Alþýðublaðið - 26.01.1988, Síða 2

Alþýðublaðið - 26.01.1988, Síða 2
2 Þriöjudagur 26. janúar 1988 fmiimimiiii Útgefandi: Blað hf. Framkvæmdastjóri Valdimar Jóhannesson Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson Fréttastjóri: Kristján Þorvaldsson Umsjónarmaður helgarblaðs: Þorlákur Helgason Blaðamenn: Haukur Holm, Ingibjörg Árnadóttir og Sigríður Þrúður Stefánsdóttir. Dreifingarstjóri: Þórdís Þórisdóttir Setning og umbrot: Filmur og prent, Ármúla 38. Prentun: Blaðaprent hf., Siðumúla 12. Áskriftarsíminn er 681866. Áskriftargjald 600 kr. á mánuði. í lausasölu 50 kr. eintakið virka daga, 60 kr. um helgar. LIFAD Á SNÍKJUM Það aö svíkja undan skatti hefur lengi talist til afreka á íslandi. Skattsvik hafa í augum margra verið sjáifsbjargar- viöleitni. Þaö hefur talist til forréttinda aö kunna allar hugsanlegar smugur skattkerfisins — og þær hafa veriö margar — og haga málum sínum þannig aö sem minnsti hluti tekna og eigna væri skattlagöur. Að margra dómi hafa skattsvikararnir verið hetjur þjóðfélagsins. Skatt- svikararnirhafaeinnig veriöaö stórum hlutaþeirsem best voru í stakk búnir aö leggja sitt aö mörkum til þeirra sem verr hafa verið á vegi staddir. Skattsvikararnir hafa verið þeir sem hæst og mest hafa grátið undan skattaálagi og breitt út þáskoðun aö skattagjöld séu af hinu illaog versti óvinir almennings í landinu sé fjármálaráóuneytiö, rfkis- skattstjóri og Gjaldheimtan. Á Norðurlöndum hafa meira aö segja sprottið upþ stjórnmálahreyfingar um skattsvik eins og Glistrup — flokkurinn í Danmörku og Framfara- flokkurinn í Noregi. Svipaöar hugmyndir hafa átt fylgi aö fagna í sumum íslenskum stjórnmálaflokkum. Hvers vegnagreiöum vió skatta? Eru skattareinungis af hinu illa? Er ríkiö gráðug og ómettandi hönd sem hrifsar til sín stóran hluta af tekjum manna, eigum og varningi í þeim einatilgangi að eyöasömu peningunum í vitleysu og vanhugsuö fjárfestingarævintýri? Svarið viö þessum spurningum er fyrst og fremst aö viö borgum skatta til aö haldauppi siðmenntuðu þjóöfélagi. Viö greiöum skattatil að halda uppi menntakerfi, menningu, samgöngum, heil- brigöismálum og félagslegu kerfi. Alltaf má gagnrýna gjaldaliöi ríkissjóðs á hverjum tíma — en aðalatriðið erað skattarnir okkar eru aögöngumiðinn aö samfélagi sið- menntunar og mannúöar. Einmitt þess vegna er skattsvikarinn sá sem lifir sníkju- lífi áskattgreiðendum. Skattsvikarinn þekkist ekki ágötu. En hann sendir börnin sín i skóla meö börnum hinna sem greiða fyrir sín börn og börn hans um leið. Skattsvikarinn leggst inn á spítala og þiggur hjúkrun, læknisaðgeróir og aðhlynningu ókeypis og á kostnað hinna sem greiöa skattana sína. Skattsvikarinn nýtur menningar og fer á sinfóníutónleika eða bregður sér í Þjóöleikhúsið fyrir lít- inn pening á kostnaö þeirra sem borga skattana sína og hans um leið. Skattsvikarinn ekur um á breiöum götum, lögðum varanlegu slitlagi sem aörir en hann hefur greitt fyrir. En skattsvikarinn er ekki aðeins sníkjudýr sem í sið- leysi sínu lifir á öðrum, heldur verður hann einnig þess valdandi aö hinir sem greiða skattana sína, verða að leggja harðar að sértil að haldasníkjudýrinu áfloti. Skatt- ar þeirra hafa því verið hærri en ella. Snikjudýrið er dýrt í rekstri. Skattsvik eru því ekki sjálfsbjargarviðleitni heldur siðlaust sníkjulíf. H ið nýja skattkerfi er bylting sem meðal annars kemur í veg fyrir skattsvik og gerir tilveru sníkjudýranna erfiðari. Undanþágum hefurveriðfækkað í söluskattskerfi og með tilkomu staðgreiðslukerfis skatta og einföldun skattkerf- isins verðaundankomuleiðirskattsvikarannafærri. Þarað auki bætist við hert og endurbætt skattaeftirlit sem fækk- ar sníkjudýrunum að mun. Með