Alþýðublaðið - 01.10.1987, Page 3

Alþýðublaðið - 01.10.1987, Page 3
Fimmtudagur 1. október 1987 3 Frá skrifstofu Alþýðuflokksins Breytturopnunartími: Fráog meö 1. októberverö- ur skrifstofan aö Hverfisgötu 8-10 opin alla virka daga frá kl. 10-12 og 14-17. Reikningar verða afgreiddir á þriðjudögum frá kl. 10-12. Framkvæmdastjóri Alþýðuflokksins. Kvenfélag Alþýðuflokksins í Hafnarfirði Fundur veröur haldinn í Alþýðuhúsinu Strand- götu 32 fimmtudaginn 1. október kl. 20.30. Gestur fundarins verður Guðmundur Einarsson framkvæmdatjóri Alþýðuflokksins. Mætið vel og stundvíslega. Stjórnin. Rokk gegn kjarn- orku í Dounreay Fimmtudaginn 1. okt. kl. 16.00 verða tónléikará Lækjartorgi undir yfirskril'tinni Rokk gegn kjarnorku í Dounreay. Leika þar hljómsveit- -nar Rauöir fletir. Blátt áfram og Sogblettir og er það liður í aðgerð- um Samtaka græningja á Islandi gegn fyrirhugaðri stækkun kjarn- orkuvers í Dounreay, nyrst í Skot- landi. í Dounreay er núna starfrækt lít- ið kjarnorkuver sem, þrátt fyrir smæð sína, dælir 1,5 milljón litra af geislavirku vatni í sjóinn á hverri klukkustund. Nú eru uppi áform um að 5 ríki í V-Evrópu taki sig saman um að byggja þar 10—15 sinnum stærra kjarnorkuver og mun mengunin frá því aukast i sam- ræmi við það. Fyrir utan Dounreay eru straumar sem svo bera þetta geislavirka vatn norður í höf og m.a. upp að ströndum íslands. Tónleikunum mun siðan verða fylgt eftir með undirskriftasöfnun þar sem skorað er á ríkisstjórn ís- Íands að mótmæla við ríkisstjórn Bretlands þessum áformum í Dounreay og mun hún standa út októbermánuð. Þeir scm áhuga hafa á þvi að leggja þessum aðgerðum lið er bent á að mæta á skrifstofu Samtaka græningja að Skólavörðustíg 42 Tilkynning til sauðfjárframleiðenda Að gefnu tilefni vekur landbúnaðarráðuneytið athygli sauðfjárframleiðenda á eftirfarandi ákvæðum reglugerðar nr. 433 17. september 1987: 1. Framleiðandi á lögbýli sem hefur fullvirðisrétt geturtekið allt að60 kg af ófrystu kjöti auk sláturs út úr afurðastöð af eigin framleiðslu fyrir hvern heimilismann, sem hafði þar lögheimili 1. desem- ber 1986 skv. þjóðskrá. 2. Framleiðandi utan lögbýlis sem hefurfullvirðis- rétt getur tekið allt að 60 kg af ófrystu kjöti auk sláturs af eigin framleiðslu út úr afurðastöð. 3. Taki fr.amleiðandi út meira magn úr afurðastöð en um getur í 1. og 2. tölulið skerðist fullvirðisrétt- ur hans um tilsvarandi magn. 4. Heimild til þess ad taka út kjöt án þess aö þaö skeröi fullvirðisrétt viðkomandi, fellur niöur slátri framleiðandi utan afurðastöðvar. 5. Brot áákvæðum reglugerðarnr. 433/1987 varðar refsingu skv. 59. gr. laga nr. 46 27. júní 1985. Landbúnaðarráðuneytið 29. september 1987 S.Á.Á. tíu ára Sanitök áhugafólks um áfengis- vandamálið mun fagna 10 ára af- mæli sínu nú fyrstu heigina í októ- ber. Af því tilefni verður efnt til hátíð- arsamkomu í Háskólabíó laugar- daginn 3. október kl. 14.00. a) Pjétur Þ. Maack formaður SÁÁ flytur stutt yfirlit um sögu SÁÁ. b) Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra flytur ræðu. c) Ávarp landlæknis Ólafs Ólafssonar. d) Egill Ólafsson og félagar flytja tónlist. e) Flosi Ólafsson flytur SÁÁ kveðju sina. f) Bjarni Arason þenur látúns- barkann. g) Magnús Pétursson flytur ræðu. h) Ólöf Kolbrún Haraldsdóttir syngur við undirleik Jóns Stefánssonar. i) Sigurður