Alþýðublaðið - 14.04.1988, Blaðsíða 8
MMMIBLOIS
Fimmtudagur 14. apríl 1988
„VIÐ ERUM ÖLLU VÖN í ÞESSU MÁLI“
segir Kjartan Lárusson framkvœmdastjóri Ferðaskrifstofu ríkisins um endurnýjuð áform
stjórnvalda um sölu fyrirtœkisins skv. nýju stjórnarfrumvarpi.
Aö sögn Kjartans Lárus-
sonar framkvæmdastjóra
Feröaskrifstofu ríkisins,
veröa ekki breytingar á starf-
semi Ferðaskrifstofunnar á
alira næstu árum þó að hún
verði seld einkaaðilum eins
og gert er ráð fyrir i nýju
stjórnarfrumvarpi. „Skuld-
bindingar Ferðaskrifstofu rík-
isins eru slikar að það geta
ekki orðið neinar veigamiklar
breytingar á allra næstu ár-
um,“ segir hann.
„Þetta frumvarp er enn
ekki komið í gegnum þingið
og reyndar er það ekkert nýtt
að stjórnmálamenn hafi uppi
áform um að selja Ferðaskrif-
stofuna. Við erum orðin öllu
vön í þeim efnum og vonum
bara að nú muni linna þess-
ari umræðu, sem staðið hef-
ur í mörg ár um að selja eða
selja ekki Ferðaskrifstofu rík-
isins eða leggja hana niöur.
Það verður bara að koma í
Ijós hver niðurstaðan verður
að þessu sinni,“ segir hann.
Samkvæmt frumvarp sam-
gönguráðherra um sölu
Ferðaskrifstofunnar er lagt til
að heimilt verði að selja fyrir-
tækið í heild sinni en starfs-
menn hennar skuli á næstu 6
mánuöum eiga forkaupsrétt
að fyrirtækinu. „Ríkisstjórnin
muni beita sér fyrir stofnun
hlutafélags um reksturinn til
að greiða fyrir sölunni.
Aðspurður segir Kjartan að
starfsfólk Ferðaskrifstofunn-
ar hafi ekki tekið neina
afstöðu til þess hvort það
muni nýta sér forkaupsrétt
sinn. Samkvæmt núgildandi
lögum er starfsmönnum
heimilt að kaupa allt að 30%
hlutafjár í fyrirtækinu.
„Viö viljum biða eftir niður-
stööu málsins á Alþingi og fá
upplýsingar um verð fyrirtæk-
isins og greiðsluskilmála áð-
ur en hver og einn gerir það
upp við sig hvort hann hefur
vilja og getu til að kaupa hlut
í fyrirtækinu," segir Kjartan.
Starfsmenn Ferðaskrif-
stofu ríkisins eru nú 20 og
taka allir laun skv. kjarasamn-
ingum opinberra starfs-
manna. Frumvarpið gerir ráö
fyrir því að fastráðnir starfs-
menn Ferðaskrifstofunnar
eigi áfram kost á að starfa
hjá fyrirtækinu þótt af sölu
verði til einkaaðila.
Ferðasumarið '88
ÓVÍST UM FJÖLGUN
ERLENDRA FERDAMANNA
Lítið er gert til að hvetja Íslendínga til að ferðast um landið sitt. Á sama
tima stórauka ferðaskrifstofur útflutning ferðamanna.
Taumlítiil bílainnflutningur
gefur þeim sem starfa við
ferðaþjónustu ástæðu til
bjartsýni á komandi sumar.
Einn þeirra segir i samtali við
Alþýðublaðið: „Við íslending-
ar eigum núna þennan stóra
og glæsilega bilaflota og
þess vegna hljótum við að
nota bilana okkar í vaxandi
mæli til að ferðast hér innan-
lands.” Kjartan Lárusson
framkvæmdastjóri Ferða-
skrifstofu rikisins segir að til
marks um vaxandi ferðalög
íslendinga innanlands megi
vera að nú er tæplega helm-
ingur allra gesta á þeim 18
Edduhótelum sem Ferða-
skrifstofan rekur, íslenskir
ferðamenn.
Á siðasta ári jókst enn tala
erlendra ferðamanna sem
sækja ísland heim. Alls
komu þá 129.315 erlendir
gestirtil landsins. Heldur er
þó farið að draga úr þeim öra
vexti túristaheimsókna sem
merkja mátti fyrir fáum árum.
Nú telja menn að varla megi
búast við mikilli aukningu frá
síðasta ári. Hjá nokkrum hót-
elum i Reykjavík fengum við
þær upplýsingar að bókanir
fyrir sumarið væru svipaðar
og á sama tíma I fyrra. „Enn
er þó alltof snemmt að segja
til um þetta því við erum ekki
komin að þeim tímapunkti
þegar afbókanirog breytingar
verða", segir Einar Olgeirs-
son hótelstjóri á Hótel Esju.
Á slðasta sumri var mjög
góð nýting á Flugleiðahótel-
unum en nú hefur enn bæst
við hótelrýmið, 50 herbergja
viðbót á Hótel Sögu, og 100
herbergi á Holiday Inn, og er
talið að samkeppni fari
harðnandi.
Hótelrými í Reykjavik í dag
er á bilinu 800-900 herbergi
sem skiptist þinnig á milli
stærstu hótelanna: Loftleiðir:
218 herb., Saga: 218 herb.,
Esja: 134 herb., Holiday Inn:
100 herb., Hótel Holt: 49
herb., Hótel Borg: 46 herb.,
Hótel Lind: 44 herb. og Óð-
insvé: 28 herbergi. Nú heyrist
lítið um frekari nýbyggingar
hótel og stækkanir. Olafur
Laufdal mun hafa frestað
opnun Hótels íslands um eitt
ár og ekki er vitað um aðrar
hótelfjárfestingar í bráð enda
hafa menn komist að raun
um að gífurlegur kostnaður
fylgir hótelbyggingum, „i dag
kostar það 3-4 milljónir á
hvert herbergi að reisa hót-
el,“ segir einn viðmælandi
blaðsins.
