Alþýðublaðið - 28.04.1988, Side 3
Fimmtudagur 28. apríl 1988
3
FRÉTTIR
Óskar Vigfússon formaður Sjómannasambandsins:
AÐGERÐIR FREKAR EN ATHUGANIR
Gengisfelling dugar skammt, ein og sér. Sjómenn með lausa samninga og œtla að reyna
„að hanga í lestinni“.
Óskar Vigfússon, fprmaöur
Sjómannasambands íslands,
segir að stjórnvöld geti ekki
lengi staöiö í „einhverjum
athugunum“ vegna stöðu
sjávarútvegsins. Málið er á
það aivarlegu stigi, segir
Óskar. Hann vili hins vegar
ekki fella neinn áfellisdóm
fyrr en séð verður í hvaða
formi aðgerðirnar verða. Þá
tekur hann undir þau sjónar-
mið að gengisfelling ein og
sér dugi skammt.
Öll félög Sjómannasam-
bands íslands hafa sagt upp
samningum. „Aó sjálfsögöu
er þetta gert með tilliti til
þess sem er aö gerast í þjóð-
félaginu í dag varðandi
almennar kauphækkanir. Við
ætlum ekki að sitja eftir í
þeim hildarleik. Það er alveg
klárt mál, enda hafa sjómenn
ekki fláð feitan gölt á þessari
vertíð. Við ætlum okkur því
að reyna hanga í lestinni,"
sagði Óskar Vigfússon.
Komið hefur fram að for-
svarsmenn fiskvinnslu og út-
gerðar krefjast einróma geng-
isfellingar. Óskar sagðist
taka undir þau sjónarmið að
gengisfelling ein og sér væri
ekki til neins. „Þaö er hins
vegar Ijóst, að eitthvað þarf
til að koma svo sjávarútveg-
inum sé gert kleift að standa
í útflutningi. Að öðru leyti tel
ég rétt að bíða og sjá hvað
rikisstjórnin vill gera í þess-
um efnum.“
Óskar sagðist ekki vilja
fella neinn áfellisdóm fyrr en
séð verði i hvaða formi
aðgerðirnar verða. „Mér
finnst hins vegar skondið, þó
komi ekki á óvart, að alltaf
virðast öll mál vera í athug-
un. Þetta er eiginlega að
verða dæmigert fyrir okkar
þjóðfélag. Mér segir nefni-
lega svo hugur að menn geti
ekki lengi staðið í einhverjum
athugunum. Ég er hræddur
um að málið sé á það alvar-
legu stigi hvað sjávárútveg-
inn varðar, að eitthvað verði
að gera, — og það fyrr en
síðar,“ sagði Óskar Vigfús-
son.
MEGA
HVORKI
LENDA NÉ
FLJÚGA
Utanrikisráðherra, Stein-
grimur Hermannsson, hefur
gefið fyrirmæli þess lútandi
að hvorki verði veitt lending-
arleyfi á íslandi fyrir flugvélar
er flytja geislavirk efni né
verði þeim heimilað að fljúga
um lofthelgi íslands.
Vegna frétta um fyrirhug-
aöa flutninga á geislavirku
plutóníum um norðlæg
svæði, frá Evrópu til Japan,
hefur Steingrímur Hermanns-
son, utanríkisráðherra, gefið
fyrirmæli um að hvorki verði
veitt lendingarleyfi á íslandi
fyrir flugvélar er hafa farm
sem slíkan innanborðs, né
verði þeim veitt heimild til að
fljúga um lofthelgi íslands.
Sykurmolar gera klárf fyrir tónleikana i Duus-húsi. F.v. Einar Örn, Bragi, Björk, Sindri og Einar Melax,
Erlendar skuldir ríkissjóðs:
HLUTUR DOLLARS MINNKANDI
Hlutur dollars í skuldum ríkissjóðs lœkkaði úr 58,6% í 38,8% á milli ára. Með skulda- og
vaxtaskiptum hefur tekist að létta vaxtabyrði ríkissjóðs verulega.
Hlutur dollars í erlendum -
skuldum ríkissjóðs lækkaði
úr 58.6% í árslok 1986 í
38.8% i lok siðasta árs. Þetta
kemur fram í ársskýrslu
Seðlabankans sem birt var á
aðalfundi bankans á þriðju-
dag. Þetta er í samræmi við
þá stefnu að lækka hluta
Bandarikjadollars i heildar-
skuld ríkissjóðs og að lækka
vaxtagreiðslur með þvi að
greiða upp óhagstæð lán,
semja á ný um önnur og nýta
möguleika á skulda- og
vaxtaskiptum.
Hlutur Bandaríkjanna og
mikilvægi dollars i viðskipt-
um þjóðarinnar hefur farið
stöðugjt minnkandi á síðustu
árum. Á árinu stóð Seðla-
bankinn að því aö stofnað var
til þrennra skulda- og vaxta-
skipta fyrir ríkissjóð. Skipt
var úr dollurum yfir í sviss-
neska franka og með svoköll-
uðum vaxtaskiptum við er-
lenda banka lækkaði vaxta-
byrði ríkissjóðs verulega.