nýju skattkerfi hefur ríkis- stjórn Þorsteins Pálssonar að frumkvæöi fjármálaráð- herra lagt grunninn að uþþbyggingu einfalds, réttláts og nútímalegs skattkerfis sem eflirfjárhag ríkisins, torveldar skattsvik og treystir undirstöðu velferðarríkisins. ONNUR SJONARMIÐ HÖRÐUR Ágústsson list- málari setur fram skemmtileg sjónarmið í helgarblaði Tím- ans um síðustu helgi. Hann heldur því fram að íslending- ar hafi rýnt einungis á eymd- ina þegar þeir börðust fyrir sjálfstæði sínu sem þjóð. Það má reyndar segja að eymdardýrkunin sé ofarlega I hugum íslendinga þegar þeir berjast fyrir kröfum og kjör- um en það er önnur saga. Hörður heldur því ennfremur fram, aö höfundur Njálu hafi ekki búið i neinum torfkofa. Lítum á sjónarmið Harðar: „Það sé fjarri mér að kasta rýrð á sjálfstæöisbaráttuna, en þegar íslendingar voru að sækja fram til sjálfstæðis og seinna jafnréttis var stöðugt rynt i eymdina. Fyrir hið mikla framlag fyrri færustu manna var dregið járntjald. Hinir bestu menn með Halldór Laxness í broddi fylkingar eru stöðugt að tönnlast á torfkofum. En Njáluhöfundur hefur ekki setið í neinum túrfkofa með skinnbleðil undir botnin- um og annan á hnjánum. Höfundur Njálu hefur unnið sitt starf i veglegum húsa- kynnum. Það var hér sem annars staðar rik yfirstétt sem skóp menninguna. Þor- valdur Þórarinsson var hirð- stjóri og vellauðugur maður og það var Snorri lika. Og viö það ber að kannast. Ekki datt rússnesku byltingarmönnun- um í huga að rífa Vetrarhöll- ina. En hin óraunsæja sögu- sýn okkar íslendinga hefur valdið því að við viljum láta sem ekkert hafi verið hér tii i húsagerð nema kofar.“ Ef Davíð væri snjall póli- tíkus (sem óneitanlega stundum er) ætti hann að grípa orð Harðar á lofti í um- ræðunni um ráðhúsið við Tjörnina. ALÞÝÐUBANDALAG- IÐ er í mikilli gerjun og vita fæstir hvaða kúrs sá flokkur er að taka. Má nefna sem dæmi nýjar hugmyndir for- mannsins og annarra um breytta afstöðu til hersins og NATO sem falla misvel í kramið hjá öðrum hópum Al- þýöubandalagsins. Gísli Gunnarsson sagnfræðingur og lektor við Hskóla íslands er gamall Alþýðubandalags- félagi. Hann viðrar ný sjónar- miö í síðasta helgarblaði Dagblaðins/Vísis þar sem hann vísar ríkisforsjá á bug en upphefureins konar vinstri markaðshyggju. Þetta eru vissulega áhugaverð sjónarmið og tæpast i anda hins miðstýrða sósíalisma sem setur ríkisapparatið i hásæti þjóðfélagsins. Lesum sjónarmið Gísla: „Sú greining á samfélag- inu að stétt kúgaði stétt er auðvitað lika í samræmi við marxismann. Og ef er reynt er að tengja þetta stjórnmál- unum í dag, þegar augljóst er að einn þjóðfélagshópur beit- ir annan órétti, þá hlýtur samúðin að vera með þeim sem er beittur órétti ekki síð- ur í dag en á 18. öld. Þannig fer saman viðurkenning á Gísli Guömundsson sagnfræð- ingur og félagi i Alþýöubandalag- inu boðar enn eina nýjungina í flokknum: Frjálshyggjusósia- lisma. markaðsöflunum og sterk samúð með þeim sem eru illa staddir. Þetta kann að þykja frjáls- hyggjuskotið hjá vinstri- manni en ég neita bara að láta setja mig í fyrirfram ákveðið hólf. Einn samflokks- maður minn í Alþýðubanda- laginu komst þannig að orði i tilefni af umræðunni, sem nú fer fram í Alþýðubandalag- inu, að hann hafi fundið i bók minni hugsanlegan grundvöll fyrir umræðum um hvernig er hægt að skapa vinstrihreyf- ingu sem jafnframt tekur fullt tillit til markaðarins. það er augljóst að gamla ríkisfor- sjárhyggjan hefur gengið sér til húðar. Það er talað um lýðræðis- kynslóð i Alþýðubandalaginu og ég tel mig tilheyra henni þótt ég sé eldri en flestir þeir sem eru yfirleitt i þeim hóp. Við erum sammála um eitt grundvallaratriði. Við viljum láta frjálsa