Matsöluskattur
veldur áhyggjum
Hvergi er talið að sam-
keppni verði harðari í sumar
en á milli matsölustaða á
höfuðborgarsvæðinu. Á síð-
ustu 4 árum hafa sprottið
upp 130 smærri matsölustað-
ir sem berjast hart um kúnn-
ann. Það veldur mörgum
áhyggjum hve verölag hefur
hækkað og gæti það fælt
erlenda ferðamenn frá í stór-
um stíl. „Nú er kominn þung-
ur skattur á alla matarsölu og
matur á íslandi er óskaplega
dýr. Ef við berum okkur sam-
an við nágrannaþjóðirnar er
staða okkar einstök, við höf-
um ekki úr neinu að velja,
verðum að kaupa rollukjöt og
nautakjöt af bændum því það
er einokun á allri matvöru
hér,“ segir Einar Olgeirsson.
Kjartan Lárusson kveðst
ekki eiga von á mikilli aukn-
ingu ferðamanna til íslands í
sumar „og við finnum meira
fyrir því nú en endranær að
verðlag á íslandsferðum hef-
ur hækkað. Það er ástæða til
að óttast þá þróun,“ segir
hann. „Enn er þó síðasti hluti
sölutimabilsins eftir og
reynsla kennir okkur að ef
vorar vel i Evrópu þá kemur
alltaf mikið af síðbúnum bók-
unum í íslandsferðir."
Viðskiptin flutt úr landi
Birgir Þorgilsson ferða-
málastjóri bendir á að nú
blasi við stórt sumar hjá út-
flytjendum ferðamanna. Á
síðasta ári ferðuðust 142.800
íslendingar erlendis sem var
28% aukning frá árinu áöur
og nú blasirenn stærri vertíð
við. „Við hjá Ferðamálaráði
höfum af veikum mætti reynt
að hvetja íslendinga til að
ferðast innanlands og erum
með auglýsingaprógramm í
gangi, en það nærekki langt
á móti gifurlegu auglýsinga-
magni ferðaskrifstofanna
sem bjóða ódýrar utanlands-
ferðir. Það vantar tilfinnan-
lega áhuga hjá ferðaskrifstof-
unum á að bjóða upp á inn-
anlandsferðir.“
Að sögn Birgis hefur
Ferðamálaráð staðið fyrir 15
ferðasýningum í Evrópu til aö
laða erlenda gesti til Islands
I sumar og tekið þátt i 24
ferðasýningum í Bandaríkjun-
um. „Það sem veldur mestri
óvissu um komu ferðamanna
til íslanas i ár er hækkun
verðlags í landinu. Ferðir um
ísland eru nánast skattlagðar
við hvert fótmál á sama tíma
og eini skatturinn á utan-
landsfara er 750 króna flug-
vallarskattur. Með þessum
miklu utanlandsferðum erum
við að skapa mikil viðskipti
við ferðamenn erlendis á
sama tíma og sáralítið er gert
til að selja feröir innanlands
fyrir íslendinga," segir Birgir
Þorgilsson.
□ 1 2 3 □ 4 " ’
5
6 □ 7
9
10 □ 11
□ 12
13 a
• Krossgátan
Lárétt: 1 megnar, 5 loforð, 6
fátæk, 7 ekki, 8 skartgripurinn,
10 samstæðir, 11 heiður, 12
hljóðar, 13 peningar.
Lóörétt: 1 hópurinn, 2 gufu, 3
eins, 4 illur, 5 versla, 7 hlífir, 9
nauma, 12 kind.
Lausn á siðustu krossgátu.
Lárétt: 1 græða, 5 bráð, 6 lið, 7
gg,8akstur, 10NK, 11 óma, 12ól-
ar, 13 ansir.
Lóörétt: 1 grikk, 2 ráðs, 3 æð, 4
angrar, 7 gumar, 9 tóli, 12 ós.
* OengiJ
Gengisskráning 70 - 13. apríl 1988
Bandaríkjadollar
Sterlingspund
Kanadadollar
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Finnskt mark
Franskur franki
Belgiskur franki
Svissn. franki
Holl. gyllini
Vesturþýskt mark
itölsk líra
Austurr. sch.
Portúg. escudo
Spanskur peseti
Japanskt yen
Kaup Sala
39,120 39,240
72,210 72,431
31,650 31,748
6,0375 6,0660
6,2288 6,2479
6,5798 6,6001
9,6712 9,7009
6,8228 6,8437
1,1059 1,1093
27,9558 28,0426
20,6182 20,6815
23,1377 23,2086
0,03122 0,03130
3,2928 3,3029
0,2830 0,2838
0,3492 0,3503
0,30888 0,30983
•Ljósvakapunktar
• RUV
20.35 Kastljós. Helgi H.
jónssont fær stund milli
stríða og stjórnar innlendum
fréttaskýringaþætti.
23.40 Útvarpsfréttir í dag-
skráriok og síðan skyggna
kvöldsins.
• Stjarnan
9.00 Jón Axel verður í alveg
æðislegu stuði.
• Rás 1
22.20 Eitthvað þar... Ný þátta-
röð um erlenda óþýdda rit-
höfunda. í fyrsta þættinum
eru kynntir bandarisku rit-
höfundarnir Shange og
Bataka. Umsjónarmenn eru
Freyr Þormóðsson og Kristín
Ómarsdóttir.
•RÓT
21.30 UngKratar reyna árang-
urslaust að vekja Þyrnirós.