í ræðu Jóhannesar Nordal
seðlabankastjóra kom fram
að miklll samdráttur hefur
orðið á skuldaaukningu opin-
berra aðila en á móti áhrifum
þeirrar aðhaldsstefnu, sem
þannig var fylgt í lántökum
opinberra aðila, komu hins
vegar stórauknar lántökur
einkaaðila og lánastofnana. í
heild varö þó lækkun á
skuldabyrði þjóðarbúsins
vegna langra erlendra lána í
40.8% af landsframleiðslu í
lok síðasta árs úr 47.2% árið
á undan.
Fjármögnunarleigurnar:
EFNAHAGURINN SEXFALDAÐIST
ÁRIÐ 1987
Leigusamningar upp á 4,2 milljarða króna. Nýju fjármálastarfseminni settar skýrari
starfsreglur.
Vöxtur fjármögnunarleigu
og verðbréfasjóða nam rúm-
um fjórðungi af útlánaaukn-
ingu bankanna á síðasta ári. I
lok síðasta árs höfðu fjár-
mögnunarleigufyrirtækin
gert leigusamninga upp á 4.2
milljarða króna samkvæmt
ársskýrslu Seðlabankans. Á
árinu sexfaldaðist efnahagur
þeirra fjögurra fjármögnunar-
leigufyrirtækja sem hér
starfa.
Með aögerðum viðskipta-
ráðuneytisins í september s.l.
tókst að draga úr svigrúmi
þessara fyrirtækja til erlendr-
ar lántöku. í lok ársins skipt-
ust leigusamningar I 1.3
milljarða í krónum og 2.8
milljarða I erlendri mynt.
Eins og greint var frá í Al-
þýðublaöinu í gær hefur Jón
Sigurðsson viðskiptaráðherra
kynnt ríkisstjórninni drög að
frumvarpi sem leggurverð-
bréfasjóðum og verðbréfa-
miðlun svipaðar skyldur á
herðar og nú gilda um inn-
lánsstofnanir. I ræðu sinni á
ársfundi Seölabankans tók
Jóhannes Nordal formaður
bankastjórnarinnar undir þá
nauðsyn að hinni nýju fjár-
málastarfssemi, sem nú fer
fram utan bankakerfisins,
verði settar skýrar starfsregl
ur og traust eftirlit haft með
starfsemi þessara sjóða og
fyrirtækja.
Sykurmolarnir og
heimsfrœgðin
„ÞETTA ER
ABSTRAKT
FYRIR
OKKUR"
segir Einar Örn
Benediktsson.
„Nei. Þetta eru bara tón-
leikar. Við höfum aldrei haft
trú á útgáfutónleikum. Okkur
finnst það asnalegt. Platan
kom út á mánudaginn og ef
við hefðum átt að hafa út-
gáfutónleika, þá hefðum við
þurft að spila samtimis i
Bandarikjunum, Þýskalandi,
Skandinaviu og Bretlandi.
Það hefði orðið svolítiö erfitt
að koma þvi við á mánudag-
inn,“ sagöi Einar Örn Bene-
diktsson söngvari i Sykur-
molum við Alþýðublaðið í
gær.
Sykurmolar héldu tónleika
í Duus-húsi i gærkvöldi og
halda aðra í kvöld. Það vekur
athygli að hljómsveitin spilar
á svo litlum stað í þann
mund sem hún er að brjótast
upp vinsældalista I útlönd-
um.
„Okkur langaði bara til að
spila á íslandi og ákváðum
að gera það því við getum
ekki spilað hér aftur fyrr en í
júní, júlí, ágúst," sagði Einar.
Um iielgina fer hljómsveit-
in til Bretlands, þar sem tón-
leikaferð hefst þann 1.. maí.
Síðan verður haldið til
Bandaríkjanna 22. maí, þar
sem tónleikar verða haldnir í
New York, Boston, Washing-
ton, San Fransisco og I Los
Angelis.
Eftir Bandaríkjaferð kemur
hljómsveitin heim í stutta
pásu og heldur síöan aftur til
Bretlands, til að leika á
styrktartónleikum fyrir
Amnesty International. „Með
fleiri stórum nöfnurrf. Þar á
eftir verða tónleikar I Osló,
Hróarskeldu, Kaupmanna-
höfn, Hamborg, Bochum,
Frankfurt, Sviss og Finn-
landi. „Síðan fáum við frí til
að æfa fyrir upptökur.“
Nýja lagið, Deus, er í fyrsta
sæti á óháða listanum í Bret-
landi, en í 51. á almenna list-
anum. „Plantan kom út á
mánudaginn og það er ekki
vitað hvað hún gerir á stóra
listanum. Þetta er bara
abstrakt hlutur fyrir okkur. Ef
við færum að hafa áhyggjur
af þessu þá gætum við ekki
vaknað á morgnana," sagöi
Einar Örn.