Alþýðublaðið - 26.01.1988, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 26.01.1988, Blaðsíða 8
MMBUBLHfin) Þriðjudagur 26. janúar 1988 Paul Watson forsprakka Sea-Sherpherd fannst nóg komið af tali um hlutina og ákvað að grípa til harðari aðgerða. Hann var rekinn úr Greenpeace samtökunum m.a. vegna þessarar herskáu afstöðu sinnar. Hann hefur nú verið gerður brottrækur frá íslandi og þá um leið hin- um Noröurlöndunum. Dóms- málaráðuneytið gæti hugsan- lega breytt þeim úrskuröi síö- ar. Liklegast hefði aldrei verið krafist framsals vegna hans eða liðsmanna hans er unnu skemmdarverk á eigum Hvals hf., haustið 1986. Framkvœmdasamur hugsjónarmaður? En hver er þessi Paul Watson sem gerir menn út af örkinni til að sökkva hval- veiðibátum og skemma hval- vinnslustöðvar? Hann er 37 ára Kanadamaður, býr í Van- couver og á 7 ára gamla dótt- ur. Hann gekk í norska herinn 17 ára og var þar í fimm ár. Hann er meö skipstjóra- menntun og hefur eitthvað numið í blaðamennsku. Árið 1973 stofnaði hann ásamt fleirum umhverfis- verndarsamtökin Greenpeace eða Grænfriðungar eins og þeir eru nefndir hér á landi og var skip þeirra samtaka Rainbow Warrior gefið hon- um persónulega. Eins og kunnugt er var því síðan sökkt af frönskum leyniþjón- ustumönnum í höfninni í Auckland á Nýja Sjálandi. Hann var rekinn úr samtök- unum árið 1977 og stofnaði þá þau samtök er hann starf- ar með núna Sea-Shepherd. Ástæða brottrekstursins var skoðanaágreiningur um vinnubrögð. Meðal annars það að Watson vildi elta uppi ólögleg hvalveiðiskip og sökkva þeim. Hvalbátarnir sem sökkt var í Reykjavíkur- höfn voru 5. og 6. skipin sem samtökin sökktu. Áður hafði verið sökkt spönskum og protúgölskum skipum sem veitt höfðu í áratugi fyrir utan kvóta. Samþykktir höfðu ver- ið gerðar hjá Alþjóðahval- veiðiráðinu og Sameinuðu þjóðunum og víðar að stöðva þessi skip. „Eg hef heyrt m.a.s. á fundum Alþjóðahval- veiðiráðsins að menn voru mjög glaðir yfir að Watson skyldi gera þetta, þó þeir segi það ekki opinberlega" sagði Magnús Skarphéðins- son Sea-Shepherdmeðlimur i samtali við Alþýðublaðið. Paul Watson var einnig einn af stofnendum Earth First, sem eru róttæk nátt- úruverndarsamtök í Banda- ríkjunum og hafa barist gegn eyðingu regnskóga i Suður- Ameríku, en þó aðallega eyð- ingu skóga í Kanada og Bandaríkjunum. Hann átti m.a. þá hugmynd að negla stálfleyga í trjástofna sem gerði það að verkum að sagirnar eyðulögðust þegar saga átti tréin niður. Að sögn Magnúsar voru þessar að- gerðir mjög umdeildar, sér- staklega af því fjárhagslega tjóni sem af hlaust, en almenningur hafi kunnað að meta þetta. Til að stöðva seladráp í Kanada hrinti hann í fram- kvæmd þeirri hugmynd sinni að mála alla kópa sem í náð- ist með skaðlausum náttúru- legum litarefnum sem eyði- lögðu skinnin fyrirveiði- mönnum. „Watson er glfur- lega hugmyndaríkur og fer sínar eigin leiðir. Sumum finnst hann fífldjarfur," sagði Magnús. Víst er Paul Watson mjög umdeildur fyrir starfs- aðferðir sínar og þeir eru ófá- ir sem kallaö hafa hann hermdarverkamann. En hver er venjan I málum þegar útlendingar brjóta ís- lensk lög? Samkvæmt upp- lýsingum frá dómsmálaráðu- neytinu eru lögin og heimild- irnar mjög viðtækar. Þau eru frá árinu 1965, og segir þar m.a. að hægt sé að visa manni úr landi, ef meina hefði átt honum landgöngu og ástæðan er enn fyrir hendi sem um var að ræða. Ef maður hefur að ásettu ráði eða þrátt fyrir aðvörun lög- reglu vanrækt ítrekað tilkynn- ingarskyldu skv. lögum um FRÉTTASKÝRING Haukur Holm skrifar Paul Watson verður framvegis að dvelja fjarri íslenskum hvölunum sem honum er svo annt um. Paul Watson: HUGSJÓN EDA HERMDARVERK? i HHBHBHIHHSBBHHHBHHHBnHBBBHBHHBBHBHBBHHHHMI □ 1 2 3 r 4 5 □ V 6 □ 7 r- 9 10 □ 11 □ 12 13 J □ Krossgátan Lárétt: 1 fýla, 5 bithagi, 6 sveifla, 7 umdæmisstafir, 8 rekkjutjald, 10 eins, 11 fjör, 12 mjúka, 13 rengla. Lóðrétt: 1 æsingur, 2 hóps, 3 samstæðir, 4 tvístra, 5 senn, 7 maka, 9 lengdarmál, 12 kusk. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 svila, 5 svað, 6 kal, 7 sú, 8 aldrað, 10 eins, 11 óni, 12 kann, 13 angri. Lóðrétt: 1 svalt, 2 vald, 3 ið, 4 alúðin, 5 skatta, 7 sanni, 9 róar, 12 kg. GengiS Gengisskráning 15. — 25. janúar 1988 zfzœBmtsaeBfixsMEaBBnææsatsiíœa Kaup Sala Bandarikjadollar 36,870 36,990 Sterlingspund 65,557 65,770 Kanadadollar 28,822 28,915 Dönsk króna 5,7416 5,7603 Norsk króna 5,7903 5.8092 Sænsk króna 6,1281 6,1481 Finnskt mark 9,0657 9,0952 Franskur franki 6,5338 6,5550 Belgiskur franki 1,0540 1,0575 Svissn. franki 27,1802 27,2687 Holl. gyllini 19,6054 19,6693 Vesturþýskt mark 22,0218 22,0935 ítölsk Ifra 0,02998 0,03007 Austurr. sch. 3,1325 3,1427 Portúg. escudo 0,2700 0,2709 Spanskur peseti 0,3258 0,3268 Japanskt yen 0,28877 0,28971 mBssmmœBí • Ljósvakapunktar • Rás 1 18.03 Torgið — Þórir Jökull Þorsteinsson fjallar um byggða- og sveitarstjórnar- mál. • RÓT 22.30 Úr ritgerðarsafninu í umsjón ÁrnaSigurjónssonar og Órnólfs Thorssonar. eftirlit með útlendingum. Ef menn brjóta gegn reglum um vegabréfsáritun, dvalarleyfi eða atvinnuleyfi, eða skilyrð- um sem þeim eru bundin, sama er ef viðkomandi hefur aflað sér leyfis með vísvit- andi röngum upplýsingum. Ef áframhaldandi dvöl viðkom- andi telst hættuleg hagsmunum ríkisins eða almennings. Og loks það er trúlega á við um Paul Watson, efað vist viðkomandi er óæskileg af öðrum ástæð- um. Sé fólki vísað úr landi, getur bæði verið um að ræða varanlega brottvísun eða brottvísun f ákveðinn ára- fjölda. Dómsmálaráðuneytið getur hugsanlega líka breytt þeirri ákvörðun sem tekin hefur verið. Hefði framsals aldrei verið krafist? En hvað hefði gerst ef Paul Watson hefði ekki komið til landsins? Um haustið 1986 strax eftir að hvalbátunum hafði verið sökkt og skemmdarverkin unnin í hval- stöðinni var mikið rætt um að krefjast framsals vegna þeirra tveggja manna sem Watson sendi hingað til að vinnaverkin. En þess hefur ekki verið krafist enn. Að sögn Gunnars G. Schram lagaprófessors eru kröfur um framsal erfið og flókin mál og taka langan tima. „Það er enginn grundvöllur fyrir fram- sali í þessu máli og hefur aldrei verið,“ sagði Jón Sig- urðsson dómsmálaráðherra er hann var inntur álits. Dómsmálaráðherra sagði að hins vegar væri réttarfarsleg nauósyn að yfirheyra mann, ef islensk yfirvöld fá færi á, sem hefur haft í frammi yfir- lýsingar af því tagi sem Paul Watson hefur haft (frammi fyrir sig sjálfan og Sea- Shepherdsamtökin. Þorsteinn Geirsson ráöu- neytisstjóri í dómsmálaráðu- neytinu sagði að aldrei hafi veriö rætt um að fá Watson framseldan, en rætt hafi ver- ið um að fá skemmdarverka- mennina sem hingað komu framselda, en framsalskrafa hafi aldrei verið sett fram. — Ef Watson hefði ekki komið hefði þá ekki orðið neitt framhald á þessu máli? „Þessu máli hefur aldrei verið formlega lokað,“ sagði Þorsteinn. Þó íslensk stjórnvöld hafi nú ákveðið að vísa Paul Watson úr landi, má telja að íslendingar hafi ekki heyrt það síöasta frá honum og verður fróðlegt að sjá hvort hann tvíeflist við mótlætið og berjist af enn frekari krafti gegn hvalveiðum íslendinga. •RUV 21.35 Sjónvarpsfundur í Múlakaffi. Rætt í beinni út- sendingu um kjara- og skattamál. • Stöð 2 20.55 íþróttir á þriðjudegi. Heimir Karlsson sýnir mynd- ir af hugmyndariku íþrótta- fólki. Einn og einn fótbolti slæðist með.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.