hugsun dafna og viljum ekki láta rígbinda okk- ur viö fyrirfram ákveðnar skoðanir og leiðtoga eða láta stjórna okkur af atvinnu- stjórnmálmönnum sem i einu og öliu eiga að hafa vit fyrir okkur. TÓNLISTARSKRÍ- BENT Þjóðviljans heitir Sigurður Þór Guðjónsson og hafa sjónarmið hans stund- um verið endurbirt í þessum dálkum, enda Sigurður enn besti penni Þjóðviljans. Um helgina sleppir Sigurður fram af sér beislinu varðandi „að láta kúga sig í strætó". Les- um hvað hann á við með því: Góða tónlist verður aö hiusta á í ró og næði. Með allri sálinni. Ekki með öðru eyranu. Alla góða tónlist, hvort sem hún er „klassísk“, djass eða popp. Hún nýtur sín engan veginn nema hiust- að sé með eftirtekt og áhuga. Vonda tónlist aftur á móti, er engin ástæða til að heyra yfirleitt. Og gildir þá einu hvort hún er „klassísk“, djass eða popp. Þess vegna er það óviröing við tónlistina, sjálfan sig og jafnvel aðra, að láta músik glymja þegar ekki er veriö að hlusta. En þessi vanvirða er nú orðin þjóöarsjúkdómur ís- lendinga. Alls staðar músik. Hvergi komandi né verandi fyrir músík. Ekki einu sinni í bókabúðum. Hvilikur grund- vallarmisskilningur á að- stæðum! Hver hefur gaman af að glugga í bækur nema í kyrrð og friði? Bókabúðir og hljómlist eru ósamrýmanleg- ar andstæður. Svona smekk- leysi dettur engum þjóðum í hug nema bókaþjóðinni miklu á sögueyjunni. Og eftir þessu er allt annað virðingar leysi þjóðarinnar við tónlist- ina og sjálfa sig. Varla er vært i strætisvögnum fyrir þessum ósköpum. Og svo sýnist sem SVR og borgar- yfirvöld leggi blessun sina yfir ofbeldið. Fyrir nokkru kvartaði ég um ónæði af vöidum músíkur í strætó. Þá var mér umsvifalaust visað út úr vagninum. Gaman væri ef stjórn SVR gerði nú opinber- lega grein fyrir þeim feikna mikilvægu ástæðum, sem hljóta að valda því, að fyrir alía muni þurfi að neyða út- varpi ofan í farþega. En sjórn SVR er þögul og köld eins og hinn dularfulli sfinx. Einstak- ir vagnstjórar hafa hins vegar verið að senda mér tóninn út af skrifum minum um þessi efni, sem hingað til hafa ekki fariö fram í þessu blaði. Þær greinar hafa verið óvenju mál- efnalegar og rökrænar. Og til fyrirmyndar um hógvært og kurteislegt orðalag. (Ég get líka skrifað svoleiðis!) En strætisvagnastjórar hafa ekki virt rök mín og annarra viö- lits. Þeir blanda saman á barnalegan hátt starfi mínu hér á Þjóðviljanum og óvilja mínum sem privatmanns aö vera kúgaður í strætó. Og gera lítið úr mér sern manni í bréfum sinum til mín. Það er yndislegur vitnisburður um menningarstig þjóðarinnar, að einstaklingar sem á opin- berum vettvangi hafa í frammi efnislega og röklega gagnrýni á samfélagslega umgengnishætti eða jafnvel mannréttindi, skuli fyrir það þurfa að standa í því að verja persónu sína. Hvers konar þjóðfélag erum við að popp- ast inn í? En það er sami andiegi subbuskapurinn sem ræður virðingarleysi íslendinga fyrir tónlistinni, með því að nota hana sem vinulyf, og veldur vanhæfni þorra þjóðarinnar til að greina aðalatriði frá aukaatriðum og stunda mál- efnalegar umræður í þjóðfé- laginu.“ Einn með kaffínu Þekktur prófessor var frægur fyrir að vera orðvar og fámáll. í kvöldverðarboði einu var honum skipað til sætis við hliðina á virðulegri frú. Borðhaldið hófst og ekki sagði prófessorinn eitt stakt orð. Borðdömu hans leið ekki sem best í þögninni og reyndi að vekja máls á hinu og þessu en var aðeins svarað með stuttaralegum höfuðhreyfingum. Loks sagði frúin: — Vitið þér prófessor; ég veöjaði við vinkonu mína að ég gæti togað tvö orð upp úr yður áður en borðhaldið væri á enda. Prófessorinn horföi á frúna og svaraði: — Þértapiö!

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.