Alþýðublaðið - 26.01.1988, Qupperneq 6
6
Þriðjudagur 26. janúar 1988
SMÁFRÉTTIR
Fremri röö, taliö frá vinstri: Páll Gíslason, stjórnarformaöur Borgarspit-
alans, Hannes Pétursson, yfirlæknirog Sverrir Þórðarson, í stjórn Vis-
indasjóósins. Aftari röö taliö frá vinstri, Leifur Franzson lyfjafræðingur,
Ingibjörg Hjaltadóttir, deildarstjóri og Brynjólfur Mogensen, læknir.
Vísindasjóður
Borgarspítalans
Hinn 20. desember s.l. var
úthlutað styrkjum úr Vlsinda-
sjóði Borgarspítalans. Að
þessu sinni var úthlutað kr.
621.000. Alls bárust 5 um-
sóknir um styrki úr sjóðnum,
samtals að fjárhæð kr.
1.291.505. Eftirtaldir aðilar
hlutu styrk:
1. Hannes Pétursson, yfir-
læknir, kr. 265.000 til að
vinna að geðlífeölisfræöilegri
rannsókn á alzheimersjúkl-
ingum og til að taka þátt í
fjölþjóðlegri rannsókn á nýju
geðdeyfðarlyfi.
2. Brynjólfur Mogensen,
læknir, kr. 210.000 til að
vinna að framhaldsrannsókn-
um á mjaðmabrotum á ís-
landi.
3. Leifur Franzson, lyfja-
fræðingur kr. 100.000 til að
vinna að rannsókn á joðbú-
skap íslendinga.
4. Ingibjörg Hjaltadóttir,
deildarstjóri, kr. 46.000 til aö
w<L Forstödumadur
Forstöðumaður óskast á nýtt dagheimili/leikskóla í
Hafnarfirði. Fósturmenntun áskilin.
Nánari upplýsingar veitir dagvistarfulItrúi í síma
53444.
Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði.
Listskreytingasjóður
ríkisins
Listskreytingasjóóur ríkisins starfar samkvæmt lög-
um nr. 34/1982 og er ætlað að stuðla að fegrun opin-
berra bygginga með listaverkum. Verksvið sjóðsins
tekur til bygginga, sem ríkissjóður fjármagnar að
nokkru eða öllu leyti. Með listskreytingu er átt við
hvers konar listræna fegrun. Skal leitast við að
dreifa verkefnum milli listgreina, þannig að í hverri
byggingu séu fleiri en ein tegund listskreytinga.
Þegar ákveðið hefur verið að reisa mannvirki sem
lögin um Listskreytingasjóð ríkisins taka til, ber
arkitekt mannvirkisins og bygginganefnd sem hlut á
að máli að hafa samband við stjórn Listskreytinga-
sjóðs, þannig að byggingin verði frá öndverðu hönn-
uð með þær listskreytingar I huga sem ráðlegar telj-
ast. Heimilt er einnig að verja fé úr sjóðnum til list-
skreytingar bygginga sem þegar eru fullbyggðar.
Umsóknum um framlög úr Listskreytingasjóði skal
beint til stjórnar Listskreytingasjóðs ríkisins,
Menntamálaráðuneytinu, Hverfisgögu 6,150 Reykja-
vík, átilskildum eyðublöðum sem þarfást. Æskilegt
er, að umsóknir vegnaframlaga 1988 berist sem fyrst
og ekki síðar en 1. ágúst n.k.
Reykjavík, 21. janúar 1988
Stjórn Listskreytingasjóös ríkisins.
rannsaka áhrif sótthreinsunar
gervitanna með „Hibitane
Dental".
Vísindasjóður Borgarspítal-
ans var stofnaður 1963, til
minningar um þá Þórð
Sveinsson lækni og Þórð
Úlfarsson flugmann. Tilgang-
ur sjóðsins er að örva og
styrkja vísindalegar athugan-
ir, rannsóknir og tilraunir er
fara fram á Borgarspítalanum
eða í náinni samvinnu við
hann.
