Alþýðublaðið - 28.04.1988, Síða 5
Fimmtudagur 28. apríl 1988
5
, SMÁFRÉTTIR
Skipulags-
breytingar hjá
Smjörlíki/Sól
h.l.
Að undanförnu hefurverið
unnið að endurskipulagningu
stjórnarskipulags hjá Smjör-
líki/Sól h.f. Til þessa verkefn-
is var m.a. fenginn danski
rekstrarráðgjafinn Gert Han-
sen, frá ráðgjafafyrirtækinu
Industri konsulent (IKO) og
hefur hann unnið að þessu
verkefni með starfsmönnum
fyrirtækisins.
Gert Hansen hefur áður
starfað að endurskipulagn-
ingu fyrirtækja hér á landi,
svo sem hjá Iðnaðarbankan-
um, Almennum tryggingum,
Rafmagnsveitu Reykjavíkur
og fleirum.
Markmið þessara breytinga
er að gera daglegan rekstur
markvissari og renna stoðum
undir nýja framtíðarstefnu
fyrirtækisins. Fyrsta áfanga
þessa verkefnis er nú lokið.
Starfsemi fyrirtækisins hefur
verið skipt í fjögur starfssvið
og hefur forstöðumaður verið
ráðinn að hverju þeirra.
Þessi starfssvið og helstu
verkefni þeirra eru:
Fjármálasvið: Fjármála-
stjórn, áætlanagerð, starfs-
mannahald.
Markaðssvið: Sölustjórn,
markaðssetning, dreifing,
auglýsingar, kynningar, vöru-
þróun.
Framleiðslusvið: Fram-
leiðslustjórn verksmiðja,
gæðaeftirlit, viðhald véla og
tækja.
Innkaupasvið: Innkaup
aðfanga, flutningar, birgða-
stýring.
Einar Kristinn Jónsson er
fjármálastjóri fyrirtækisins
frá 1. apríl s.l. Hann er við-
skiptafræðingur frá H.í. 1981
og rekstrarhagfræðingur
(MBA) frá IMEDE i Sviss
1987. Einar var sölu- og
markaðsstjóri hjá Pennanum
1981-1984, framkvæmdastjóri
SÁÁ 1984-1986 og hefur
undanfarið starfað að
markaðsverkefnum hjá Reyk-
vískri endurtryggingu h.f.
Áður hafði hann starfað með
námi hjá Arnarflugi og
Endurskoðun h.f. Einar er 30
ára, kvæntur Kristínu Einars-
dóttur og eiga þau 2 börn.
Alexander Björgvin Þóris-
son er sölu- og markaðsstjóri
fyrirtækisins frá 1. febrúar s.l.
Hann er viðskiptafræðingur
frá H.í. 1985 og rekstrarhag-
fræðingur (MBA) frá Uni-
versity of Central Florida í
Bandaríkjunum 1987 með
markaðsmál sem sérsvið.
Alexander starfaði áður hjá
Matstofu Miðfells og hjá fjár-
málaráðuneytinu, rikisbók-
/
MEÐ SKILVISI
HAGNAST ÞÚ
Það er þér í hag að greiða af lánum á réttum tíma og forðast óþarfa aukakostn-
að af dráttarvöxtum, svo ekki sé minnst á innheimtukostnað.
Þú hagnast á skilvísinni
því þú getur rtotað peningana þína
tilgagnlegri hluta, til dæmis í að:
málastofuna ú
fy rir sumarið
setja ný
blöndunartæki
á baðherbergið
leggja parket
áforstofuna.
Lán nieð lánskjaravísitölu.
Greiðslufrestur er til 15. maí. Þann 16. reiknast dráttarvextir.
Lán með byggingarvísitölu.
Greiðslufrestur er til 31. maí. Þann 1. júní reiknast dráttarvextir.
co
í
SPARAÐU ÞÉR ÓÞARFA ÚTGJÖLD AF DRÁTTARVÖXTUM 1
Greiðsluseðlar hafa verið sendir gjaldendum og greiðslur má inna af hendi í öll-
um bönkum og sparisjóðum landsins.
cpbHúsnæðisstofnun ríkisins
LAUGAVEGI 77 101 REYKJAVIK S: 69 69 00
haldi. Alexander er 28 ára.
Unnusta hans er Oddný Guð-
mundsdóttir, rekstrarhag-
fræðingur.
Jón Sch. Thorsteinsson er
framleiðslustjóri fyrirtækis-
ins frá 1. mars s.l. Hann er
stærðfræðingur frá H.í. 1987.
Jón starfaði áður hjá Félagi
íslenskra iðnrekenda við
tölvuráðgjöf og kerfishönnun
1983-1984, og hefur starfaö
Jón Sch. Thorsteinsson
hjá Smjörlíki/Sól h.f. síðan
1985 við ýmis störf. Hann er
stundakennari við H.l i hag-
nýtri stærðfræði. Jón er 25
ára. Unnusta hans er Ragn-
heiður Harðardóttir.
Gunnlaugur Þráinsson er
innkaupastjóri fyrirtækisins
frá 1. janúar s.l. Hann er við-
skiptafræðingur frá H.í. 1984
og var framkvæmdastjóri
Stjórnsýslusviðs hjá Alafossi
h.f. 1984-1987. Gunnlaugur er
27 ára. Unnusta hans er Sig-
ríður Einarsdóttir.
Gunnlaugur Þráinsson
Einar K. Jónsson
Alexander B. Þórisson