Alþýðublaðið - 19.04.1988, Blaðsíða 1
Þing Landssambands Iðnverkafólks:
IÐNAÐARRÁÐHERRA OPINSKÁR
UM 6ENGISFELLINGU
Landssambandið varar við og segir að óbœtt gengisfelling verði ekki þoluð. Friðrik
Sophusson: „Stjórnvöld komast ekki hjá því að taka á gengismálum fyrr en síðar. “
Á þingi Landssambands
iðnverkafólks um helgina
sagði Friðrik Sophusson iðn-
aðarráðherra að ef laga ætti
viöskiptahallann meö þeim
aðgerðum sem helst duga þá
verði að fella gengi krónunn-
ar. í ávarpi sínu i upphafi
þingsins sagði Friðrik að
gengisfelling hefði enga þýð-
ingu ef ekki yrði hægt að
verja afleiðingar hennar en
„Það breytir ekki þvi að við
þarf að bregðast og ég hef
kosið að tala nokkuð
hreinskilnislega um þetta
mál. Ég held aö við komumst
ekki hjá þvi stjórnvöld, að lita
á þetta mál og leysa það...
Stjórnvöld komast ekki hjá
því að takast á viö gengis-
málin fyrr en síðar,“ sagði
ráðherra.
í ályktun sem gerð var á
þinginu vegna þessara um-
mæla ráðherra segir: „Frá-
leitt er að ætla launafólki að
taka á sig áföllin af óráðsíu i
þjóðfélaginu. Það er fráleitt
að kenna láglaunafólki um
viðskiptahallann og verðbólg-
una. Gengisfelling sem ekki
yrði bætt í kaupi og yki enn á
ójöfnuðinn verðurekki þoluð.
Þingið heitir á heildarsamtök-
in að vera viðbúin því að
beita afli sínu til varnar lífs-
kjörum launafólks ef að þeim
verður vegið."
Guðmundur Þ. Jónsson
formaður Landssambandsins
segir í samtali við Alþýðu-
blaðið: „Það er augljóst mál
að ef kemur-til þess að það
verði gerðar efnahagsráðstaf-
anir sem koma við okkur og
ekki bætt við kaupið, þá veró
um við að rísa upp til varnar
okkar kjörum. Við gerðum
mjög hógværan samning að
okkar dómi,“ segir Guðmund
ur. „Að vísu tókst okkur ekki
að tryggja þann kaupmátt,
sem við höfðum á síðasta ári
en allar aðgeröir sem lúta að
þvi að skerða okkar kjör
hvorki getum við né megum
líða.
^''^mundur sagði enn-
I'mui .ið fyrir lægi yfirlýsing
‘ tjórnvalda um aö verja
'.amningana, „og ég veit ekki
betur en þeir hafi talað um
það hr gar samningarnir voru
gerðir, að þeir sprengdu ekki
efnaiiugsrammann.“
(Sjá fréttaskýringu bls. 5
im efnahagsstefnu stjórnar-
mnar og gengismál.
Hafnfirskir slökkviliðsmenn i rústum Hjólbarðasólunar Hafnarfjarðar, þar sem milljónatjón varð i eldsvoða i
fyrrinótt. A-mynd/Róbert.
Virðisaukaskatturinn:
DANSKIR RÁÐ-
GJAFAR í VASKINN
Fjánnálaráðherra biður danskan starfsbróður sinn
um ráðgjöf við framkvœmd virðisaukaskattsins.
Til stendur i fjármálaráöu-
neytinu að fá danska ráðgjafa
til aðstoðar við útfærslu virð-
isaukaskattsins ef stjórnar-
frumvarpid urp skattkerfis-
breytinguna fær afgreiðslu á
þessu þingi.
Virðisaukaskatturinn
(„vaskurinn" eins og hann er
kallaður meðal sérfræðinga)
á skv. frumvarpinu að ganga í
gildi á miðju næsta ári. Ef
formlega verður gengið frá
þessari umleitan við dönsk
stjórnvöld, munu einn eða
fleiri danskir ráðgjafar koma
hingað til starfa i sumar.
Að sögn Jóns Baldvins
Hannibalssonar, fjármálaráð-
herra, er það starfsbróðir
hans í Danmörku sem mun
Ijá sérfræðinga til þessarar
ráðgjafar. „Það kerfi sem við
viljum taka hér upp er í öllum
höfuðatriðum líkast því
danska. Þess vegna leitum
við til þeirra,“ segir fjármála-
ráðherra. „Þeir hafa mikla
reynslu af útfærslu virðis-
aukaskatts og geta miðlað
okkur af þeirri reynslu við
margvísleg kynningar- og
undirbúningsatriði.“'Sagði
ráðherra að ráðgjöf þessi
gæti sparað útgjöld vegna
þess að virðisaukaskatturinn
krefðist mikillar undirbún-
ingsvinnu og af honum höf-
um við enga reynslu.
Dönsku ráðgjafarnir menu
m.a. aðstoða við útfærslu í
reglugerðum’ miðlun upplýs-
inga til fyrirtækja og ráðgjöf
um bókhald, auk fjölmargra
óvissuatriða sem fylgja því
að skipta yfir úr söluskatti i
virðisaukaskatt.
HÉRADARÍGUR
í sjávarútvegi
„Það er Ijóst aö i þessu er
mikill héraðarígur. Mönnum
vex í augum velta og umfang
á suðvesturhorninu og vilja
ógjarnan auka við með því að
selja fiskinn hér. Það er
slæmt og óeðlilegt, en tog-
streitan er orðin svona gífur-
leg,“ sagði Kristján Ragnars-
son formaður LÍÚ við Alþýðu-
blaðiö inntur álits á ummæl-
um Halldórs Ásgrímssonar í
blaðinu á föstudag, um
ábyrgðarleysi sumra útvegs-
manna i ferskfiskútflutningi.
Sjávarútvegsráðherra boðar
hagsmunaaöila til fundar í
dag þar sem ræða á aðgerðir
til ’að stýra útflutningum. Sjá
fréttaskýringu á baksiðu.