar á skákhimninum. Þessi skákvið- burður fer fram við útitaflið í Lækjargötu í Reykjavík og er einn þátturinn í mikilli útihátíð sem útvarpsstöðin Stjarnan og Tommaborgarar ganga fyrir í sameiningu. Meðal andstæðinga Jóhanns í skákinni í dag má nefna Héðin Steingrímsson, heimsmeistara barna, Hannes Hlífar Stefáns- son, heimsmeistara sveina, Davíð Ólafsson og Þröst Þór- hallsson sem báðir eru á leiðinni að verða alþjóðlegir meistarar og Guðríði Lilju Grétarsdóttur sem er íslandsmeistari kvenna. Ennfremur er skáksveit Selja- skóla í þessum hópi, en sú sveit er Norðurlandameistari í skóla- skák. Davíð Oddsson, borgarstjóri, hyggst leggja Jóhanni lið í skák- inni með því að leika fyrsta leiknum í fjölteflinu, Ýmislegt fleira verður um að vera á Lækjartorgi í dag. M.a. hyggst Jón Páll gera sér lítið fyr- ir og lyfta einum Suzuki bíl. Há- tíðin hefst kl. 13,30 og stendur til 19.00 í kvöld. Sjálfstædisflokkurinn: Konur hyggjast steypa Þorvaldi Garðari Landssamband Sjálfstæðiskvenna samþykkti ályktun. Vestfjarðakonur sátu hjá. Eftir veröleikum en ekki kyni segir Þorvaldur Garðar. Stendur næsti slagur í Sjálfstæð- isflokknum um embætti forseta sameinaðs þings? Sú gæti orðið raunin eftir samhljóða ályktun Landssambands sjálfstæðiskvenna á Akureyri um helgina. Þar var þess krafist að þetta embætti félli konu i skaut. Þorvaldur Garðar Kristjáns- son mun þó ekki hafa í hyggju að láta stólinn lausan. Embætti forseta sameinaðs þings kemur áfram í hlut Sjálfstæðis- flokksins samkvæmt samkomulagi stjórnarflokkanna frá því í sumar. Sjálfstæðismenn lögðu mikið kapp á að fá embættið í sinn hlut og mun sú áhersla einkum hafa verið til komin vegna Þorvaldar Garðars, en einnig má nefna að Matthías Bjarnason lét af ráðherraembætti við stjórnarskiptin og ef forseta- embættið hefði einnig verið tekið frá Þorvaldi Garðari, hefði vest- firskum sjálfstæðismönnum senni- lega þótt meira en nóg um. Þórunn Gestsdóttir, formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna lét hafa eftir sér í viðtali við Morg- unblaðið að hún teldi sig hafa góða von um að kona settist í stól forseta Sameinaðs þings þegar þing kemur saman í haust. Þess ber þó að geta að sjálfstæð- iskonur frá Vestfjörðum, kjördæmi Þorvaldar Garðars, sátu hjá þegar ályktunin var samþykkt. Auk þess eru almennt taldar fremur litlar lík- ur til þess að þingmenn flokksins verði almennt fúsir til að víkja Þor- valdi Garðari til hliðar og bæta konum innan flokksins þannig það áfall sem þær urðu fyrir þegar Ragnhildur Helgadóttir var knúin til að láta af ráðherraembætti. Salóme Þorkelsdóttir, alþingis- maður og forseti efri deildar, sagði í stuttu samtali við Alþýðublaðið í gær að þessi samþykkt fundarins, væri að sínu leyti rökrétt og eðlileg. Fram að þessu hefðu einungis sjálf- stæðiskonur gegnt embættum for- seta og ráðherra og það að engin kona gegndi nú ráðherraembætti fyrir flokkinn væri spor afturábak. Salóme sagði ennfremur að það væri móðgun við Landssamband Sjálfstæðiskvenna ef konur í þing- liðinu skoruðust undan að taka þetta embætti að sér. Salóme kvað það hins vegar fyrst og fremst for- ystunnar í þingliði sjálfstæðis- flokksins að taka ákvörðun í þessu máli, þótt hún á hinn bóginn vildi ekki útiloka að til atkvæðagreiðslu gæti komið. Salómé kvaðst vilja leggja áherslu á að hún liti á samþykkt fundarins sem rökréttan og eðlileg- an lið í jafnréttisbaráttu kvenna innan stjórnmálaflokks en „þetta á ekkert skylt við persónur“ sagði hún. Á Þorvaldi Garðari Kristjánssyni var ekki að heyra að hann hygðist gefa forsetastólinn upp á bátinn. „Menn eiga að vera forsetar af eigin verðleikum,“ sagði hann „en ekki af því að þeir eru karl eða kona.“ Þorvaldur Garðar sagðist annars hafa afar lítið um þetta mál að segja, en kvaðst þó ekki telja þessu beint gegn sér persónulega. Hann kvaðst ekki heldur eiga von á því að þetta yrði ákveðið neins staðar utan þingflokksins.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.