Alþýðublaðið - 28.04.1988, Blaðsíða 1
Krítarkorta viðskiptin 1987:
17 MILUARDAR Í KORTIN
Úttektir með krítarkortum höfðu aukist um 70% frá árinu áður. Krítarkortaveltan um
10% af einkaneyslu landsmanna.
Á síðasta ári námu úttektir
meö kritarkortum 17 milljörð-
um króna sem er um 70%
hærra en árið þar á undan.
Þetta kemur fram í ársskýrslu
Seðlabankans fyrir árið 1987.
Fjárhæð krítarkortavið-
skiptanna skiptist þannig að
13,7 milljarðar eru vegna
notkunar innanlands, en 3,3
milljarðar króna eru úttektir
erlendis. Áætlað er að einka-
neysla landsmanna hafi
numið 165 milljörðum á sið-
asta ári og er krítarkortavelt-
an því um 10% af henni.
Er áætlað að nú séu um 90
þúsund korthafar á landinu.
Skv. heimildum blaðsins
hefur korthöfum fjölgað mjög
á síðustu mánuðum og velt-
an enn aukist á þessu ári. Er
talið réttmætt að áætla að
nú greiöi korthafar samtals
ríflega 90 milljónir króna með
plastkortunum á hverjuna
virkum degi.
Verslunarmenn:
MIÐLUNARTILLAGAN
KYNNTí DAG
Verslunarmannafélag
Reykjavikur kynnir í dag
miðlunartillögu sáttasemjara
fyrir félagsmönnum sínum.
Atkvæðagreiðslu um hana á
að vera lokið á laugardag.
Flugleiðir ætla að hefja milli-
landaflug í dag, en Verslunar-
mannafélag Suðurnesja telur
það verkfallsbrot.
Atkvæðagreiðsla hjá VR
um miölunartillögu sátta-
semjara verður i Verslunar-
skólanum á morgun og laug-
ardag, en atkvæðagreiðsl-
unni á að vera lokið fyrir
klukkan 18 á laugardag. í dag
kl. 15 verður félagið með
fund á Hótel Sögu, þar sem
félagsmönnum veröur kynnt
innihald miðlunartillögunnar.
Flugleiðir hafa ákveðið að
hefja millilandaflug frá og
með deginum í dag, og munu
stöðvarstjóri og aðstoðar-
stöðvarstjóri félagsins
annast innritun farþega. Hjá
Verslunarmannafélagi Suður-
nesja fengust þær upplýsing-
ar, að þetta væri ólöglegt, þar
sem viðkomandi menn
sinntu þessum störfum ekki
alla jafna. Ekki var búið að
ákveða hvernig brugðist yröi
við þessu, er Alþýðublaðiö
fregnaði síðast.
Á Akranesi kom til sam-
skipta við verslunina Skaga-
ver vegna meintra verkfalls-
brota. Barst verslunarmönn-
um liðsauki úr Borgarnesi og
Borgarfirði og fór svo að
versluninni var lokaó.
Hjá VR var mikið um að af-
skipti þyrfti að hafa af verk-
fallsbrotum, og fór allt vel
fram. Mikið var um að bif-
reiðavarahlutaverslanir gerð-
ust sekar um verkfallsbrot.
Meðal þeirra fyrirtækja sem
verkfallsverðir VR þurftu að
hafa afskipti af, var B.M.
Vallá, fyrirtæki Víglundar
Þorsteinssonar, eins af aðal- Með miðlunartillögu sinni tekur ríkissáttasemjari mikla áhættu i samningastööu VR og vinnuveitenda.
samningamönnum VSÍ. Atkvæöagreiðslu VR-félaga um tillöguna lýkur á laugardag kl. 18.
Viðskiptaráðuneytið:
OPNAD FYRIR ERLEND VERDDREF
Vœntanleg er auglysing um heimildir fyrir Islendinga til að kaupa örugg erlend verðbréf.
, Verður bundið við öruggustu bréfin s.s. ríkisskuldabréf OECD landanna,
viðskiptaráðherra.
segir
Að frumkvæði viðskipta-
ráðherra er nú i undirbúningi
í Seðlabankanum mótun
reglna og auglýsingar um
heimildir fyrir Islendinga til
að kaupa örugg erlend verð-
bréf. Að sögn Björns Tryggva-
sonar, aðstoðarbankastjóra,
hafa ýsmir aðilar haft þessar
reglur til athugunar undanfar-
iö en þeim var veittur frestur
til að skila inn athugasemd-
um fyrir lok þessa mánaöar.
Er búist við að auglýsing um
þessar rýmkuöu heimildir til
fjárfestinga i erlendum verð-
bréfum verði birt á næstunni.
Jón Sigurðsson viðskipta-
ráðherra segir að hér sé um
það að ræða að settar verði
almennar reglur um þessa
heimild sem þegar er til stað-
ar í gjaldeyrislöggjöfinni.
Taldi ráðherra líklegt að auk
sparifjáreigenda hefðu lífeyr-
issjóðirnir áhuga á að ávaxta
sitt fé í öruggum erlendum
verðbréfum. „Þetta verður
fyrst og fremst bundið við
öruggustu verðbréf s.s. ríkis-
skuldabréf OECD landanna
og ekki síður að íslendingar
geti sjálfir keypt þau skulda-
bréf sem íslenska ríkið gefur
út á alþjóðlegum markaöi í
erlendri mynt.“ Sagði ráð-
herra að málið væri enn á
vinnslustigi en væntanlega
yrði auglýsing um þessar
heimildir birt fyrr en síðar.
ÞORSKURINN AD HVERFA
Á BANDARÍKJAMARKAÐI?
„Reynslan mun leiða í Ijós hvort og að hve miklu leyti aðrar tegundir geta
komið í staðinn fyrir íslenskan gœðaþorsk. En að okkar mati er hann besti
kosturinn og vonandi verða viðskiptavinir sammála okkur um það, “ segir
Magnús Gústafsson forstjóri Coldwater Seafood í samtali við Alþýðublaðið.
Magnús segir ótvírœtt að dregið hafi úr þorskneyslu í Bandaríkjunum.
Sjá baksíðu.