Alþýðublaðið - 26.01.1988, Síða 1
MMBUMMB
Þriðjudagur 26. janúar 1988
STÖFNAÐ
1919
16. tbl. 69. árg.
FOSSVOGSBRAUTIN í HNÚT
Landamœradeilur milli Reykjavíkur og Kópavogs.
Þorvaldur S. Þorvaldsson
hjá borgarskipulagi Reykjvík-
ur segir að til sé samningur
sem segi að Kópavogur fái
land það sem nú er iðnaðar-
hverfið við Smiðjuveg i stað
lands sem fara eigi undir
Fossvogsbraut, samþykki
báðir aðilar að leggja hana.
Guðmundur Oddsson bæjar-
fulltrúi i Kópavogi segir að
það sé ekki rétt, heldur að
skipt hafi verið á Smiðjuvegi
og landi því í Seljahverfi sem
borgin hafi úthlutað lóðum á
í leyfisleysi. Segir hann að
Fossvogsbraut verði ekki
lögð nema meö samþykki
Kópavogs og ekki sé útlit
fyrir að það fáist.
í samtali viö Alþýöublaöiö
sagöi Þorvaldur S. Þorvalds-
son hjá borgarskipulagi
Reykjavíkur, aö í samningi
sem gerður var í október
1973, væri gert samkomulag
þar sem skipt er á þvi landi
þar sem nú er iðnaðarhverfið
við Smiðjuveg og því landi
sem færi undir Fossvogs-
braut úr eigu Kópavogs.
„Fossvogsbraut veróur
aldrei lögö,“ sagði Guðmund-
ur Oddsson bæjarfulltrúi í
Kópavogi. Sagði hann að fyrir
lægju samþykktir allra bæjar-
fulltrúa í Kópavogi þar sem
ákveðið er að hún verði tekin
af skipulagi. 95% af þvi landi
sem undir brautina ættu að
fara, væri í eigu Kópavogs.
— Hvað meö samninginn
sem gerður var?
„Hann er löngu ógildur. I
honum er gert ráð fyrir skoð-
un innan tveggja ára varðandi
þörfina, hún hefur aldrei farió
fram og þar með hljóta aðrar
forsendur að hafa breyst
samkvæmt því.“ Einnig að
samningurinn hafi verið háö-
ur því að báðir aðilar sam-
I þykktu hann þegar þar að
kæmi.
„Við fengum iðnaðarhverfið
í staðinn fyrir þann hluta
Seljahverfis sem stolið var úr
Fífuhvammslandi, það er vit-
leysa að það téngist eitthvað
Fossvogsdalnum." Sagði
Guðmundurað Reykjavíkur-
borg hefði verið búin að út-
temwtHirKnrmim'" w , ^-------"tM T'llí »lím
Fossvogurinn. A-mynd/Róbert.
hluta lóðum í land Fífu-
hvamms, og þegar það hafi
komið í Ijós hafi verið ákveð-
ið að kaupa land af eigend-
um Fífuhvamms. Makaskiptin
á löndunum hafi síðan
byggst á því að gegn breyt-
ingu á lögsögumörkum hafi
Kópavogur fengið landið við
Smiðjuveg, og það hafi á
engan hátt tengst Fossvogi.
„Fossvogsbraut verður
aldrei lögð nema með sam-
þykki bæjaryfirvalda í Kópa-
vogi, og þaö eru engar líkur á
því eins og málin standa i
dag og bæjarstjórnin er skip-
uð að það verði gert. Ég tel
að Reykjavík eigi að leysa sín
umferðarvandamál á annan
hátt og það getur hún gert.“
Kex, sœlgœti og drykkjarvörur frá ríkjum Evrópubandalagsins:
HORFIÐ FRÁ 20% TOLLI
í gær ákvaö fjármálaráðu-
neytið í samráði við við-
skiptaráðuneytið og utan-
rikisviðskiptadeild utanrikis-
ráðuneytisins, aö þrátt fyrir
ákvæði tollalaga skuli sama
tollameðferð gilda fyrir kex,
sælgæti og drykkjavörur frá
Evrópubandalagsríkjum og
frá EFTA. í þessu felst, að
verð á þessum vörum á að
lækka frá þvi sem gilt hefur
um nýinnfluttar vörur það
sem af er ári, t. d. á kexi,
sælgæti og drykkjarvörum
frá Danmörku, Bretlandi og
Þýskalandi, sem eru þrjú
mikilvæg viðskiptalönd innan
EB.
