Alþýðublaðið - 26.01.1988, Síða 4
4
Þriðjudagur 26. janúar 1988
OPIÐ BRÉF TIL FORYSTU-
MANNA ALÞÝÐUFLOKKSINS
Heilir og sælir félagar.
Ég veit að þið eruð afar
uppteknir þessa dagana við
það til dæmis að finna upp
nýja skatta og aðrar álögur á
landsmenn, þannig að ég
mun hafa þennan~pistil stutt-
an svo þið þurfið ekki að
eyða löngum tima í lestur
hans og þau svör er ég vil fá.
Ég vonast sem sé eftir skýr-
um og afdráttarlausum svör-
um á venjulegu mann máli,
ekkert af þessum klassísku
stjórnmálasvörum þar sem
ævinlega er blaðraö um allt
fram og aftur, sem lengst frá
því sem um er að ræða og í
lokin eru menn oftast alls
engu nær um það, sem um er
að ræöa og þá er ég kominn
að efninu.
Eitt almesta ranglætið,
sem framið hefur verið í
gervallri mannkynssögunni
var framið I Palestinu, og
ekki er séð fyrir endann á
hörmungum Palestínumanna
nema síður sé. En hvað varö-
ar þetta íslenska jafnaðar-
menn? Jú, heldur betur. Al-
þýðuflokkurinn er aðili að al-
þjóðasamtökum jafnaóar-
manna. Það er einnig
ísraelski verkamanna-
flokkurinn, sem lengst af
BREYTTUR
persónuafclátfun
Nú 14.797 kr.
fyrir hvem mánuð
Persónuafsláttur í staðgreiðslu opin-
berra gjalda hefur verið ákveðinn 14.797
krónur fyrir hvem mánuð á tímabilinu jan.-
júní 1988.
#
v
MHmauKm
Þessi breyting á persónuafslætti hefur
ekki I för með sér að ný skattkort verði gefin út til
þeirra sem fengu sín skattkort fyrir 28. des. sl.,
heldur ber launagreiðanda að hækka persónu-
afsláttinn við útreikning staðgreiðslu.
Til þess að þeir, sem fengu skattkort sín
útgefin fyrir 28. desember 1987, fái notið rétts
afsláttar ber launagreiðanda að hækka þann
persónuafslátt, sem fram kemur á þessum
skattkortum og aukaskattkortum (öllum
grænum og gulum kortum), um 8,745%
(stuðull 1,08745).
mmmmm
Mikilvægt er að launagreiðandi breyti ekki
upphæðinni á sjálfu skattkortinu. Sú upphæð á
að standa óhreyfð til ársloka. Hins vegar ber að
taka till'it til orðinnar hækkunar við útreikning
staðgreiðslu. Launamaður má ekki heldur
breyta upphæðinni sem fram kemur á skatt-
korti hans. Hann afhendir launagreiðanda kort-
ið óbreytt nema hann fái aukaskattkort.
Skattkort sem gefin eru út 28. desember
og síðar bera annan lit en þau skattkort sem
gefin voru út fram að þeim tíma. Þau skattkort
munu sýna réttan persónuafslátt fyrir tímabilið
janúar-júní 1988 og þarf því ekki að hækka
persónuafslátt þann sem þar kemur fram við
útreikning staðgreiðslu.
Ætmmesmm
Heimilt er að millifæra 80% af ónotuðum
persónuafslætti til maka. Þetta gildir bæði um
hjón og sambúðarfólk, sem hefur heimild til
samsköttunar.
Launagreiðandi millifærir persónu-
afsláttinn, þannig að hann tekur tillit til 80%
þeirrar upphæðar sem fram kemur á skatt-
korti og aukaskattkorti maka, hafi það verið
afhenthonum.
Launagreiðendur alhugið
að hœkka upphœð persónuafsláttar
á eldri skatikortum um 8,745%
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
hefur ráðið mestu i Israel og
ber því þyngsta ábyrgð á
þeim skelfingum er dynja yfir
Palestinufólkið. Ég hef hvergi
séð neitt um að jafnaðar-
menn hafi mótmælt framferði
ísraelsmanna eða yfirleitt
gert neinar athugasemdir við
þróun mála á þessu lands-
svæði. Þetm er svo yfirgengi-
legt aó það er ekki hægt
að kallu það annað en sví-
virðu. Nú vil ég spyrja ykkur:
Hafið þið aldrei á þingum
alþjóðasambandsins gert
neinar athugasemdir við
þetta?
Ef svo er, teljið þið þá að
þetta sé bara allt í lagi?
Jafnaðarstefnan er al-
heimsstefna lýðræðis og
jafnréttis, hún er hreyfing
frelsis og bræðralags sem
neitar ofbeldi og kúgun og
óréttlæti. Jafnaðarstefnan er
ekki bundin við eitt land,
heldur alheimshreyfing, lif-
andi og rík, sem réttir hendur
sfnar til hinna þjáðu og kúg-
uðu og fátæku.
Já, herrar mínar þetta eru
fögur orð en það dugar
skammt ef þetta eru aðeins
orð.
Ég vil fá svör ykkar og það
fljótt.
Guðjón V. Guðmundsson
SMÁFRÉTTIR
Póstmannafélagið:
„Láglaunafólk
standi saman“
„Póstmannafélag íslands
mótmælir þeim skattkerfis-
breytingum, sem gerðar hafa
verið og fela i sér stórauknar
álögur á láglaunafólk, en i
þeim flokki er þorri póst-
manna. Engum dyist að
hækkun matvæla leggst með
fullum þunga á lægra launað
fólk, meðan verölækkun
lúxusvarnings felur í sér
skattalækkun fyrir þá best
settu.“
Ofangreind ályktun var
samþykkt á stjórnarfundi
Póstmannafélags íslands
miðvikudaginn 20. janúar sl. I
ályktuninni segir ennfremur
að Póstmannafélagið leggi
áherslu á að skattkerfisbreyt-
ingarnar eigi að hafa að
markmiði að kostnaður við
samneyslu verði í auknum
mæli borinn af hinum tekju-
hæstu, þveröfugt við það
sem nú er gert. „Póstmanna-
félag íslands hvetur því
launafólk til að standa saman
um að beita öllum tiltækum
ráðum til að beina stjórnvöld-
um inn á rétta braut, matar-
skattar verði afnumdir en
stórátak gert í skattheimtu
hjá hátekjufólki í þessu
þjóöfélagi."
Mótmælir
leigutökum
erlendra
kaupskipa
Alþýðusamband íslands
hefur sent frá sér ályktun þar
sem mótmælt er gegndar-
lausum leigutökum erlendra
kaupskipa sem mönnuð eru
með erlendum sjómönnum.
„Á undanförnum árum,
segir i ályktuninni, hefur ís-
lenskum kaupskipum fækkað
og einnig hefur fækkað í ís-
lenskri farmannastétt. Á
sama tíma hafa íslenskar
kaupskipaútgerðir, í vaxandi
mæli tekið á leigu erlend
skip mönnuð erlendum sjó-
mönnum. Aukin samkeppni
milli kaupskipaútgerða hefur
jafnvel leitt til þess að ís-
lensk skip hafa legið lang-
tímum saman í islenskri höfn ,