Alþýðublaðið - 22.03.1988, Side 4

Alþýðublaðið - 22.03.1988, Side 4
4 Þriðjudagur 22. mars 1988 NORSKIR BÓKADAGAR Haldnir í Norrœna húsinu 23.-28. mars MENNING Óskar Vistdal, sendikennari i norsku skrifar Á morgun, miðviku- daginn 22. mars, hefjast Norskir bókadagar í Norræna húsinu og er um að rœða umfangs- mikla kynningu á norskum bókmenntum fyrr og nú. Stendur kynningin yfir í tœpa viku eða til 28. mars n.k. Fjöldi gesta úr norskum bókmennta- heimi mun gista Island meðan á Norsku bóka- dögunum stendur sem bœði munu kynna norskar bókmenntir og lesa úr verkum sínum. Alþýðublaðið bað Óskar Vistdal, norskan sendikennara við Há- skóla Islands að rita pistil um Norsku bóka- dagana og greina les- endum frá því sem þar verður á boðstólum. Norsku bókadagarnir eru nýjung í bókmenntakynning- unum, sem eiga sér langa hefð í Norræna húsinu. Auk hefðbundinna bókakynninga verður lögð sérstök áhersla á eitt land í einu, sem þá er kynnt ýtarlegar með bóka- sýningum, rithöfundaheim- sóknum og fyrirlestrum. Nor- egur varð fyrstur fyrir valinu, næsta skipti verður eitthvert annað Norðurland. Við stefnum að fjölbreyttri dagskrá og aétlum að kynna bæði Ijóðlist, leiklist og prósa, sígildar bókmenntir og nútímabókmenntir, barnabók- menntir og bækur fyrir full- orðna. Við byrjum með Henr- ik Ibsen, helsta skáldjöfri Norðmanna. Það er eðlilegt, þar sem allar leiðir nútima- leiklistarinnar leiða til Ibsen, reyndar viðar en á Norður- löndum. Ibsen-dagskrá Ibsen-dagskráin hefst með því að danski bókmennta- fræðingurinn Henrik el Bandak fjallar um áhrif Sor- ens Kierkegaard á Ibsen í er- indi sem verður flutt í stofu 101 i Odda, þriðjudaginn 22. mars kl. 17.15. Á mióvikudagskvöldið 23. mars kl. 20.30 verða valdir kaflar úr „Pétri Gaut“ í snilld- arlegri þýðingu Einars Benediktssonar fluttir í Nor- ræna húsinu af Gunnari Eyj- ólfssyni ásamt öðrum leikur- um frá Þjóðleikhúsinu. Knut Odegaard, forstjóri Norræna hússins, mun tengja saman atriðin og segja frá skáldinu. Rétt er að taka fram að leikfélag Reykjavíkur setti „Pétur Gaut“ á svið í fyrsta skipti hér á landi árið 1944. Stjórnandi var Gerd Grieg, eiginkona norska skáldsins Nprdahls Grieg, sem dvaldist á íslandi á stríðsárunum. Að sögn Tómasar Guðmunds- sonar „er vafasamt hvort nokkur útlendingur hafi öðl- ast skáldlegri og persónu- legri skilning á leyndarmál- um íslenzkrar náttúru eða lit- ið íslenzkt eölisfarog lífs- baráttu skyggnari augum". Sérstök dagskrá er helguð honum pálmasunnudaginn 27. mars kl. 20.30. Kjölv Egeland, fyrrverandi menntamálaráðherra Noregs mun flytja erindi um skáldið Nordahl Grieg og Hjörtur Pálsson rithöfundur les m.a. stórbrotna Þingvallakvæðið hans í þýðingu Magnúsar Asgrímssonar. Ljóðlist og barnabœkur Hjörtur Pálsson mun einn- ig lesa eigin þýðingar á norskri Ijóölist, m.a. eftir Rolf Jacobsen, fimmtudagskvöld- ið 24. mars kl. 20.30 í Nor- ræna húsinu. Þá flytur Finn Jor, menningarstjóri Aften- postens, fyrirlestur um norska nútímaljóðlist. Vert er að vekja sérstaka athygli á barna- og unglinga- bókmenntum, bókmennta- grein þar sem sérstaklega mikið gerist í Noregi um þessar mundir. Það er dæmi- Meðal þeirra norsku rithöfunda sem koma til islands og lesa úr verkum sinum á Norskum bóka- dögum i Norræna húsinu, er Kjell Askildsen. Hann er fæddur 1929 og gaf út sina fyrstu bók sem var smásagnakver 1953. Askildsen er ekki ýkja afkastamikill höfundur i skilningi magnsins, hefur gefiö út niu bækur á 34 árum. En þess heldur er hann orðaður fyrir nákvæmni, yfirvegun og mikil gæöi og er talinn helsti smá- sagnahöfundur Noregs í dag og meö fremstu pennum Evrópu. Hann les úr verkum sinum i Norræna húsinu laugardaginn 26. mars. ítarleg Ibsen dagskrá verður á boðstólum í Norskum bóka- dögum. Meðal annars mun Knut Ödegárd segja frá skáldinu og tengja saman leikatriði sem ís- lenskir leikarar fiytja á morgun i Norræna húsinu kl. 20.30. Hér sést Ibsen kíkja á norska Þjóðleik- húsiö í Osló. Teikning: Ulf Aas (Aftenposten). gert að tveir þekktustu rithöf- unda landsins á alþjóðavett- vangi, þau Thorbjorn Egner og Anne-Cath. Vestly, eru einmitt barnabókahöfundar. Tveir dagar eru ætlaðir barnabókmenntum, fimmtu- dagur 24. og sunnudagur 27. mars. Heiðursgestur er Anne- Cath. Vestly, sem flestir ís- lendingar þekkja, m.a. af þýð- ingum Stefáns Sigurðssonar og Margrétar Örnólfsdóttur. Anne-Cath. segir frá ritstörf- um sfnum pálmasunnudag- inn kl. 14.00. Ingibjörg Haf- stað ásamt nemendum I norsku við Háskóla Islands annast bæði fjölbreytta dag- skrá fyrir börn og kynningu á stefnum og straumum í barnabókmenntum 24. mars kl. 14.00 og 16.00. Eiginmaður Önnu-Cath., Johan Vestly, sýnir myndskreytingar sínar á bókum hennar í bókasafni Norræna hússins. Norskar nútímabókmenntir Óskar Vistdal, norskur sendikennari við Háskóla ís- lands, ætlar að kynna úrval úr helstu skáldverkum síð- asta árs, laugardaginn 26. mars. Sérstakur gestur verður Kjell Askildsen, einn fremsti smásagnahöfundur Noregs um þessar mundir. Hann fæddist áriö 1929 og hefur á tímabilinu 1953-87 sent frá sér samtals tíu skáldsögur og smásagnasöfn. Fleiri verka hans hafa verið þýdd, einkum á þýsku, og Kjartan Árnason og Gunnhildur Gunnarsdóttir hafa íslenskað tvær smásögur eftir hann. í febrúar síðastliðnum sýndi Ríkissjónvarpið kvikmyndina „Carl Lange“, sem byggist á samnefndri smásögu eftir Kjell Askildsen. Hún var birt í fyrsta sinn árið 1983 en kom út aftur í fyrra í kverinu „En plutselig frigjorende tanke“. Fyrir þá bók hlaut Askildsen norsku ríkismálsverðlaunin 1987. Mikil gróska er í norskum bókmenntum um þessar mundir. Höfundar eins og Edvard Hoem og Tor Áge Bringsvard, sem báðir gáfu út veigamiklar skáldsögur á árinu sem leið og voru tii- nefndar af hálfu Noregs til bókmenntaverðlauna Norður- landaráðs í ár, eru tvímæla- laust í fremstu röð I norræn- um nútímabókmenntum. Sama má auðvitað segja um Kjell Askildsen og Dag Sol- stad og ekki síst Kjartan Flogstad og Jan Kjærstad, helstu fulltrúa furðuraun- sæisins í Noregi. Vísur og upplestur Að loknum bendum við á vísna- og upplestrarkvöldið með Eiríki Bye söngvara og Willy Andresen píanóleikara föstudaginn 25. mars kl. 20.30. Eiríkur Bye er einnig afkastamikill rithöfundur og ef til vill vinsælasti sjón- varpsmaður Noregs — Magnús Magnússon og Óm- ar Ragnarsson í einum manni. Síðasti dagurinn, 28. mars, er ætlaður norskum bók- menntum í íslenskri þýðingu. Heimir Pálsson talar um þýð- ingar úr Norðurlandamálum almennt og sérstaklega um eigin þýðingar á verkum eftir Tarjei Vesaas og Johan Borg- en. Matthías Kristiansen les úr þýðingu sinni á skáldsög- um Jóhannesar Hegglands og Þorsteinn Gunnarsson leikari flytur kafla úr „Norður- landstrómet" eftir barokk- skáldið Petter Dass í islensk- um málbúnaði dr. Kristjáns Eldjárns.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.