Alþýðublaðið - 04.09.1987, Qupperneq 3
Föstudagur 4. september 1987
3
Frá sýningunni í Laugardalshöll
Stórsýningin Veröldin ’87 sem hófst s.l. fimmtudag hefur gengið mjög vel.
Á mánudagskvöld höföu yfir 24.000 manns komiö og skoöað sýninguna.
Draumafbúö Hólmfrlðar Karlsdóttur hefur vakið athygli og hafa leysisýn-
ingarnar sem haldnar eru oft á dag troöfyllt áhorfendapalla hverju sinni og
þurft að bæta 2-5 aukasýningum við daglega. Þá er tvöföld biðröð við SR-2
hermirinn allan sýningartimann og komast því miður færri að en vilja.
Sýningin er opin daglega frá 16:00 til 23:00 en sýningunni lýkur á sunnu-
dag (6. sept.) og verður opið um helgina frá kl. 13:00 til 23:00.
Landssamband Hjálparsveita skáta:
Samæfing á Möðrudalsöræfum
Öllum björgunarsveitum á landinu boöin þátttaka.
Um næstu helgi munu um 250
björgunarsveitamenn víðast hvar
að af landinu taka þátt í samæfingu
LHS, sem haldin verður á Möðru-
dalsöræfum. Samæfingar sem þessi
Ný vinnumiðlun
Sett hefur verið á stofn í Reykja-
vík vinnumiðlun undir nafninu ís-
lensk atvinnumiðlun hf. — ICE-
JOB. Eins og nafnið bendir til er
starfsemi fyrirtækisins fólgin í
vinnumiðlun og alhliða ráðninga-
þjónustu við stofnanir og fyrirtæki
sem eru að leita eftir erlendu starfs-
fólki. í byrjun munum við einbeita
okkur að norrænum vinnumark-
aði, en markmið okkar er að í ná-
inni framtíð snúa okkur að vinnu-
markaði utan Norðurlandanna.
Forstöðumaður íslenskrar at-
vinnumiðlunar hf. er Eyjólfur Pét-
ur Hafstein, sem hefur að baki
starfsreynslu á sviði vinnumiðlunar
milli íslands og hinna Norðurland-
anna. Eyjólfur Pétur var forstöðu-
maður NORDJOBB vinnumiðlun-
arinnar á íslandi, en NORDJOBB
sér um miðlun sumarstarfa til nor-
rænna ungmenna.
eru reglulegir viöburðir og skiptast
aðildarsveitir Landsambands
hjálparsveita skáta (LHS) á um að
halda þær. Að þessu sinni er sam-
æfingin í höndum Hjálparsveita
skáta í Reykjadal, Aðaldal, Fljóts-
dalshéraði og á Fjöllum.
Öllum björgunarsveitum á land-
inu er boðið til æfingarinnar og
skiptir þá engu til hvaða björgunar-
samtaka þær heyra. Æfingin verður
miðuð við landbjörgun og svipar til
fyrri æfinga. Kappkostað verður að
hafa verkefnin fjölþætt þannig að
öll björgunarþjálfun fái notið sín.
Eins og á fyrri æfingum verður lögð
áhersla á að hafa sem flest verkefni
þannig að æfingin reyni á alla þátt-
takendur.
Björgunarsveitir sem ætla að
taka þátt í æfingunni verða að vera
mættar í Möðrudal fyrir kl. 5, laug-
ardagsmörguninn 5. september.
Áætlað er að ljúka æfingunni um
miðjan dag á sunnudeginum. Sam-
æfingin verður keyrð eins og útkall
þannig að þátttakendur verða að
vera sjálfum sér nógir. Undantekn-
ing frá því er að á laugardagskvöld-
inu býður LHS þátttakendum upp á
heitan kvöldverð.
SVÆÐISSTJÓRN MALEFNA FATLAÐRA
REYKJAVÍK
Lausar stöður
Á vegum Svæðisstjórnar málefna fatlaðra í
Reykjavík taka bráðlega til starfa vistheimili og
sambýli fyrir fatlaða.
Okkur vantar því fólk til starfa, einkum þroska-
þjálfa eða fólk með sambærilega menntun.
Æskilegt erað umsækjendur hafi reynslu af með-
ferðarstarfi með fötluðum og þekki fjölþætt
markmið þess.
Laun skv. kjörum opinberra starfsmanna.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist fyrir 15. sept. n.k. til Svæðis-
stjórnar. Nánari upplýsingar í sima 62 13 88.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra
Hátúni 10 — 105 Reykjavík.