„Vegið að
t
Stjórn Landssambands
fiskeldis- og hafbeitarstöðva
(LFH) gerði á fundi sínum
þann 13. janúar sl. svohljóð-
andi ályktun;
„Stjórn Landssambands
fiskeldis- og hafbeitarstöðva
(LFH) mótmælir þvi harðlega
að Iagðurer25% söluskattur
á vatnafiska svo sem lax og
silung á meðan eingöngu er
10% söluskattur á öðrum
neyslufiski svo sem ýsu,
þorsk, ufsa og fleiri tegundir.
Hér er vegið að ört vaxandi
atvinnugrein og er nú svo
komið að stórlega hefur dreg-
ið úr kaupum neytenda inn-
anlands á lax og silung.
Það er því verulegt
áhyggjuefni að á tímum um-
ræðna um heilbrigt mataræði
skuli vatnafiskar vera skatt-
lagðir sem um lúxus-vöru
væri að ræða. Öllum ætti aö
vera kunnugt heilnæmi fisks
í mataræðinu.
LFH skorar þvi á ríkisstjórn
íslands og Alþingi að þessi
óréttláta skattlagning veröi
tafarlaust tekin til endurskoð-
unar og að söluskattur á
vatnafiskum verið a. m. k.
lækkaður niður í 10%.
vaxandi
atvinnugrein'
Kratakaffi
Kaffihúsiö í félagsmiðstöð Jafnaðarmanna Hverfisgötu
8—10, verður opið á miðvikudagskvöldið 27. janúar n. k. kl.
20.30.
Jón Sigurðsson, dómsmálaráðherra og Björn Friðfinns-
son aðstoðarráðherra mæta.
Komið, spjallið og spáið í pólitíkina.
Alþýðuflokkurinn.
Gestaíbúðir Villa
Bergshyddan í Stokkhólmi
íbúðin (3 herbergi og eldhús í endurbyggðu 18. aldar
húsi)er léðán endurgjalds þeim sem fást við listirog
önnur menningarstörf I Helsingfors, Kaupmanna-
höfn, Osló eða Reykjavík til dvalar um tveggja til
fjögurra vikna skeið á tímabilinu 15. apríl til 1. nóv-
ember. Myndlistarmönnum erþó vísaðá Ateljé Apel-
berg, Hásselbyhöll (umsóknareyðublöð fást hjá
Nordiskt Konstcentrum, Sveaborg, SF-00190 Hels-
ingfors).
Umsóknirum dvöl í Villa Bergshyddan, þarsem fram
komi tilgangur dvalarinnar og hvaða tíma sé óskað,
svo og upplýsingar um umsækjanda, skal senda til
Hásselby slott, Box 520, S-162 15 Vállingby.
Ekki eru notuð sérstök umsóknareyðublöð.
Nánari upplýsingar fást í Skrifstofu borgarstjóra,
sími 18800.
Bókaverðir
Bókasafn Hafnarfjarðar óskar að ráða bókaverði nú
þegar. Um er að ræða fullt starf og hlutastarf.
Umsóknir er tilgreini menntun og fyrri störf sendist
bókasafninu fyrir 4. febrúar.
fll>)lllll!lfillll
0 68 18 66
PlðOlflUINN Tunirni
0 68 13 33 0> 68 63 00
Álfatún
Brekkutún
Hraunteigur
Kirkjuteigur
Sundlaugarvegur
Helguteigur
Sóleyjargata
Fjólugata
Laufásvegur frá 48-49 og út
Smáragata
Ljósaland
Logaland
Láland
Armúla 38
{?j 68 18 66
Háaleitisbraut sléttar tölur
Hafðu samband við okkur
Birkigrund
Lyngbrekka
Bladburður er
BESTA TRIMMIÐ
og borgar sigl
LAUS HVERFI
NÚ ÞEGAR: