Alþýðublaðið - 30.03.1988, Blaðsíða 1
PLO-málið á ríkisstjórnarfundi:
STEINGRÍMUR BAKKAÐI
Mun sennilega senda frá sér fréttatilkynningu um rangtúlkun PLO-manna
Steingrímur Hermannsson
utanríkisráðherra dró til baka
á ríkisstjórnarfundi i gær
flestallar yfirlýsingar sínar
varðandi fund sinn með dr.
Eugene Mahkluf, talsmanni
PLO í Stokkhóimi á dögun-
um. Samkvæmt heimiidum
Alþýðublaösins viðurkenndi
utanríkisráöherra að allur
fréttaflutningur PLO af fund-
inum væri mjög villandi.
Alþýðublaðið hefur það
eftir áreiðanlegum heimild-
um, að Steingrímur Her-
mannsson utanríkisráðherra
hafi á ríkisstjórnarfundi í
gær, viðurkennt að allur
fréttaflutningur PLO-manna
af fundi hans og dr. Eugene
Makhluf í Stokkhólmi á dög-
unum hafi verið mjög vill-
andi. í máli utanríkisráðherra
kom fram, að í fyrsta lagi hafi
islenska ríkisstjórnin ekki
lýst því yfir að PLO væru lög-
mætir fulltrúar palestínsku
þjóðarinnar, og í öðru lagi sé
það misskilningur að utan-
ríkisráðherra hafi skuldbund-
ið sig til viðræðna við full-
trúa PLO á íslandi eða í
Túnis.
Steingrímur Hermannsson
utanrikisráðherra fékk fyrir-
spurn á ríkisstjórnarfundin-
um, hvort hann væri reiðubú-
inn að senda út fréttatilkynn-
ingu þess efnis að rangt hafi
verið eftir honum haft af
PLO-mönnum og tók utan-
ríkisráðherra vel í það.
GUÐJÓN FÉKK
100 MILUÓNIR
Á SEX ÁRUM
Laun tii Guðjóns B. Ólafs-
sonar hjá lceland Seafood á
árunum 1980-1986 námu um
2.3 milljónum dollara. Þá
greiddi fyrirtækið einnig 200
þúsund vegna lifeyris-
greiðslna. Agreiningur um
umframlaun á þessu tímabili,
hefur staðið um 500-600 þús-
und dollara. Heildarlaun Guð-
jóns B. Ólafssonar á sex
árum námu þvi yfir 100
milljónum íslenskra króna.
Þessar upplýsingar komu
m.a. fram á blaðamannafundi
sem Valur Arnþórsson stjórn-
arformaður SÍS hélt í gær,
þar sem hann skýrði afstöðu
stjórnar til ágreinings um
launamálin. Fjallað var um
málið á stjórnarfundi í gær
og ályktað að ágreiningurfnn
hafi að fullu verið skýrður.
Málinu ætti því að vera lokið
af hálfu stjórnar SÍS.
Á stjórnarfundi SIS í gær
var einnig fjallað um bréf
sem borist hafði frá Eysteini
Helgasyni fyrrum forstjóra
SÍS. Samþykkt var að Ijúka
hið fyrsta samningum við
hann og aðstoðarforstjórann
Geir Magnússon um starfs-
lokalaun.
Guðjón B. Ólafsson og Valur Arn-
þórsson fyrir stjórnarfundinn i
gær. AB-mynd/Róbert.
Breytingar á húsnœðiskerfinu
HÚSBRÉF í STAÐ LÁNA?
Vinnuhópur sem Jóhanna
Sigurðardóttir skipaði til að
vinna aö endurskoðun á hinu
almenna húsnæðislánakerfi
leggur til aö upp verði komið
kerfi, sem í stað beinna lána
til íbúðarkaupa bjóði upp á
skuldabréfaskipti. í þvi felst
að ibúðarkaupandi gefur út
skuldabréf fyrir láni þvi sem
hann fær hjá seljanda og
megi síöan skipta því fyrir
ríkistryggt og markaðshæft
húsbréf hjá Húsnæðisstofn-
un eða hjá sérstakri hús-
bréfamiðlun sem komið yrði
á fót, eða kaupandi annaðist
skuldabréfaskiptin og afhenti
seljanda húsbréfin.
A blaðamannafundi sem
f.élagsmálaráðherra hélt í
gær, var kynnt álitsgerð
vinnuhóps er ráðherra skip-
aði í lok janúar s.l. til að gera
tillögur um þá kosti sem fyrir
hendi eru um framtíðarskip-
an almenna húsnæðislána-
kerfisins.
Leggur vinnuhópurinn fram
þrjá kosti um framtíðarskipan
húsnæðislánakerfisins. í
fyrsta lagi verði núverandi
kerfi haldið í megindráttum
þannig að áfram verði byggt
á lánsloforðum og föstum
lánsfjárhæðum, en kerfið
endurbætt með lækkun láns-
fjárhæða, aukinni fjárútvegun
og styttingu endurgreiöslu-
tima á lánum til íbúðaskipta.
Telur hópurinn að ekki náist
jafnvægi með þessari aðferð.
I öðru lagi breytilegar láns-
fjárhæðir eftir því sem út-
lánageta leyfir og lánveiting-
ar háðar raunverulegum fast-
eignaviðskiptum, en ekki
óskum um þau. Telur hópur-
inn að í þessari leið felist
mikil lækkun lánsfjárhæða
og óvissa fyrir fólk í fast-
eignaviðskiptum.
Sú leið sem vinnuhópurinn
telur álitlegasta, er að í stað
beinna lána til íbúðakaupa,
verði tekið upp kerfi skulda-
bréfaviðskipta húsbréfamiðl-
unar. Þetta fyrirkomulag sé
vel þekkt erlendis og felst i
því, að íbúðarkaupandi gefur
út skuldabréf fyrir láni því
sem hann fær hjá seljanda.
Því megi síðan skipta fyrir
ríkistryggt og markaðshæft
húsbréf. Þetta muni stuðla
að víðtækari og meiri innri
fjármögnun og verulegri
lækkun útborgunarhlutfalis.
Kerfið tengist núverandi til-
högun með auðveldum hætti
og gæti átt þátt í þvi að eyða
nuverandi biðröðum fyrr en
ella.
Sagði félagsmálaráðherra
að næsta skref yrði að ræða
við aðila vinnumarkaðarins
um þessi mál og myndi fram-
haldið skýrast eftir það.
Sagðist hún telja að sú leið
sem vinnuhópurinn mælti
með virtist vera væniegust.
Hún muni leggja allt i að
þessi mál verði frágengin
fyrir næstu áramót og vonað-
ist til að ekki kæmi til lokana
í húsnæðiskerfinu i ár, eins
og s.l. ár.