Með nýju tollalögunum var
horfið frá þeirri reglu, að láta
tollfrelsi ná til kex, sælgætis
og drykkjarvara frá ríkjum
Vestfirðir
SAMNINGAR I HOFN
I gær tókust samningar í
viðræðum Alþýöusambands
Vestfjarða og vinnuveitenda.
Viöræður höfðu staðið nær
samfellt frá klukkan 13 á
sunnudag til 17 i gær. Samn-
ingurinn hafði ekki verið undir-
ritaður þegar Alþýðublaðið fór
í prentun i gærkvöld og vildu
samninganefndarmenn ekki
láta hafa eftir sér um innihald
fyrr en að undirskrift lokinni.
Með samningunum var talið
víst aö gamla bónuskerfinu
yrði kastað og tekin upp hluta-
skipti. Þá var samið um grunn-
kaupshækkanir, en Alþýðu-
blaðiö fékk prósentu tölur ekki
staðfestar. Ennfremur var
búist við að samningurinn fæli
i sér starfsaldurshækkanir.
Evrópubandalagsins á sama
hátt og EFTA-ríkjum. Þannig
átti samkvæmt lögunum að
leggja 20% toll á þessar vör-
ur kæmu þær frá EB-rikjum.
Jón Sigurðsson viðskipta-
ráðherra sagði í ræðu sem
hann flutti á aðalfundi Fé-
lags íslenskra stórkaup-
manna í gær, að þótt tollur-
inn bryti ekki í bágavið
samninga við EB hafi við
nánari athugun ekki verið tal-
iö ráölegt að gera nú slíkan
mun á tollum á innflutningi
frá EFTA og EB, þar sem
hann hafði ekki verið áður.
„Með þessari ákvörðun hefur
(Dannig verið eytt einu við-
kvæmu máli í umræðunni um
skattabreytingarnar að und-
anförnu," sagði viðskipta ráð-
herra m.a.
í ræðu sinni vék Jón Sig-
urðsson einnig að verðlags-
aðhaldi í kjölfar skattbreyt-
inga. Sagði hann verðlags-
yfirvöld ekki skirrast við að
frysta álagningu, ef brögð
væru að því, að verslanir
hækkuðu álangingarprósentu
sína á þeim viðkvæma um-
þóttunartíma sem nú stæði.
„Ég bendi líka á að þegar á
heildina er litiö er enginn
ástæða fyrir hækkun á álagn-
ingarhlutföllum. Tilmæli frá
samtökum verslunar um sam-
r æmdar ákvarðanir um
nækkun álagningar eru
ámælisverð og jaðra við brot
á verðiagslögum, sem banna
samtöK eða samninga milli
fyrirtækja um verö eða álagn-
ingu. Ég minni á það, að
mörg úr ykkar rööum hafa
lengi talað fyrir breytingum
af því tagi, sem nú er loksins
verið að framkvæma. Skákin
stendur því upp á ykkur aó
koma ekki óorði á svo gott
mál með ógætilegri verðlagn-
ingu í skjóli skattabreyting-
anna.“
■■■BBBBBBHBBflBHBHBHBBBBMBBBBBBBBHHHBHBHI
Tré
frekar en
hraðbraut
3
Hermdar-
verk eða
hugsjón?
8
HHHHHHHIHHHiíHlHiHÍ
Vinnu-
stöðvun í
bræðslunum
3