Tollmeistarinn
Þann 1. september 1987 taka í
gildi ný tollalög sem krefjast strang-
ara eftirlits með innflutningi til
landsins. Breytingar á reglum um
tollaafgreiðslu verða margvíslegar
fram að áramótum, þegar áætlað er
að skipan tollamála verði komið í
endanlegt horf. Á þessurn tíma
breytinga og umbóta munu inn-
flytjendur standa frammi fyrir
miklum vanda. Sem dæmi um ný
atriði sem innflytjandi verður að
svara samkvæmt nýja kerfinu er:
Yfirfærslunúmer banka, Vy lykill,
sérstakur skýrslulykill, tegund
gjalda, upprunaland o.m.fl.
Hannað hefur verið tölvuforrit
fyrir P.C. tölvur sem nefnist
„TOLLMEISTARINN”. Þetta for-
rit er sérstaklega gert til að auðvelda
og bæta gerð aðflutningsskýrslu,
þannig að forritið spyr spurninga
lið fyrir lið, og kemur með athuga-
semdir sé ekki rétt svarað. Forritið
minnir einnig á þau fylgiskjöl sem
krafist er fyrir hinar ýmsu vöruteg-
undir. Notkun forritsins mun bæta
frágang aðflutningsskýrslu og
draga þar með úr töfum á af-
greiðslu tollskjala hjá tollyfirvöld-
um. Forritið er sagt einfalt í not-
kun, jafnvel fyrir þá sem eru að
stíga sín fyrstu spor inn í tölvuöld
með tölvuvæðingu fyrirtækisins.
Forritið er sniðið eftir þörfum inn-
flytjenda auk þess sem það stenst
kröfur tollembættisins um frágang.
Allar breytingar sem hafa verið
gerðar á núverandi kerfi eru í þessu
forriti, en öll kerfi eru þó þannig að
þau þarfnast töluverðrar eftirsölu-
þjónustu sem verður að sjálfsögðu
veitt.
Auglýsingaverð
Frá 1. sept. er auglýsinga-
verðið kr. 400, pr. dálksenti-
metra.
Hjúkrunarfræðingar
Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga í heilsu-
gæslustöðvum eru lausar til umsóknar nú þegar:
1. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslu-
stöðina í Ólafsvík.
2. Staða hjúkrunarforstjóra og staða hjúkrunar-
fræðings við Heilsugæslustöðina í Fossvogi,
Reykjavík.
3. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslu-
stöðina á Þingeyri.
4. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslu-
stöðina á Selfossi.
5. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslu-
stöðina í Reykjahlíð, Mývatnssveit.
6. Hálf staða hjúkrunarfræðings við Heilsu-
gæslustöðina á ísafirði.
7. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslu-
stöð Suðurnesja í Keflavík.
8. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslu-
stöð Hlíðasvæðis í Reykjavík.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf við hjúkrun sendist heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu, Laugavegi 116, Reykjavík.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
1. september 1987.
Frá Grunnskólanum Mosfellsbæ
Skólasetning
Gagnfræðaskólinn 7., 8. og 9. bekkur mánudag-
inn 7. september kl. 9.00.
Varmárskóli 4., 5. og 6. bekkur mánudaginn 7. sept-
ember kl. 9.00 og 1., 2. og 3. bekkur kl. 10.00.
Skólastjórar.
Fundur um
samgöngumál
Samgönguráðherra, Matthías Á. Mathiesen, efnir til funda með sveitarstjórnar-
mönnum um samgöngumál áþeim stöðum sem nánargreinirí auglýsingu þess-
ari.
Á fundunum flytur ráðherra framsöguerindi um samgöngur í viðkomandi lands-
hluta, en sfðan verða almennar umræður.
í för með ráðherra verða fulltrúar stofnana er heyra undir samgönguráðuneytið
og munu þeir taka þátt í umræðunum, svara fyrirspurnum og veita upplýsingar
eftir þörfum.
Fundirnir, þ.ám. fundarstaðurog tími, verða nánar kynntirsíðar í samráði við for-
ystumenn landshlutasamtaka sveitarfélaga.
Vestfjarðakjördæmi:
í Reykjanesi við ísafjarðardjúp í tengslum við ársfund Fjórðungssambands
Vestfirðinga, föstudaginn 4. sept., kl. 13.00.
Suðurlandskjördæmi:
Á Selfossi, fimmtudaginn 24. sept., og í Vestmannaeyjum, föstudaginn 25. sept.
Norðurlandskjördæmi eystra:
Á Akureyri, þriðjudaginn 29. sept.
Norðurlandskjördæmi vestra:
Á Sauðárkróki, miðvikudaginn 30. sept.
Austurlandskjördæmi:
Á Egilsstöðum, þriðjudaginn 6. okt., og á Hornafirði, miðvikudaginn 7. okt.
Vesturlandskjördæmi:
í Stykkishólmi, föstudaginn 9. okt.
Reykjaneskjördæmi:
í Keflavík, þriðjudaginn 13. okt., og i Kópavogi, fimmtudaginn 15. okt.
Reykjavík:
Fundur með borgaryfirvöldum, föstudaginn 16. okt.
Samgönguráðuneytið.