Alþýðublaðið - 20.02.1988, Síða 4
4
Laugardagur 20. febrúar 1988
FRÉTTIR
Jóti Sigurðsson viðskiptaráðherra:
VENDIPUNKTUR í VAXTAÞRÓUN
Stuðli kjarasamningar að hjaðnandi verðbólgu lœikka vextir enn frekar.
Jón Sigurösson viðskipta-
ráöherra segir að nú sé
vendipunktur i verðlagsþróun
og vaxtamálum og vextir
muni lækka enn frekar með
hjaðnandi verðbólgu. Aðgerð-
ir rikisstjórnarinnar i skatta—
og tollamálum séu nú að
sýna á sér jákvæðu hliðina.
Áriðandi sé að komandi
kjarasamningar samrýmist
hjöðnun verðbólgu.
Segir Jón aö óhætt sé aö
segja að aögeröir ríkisstjórn-
arinnar séu að skila sér. „Ég
held að nú sé vendipunktur i
verðlags— og vaxtaþróuninni
greinilega að koma fram.
Bakgrunnurinn er auðvitað sá
að aðgerðir ríkisstjórnarinnar
í skatta— og tollamálum eru
nú að sýna á sér hina hliðina,
það er að segja jákvæðu hliö-
ina.“ Beinlínis sé að koma
fram verðlækkun á bygging-
arvísitölunni og hækkun
framfærsluvlsitölunnar í byrj-
un mánaðarins hafi verið
mjög lítil miðað við undan-
farna mánuði, eða innan við
1%, einnig hafi byggingar-
vísitalan lækkað lítillega.
Það feli í sér að lánskjara-
vísitalan fyrir næsta mánuð,
sem samandregin er úr bygg-
ingar— og framfærsluvísi-
tölu, muni sýna mjög litla
hækkun miðað við undan-
farna mánuði, og á ársgrund-
velli verði breytingin um 6%.
Sé litið yfir síðustu mánuði
blasi við verðbólgutölur sem
séu innan við 20%, en miðað
við heilt ár eitthvaö yfir 20%.
Þetta ásamt því að núna séu
merki um lækkun vaxta á
frjálsasta hluta lánamarkað-
arins, að raunvöxtum með-
töldum, eigi nafnvextir að
fara að lækka, enda séu
flestir viðskiptabankarnir að
ákveða lækkun vaxta. Mest
lækkun muni verða hjá spari-
sjóðunum, um 5—6%. „Nafn-
vextir voru orðnir ákaflega
háir, þannig að þetta er alveg
tímabært. Nú ríður á að
kjarasamningarnir sem eru í
deiglunni, geti samrýmst
hjöðnun verðbólgu á árinu og
þá munu vextirnir líka lækka.
Ég sé það að bankastjórarnir
nefna það að lækkun vaxta í
byrjun næsta mánaðar komi
mjög til álita, ef horfur eru á
að verðbólgan haldist í skefj-
GLEDILEGT NÝTT ÁR
Fólkið sem fluttist hingað
frá Víetnam fyrir nokkrum ár-
um hélt upp á nýja árið með
mikilli veislu í fyrradag.
Fjöldi gesta var boðið og
kunnu menn vel að meta
dýrðir gestgjafanna, sem
minntust þess að tímabilið er
annað í föðurlandinu. Þar
gekk nýtt ár í garð 17. febr-
úar. Hér skenkir einn af kokk-
unum á disk og Róbert
myndaði.
Kópavogsvakan 1988:
STUDLAR AÐ AUKNU
MENNINGARLÍFI í BÆNUM
Kópavogsvakan 1988, hefst
á morgun sunnudag og mun
öll dagskrá dagsins verða
fiutt af Kópavogsbúum. Þetta
er í þriðja sinn sem vakan er
haldin og stendur hún fram á
næsta laugardag. Öll dag-
skráratriði fara fram í nýjum
samkomusal Félagsheimilis
Kópavogs.
Kópavogsvakan er lista- og
menningarhátíð þar sem leit-
ast er við að hafa sem fjöl-
breyttasta dagskrá fyrir fólk á
öllum aldri. Það er lista- og
Félag ungra jafnaðar-
manna í Hafnarfirði heldur
upp á 60 ára afmæli sitt í
dag, laugardaginn 20. febr-
úar. Afmælisfagnaðurinn
hefst kl. 15.00 i félagsmið-
stöðinni í íþróttahúsinu við
Strandgötu. Ingvar Viktors-
son bæjarfulltrúi stýrir fagn-
aðinum.
Saga félagsins verður rifj-
menningarráð Kópavogs sem
stendur að vökunni og er
þetta í þriðja sinn sem hún
er haldin. Að sögn Þórönnu
Gröndal, formanns Lista- og
menningarráðs Kópavogs er
tilgangur þessarar hátlðar að
stuðla að auknu menningar-
Iffi meðal bæjarbúa. „Undir-
tektir hafa alltaf verið góðar
og ég býst við að svo verði
einnig nú“ sagði Þóranna.
Kópavogsvakan verður sett
annað kvöld kl. 20.30 með
ávarpi formanns Lista- og
uð upp og ávörp flutt. Jó-
hanna Linnet mun syngja við
undirleik Guðna Þ. Guð-
mundssonar. Núlifandi stofn-
félagar F.U.J. verða heiðraðir
og afmæliskaffi drukkiö.
I kvöld kl. 22.00 verður
grlmudansleikur í Iðnaðar-
mannahúsinu við Linnetstíg
og verða verölaun veitt fyrir
besta grimubúninginn.
menningarráðs Kópavogs og
siðan verður flutt hátíðarstef
eftir Mist Þorkelsdóttur sem
hún samdi sérstaklega í til-
efni vökunnar. Síðan munu
nokkur skáld lesa upp úr
verkum sínum og einnig verð-
ur bæði einsöngur, píanóleik-
ur o.fl.
Næstu daga á eftir heldur
dagskráin áfram, með barna-
skemmtun, popptónleikum,
jazztónleikum og fleiru. Á
þriðjudag verður sýnt leikritið
„Svört sólskin" eftir Jón
Hjartarson og á föstudag
frumsýnir unglingaleikhúsið
leikritið „Vaxtaverkir" eftir
Benóný Ægisson. Kópavogs-
vökunni lýkur síðan með al-
mennum dansleik og mun
Hljómsveit Torfa Ólafssonar
leika fyrir dansi. Einnig mun
Rió tríó koma fram og flytja
nýjan Kópavogsbrag.
I anddyri Félagsheimilisins
mun Björgvin Pálsson, Ijós-
myndari, bæjarlistamaður
Kópavogs 1987, sýna afrakst-
ur vinnu sinnar.
F.U.J. HAFNARFIRÐI 60 ÁRA
um.
Segist Jón eiga von á að
Seðlabanki íslands tilkynni
lækkun dráttarvaxta eftir
helgi, og sömuleiðis vexti í
viðskiptum Seðlabankans við
aðra banka og sína viðskipta-
vini.
„Þetta er ákaflega mikil-
vægt að gerist einmitt nú
þegar kjarasamningar standa
yfir, og er fyrirboði þess sem
koma skal, ef við náum þar
góðri lendingu."
Að sögn Jóns er áfram-
haldandi þróun þó ekki að
öllu leyti undir kjarasamning-
um komin, heldureinnig und-
ir aðgerðum stjórnvalda. Þar
sé mikilvægast að grípa til
ráðstafana er dragi úr þenslu,
á grundvelli samþykktra fjár-
laqa og lánsfjárlaga, og reyna
að halda aftur af framkvæmda-
áformum sem ekki séu full-
mótuð. Áríðandi sé að menn
nýti sér þau skil sem nú séu
að verða í verðlags— og
vaxtamálum, til að ná betri
árangri á næstunni.
— Munu stjórnvöld blanda
sér í kjarasamninga?
„Við viljum ekki hafa um
það mörg orð á þessu stigi
málsins. Við viljum stuðla
þar að affarasælli nióur-
stöðu, niðurstöðu um hóf-
lega peningahækkun, en sér-
staklega að gera ráðstafanir
til að tryggja kjara— og rétt-
arbætur handa því fólki sem
lægst hefur launin og reyna
að takmarka það viö það
svið,“ segir Jón Sigurðsson
viðskiptaráðherra.
Ullarvörur til Sovét:
SAMID. í ÞESSUM
MANUDI?
Jón Sigurðarson forstjóri
Álafoss, segir að von sé til
að til tíðinda dragi í mánuð-
inum varðandi sölu á ullar-
vörum til Sovétríkjanna.
Vegna tafa á samningum hafi
þurft að gripa til þess ráðs
að stytta vinnuvikuna hjá 160
manns, en ekki hafi verið
gripið til uppsagna ennþá.
Segir Jón að viðræður séu
í gangi og þær gangi nú
Alþýðuhúsið Iðnó:
„VILJI TIL
AÐ SELJA
Alþýðuhúsið Iðnó sem
hýst hefur starfsemi Leikfé-
lags Reykjavíkur í áratugi
mun að öllum líkjundum
verða selt þegar Leikfélagið
flytur starfsemi sína i nýja
Borgarleikhúsið. Að sögn
Jón Árnasonar, hjá Iðnó, þyk-
ir það ekki ýkja spennandi
kostur að leigja húsið öðrum
leikfélögum. Enginn kaup-
andi hefur verið ákveðinn, en
þó sagði Jón að Reykjavikur-
borg væri sá aðili er þeir
hefðu hugsað sér.
Nýja Borgarleikhúsið verð-
ur að öllum líkjundum tekið í
notkun haustið 1989 og mun
þá öll starfsemi Leikfélags
Reykjavíkur flytjast þangað.
Leikskemman við Meistara-
velli verður rifinn og Iðnó
mun standa autt. Jón Árna-
son, hjá Iðnó, sagði í samtali
við Alþýðublaðið að ekki væri
farið að ræða þessi mál neitt
að ráði. Þó væri vilji fyrir að
selja ef einhver vildi kaupa.
Aðspurður sagði Jón að
ekki kæmi til greina að leigja
öðrum leikfélögum húsið þar
sem þau ættu alltaf í fjár-
hagslegum erfiðleikum. „Þau
hafa ekkert komið til greina
og það er ekkert áhugavert
að tala við þau“ sagði Jón.
— Hvers vegna ekki? Þau eru
alltaf í vandræðum fjárhags-
lega, geta ekkert."
— Hafið þið einhvern
sérstakan kaupanda í huga?
Já, við höfum borgina í huga,
en ég veit ekki hvort hún vill
kaupa."
hraðar fyrir sig en áður, og
allar ástæður séu til að ætla
að til tíðinda dragi í þessum
mánuði.
Samningarnir snúist m.a.
um verð og verðsamanburð
við annan ullarinnflutning til
Sovétríkjanna, og samanburð
á því verði sem við fáum í
Sovétrlkjunum og annars
staðar. Grundvöllurinn að við-
skiptum þjóðanna sé „heims-
markaðsverð“, við kaupum
þaðan olíu
á heimsmarkaðsverði og
ætlumst til þess að sama
gildi um vörur sem við
seljum Sovétmönnum. Og
hafi íslendingar marg endur-
tekið þau rök.
— Hvað þýðir þessi töf fyrir
ykkur?
„Hún þýðir það, að núna
erum viö að byrja að hægja á
hjólunum. Við erum byrjaðir
að senda fólk heim, og það
fær þar atvinnuleysisbætur,
en við höfum enn ekki gripið
til uppsagna." Vinnuvikan
hafi verið stytt hjá um 160
manns niður í fjóra daga hjá
sumum og hún sé að verða
engin hjá öðrum. Um leið og
samningar takast, muni öll
starfsemi hefjast af fullum-
krafti aftur.____________
BIÐJA UNI
59,7%
HÆKKUN
Samstarfsnefnd islensku
bifreiöatryggingafélaganna
telur að iögjöld bifreiðatrygg-
inga þurfi að hækka verulega
1. mars næstkomandi.
Grunntaxtar lögboðinna
ábyrgöartrygginga þurfi að
hækka um 59,7%.
Samkvæmt nýjum umferð-
arlögum er nú tekin upp ný
skyldutrygging, slysatrygging
ökumanns og eiganda. Ið-
gjöld vegna hennar nema
3000 krónum á ári. Iðgjöld
vegna húftrygginga (kaskó)
þurfa að mati félaganna aö
hækka um 28% og iðgjöld
vegna framrúðutryggingar
þ'urfa að hækka um 38,6%.