Guðmundsson, sett- ur biskup slítur samkomunni. Stjórnandi og kynnir er Jónas Jónasson. Öllum er heimill ókeypis aðgang- ur. SÁÁ þætti vænt um að sem flestir kæmu og fögnuðu með sam- tökunum merkum áfanga. Einnig verður kaffisamsæti milli kl. 14.00 og 16.00 í húsakynnum SÁÁ að Síðumúla 3—5 11 hæð, sunnudaginn 4. október. Þangað eru velkomnir allir vinir og velunn- arar SÁÁ fyrr og nú. Stjórn SAÁ telur tilefni til hátíð- arhalda ærið, þvi mikið hefur áunnist í meðferdarmálum áfengis- og fíkniefnaneytenda á þessum 10 árum. Er nú öll meðferð þessara sjúklinga hér innanlands auk þess sem hugarfarsbreyting er mikil hjá þjóðinni allri í garð áfengissjúkl- inga og annarra vimuefnaneytenda. Hefur þessi vakning vakið athygli víða um heim og árlega sækja tugir útlendinga þekkingu til SÁÁ. Er skemmst að minnast heimsóknar sænsku konungshjónanna í júní sl. Kjarni meðferðar SÁÁ eru 120 sjúkrarúm samtakanna (60 að Vogi, 30 á Sogni Ölfusi og 30 að Staðar- felli í Dölum). ÖIl þessi rúm hafa verið skipuð frá fyrsta degi og bið- listar langir. Auk þess er rekin umfangsmikil fræðsiu- og leiðbeiningarstöð í Síðumúla 3—5, Reykjavík. Þar er rekin viðtalsþjónusta og fræðslu- námskeið fyrir alkohólista og að- standendur þeirra. Frá og með 1. október er mánaðaráskrift blaðsins 600 kr. Listi yfir aukafjárveitingar frá 4. ágúst til 17. september 1987. Ráðuneyti — verkefni þús. kr. Skýring Menntamálaráðuneyti: Menntaskólinn v/Hamrahlíð 3.000 Vegna kaupa á færanlegum kennslustofum. Myndlista- og handíðask. 3.513 Greiðsla á leigugjöldum vegna aukins húsnæðis og nýrra samninga. Myndlista- og handíðask. 1.237 Vegna innréttinga og lagfæringa á kennsluhúsnæði. Náms- og fræðimenn, framl. 155 Styrkur v/náms í isl. fræðum fyrir bandaríska stúdenta. Landsbókasafn íslands 300 Greiðsla á húsaleigu v/aukins húsnæðis. Þjóðminjasafn íslands 500 Framlag v/fornleifarannsókna á Bessastöðum. Listasafn íslands, nýbygging 10.000 Ónotuð aukafjárveiting frá 1985. Lista- og menningarmál, ýmis 300 Framlag v/norr. bókmenntahátíðar. Lista- og menningarmál, ýmis 2.500 Ferðakostn. v/ferðar Sinfoníuhljómsv. til Grænlands. Félagsheimilasjóður 2.000 Framlag v/félagsh. að Klifi í Ólafsvík. Ýmis íþróttamál 140 Framlag v/Norðurlandamóts unglinga í skák. Ýmis íþróttamál 100 Framlag v/Ólympíuleika í eðlisfræði. Leikfélag Akureyrar 1.000 24.745 Skv. þríhliða samningi um rekstur L.A. Utanríkisráðuneyti: Ymis utanríkismál 1.000 Matvælaaðstoð við Grænhöfðaeyjar. Dóms- og kirkjumálaráðun.: Söngmálastjóri Þjóðkirkjunn. 600 Greiðsla v/rekstrarerfiðleika. Félagsmálaráðuneyti: Aðalskrifstofa 600 Sérfræðivinna v/húsnæðismála. Skipulagsstjóri ríkisins 21.189 Uppgjör á mörkuðum tekjum 1985 og 1986. Málefni fatlaðra í Rvk. Málefni fatlaðra á Noró- 214 Vegna útgáfu handbókar svæðisstjórnar ,,Safns“ urlandi 150 Framlag vegna aukinnar húsaleigu. Málefni fatlaðra á Suðurlandi 800 22.953 Framlag v/endurbóta á hitaveitu Sólheima. Heilbrigðisráðuneyti: Aðalskrifstofa 620 Rannsóknir v/salmonella-sýkingar. Aðalskrifstofa 4.000 4.620 Vegna rekstrarerfiðleika aðalskrifstofu. Iðnaðarráðuneyti: Iðnaðarrannsóknir 5.000 Fjárveiting v/starfshóps um stækkun álvers. Viðskiptaráðuneyti: Aðalskrifstofa 509 Greiðsla á auglýsingum v/sölu hlutabréfa í Útvegsbanka. Samtals 59.427

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.